Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Yngsta áhöfnin vann Fyrsta skútan í siglingarkeppninni „Skippers d'Islande“ kom í höfn klukkan hálf átta í morgun. Skipstjórinn var yngsti þátttakandi keppninnar, hin 25 ára gamla Servane Escoffier frá Frakklandi. 30.6.2006 22:23
Komu ferðamönnum til aðstoðar Björgunarsveitarmenn í Landsbjörgu sem hleyptu af stokki nýju slysavarnaverkefni á hálendinu í dag þurftu ekki að bíða lengi eftir fyrsta viðfangsefninu því þeir komu útlendum ferðamönnum til aðstoðar í kvöld. 30.6.2006 22:13
Hreyfli veitt undanþága fyrir samræmda gjaldskrá Leigubílastöðin Hreyfill hefur fengið leyfi hjá Samkeppniseftirlitinu til að hafa samræmda gjaldskrá fyrir bíla sína eftir að hámarksökutaxti leigubifreiða verður afnuminn á morgun. 30.6.2006 21:30
Níu mánaða fangelsi fyrir ítrekuð brot Karlmaður var í dag dæmdur í níu mánaða fangelsi fyrir umferðarlagabrot, fíkniefnabrot og þjófnað í Héraðsdómi Suðurlands. 30.6.2006 21:15
Nærri 4,8 milljarða tap á 2. ársfjórðungi hjá Avion Nærri 4,8 milljarða króna tap varð af rekstri Avion Group á öðrum ársfjórðungi fyrirtækisins, sem miðast við 1. febrúar til 30. apríl. Fram kemur í tilkynningu til Kauphallarinnar að tapið megi að miklu leyti rekja til gengistaps af erlendum skuldum. 30.6.2006 21:00
Risaútsala á eignum varnarliðsins í hálft ár Risaútsala á eigum varnarliðsins á Keflavíkurflugvelli hefst í gamla Blómavalshúsinu á morgun klukkan tíu. Þar geta áhugasamir keypt ýmsa eigulega muni, þar á meðal stóla úr offiseraklúbbnum og poppkornsvél úr Andrews Theater. 30.6.2006 20:45
Breytingar bitni á þeim sem minnst mega sín Breytingar á hámarkslánum og lánshlutfalli Íbúðalánasjóðs eiga eftir að koma verst við þá sem minnst mega sín, að mati Elnu Sigrúnar Sigurðardóttur hjá Ráðgjafarstofu um fjármál heimilanna. Hún segir að aðrar leiðir séu þó vandfundnar til að slá á þensluna á húsnæðismarkaði. 30.6.2006 20:15
Bréf Straums lækkuðu mest í dag Bréf Straums-Burðaráss lækkuðu mest allra bréfa í Kauphöllinni í dag. Lífeyrissjóður Verslunarmanna vill selja hlut sinn í bankanum. 30.6.2006 20:02
Vextir Íbúðalánasjóðs hækka upp í 4,95 prósent Íbúðalánasjóður hefur hækkað húsnæðisvexti sína um 0,10 prósent og eru þeir nú 4,95 prósent. Þetta er gert eftir útboð á íbúðabréfum sem haldið var í gær að því er kemur fram í tilkynningu frá Íbúðalánasjóði til Kauphallar Íslands. 30.6.2006 18:44
Skorað á stjórnvöld að hætta við niðurskurð á framkvæmdum Hreppsnefnd Vopnafjarðarhrepps skorar á stjórnvöld að hætta við áform sín um niðurskurð á þessum framkvæmdum á Norðausturlandi þar sem þensluáhrifa gætir ekki. 30.6.2006 18:18
Telja að hætta beri við Norðlingaölduveitu Þingflokkur Samfylkingarinnar telur að hætta beri við Norðlingaölduveitu í kjölfar úrskurðar Héraðsdóms Reykjavíkur um framkvæmdina. Þetta kemur fram í tilkynningu frá flokknum. 30.6.2006 17:33
