Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Danskir fjárfestar óttast um hag sinn Danskir fjárfestar, sem að undanförnu hafa veðjað á uppgang efnahagslífsins á Íslandi, óttast nú um hag sinn að sögn Jótlandspóstsins. Þeir hafa meðal annars gefið út svonefnd krónubréf fyrir röska sjö milljarða íslenskra króna og rekur blaðið dæmi um hvernig þau hafa nú þear rýrnað. 23.3.2006 13:00
Útilokar ekki flutning höfuðstöðva KB banka úr landi Sigurður Einarsson, stjórnarformaður KB banka, segist ekki útiloka þann möguleika að höfuðstöðvar bankans verði fluttar úr landi, þótt engin ákvörðun hafi verið tekin um það. 23.3.2006 12:45
Varnarliðið byrjað að taka niður varnarbúnað Formaður Rafiðnaðarsambandsins segist hafa fyrir því heimildir að varnarliðið sé byrjað að taka niður hluta af varnarbúnaðinum á Keflavíkurflugvelli, og að það kunni að lama mikilvæg öryggiskerfi á vellinum. 23.3.2006 12:30
20 prósent nefnda bara skipaðar körlum Ráðherrar hafa skipað nær 1.600 manns í nefndir síðan í nóvember 2004, að meðaltali um hundrað í hverjum mánuði. Fimmta hver nefnd er aðeins skipuð körlum. 23.3.2006 12:15
Samgönguáætlun endurskoðuð nú þegar Bæjarstjórn Hafnarfjarðar hvetur ríkisvaldið til að endurskoða nú þegar samgönguáætlun með það að markmiði að fjármagn til verkefna á höfuðborgarsvæðinu verði aukið til mikilla muna frá því sem nú er. Ályktun þessa efnis var samþykkt samhljóða í bæjarstjórn. 23.3.2006 12:00
Vilja húsnæðið fyrir félagsstarf aldraðra Bæjarráð Garðs samþykkti á fundi sínum í gær að óska eftir viðræðum við Sóknarnefnd Útskálakirkju um leigu eða kaup á húsnæðinu Sæborgu undir félagsstarf fyrir aldraða. Tillaga um slíkt kom frá fulltrúum F-lista, sem hafa meirihluta í bæjarstjórn, að því er Víkurfréttir greina frá. 23.3.2006 11:59
Heilsársvegur um Dettifoss Heilsársvegur verður lagður framhjá Dettifossi innan skamms. Vegurinn verður 50 km langur vestan Jökulsár á Fjöllum og mun kosta um einn milljarð króna. Fyrirhugað var að vegurinn yrði boðinn út í maí næstkomandi en nú hefur komið á daginn að fara þarf í gegnum sérstakt skipulagsferli vegna þess að svæðið er friðað. Þetta mun seinka fyrirætlunum eitthvað. Vegurinn mun liggja um Skútustaðahrepp í Suður-Þingeyjarsýslu og Kelduneshrepp í Norður-Þingeyjarsýslu. Samkvæmt frummatsskýrslu telst hann mikil bót í ferðaþjónustu en mikil sjónmengun hefur orðið af ryki frá núverandi malarvegi, sérstaklega í þjóðgarðinum í Jökulsárgljúfrum. Þá hefur aðeins verið fært um þessar slóðir hluta úr árinu. Árið 2000 var ársdagsumferð á núverandi vegi norðan Dettifoss 101 bíll á dag en sunnan Dettifoss 79 bílar á dag. Framkvæmdir eru háðar mati á umhverfisáhrifum en fyrstu athuganir benda til að umhverfisáhrif verði ekki veruleg. Þó má nefna að framkvæmdin hefur neikvæð áhrif á landnotkun, menningarminjar, gróður, fugla, jarðmyndanir og landslag. Markmið framkvæmdarinnar er að stuðla að farsælli þróun og vaxandi ferðamennsku á svæðinu. Styrkja byggðalög í Þingeyjarsýslum með bættu vegasambandi milli byggðakjarna. Þá mun nýr vegur bæta samgöngur og umferðaröryggi. Vegurinn verður byggður í þremur hlutum. Heildarkostnaður er um einn milljarður króna og er vegurinn kominn á sangönguáætlun. Vonast er til að hann verðir boðinn út í sumar eða haust og framkvæmdir hefjist skömmu seinna. 23.3.2006 11:30
