Fleiri fréttir Umferðatafir við Borgarfjarðarbrú Umferðartafir verða við Borgarfjarðarbrú við Borgarnes aðfaranótt 12 júlí milli klukkan 01:00 og 03:00. 11.7.2006 10:00 Afli skipa minnkar milli ára Á árinu 2005 var afli íslenskra skipa tæp 1.669 þúsund tonn sem er 59.000 tonnum minni afli en árið 2004. 11.7.2006 09:39 Kaupendur skila lóðum sínum við Úlfarsfell Kaupendur níu lóða af þeim hundrað og fjórum, sem boðnar voru út við Úlfarsfell í Reykjavík í febrúar, hafa skilað lóðunum aftur. 11.7.2006 09:00 Fimm teknir fyrir ölvunarakstur Nóttin var frekar róleg hjá Lögreglunni í Reykjavík. Þó voru fimm teknir fyrir ölvunarakstur á síðastliðnum sólarhring og eins komu upp fjögur minniháttar fíkniefnamál. 11.7.2006 09:00 Gengu út eftir ræðu Dagnýjar Fulltrúar Bandaríkjanna á ársfundi þings Öryggis- og samvinnustofnunar Evrópu gengu á dyr eftir ræðu Dagnýjar Jónsdóttur, þingmanns Framsóknarflokksins. 11.7.2006 08:00 Þjóðverjinn fundinn Þýskur ferðamaður, sem lögregla lýsti eftir í gærkvöldi, fannst heill á húfi í tjaldi í Laugadalnum. Síðast var vitað um hann á Akureyri og ætlaði hann yfir Kjöl, en lét síðan ekkert vita af ferðum sínum. Því var farið að leita að honum. 11.7.2006 07:53 Alliance hús verði ekki rifið Svokallað Alliance hús sem stendur á Ellingsen reitnum við Mýrargötu, á að rífa ásamt öðrum húsum sem þar standa samkvæmt deiliskipulagi. Þar á að rísa sjö hæða íbúðablokk en Húsafriðunarnefnd leggst gegn niðurrifi hússins. 11.7.2006 07:45 Fleiri innbrot í stærri eignir Af innbrotum í íbúðahúsnæði er algengast að brotist sé inn í einbýlis- og raðhús að sögn Árna Vigfússonar, aðstoðaryfirlögregluþjóns í Reykjavík. Lögreglan brýnir fyrir fólki að ganga vel frá heimili sínu áður en haldið er í ferðalag. Innbrotsþjófar eru á ferðinni allan ársins hring, en eiga sérstaklega auðvelt með að athafna sig þegar fjölskyldur landsins eru að heiman í sumarfríum. 11.7.2006 07:30 Hækkun íbúðaverðs eykur greiðslubyrði Verðhækkun fasteigna síðustu misseri hefur leitt til meiri hækkunar á greiðslubyrði íbúðalána en vaxtahækkanir. Hagfræðingur segir eðlilegt að fasteignaverð fari lækkandi eftir verðhækkunina síðustu misseri. 11.7.2006 07:30 Fíkniefni gerð upptæk Talsvert af fíkniefnum fanst í bíl, sem lögreglan á Selfossi stöðvaði á Hellsiheiði í nótt. 11.7.2006 07:30 Fóru í gegnum varnargirðingu Lögreglunni í Bolungarvík var tilkynnt um töluvert grjóthrun úr Óshlíðinni um eittleytið í fyrrinótt. 11.7.2006 07:15 Rútukaup verða áfram niðurgreidd Framlengja á heimild til endurgreiðslu 2/3 hluta virðisaukaskatts af nýjum innfluttum hópbifreiðum. Starfshópur samgönguráðherra, sem fjallaði um rekstrarumhverfi hópbifreiða, komst að þeirri niðurstöðu, en að öllu óbreyttu rennur heimildin út um næstu áramót. 11.7.2006 07:15 Fiskibátur á reki út af Reykjanesi Björgunarskipið Oddur V. Gíslason frá Grenivík er nú komið að litlum fiskibáti, með tvo menn um borð, sem er á reki djúpt út af Reykjanesi. 