Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Nýtt bóluefni gegn leghálskrabbameini Lyfjafyrirtækið GlaxoSmithKline ehf. hefur sótt um markaðsleyfi til Evrópsku lyfjastofnunarinnar fyrir nýtt bóluefni gegn leghálskrabbameini. Ef allt gengur að óskum má reikna með að bóluefnið verði komið á markað í Evrópu á næsta ári. 13.3.2006 19:55
Hlutverk Íbúðalánasjóðs endurskoðað Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra hefur beðið um að endurskoðun á hlutverki Íbúðalánasjóðs verði hraðað en horft er til þess að breyta honum í heildsölubanka. Halldór fól nýjum félagsmálaráðherra að fylgja málinu eftir þegar breytingar urðu á ríkisstjórninni. 13.3.2006 19:45
Heilbrigðisráðherra tók ekki af skarið Siv Friðleifsdóttir, heilbrigðisráðherra tók ekki af skarið í umræðum á Alþingi í dag og lofaði fjármögnun til hágæsluherbergis á Barnaspítalanum. Þess í stað benti hún á að spítalinn hefði ekki haft þetta á forgangslista. Þingumræðurnar voru sprottnar af umfjöllun Kompáss í í gærkvöld, en þar sögðu foreldrar frá átakanlegri reynslu af því þegar barn þeirra dó í höndunum á þeim, á langri leið frá Barnaspítalanum til gjörgæslu. 13.3.2006 19:30
Húsvíkingar margt reynt í atvinnumálum Pappírsverksmiðja, parketvinnsla, krókódílaeldi, tílapíaeldi, glúkósaverksmiðja, pólýolverksmiðja. Allt eru þetta dæmi um tilraunir til atvinnuuppbyggingar á Húsavík. Bæjarstjórinn á Húsavík segir það lýsa hroka og fordómum þegar því sé haldið fram að þar hafi menn bara beðið eftir álveri. Þvert á móti hafi menn í áratugi leitað að tækifærum. 13.3.2006 19:21
Hlutabréf féllu - krónan lækkaði Hlutabréf í Kauphöll Íslands féllu um nærri fjögur prósent í dag. Þetta er mesta lækkun sem orðið hefur á einum degi hérlendis í eitt og hálft ár. Krónan lækkaði um tvö prósent og hefur hún ekki verið veikari frá því haustið 2004. Erlend fjármálafyrirtæki hafa sent ýmist neikvæðar eða jákvæðar umsagnir um íslensku bankana í dag og um helgina. 13.3.2006 19:13
Ekki í hættu Íslenska bankakerfið er fjarri því að vera í einhverri hættu vegna gagnrýni erlendra fjölmiðla, segir fjármálaráðherra. Danska fjárfestingafélagið Nykredit beindi því umbúðalaust til fjárfesta sinna í dag að losa sig við skuldabréf í íslensku bönkunum. 13.3.2006 19:05
Framsókn sameinist Samfylkingu Framsóknarflokkurinn á að skoða af fullri alvöru nánari samvinnu, eða jafnvel sameiningu við Samfylkinguna, segir Framsóknarþingmaðurinn Kristinn H. Gunnarsson. Flokkurinn virðist, að hans mati, hafa misst forystuhlutverk sitt í íslenskum stjórnmálum. 13.3.2006 19:00
Harður árekstur við Hvalfjarðargöngin Fólksbifreið lenti í hörðum árekstri við vörubíl með tengivagn á gatnamótum Akrafjallsvegar og Innnesvegar á fimmta tímanum. Þrír voru í fólksbifreiðinni, allt unglingar. Nota þurfti klippur til að ná ökumanni hennar, 17 ára pilti, út úr bílnum og var hann fluttur mikið slasaður til aðhlynningar í Reykjavík. 13.3.2006 18:13
Hjálparstarf kirkjunnar vill að ríkið endurgreiði 2 milljónir Fulltrúaráð Hjálparstarfs kirkjunnar fer fram á að ríkið endurgreiði tvær milljónir króna sem innheimtar voru í virðisaukaskatt af söfnun til neyðaraðstoðar í Pakistan. Söfnunin fór fram með sölu á geisladisknum Hjálpum þeim. 13.3.2006 18:00
Langhlaup en ekki spretthlaup Úrvalsvísitalan lækkaði um rétt tæp 4% í dag og gengi nokkurra stórra fyrirtækja lækkaði um meira en 5%. Ingólfur Bender, forstöðumaður greiningardeildar Glitnis, segir þrátt fyrir þetta enga ástæðu til að óttast hrun á markaðnum. 13.3.2006 17:30
Hvött til að tryggja fjármagn fyrir hágæsluherbergi Siv Friðleifsdóttir, nýr heilbrigðisráðherra, var hvött til þess á þingi í dag til að tryggja fjármagn til að reka hágæsluherbergi á Barnaspítalanum. Ráðherra tók ekki af skarið en sagði málið í skoðun og benti jafnframt á að stjórn spítalans hefði ekki haft slíkt herbergi á forgangslista fyrir þetta fjárlagaár. 13.3.2006 17:30