Jóhannes í Bónus kallar Baugsmálið fjögurra ára apaspil Jóhannes Jónsson í Bónus mætti til skýrslutöku til Ríkislögreglustjóra í morgun, harðákveðinn í að tjá sig ekki við starfsmenn embættisins, og sagði Baugsmálið fjögurra ára apaspil. Tilefni skýrslutökunnar er athugun sérstaks ríkissaksóknara á þeim 32 ákæruliðum, sem Hæstiréttur vísaði frá dómi í október, og eftir á að ákveða hvort ákært verði í að nýju. 23.3.2006 11:20
Slökktu eld með snarræði Íbúar í húsi við Reynigrund í Kópavogi náðu með snarræði að slökkva eld sem gaus upp í uppþvottavél, áður en hann næði að breiða sig um húsið. Slökkvilið kom á vettvang og reykræsti húsið, en litlar skemmdir urðu af eldinum sjálfum. 23.3.2006 09:15
Ráðist á leigubílstjóra í nótt Ölvaður maður réðst á leigubílstjóra á Akureyri í nótt, en bílstjórinn slapp ómeiddur út úr ryskingunum og gerði lögreglu viðvart. Hún fann manninn á gangi skömmu síðar og vistaði hann í fangageymslum í nmótt. Ekki er vitað hvað honum gekk til með árásinni, því hann var búinn að borga bílinn þegar hann missti stjórn á skapi sínu. 23.3.2006 08:30
Bíll hafnaði ofan í fjöru Minnstu munaði að fólksbíll með fjórum mönnum í, hafnaði ofan í fjöru við Arnarneshamar á Súðavíkurvegi undir kvöld í gær, þegar ökumaður hans missti stjórn á honum. 23.3.2006 08:00
Danskir fjárfestar óttast um hag sinn Danskir fjárfestar, sem að undanförnu hafa veðjað á uppgang efnahagslífsins á Íslandi óttast nú um hag sinn, að sögn Jótlandspóstsins. 23.3.2006 07:45
Óttast að flest öryggiskerfi Keflavíkurflugvallar lamist Rafiðnaðarsambandið óttast að flest öryggiskerfi Keflavíkurflugvallar kunni að lamast við brotthvarf Varnarliðsins og bendir á að allt rafkerfið á Vellinum sé keyrt í gegn um spenna Varnarliðsins. 23.3.2006 07:15
Kjaranefnd ákvarði laun embættismanna Stjórnarfrumvarp til laga um kjararáð verður lagt fram á Alþingi á næstu dögum. Í því er gert ráð fyrir að Kjaradómi og Kjaranefnd verði steypt saman í fimm manna kjararáð og mun það ákveða laun forseta, ráðherra, þingmanna og dómara. Nefnd allra þingflokka sem ríkistjórnin skipaði 30. janúar síðast, til að fara yfir lög um Kjaradóm og kjaranefnd skilaði inn niðustöðum sínum í gærkvöldi. 22.3.2006 22:37
Skiptar skoðanir innan Samfylkingarinnar um flugvöll Skiptar skoðanir eru um það innan þingflokks Samfylkingarinnar hvort Reykjavíkurflugvöllur eigi að víkja úr Vatnsmýrinni, en skoðanirnar grundvallast þó ekki á því hvort um er að ræða landsbyggðarþingmenn eða þingmenn á höfuðborgarsvæðinu. Þetta kom fram umræðum um staðsetningu sjúkraflugvéla í fyrirspurnartíma á Alþingi í dag. 22.3.2006 22:30