11.7.2006 07:01 Annir í embætti Öfugt við svo marga sem nú eru í sumarleyfum frá vinnu og liggja með tærnar upp í loft þeysist Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, á milli landa og landshluta í opinberum erindagjörðum. 11.7.2006 07:00 Réttarstaða sumarhúsaeigenda slæm Nýir landeigendur í Borgarfirði krefja sumarhúsaeigendur til áratuga um fjórfalt hærri leigu í nýjum leigusamningi. Leigjendunum býðst að kaupa lóðina á milljónir. Talsmaður sumarhúsaeigenda segir lagabreytinga þörf. 11.7.2006 07:00 Hagvöxtur og mörg ný störf Heimsmeistaramótið í knattspyrnu hefur aukið hagvöxt í Þýskalandi um 0,3 prósent og hafa meira en fimmtíu þúsund ný störf orðið til vegna mótsins. Búist er við að um helmingur þeirra verði áfram til staðar eftir að mótinu lýkur. Því lauk í fyrradag með sigri Ítala á Frökkum. 11.7.2006 07:00 Ástand stúlkunnar óbreytt Ástand stúlkunnar sem slasaðist alvarlega í bílslysi við Varmahlíð í byrjun mánaðarins er óbreytt, að sögn vakthafandi læknis á gjörgæsludeild Landspítalans. Hún er enn í öndunarvél en ástand hennar er stöðugt. 11.7.2006 07:00 Nýtt upphaf hjá flokknum Jónína Bjartmarz umhverfisráðherra tilkynnti í gær að hún gæfi kost á sér í kjöri til varaformanns Framsóknarflokksins á komandi flokksþingi. 11.7.2006 07:00 Sjóræningjar fá sínu framgengt Koma svokallaðra sjóræningjatogara til veiða á úthafskarfa, rétt utan við íslensku efnahagslögsöguna suðvestur af Reykjanesi, er árviss viðburður. Íslensk stjórnvöld reyna að stemma stigu við veiðum þeirra en samstaða þeirra þjóða sem hagsmuna hafa að gæta mætti vera meiri. 11.7.2006 07:00 Hættulegri en síkópat með öxi 11.7.2006 06:45
Sjá næstu 50 fréttir
Umferðatafir við Borgarfjarðarbrú Umferðartafir verða við Borgarfjarðarbrú við Borgarnes aðfaranótt 12 júlí milli klukkan 01:00 og 03:00. 11.7.2006 10:00
Afli skipa minnkar milli ára Á árinu 2005 var afli íslenskra skipa tæp 1.669 þúsund tonn sem er 59.000 tonnum minni afli en árið 2004. 11.7.2006 09:39
Kaupendur skila lóðum sínum við Úlfarsfell Kaupendur níu lóða af þeim hundrað og fjórum, sem boðnar voru út við Úlfarsfell í Reykjavík í febrúar, hafa skilað lóðunum aftur. 11.7.2006 09:00
Fimm teknir fyrir ölvunarakstur Nóttin var frekar róleg hjá Lögreglunni í Reykjavík. Þó voru fimm teknir fyrir ölvunarakstur á síðastliðnum sólarhring og eins komu upp fjögur minniháttar fíkniefnamál. 11.7.2006 09:00
Gengu út eftir ræðu Dagnýjar Fulltrúar Bandaríkjanna á ársfundi þings Öryggis- og samvinnustofnunar Evrópu gengu á dyr eftir ræðu Dagnýjar Jónsdóttur, þingmanns Framsóknarflokksins. 11.7.2006 08:00
Þjóðverjinn fundinn Þýskur ferðamaður, sem lögregla lýsti eftir í gærkvöldi, fannst heill á húfi í tjaldi í Laugadalnum. Síðast var vitað um hann á Akureyri og ætlaði hann yfir Kjöl, en lét síðan ekkert vita af ferðum sínum. Því var farið að leita að honum. 11.7.2006 07:53
Alliance hús verði ekki rifið Svokallað Alliance hús sem stendur á Ellingsen reitnum við Mýrargötu, á að rífa ásamt öðrum húsum sem þar standa samkvæmt deiliskipulagi. Þar á að rísa sjö hæða íbúðablokk en Húsafriðunarnefnd leggst gegn niðurrifi hússins. 11.7.2006 07:45