31 hefur sagt upp vegna kjaradeilna BHM Þrjátíu og einn starfsmaður hjá Svæðisskrifstofum um málefni fatlaðra sagði upp störfum í dag vegna óánægju með hægagang í kjaraviðræðum BHM við ríkið. Þeir segja grunnlaun þroskaþjálfa getað hækkað um þrjátíu þúsund krónur með því að flytja sig yfir til sveitarfélaganna. 30.6.2006 17:18
Átak gegn mansali Jafnaðarmenn lögðu fram á þingi Norðurlandaráðs í Færeyjum í vikunni, tillögu þess efnis, að sameiginlegri áætlun gegn mansali yrði komið á fót. Árlega verða um 800.000 konur og börn fórnarlömb mansals í heiminum. 30.6.2006 17:01
Forseta Túnis afhent trúnaðarbréf Sendiherra Íslands í Túnis, Svavar Gestsson, afhenti forseta lýðveldisins Túnis, Zine El Abidine Ben Ali, trúnaðarbréf þann 29. júní s.l. Ræddi sendiherran við Túníska ráðamenn og var meðal annars rætt um undirbúning að framboði Íslands til Öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna og fríverslunarsamning Túnis og EFTA. 30.6.2006 16:08
Alþjóðleg leiklistarhátíð Döff-leikhúsa Á Akureyri er í uppsiglingu alþjóðleg leiklistarhátíð leikhúsa sem sérhæfa sig í leikhúsi fyrir heyrnarlausa, svo kölluð Döff-leikhús. Hátíðin sem haldin er í samvinnu við norræna menningarhátíð heyrnarlausra, ber nafnið Draumar 2006 og verður dagana 10.-16. júlí á sama tíma og Listasumar á Akureyri. 30.6.2006 15:58
Forseti Grikklands á leið til Íslands Forseti Grikklands, Karolos Papoulias og kona hans May Papoulis, munu koma í opinbera heimsókn til Íslands 5.-7. júlí næstkomandi í boði forseta Íslands. George W. Bush, Bandaríkaforseti, mun þá einnig vera á landinu, í opinberri heimsókn í boði Ólafs Ragnars Grímssonar en hann kemur til landsins 4. júlí. 30.6.2006 15:14
Rannsókn ekki lokið á klórgasslysinu Lögreglan á Eskifirði hefur ekki lokið rannsókn sinni á klórgasslysinu sem varð á Eskifirði á þriðjudag. Ekki er búist við að rannsókninni ljúki fyrr en eftir helgi. Um þrjátíu mans voru fluttir á sjúkrahús eftir að edeksýru var blandað saman við klór í tanki sundlaugarinnar á Eskifirði. 30.6.2006 14:57
Fellur úr gildi á miðnætti Samkeppniseftirlitið álítur að samkeppni geti þrifist á leigubílamarkaði. Verðlagning eigi ekki að vera verkefni stofnunarinnar. Leigubílstjórar eru þó ósáttir við afnám hámarksökutaxta sem tekur gildi á morgun. 30.6.2006 14:38
Íslandspóstur veitir launahækkun Félagsmenn Póstmannafélags Íslands munu frá og með 1. ágúst fá 15.000 kr. launahækkun. Íslandspóstur gaf út yfirlýsingu í dag þess efnis að laun allra starfsmanna sem taka laun samkvæmt launatöxtum í kjarasamningi Póstmannafélagsins og Íslandspósts muni hækka sem að þessu nemur. Íslandspóstur segist með þessari hækkun vera að framfylgja þeirri stefnu fyrirtækisins að hækka laun þeirra er lægst eru launaðir hjá fyrirtækinu. Fulltrúar Póstmannafélagsins voru að vonum ánægðir með þessa ákvörðun. 30.6.2006 14:24
Samfylkingin tapar miklu fylgi Samfylkingin tapar miklu fylgi og mælist með aðeins rúm tuttugu og fjögur prósent, samkvæmt nýrri könnun Fréttablaðsins, en Sjálfstæðisflokkurinn og minni flokkarnir vinna á. 30.6.2006 14:15