Nígeríumenn í gæsluvarðhaldi vegna meintra fjársvika Tveir Nígeríumenn, búsettir á Spáni, sitja í gæsluvarðhaldi hér á landi eftir að þeir voru teknir með 100 þúsund evrur, jafnvirði hátt í níu milljóna króna, í fórum sínum á leið úr landi á föstudaginn var. 22.3.2006 22:15
Vill að Ísland lögfesti barnasáttmálann Ágúst Ólafur Ágústsson, varaformaður Samfylkingarinnar, vill að Ísland lögfesti barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna sem fullgiltur var árið 1992. Þetta myndi þýða umfangsmiklar lagabreytingar þar sem misræmi er á milli sáttmálans og íslenskra laga. 22.3.2006 22:13
Pólverji áfram í gæsluvarðhaldi fyrir austan Gæsluvarðhald yfir Pólverja, sem handtekinn var með fíkniefni á Seyðisfirði 7. mars síðastliðinn, hefur verið framlengt til 19. apríl. Þrjú kíló af hassi og nærri fimmtíu grömm af kókaíni fundust við tolleftirlit í bíl hans við komu Norrænu til Seyðifjarðar og var hann úrskurðaður í gæsluvarðhald til dagsins í dag. 22.3.2006 22:05
Umfjöllun um matvælaverð ósanngjörn Ekki er sanngjarnt að segja að matvöruverslanir hriði gengishagnað af neytendum eins og Blaðið hélt fram í umfjöllun sinni um matvælaverð nú fyrir skömmu. Þetta segja Félag íslenskra stórkaupmanna og Samtök verslunar og þjónustu í yfirlýsingu sem þau hafa sent frá sér. 22.3.2006 22:00
Samfylkingarmenn hlynntastir aðild að Evrópusambandinu Meirihluti Framsóknarmanna og Samfylkingarmanna vilja að Íslendingar taki upp aðildarviðræður við Evrópusambandið samkvæmt nýrri Gallup-könnun. Eins við greindum frá í fréttum okkar fyrr í dag þá eru tæplega fjörtíu og eitt prósent landsmanna hlynntir aðild að Evrópusambandinu. Þegar við skoðum hins vegar hvernig hlutfallið skitpist eftir því hvaða flokk fólk ætlar að kjósa kemur í ljós að Samfylkingarmenn eru hlynntastir aðild að sambandinu. 22.3.2006 21:10
Lyf og heilsa varast að selja karlmönnum daginn-eftir-pillu Lyf og heilsa hefur beint þeim tilmælum til starfsmanna sinna að þeir varist að selja svokallaða daginn-eftir-pillu til ungra karlmanna. Ástæðan er sú að stúlkur hafa verið beittar þrýstingi um kynmök án getnaðarvarna af því strákurinn lumi á pillunni. 22.3.2006 20:10
Dagsbrún er allsráðandi í fjölmiðlun á Íslandi segir Lýður Guðmundsson Aðalfundur Símans hf. var haldinn í dag á Nordica hótel og sagði Lýður Guðmundsson, Stjórnarmaður félagsins að Dagsbrún, móðurfélag 365 og Vodafone, sé nú allsráðandi í fjölmiðlun á Íslandi. 22.3.2006 19:42
Löggan ræðir við grunnskólabörn Foreldrar mörg hundruð reykvískra skólabarna hafa að undanförnu fengið bréf frá lögreglunni, með boði um viðtöl á lögreglustöðinni við Hverfisgötu. Þetta er liður í víðtæku forvarnarátaki, þar sem reynt er að kortleggja hvort og hvernig eiturlyf standa grunnskólabörnum til boða. 22.3.2006 19:17
Ungmenni fá hvorki matar- né kaffitíma Dæmi eru um að íslensk ungmenni vinni tíu til tólf klukkustunda vaktir í verslunum og stórmörkuðum, án lögbundinna matar- og kaffitíma. Tugir slíkra mála koma á borð VR á hverju ári. 22.3.2006 19:10