Fleiri innbrot í stærri eignir Af innbrotum í íbúðahúsnæði er algengast að brotist sé inn í einbýlis- og raðhús að sögn Árna Vigfússonar, aðstoðaryfirlögregluþjóns í Reykjavík. Lögreglan brýnir fyrir fólki að ganga vel frá heimili sínu áður en haldið er í ferðalag. Innbrotsþjófar eru á ferðinni allan ársins hring, en eiga sérstaklega auðvelt með að athafna sig þegar fjölskyldur landsins eru að heiman í sumarfríum. 11.7.2006 07:30
Hækkun íbúðaverðs eykur greiðslubyrði Verðhækkun fasteigna síðustu misseri hefur leitt til meiri hækkunar á greiðslubyrði íbúðalána en vaxtahækkanir. Hagfræðingur segir eðlilegt að fasteignaverð fari lækkandi eftir verðhækkunina síðustu misseri. 11.7.2006 07:30
Fíkniefni gerð upptæk Talsvert af fíkniefnum fanst í bíl, sem lögreglan á Selfossi stöðvaði á Hellsiheiði í nótt. 11.7.2006 07:30
Fóru í gegnum varnargirðingu Lögreglunni í Bolungarvík var tilkynnt um töluvert grjóthrun úr Óshlíðinni um eittleytið í fyrrinótt. 11.7.2006 07:15
Rútukaup verða áfram niðurgreidd Framlengja á heimild til endurgreiðslu 2/3 hluta virðisaukaskatts af nýjum innfluttum hópbifreiðum. Starfshópur samgönguráðherra, sem fjallaði um rekstrarumhverfi hópbifreiða, komst að þeirri niðurstöðu, en að öllu óbreyttu rennur heimildin út um næstu áramót. 11.7.2006 07:15
Fiskibátur á reki út af Reykjanesi Björgunarskipið Oddur V. Gíslason frá Grenivík er nú komið að litlum fiskibáti, með tvo menn um borð, sem er á reki djúpt út af Reykjanesi. 11.7.2006 07:01
Annir í embætti Öfugt við svo marga sem nú eru í sumarleyfum frá vinnu og liggja með tærnar upp í loft þeysist Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, á milli landa og landshluta í opinberum erindagjörðum. 11.7.2006 07:00
Réttarstaða sumarhúsaeigenda slæm Nýir landeigendur í Borgarfirði krefja sumarhúsaeigendur til áratuga um fjórfalt hærri leigu í nýjum leigusamningi. Leigjendunum býðst að kaupa lóðina á milljónir. Talsmaður sumarhúsaeigenda segir lagabreytinga þörf. 11.7.2006 07:00
Hagvöxtur og mörg ný störf Heimsmeistaramótið í knattspyrnu hefur aukið hagvöxt í Þýskalandi um 0,3 prósent og hafa meira en fimmtíu þúsund ný störf orðið til vegna mótsins. Búist er við að um helmingur þeirra verði áfram til staðar eftir að mótinu lýkur. Því lauk í fyrradag með sigri Ítala á Frökkum. 11.7.2006 07:00
Ástand stúlkunnar óbreytt Ástand stúlkunnar sem slasaðist alvarlega í bílslysi við Varmahlíð í byrjun mánaðarins er óbreytt, að sögn vakthafandi læknis á gjörgæsludeild Landspítalans. Hún er enn í öndunarvél en ástand hennar er stöðugt. 11.7.2006 07:00
Nýtt upphaf hjá flokknum Jónína Bjartmarz umhverfisráðherra tilkynnti í gær að hún gæfi kost á sér í kjöri til varaformanns Framsóknarflokksins á komandi flokksþingi. 11.7.2006 07:00