Eldur kviknar í spilhúsi Eldur kviknaði í svonefndu spilhúsi í Slippnum við Reykjavíkurhöfn á tíunda tímanum í morgun, en þar eru dráttarspil til að draga skip upp í slippinn. Slökkviliðið sendi liðsafla á vettvang þar sem málningargeymsla er skammt frá spilhúsinu, full af eldfimum efnum. Greiðlega gekk hinsvegar að slökkva eldinn í spilhúsinu og var hættan þar með úr sögunni. Eldsupptök eru ókunn. 30.6.2006 14:01
Fráskilin hjón dæmd fyrir ofbeldi hvort gegn öðru Héraðsdómur Reykjaness hefur dæmt fráskilin hjón í fimm og sex mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir ofbeldi hvort gegn öðru, karlinn fyrir að hafa gengið í skrokk á konunni og konuna fyrir að hafa stungið karlinn með hnífi. Við rannsókn málsins fundust hátt í 200 kannabisplöntur í fórum þeirra, 280 grömm af marijúana og fimm lítrar af kannabisblönduðum vökva. 30.6.2006 14:00
20 höfðu sagt upp á hádegi Fjöldi starfsmanna hjá Svæðisskrifstofum um málefni fatlaðra ætlar að segja upp störfum í dag vegna óánægju með hægagang í kjaraviðræðum BHM við ríkið. Starfsmenn Svæðisskrifstofu Reykjaness byrjuðu að skila inn uppsagnarbréfum klukkan 11 í morgun og höfðu um tuttugu manns sagt upp skömmu fyrir hádegi. 30.6.2006 12:41
Menntamálaráðherra skipar í stjórn Rannsóknasjóðs Menntamálaráðherra hefur skipað stjórn Rannsóknasjóðs, með Guðrúnu Nordal sem formann. Hlutverk sjóðsins er að styrkja vísindarannsóknir á Íslandi svo sem skilgreind rannsóknarverkefni einstaklinga, rannsóknarhópa, háskóla, rannsóknastofnanir og fyrirtæki. Stjórn Rannsóknasjóðs er heimilt, að tillögu vísindanefndar Vísinda- og tækniráðs, að veita viðurkenningar fyrir framúrskarandi árangur í vísindarannsóknum af ráðstöfunarfé Rannsóknasjóðs. Stjórn Rannsóknasjóðs fer einnig með stjórn Tækjasjóðs. 30.6.2006 12:32
Einum lið af 19 vísað frá Héraðsdómur Reykjavíkur vísaði í dag fyrsta ákærulið af 19 í Baugsmálinu frá dómi. Sá ákæruliður snýr að sölu Jóns Ásgeirs Jóhannessonar á Vöruveltunni til Baugs. Dómurinn hafnaði hins vegar kröfu verjenda um að vísa hinum átján ákæruliðunum frá dómi. 30.6.2006 12:20
Mikill lax slæðist í veiðarfæri á sjó úti Í nýlegri könnun IMG Gallup kemur fram að fjöldi laxa í sjó sem slæðast með í veiðarfæri sjómanna eru 3200 til 7000 laxar á vertíð. Gallup sendi út spurningar til sjómanna í landinu og niðurstaðan er mikið hærri fjöldi laxa en talið hafði verið. Þetta magn jafnast á við tvöfalda heildarveiði úr fengsælustu laxveiðiám landsins þegar sem best lætur. Þetta kemur fram á vef Skessuhornsins. 30.6.2006 12:07
Umræðufundur um þjónustuskipun ESB BSRB hefur boðað til umræðufundar, fimmtudaginn 6. júlí, um þjónustuskipun ESB, opnun vinnumarkaðarins og stöðu verkalýðshreyfingarinnar í Austur Evrópu. Gestir funarins eru forystumenn Alþjóðasamtaka starfsmanna í almannaþjónustu (PSI), þeir Alan Leather sem hefur verið ábyrgur fyrir málum heilbrigðisgeirans innan PSI og Jürgen Buxbaum, framkvæmdastjóri Evrópudeildar PSI. 30.6.2006 11:52