Alcoa ræður ferðinni Alcoa hefur ekki skilað matsskýrslu vegna fyrirhugaðs álvers í Reyðarfirði en fyrirtækið ætlaði að skila henni ekki síðar en í nóvember. Framkvæmdir við álverið halda ótruflaðar áfram. Skipulagsstjóri segir fyrirtækið ráða því hvenær það skili skýrslunni. 22.3.2006 19:01
2.600 manna hugbúnaðar-, fjölmiðlunar- og fjarskiptafyrirtæki í burðarliðnum Dagsbrún, sem á og rekur Og Vodafone og 365 miðla, hefur keypt meirihluta í Kögun, einu stærsta upplýsinga-tækni-fyrirtæki landsins, fyrir tæplega sjö og hálfan milljarð króna. Fyrir voru Bakkavararbræður ráðandi í Kögun, í gegnum fyrirtæki sín, Símann og Exista. Þeim verður gert yfirtökutilboð innan mánaðar. 22.3.2006 18:57
Þakklátur fyrir að vera lífi Tvítugur ökumaður, sem velti bíl sínum á Kringlumýrarbraut á sunnudag, er þakklátur fyrir að vera á lífi og segir slysið hafa kennt sér að nota bílbelti í framtíðinni.Hann missti stjórn á bíl sínum, þegar hann keyrði norður Kringlumýrarbraut og lenti á brúarstólpa göngubrúarinnar. 22.3.2006 18:56
Baugsmáli áfrýjað Settur ríkissaksóknari í Baugsmálinu áfrýjar sýknudómi Héraðsdóms Reykjavíkur frá því fyrir viku til Hæstaréttar. Þætti Jóhannesar Jónssonar í Bónus og Tryggva Jónssonar, fyrrverandi aðstoðarforstjóra Baugs, verður ekki áfrýjað. Jóhannes hefur falið verjanda sínum að kvarta til Umboðsmanns Alþingis yfir embættisfærslu Jóns H.B. Snorrasonar saksóknara og Haraldar Johannessens ríkislögreglustjóra. 22.3.2006 18:49
Harðar tekið á tölvubrotum Dómsmálaráðherra mælti í gær fyrir frumvarpi til breytingar á almennum hegningarlögum og lögum um meðferð opinberra mála til samræmingar við samning Evrópuráðsins um tölvubrot. 22.3.2006 17:35
Samstaða á þingi gegn forgangsgreiðslum Samhljómur var um það meðal þingflokka í utandagskrárumræðu á Alþingi í dag ekki skuli heimila efnameira fólki að kaupa sig fram fyrir á biðlistum í heilbrigðiskerfinu. Heilbrigðisráðherra tilkynnti við umræðurnar að til stæði að leggja fram frumvarp um ný heilbrigðislög nú á vorþingi. 22.3.2006 17:24
Framboðslisti Sjálfstæðisflokksins á Fljótsdalshéraði Á fundi fulltrúaráðs sjálfstæðisfélaganna á Fljótsdalshéraði sem haldinn var í gær þriðjudag var samþykktur framboðslisti Sjálfstæðisflokksins á Fljótsdalshéraði í komandi sveitarstjórnarkosningum. 22.3.2006 17:13
Vill stuðning við baráttu gegn tollum Einar K. Guðfinnsson sjávarútvegsráðherra hvatti breska hagsmunaaðila í sjávarútvegi í gær til að styðja Íslendinga í baráttunnin fyrir það að Evrópusambandið aflétti þeim tollum sem eru nú lagðir á íslenskar sjávarafurðir við innflutning til landa Evrópusambandsins. 22.3.2006 16:00
Áfrýjað í Baugsmálinu Sigurður Tómas Magnússon, settur saksóknari í Baugsmálinu, hefur ákveðið að áfrýja sýknudómi Héraðsdóms Reykjavíkur frá í síðustu viku. Hann áfrýjar sýknun í sex af átta ákæruliðum. 22.3.2006 15:52
Sjómenn í meiri lífshættu eftir brottflutning varnarliðsþyrlna Sjómenn verða í mun meiri lífshættu eftir að þyrlur varnarliðsins fara, ef ekki verður bætt úr þyrluflota Landhelgisgæslunnar. Þetta segir varaformaður Vélstjórafélags Íslands. 22.3.2006 15:38