Sjóræningjar fá sínu framgengt Koma svokallaðra sjóræningjatogara til veiða á úthafskarfa, rétt utan við íslensku efnahagslögsöguna suðvestur af Reykjanesi, er árviss viðburður. Íslensk stjórnvöld reyna að stemma stigu við veiðum þeirra en samstaða þeirra þjóða sem hagsmuna hafa að gæta mætti vera meiri. 11.7.2006 07:00
Undirbúa vímuefnaverkefni Félag fanga á Litla-Hrauni, AFSTAÐA, ætlar að beita sér enn meira en áður í baráttunni við fíkniefnanotkun. Þeir hafa staðið að undirbúningi vímuefnaverkefnis sem áætlað er að hrinda í framkvæmd í haust. Þetta kemur fram í nýjasta tölublaði Tímamóta, fréttablaði fanga á Litla-Hrauni. 11.7.2006 06:45
Einn tognaði í baki eftir veltu Maður á þrítugsaldri tognaði í baki eftir að bifreið sem hann var farþegi í valt í Þrengslunum á leið til Þorlákshafnar aðfaranótt laugardags. 11.7.2006 06:45
Yfirheyrslur standa enn yfir Yfirheyrslur og rannsókn standa enn yfir hjá efnahagsbrotadeild Ríkislögreglustjórans en gæsluvarðhald yfir tveimur, sem grunaðir eru um fjár- og bótasvik hjá Tryggingastofnun, rennur út síðdegis á morgun. 11.7.2006 06:45
Sent utan til endurvinnslu Sæmundur Sverrisson er framkvæmdastjóri fyrirtækisins Gagnaeyðing sem sérhæfir sig í að eyða gögnum og trúnaðarupplýsingum. 11.7.2006 06:45
Afborganir hækkað um meira en helming Mánaðarleg afborgun af þriggja herbergja íbúð í Reykjavík hefur hækkað um meira en helming á aðeins einu og hálfu ári. 10.7.2006 23:07
Segir nauðsynlegt að grípa til aðgerða Þrettán Pólverjar búa við nöturlegar aðstæður á svokölluðu gistiheimili í Hafnarfirði. Vinnuveitandi mannanna lét siga lögreglu á fréttamann sem kom til að taka myndir. Ágúst Ólafur Ágústsson varaformaður Samfylkingarinnar fylgdi fréttamanni á staðinn og segir hann nauðsynlegt að grípa til aðgerða í málum sem þessum. 10.7.2006 23:00
Kaupahéðnar kaupa jarðir undir sumarhús Fjársterkir kaupahéðnar hafa að undanförnu keypt jarðir, þar sem bændur hafa leigt fólki skika undir sumarhús á hóflegu verði. Í kjölfarið er leigan margfölduð eða sumarhúsaeigendum boðinn skikinn til sölu á uppsprengdu verði. 10.7.2006 22:48
Sýrlendingar mótmæla árásum Ísraelshers Mikil reiði ríkir í Arabalöndum vegna árása Ísraelshers í Palestínu. Þúsundir manna mótmæltu í höfuðborg Sýrlands í dag til að sýna samstöðu með Palestínumönnum. 10.7.2006 22:26
Þýski ferðamaðurinn heill á húfi Þýski ferðamaðurinn sem lýst var eftir fyrr í kvöld er fundinn. Hann var kominn á tjaldstæðið í Laugardal heill á húfi. 10.7.2006 22:13
Ríkisútvarpið og Gott fólk stefnir 365 fjölmiðlum Ríkisútvarpið hefur stefnt 365 fjölmiðlum og auglýsingastofunni Góðu fólki, fyrir meinta ólöglega notkun á auglýsingu. Í auglýsingunni var látið að því liggja að vinsælir dagskrárliðir, sem RÚV auglýsti, hefðu runnið sitt skeið og yrðu aldrei aftur á dagskrá. Í lok febrúar birtist í Fréttablaðinu auglýsing undir fyrirsögninni : Fullt Hús takk fyrir" og var þar verið að vísa til þess að tíu vinsælustu dagskrárliðirnir í síðustu fjölmiðlakönnun væru allir á dagskrá Ríkissjónvarpsins. Þremur dögum síðar birtist auglýsing í Fréttablaðinu