Þingmaður VG vill fund þingmanna Norðvesturkjördæmis Jón Bjarnason, þingmaður Vinstri grænna í Noðrvesturkjördæmi, hefur óskað eftir því að fyrsti þingmaður kjördæmisins, Sturla Böðvarsson samgönguráðherra, kalli saman þingmenn kjördæmisins og stjórnendur Vegagerðarinnar til að fjalla um niðurskurð á vegaframvæmdum í fjórðungnum. 30.6.2006 11:45
Nýr aðstoðamaður iðnaðar- og viðskiptaráðherra hefur verið ráðinn. Arnar Þór Sævarsson, héraðsdómslögmaður,hefur verið ráðinn aðstoðarmaður iðnaðar-og viðskiptaráðherra frá og með 1. júlí næst komandi. Arnar Þór er 34 ára og hefur áður starfað hjá Fjármálaeftirlitinu og þar á eftir Símanum. Hann er útskrifaður frá Háskóla Íslands árið 1999 en öðlaðist hérðasdómslögmannaréttindi árið 2000 og lauk prófi í verðbéfaviðskiptum árið 2001. 30.6.2006 11:16
Ísland tekur þátt í Feneyjar tvíæringnum Ísland mun í ár, í fyrsta sinn, taka þátt í Feneyja tvíæringnum um byggingarlist og borgarskipulag er haldin verður í Feneyjum 10. september til 19. nóvember. Framlag Íslendinga mun vera kynning á tónlistar- og ráðstefnuhúsinu við Austurhöfn í Reykjavík ásamt skipulagi og uppbyggingu í miðborginni. Hönnun hússins verður í brennidepli en ásamt því verður lögð áhersla á að kynna Reykjavík sem menningar og ráðstefnuborg. 30.6.2006 10:53
Markaðsdagur í Bolungarvík Hinn árlegi Markaðsdagur í Bolungarvík er á morgun, 1. júlí. Fjölbreytt dagskrá verður yfir daginn og fjölmargir sölubásar verða á staðnum. Skemmtuninni lýkur svo um kvöldið með stórdansleik. 30.6.2006 10:34
Jarðskjálfti upp á 2,5 á Richter Jarðskjálfti upp á 2,5 á Richter varð norðvestur af Grindavík laust fyrir klukkan fjögur í nótt. Ekki er vitað um neitt tjón af hans völdum, en fólk, sem var vakandi í Grindavík, fann hann greinilega. 30.6.2006 10:30
Fiskiskipi siglt á bryggjukantinn í Grindavíkurhöfn Engan sakaði þegar fiskiskipið Tjaldanes GK 525, sigldi fyrir nokkru afli á bryggjukant í Grindavíkurhöfn um sexleytið í gærkvöldi. 30.6.2006 10:15
Eldur í rafmagnstöflu á Mýrargötu Slökkviliðið var kallað út rétt eftir níu í morgun til að slökkva eld í Slippnum við Mýrargötu. Eldur hafði kviknað í rafmagnstöflu og gekk fljótt og greiðlega að slökkva eldinn og reykræsta. 30.6.2006 10:05
Hjón dæmd í fangelsi fyrir ofbeldi hvort gegn öðru Héraðsdómur Reykjaness hefur dæmt fyrrverandi hjón í fimm og sex mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir ofbeldi hvort gegn öðru. Karlinn fyrir að hafa gengið í skrokk á konunni, og konuna fyrir að hafa stungið karlinn með hnífi. 30.6.2006 09:45
356% verðmunur á grænmenti og ávöxtum milli búða Allt að 356% verðmunur reyndist á hæsta og lægsta verði á grænmeti og ávöxtum samkvæmt nýrri könnun verðlagseftirlits ASÍ. Alls voru 40 tegundir af grænmeti og ávöxtum kannaðar og var yfir 100% munur í 27 tilvikum. 30.6.2006 09:30