Fagna flutningi starfa út á land Þingmenn úr öllum flokkum fögnuðu því á Alþingi í dag að starfsemi Fæðingarorlofssjóðs skuli flutt í Húnavatnssýslur. Þeir sögðu að með því væri stutt við atvinnulíf á landsbyggðinni. 22.3.2006 15:38
Rafgeymar splundruðust yfir all stórt svæði Ílát sem notað er til flutnings á notuðum rafgeymum valt af bíl frá Flytjanda í gærkvöldi. Við það splundruðust rafgeymar sem voru í ílátinu yfir all stórt svæði. Óhappið varð um klukkan sjö í gærkvöldi við rætur Öxnadalsheiðar. Hreinsunarstarf gekk vel en fimmtán manns frá Brunavörnum Skagafjarðar og Björgunarsveitinni í Varmahlíð stóðu að hreinsuninni fram undir miðnætti í gær. 22.3.2006 15:30
Dæmdur fyrir umferðarlagabrot Rúmlega þrítugur Selfyssingur var í dag dæmdur til tveggja mánaða skilorðsbundinnar fangelsisvistar fyrir fjársvik og umferðarlagabrot. 22.3.2006 15:20
Áreitti tvær ungar stúlkur Karlmaður var í dag dæmdur til tveggja mánaða skilorðsbundinnar fangelsisvistar fyrir að áreita tvær ungar stúlkur á heimili sínu í Kópavogi. Maðurinn hafði boðið stúlkunum heim til sín. Þar þótti sýnt að hann hefði kysst aðra stúlkuna á handlegg og háls og látið hina stúlkuna kyssa sig. 22.3.2006 15:10
Bílvelta nærri Varmahlíð Ökumaður velti bíl sínum rétt fyrir utan Varmahlíð um klukkan þrjú. Að sögn lögreglunnar á Sauðarkróki er lögreglan á staðnum en bílstjórinn virðist hafa misst stjórn á bílnum í hálku með fyrrgreindum afleiðingum. 22.3.2006 15:08
Flugmálastjórnir settar undir einn hatt Flugmálastjórn á Keflavíkurflugvelli verður lögð niður í núverandi mynd og starfsemi hennar flutt undir Flugmálastjórn Íslands. Samgönguráðherra segir hægt að ná fram mikilli hagræðingu með þessum hætti en segir þetta ekki þurfa að hafa mikil áhrif á það fólk sem þar vinnur. 22.3.2006 13:32
Fylgi við aðild Íslands að ESB minnkar Færri segjast hlynntir aðild Íslands að Evrópusambandinu en undanfarin ár, samkvæmt nýrri Gallup-könnun. Þeim sem vilja taka upp evruna fjölgar hins vegar töluvert frá síðustu könnun. 22.3.2006 13:00
Mátti ekki svara fyrir sig Forsetinn átti ekki að svara fyrir sig þegar Morgunblaðið gagnrýndi Mónakóferð forsetans á síðasta segir Þorsteinn Pálsson, fyrrverandi forsætisráðherra og ritstjóri Fréttablaðsins. Hann segir að með því hafi forsetinn farið gegn stjórnskipulegri stöðu sinni. 22.3.2006 12:45
Síminn selur líklega sinn hlut í Kögun Skoðun, dótturfélag Dagsbrúnar, hefur keypt fimmtíu og eitt prósent hlutafjár í Kögun. Síminn, sem er stærsti hluthafinn í Kögun, hafði sýnt áhuga á að leiða fyrirtækið en mun nú líklega fara út úr fyrirtækinu. 22.3.2006 12:07
Aðstandendafélag aldraðra stofnað Stofnfundur Aðstandendafélags aldraðra verður haldinn í Félagsheimili eldri borgara í Hafnarfirði á sunnudaginn. Félagið verður opið öllum sem láta sig hagsmunamál aldraðra varða. 22.3.2006 11:15
Fjölmargir skila skattframtali rafrænt Alls hafa rúmlega sextíu þúsund manns skilað inn skattframtali á Netinu. Frestur til að skila inn skattframtölum til ríkisskattstjóra rann út á miðnætti. 22.3.2006 11:00