frá Stöð tvö, undir fyirsögninni: "Það er ekki nóg að vera vinsæll í viku." Í auglýsingunni var notast við auglýsingu Ríkissjónvarpsins í smækkaðri mynd og orðið búið sett yfir sjö dagskrárliði, með tilvísun til þess að þeir væru ekki lengur á dagskrá. Í annarri auglýsingu í sama blaði var tekið fram að, að sjálfsögðu myndi Stöð 2 sýna tíu vinsælustu þættina sína áfram. Þetta fór fyrir brjóstið á Ríkisútvarpinu og hönnuði auglýsingarinnar, sem hafa stefnt 365 fjölmiðlum og auglýsingastofunni Góðu fólki fyrir héraðsdóm vegna málsins. Krafist er 960 þúsund króna í skaðabætur fyrir Ríkisútvarpið og tveggja milljóna króna í bætur til auglýsingahönnuðarins. 10.7.2006 22:02
Nýtt hús fyrir eldri borgara Í dag klukkan þrjú, tók Soffía Lárusdóttir, forseti bæjarstjórnar Fljótsdalshéraðs, fyrstu skóflustungu að nýju húsi fyrir eldri borgara. Í húsinu, sem verður fimm hæðir, verða 18 íbúðir og áætlað að þær verði tilbúnar næsta sumar. 10.7.2006 20:30
Öllum öryggisreglum fylgt Forseti Félags íslenskra akstursíþróttamanna segir öllum öryggisreglum hafa verið framfylgt í Íslandsmótinu í rallý um helgina þar sem fjórir menn slösuðust. Slysin eru með þeim alvarlegustu sem orðið hafa í sögu rallaksturs hér á landi. 10.7.2006 20:26
Nauðsynlegt að grípa til aðgerða í húsnæðismálum erlends verkafólks Þrettán Pólverjar búa við nöturlegar aðstæður á svokölluðu gistiheimili í Hafnarfirði. Vinnuveitandi mannanna lét siga lögreglu á fréttamann sem kom til að taka myndir. Ágúst Ólafur Ágústsson varaformaður Samfylkingarinnar fylgdi fréttamanni á staðinn og segir hann nauðsynlegt að grípa til aðgerða í málum sem þessum. 10.7.2006 20:11
Safngripum fleygt úr Ellingsen húsinu Tímaritum, bókum og blöðum var mokað út úr gamla Ellingsen húsinu við Grandagarð í dag. Mörg ritanna voru meira en hundrað ára gömul og voru í eigu landskunnra einstaklinga. Það var unnandi hins ritaða orðs sem hringdi á fréttastofu NFS með þær fréttir að verið væri að fleygja safngripum. 10.7.2006 20:01
Jónína Bjartmarz gefur kost á sér sem varaformaður Jónína Bjartmarz, alþingismaður og umhverfisráðherra, hefur ákveðið að gefa kost á sér í kjöri til varaformanns Framsóknarflokksins á komandi flokksþingi í ágúst. Með framboði sínu sem varaformaður hyggst Jónína beita sér fyrir nýrri sókn framsóknarmanna, aukinni þátttöku og áhrifum kvenna í Framsóknarflokknum og auknum samhug og samvinnu flokksmanna. Telur Jónína að það leiði til sterkari stöðu flokksins og öflugs sigurs Framsóknarflokksins í næstu alþingiskosningum. 10.7.2006 19:48
Heiðar Jóhannsson borinn til grafar Fjölmennt lið lögreglu mun aðstoða við umferðarstjórnun til að greiða fyrir líkfylgd Heiðars Jóhannssonar bifhjólamanns frá Akureyri. Hann verður jarðsunginn frá Glerárkirkju á morgun. 10.7.2006 19:34
Sálfræðifélagið vill álit dómstóla Sálfræðifélag Íslands vill að dómstólar skeri úr um hvort heilbrigiðsráðuneytinu beri að niðurgreiða sálfræðiþjónstu. Framkvæmdastjóri Geðhjálpar segir málið komið í hringavitleysu á meðan hundruð bíða geðþjónustu 10.7.2006 18:45