Actavis flytur hluta framleiðslu til Króatíu verði Pliva keypt Lyfjafyrirtækið Actavis fyrirhugar að flytja hluta framleiðslu sinnar til Króatíu þar sem framleiðsukostnaður er lágur, ef því tekst að kaupa króatíska lyfjafyrirtækið Pliva. Stjórn Pliva mælti á mánudag með því við hluthafa að ganga til samninga við bandaríkst fyrirtæki um sölu á Pliva í stað Actavis. 30.6.2006 09:00
Búist við fjölda uppsagna Búist er við að fjöldi starfsmanna hjá Svæðisskrifstofum um málefna fatlaðra muni segja upp störfum í dag, vegna óánægju með hægagang í kjaraviðræðum BHM við ríkið. Starfsmenn Svæðisskrifstofu Reykjaness ætla að skila inn uppsagnabréfum kl 11:00 og starfsmenn í Reykjavík kl 14:00. Búist er við að fleiri munu gera slíkt hið sama í kjölfarið. 30.6.2006 08:51
Fylgi Samfylkingarinnar aðeins um 24% Fylgi Samfylkingarinnar mælist aðeins rúm 24%, samkvæmt nýrri könnun Fréttablaðsins, en það er talsvert undir kjörfylgi í síðustu kosningum, og hið minnsta sem flokkurinn hefur mælst með í könnunum eftir kosningarnar. Sjálfstæðisflokkurinn bætir hinsvegar talsvert við sig frá kosningunum og mælist með rösk 42%. 30.6.2006 08:35
Aldursmerkingu á myndum og leikjum breytt Aldursmerkingar á kvikmyndum, sjónvarpsefni og tölvuleikjum taka breytingum nú um mánaðmótin þegar ný lög um eftirlit með aðgengi barna að þessu efni taka gildi. Framleiðendur og dreifendur munu þá sjálfir merkja efnið á viðeigandi hátt en Barnaverndarstofa sinnir eftirliti vegna þess. 30.6.2006 08:00
Félagsmenn BHM segja upp störfum Stjórnendur á sambýlum fyrir fatlaða afhenda uppsagnarbréf sín í dag og rennur uppsagnarfresturinn út ýmist eftir einn eða þrjá mánuði. Skelfilegt ástand getur skapast á sambýlunum ef ekki fást fagmenntaðir í staðinn. 30.6.2006 07:45
Gríðarlegur verðmunur Munur á hæsta og lægsta verði á grænmeti og ávöxtum í matvöruverslunum á höfuðborgarsvæðinu nemur allt að 365 prósentum, samkvæmt nýrri verðkönnun Alþýðusambands Íslands sem gerð var í vikunni. 30.6.2006 07:45
Fylgi Samfylkingar ekki minna frá kosningum Sjálfstæðisflokkurinn hefur 42,5 prósenta fylgi samkvæmt nýrri skoðanakönnun Fréttablaðsins en fylgi Samfylkingarinnar mælist nú 24,2 prósent. Vinstri græn hafa 14,8 prósenta fylgi og Frjálslyndi flokkurinn 6,2 30.6.2006 07:30
Úrskurður kveðinn upp í dag Arngrímur Ísberg, dómari í Baugsmálinu, kveður í dag upp úrskurð um það hvort endurákærum í Baugsmálinu verði vísað frá dómi eða ekki. Verjendur ákærðu í málinu, Jóns Ásgeirs Jóhannessonar, Tryggva Jónssonar og Jóns Geralds Sullenberger, kröfðust þess að endurákærum í málinu yrði vísað frá dómi vegna "ágalla og viðamikilla staðreyndavillna í ákæru," eins og Gestur Jónsson, lögmaður Jóns Ásgeirs, lét hafa eftir sér fyrir dómi. 30.6.2006 07:30
Segja upp 22 starfsmönnum Tuttugu og tveimur starfsmönnum Vátryggingafélags Íslands, VÍS, verður sagt upp störfum frá og með mánaðamótum vegna skipulagsbreytinga hjá fyrirtækinu. 30.6.2006 07:15