Fyrstu kerin að komast í gagnið Fyrstu kerin í kerskála þrjú í Álverinu í Straumsvík verða tekin í notkun um eða eftir næstu helgi en engin framleiðsla hefur verið í kerskálanum eftir alvarlega bilun sem varð í júní. Stefnt er að því að fjörutíu ker af 160 verði komin í notkun fyrir verslunarmannahelgi. 10.7.2006 18:45
Leitað að þýskum ferðamanni Lögreglan í Reykjavík óskar eftir upplýsingum um ferðir Andreas Mohr, þýsks ferðamanns sem ekkert hefur spurst til síðan á föstudag en þá var hann staddur á Akureyri. Fjölskylda mannsins segir hann hafa ætlað að ferðast á puttanum til Reykjavíkur um Kjalveg. Andreas er 33 ára með ljósrautt hár og blá augu, grannur og um 182 sentimetrar. Þeir sem vita um ferðir mannsins eru vinsamlegast beðnir um að hafa samband við lögreglu. 10.7.2006 18:37
Breytingar á yfirstjórn Excel Airways Group Steven Tomlinson rekstrarstjóri og Paul Roberts fjármálastjóri Excel Airways Group, dótturfélags Avion Group, hafa sagt upp störfum. Halldór Sigurðarson tekur við sem fjármálastjóri og Davíð Örn Halldórsson hefur störf sem yfirmaður nýstofnaðrar upplýsingatæknideildar félagsins. 10.7.2006 18:12
Sálfræðingafélag Íslands fer í mál Stjórn Sálfræðingafélags Íslands hefur ákveðið að fara í mál vegna úrskurðar áfrýjunarnefndar samkeppnismála frá í janúar sl. Áfrýjunarnefndin felldi úr gildi úrskurð Samkeppniseftirlitsins þess efnis að heilbrigðis og tryggingamálaráðuneytinu bæri að semja við sálfræðinga um niðurgreiðslu hins opinbera á sálfræðiviðtölum. 10.7.2006 17:40
Dregið hefur úr jarðskjálftavirkni á Reykjanesi Dregið hefur úr jarðskjálftavirkni á Reykjanesi. Alls hafa mælst um 60 skjálftar í hrinunni sem hófst í nótt og mældust sterkustu skjálftaarnir 2,5 og 2,7 á Richter. 10.7.2006 17:23
Lítið eftirlit á gamla lagersvæði Olís Lítið sem ekkert eftirlit er á gamla lagersvæði Olís við Köllunarklettsveg. Undafarnar tvær vikur hafa spilliefni verið geymd þar á planinu vegna flutninga lagersins. Verið er að rýma gamla lagerinn en til stendur að afhenda Faxaflóahöfnum lóðina innan skamms. 10.7.2006 17:09
Vextir af íbúðalánum hækka Mánaðarleg afborgun af þriggja herbergja íbúð í Reykjavík var meira en helmingi hærri í maí síðastliðnum en fyrir tæpum tveimur árum. Þar ræður almenn hækkun fasteignaverðs mestu. Vextir á íbúðalánum hafa farið hækkandi að undanförnu og eru nú lægstir 4,95 prósent. Þegar samkeppni bankanna á fasteignamarkaðnum hófst hins vegar fyrir tæpum tveimur árum voru vextirnir lægstir 4,15 prósent. 10.7.2006 17:02
7.5 milljónir til Austur-Tímor Utanríkisráðherra veitir 7.5 milljónum króna til stuðnings við hjálparstarf Matvælaáætlunar Sameinuðu Þjóðanna á Austur-Tímor. Ástandið í landinu hefur versnað vegna vaxandi ólgu undanfarnar vikur og hafa tugir þúsunda manna þurft að yfirgefa heimili sín. Einnig verður 6,2 milljónum króna veitt til stuðnings hjálparstarfs Rauða hálfmánans í Palestínu. 10.7.2006 16:46