Eignir lífeyrissjóða 1220 milljarðar Eignir lífeyrissjóðanna námu 1220 milljörðum íslenskra króna í lok janúar og jukust um 54 milljarða í mánuðinum. 13.3.2006 17:15
Engar breytingar fyrr en í október Engar breytingar verða á viðskiptum lággjaldaflugfélagsins Sterling, sem er í eigu FL Group, og ferðaskrifstofunnar Star Tours þar til í október að því er fram kemur í tilkynningu frá Sterling. Sterling hefur séð um farþegaflutninga fyrir Star Tours sem nú snýr sér að SAS. 13.3.2006 16:45
Fyrirlestri mótmælt Nokkrir stúdentar við Háskóla Íslands stóð fyrir mótmælum í og við Odda í hádeginu þar sem fram fór fyrirlestur bandaríska fræðimannsins og stjórnmálaráðgjafans Michael Rubin. Mótmælendurnir andæfðu þætti hans í stefnumótun bandarískra stjórnvalda vegna innrásarinnar í Írak. 13.3.2006 16:30
Úrvalsvísitalan niður fyrir 6000 stig Úrvalsvísitalan hefur lækkað um rétt tæp 4% frá opnun markaðar í morgun. Hún er nú komin niður fyrir 6000 stig. Gengi hlutabréfa í Kauphöllinni hefur lækkað töluvert í dag og hefur lækkunin verið einna mest hjá fjármálastofnunum. 13.3.2006 15:30
Hinir efnameiri geti ekki greitt fyrir forgang Bæði Samfylkingin og Vinstri - grænir leggjast gegn þeim hugmyndum að hinum efnameiri verði heimilað að greiða fyrir það að komast framar á biðlista í heilbrigðiskerfinu, en hvatt er til umræðu um það í nýrri skýrslu á vegum nefndar heilbrigðisráðherra. Fulltrúi Samfylkingarinnar í nefndinni segir markmiðið að kalla eftir skýrum svörum stjórnmálaflokkanna í þessum efnum. 13.3.2006 15:28
Áframhaldandi átök um vatnalögin Bullandi ágreiningur er enn milli stjórnar og stjórnarandstöðu vegna vatnalaganna en fundi iðnaðarnefndar vegna málsins er lokið. Fulltrúi Samfylkingarinnar í nefndinni segir ríkisstjórnina vilja æða fram með málið til að lögfesta víðtækari eignarnámsheimildir sem hún þurfi vegna hinna miklu vatnsflutninga í tengslum við Kárahnúkavirkjun. 13.3.2006 15:20
Mikið að gera hjá lögreglunni í Hafnarfirði Lögreglan á Álftanesi, í Garðabæ og Hafnarfirði hafði í nógu að snúast um helgina. Nokkuð bar á ölvun og þurfti lögreglan að hafa afskipti af þónokkrum vegna þessa. Áföstudagskvöld var lögreglan kölluð til að heimili í Garðabæ vegna hávaða og þegar hún hugðist hafa afskipti af stúlku einni sem var mikið ölvuð veittust að henni tveir menn. 13.3.2006 14:15
Sækir um skráningu á bólefni gegn leghálskrabba Lyfjafyrirtækið GlaxoSmithKline hefur sótt um skráningu á bóluefni til Evrópsku Lyfjastofnunarinnar fyrir bóluefni sem fyrirtækið hefur þróað gegn leghálskrabbameini. Bóluefnið sem nefnist Cervarix hefur í klíniskum rannsóknum sýnt fram á 100% vörn gegn viðvarandi sýkingu af völdum HPV-veiru sem veldur um 70% tilfella leghálskrabbameins í heiminum. 13.3.2006 14:15
Slökkviliðs- og sjúkraflutningamenn samþykkja Mikill meirihluti slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna samþykkti kjarasamning félagsins við Launanefnd sveitarfélaganna. Tæp 78% þeirra sem greiddu atkvæði sögðu já en tæp 21% sögðu nei. Kjörsókn var góð og greiddu eða um 91%. 13.3.2006 13:57
Ökumaðurinn ekki í lífshættu Mjög alvarlegt umferðarslys varð á Sæbraut, laust fyrir hádegi og var Sæbrautinni lokað um tíma. Áreksturinn varð milli rútu og fólksbifreiðar á gatnamótum Súðavogar og Sæbrautar. Rútan var á leið vestur eftir Sæbrautinni þegar henni var að því er virðist ekið inn í hlið fólksbifreiðarinnar sem var að koma frá Súðavogi. Aðstæður á vettvangi benda til þess að þetta hafi verið mjög alvarlegt slys, og hefur lögreglan staðfest að svo sé. 13.3.2006 13:02
Fleiri ökuníðingar á Akureyri nú en í fyrra Hátt í þrjátíu ökumenn voru sektaðir fyrir of hraðan akstur á Akureyri í gærdag, sem er langt yfir meðallagi, og frá mánaðamótum er búið að svipta fimm ökumenn réttindum vegna ofsaaksturs. Frá áramótum er Akureyrarlögreglan búin að sekta 350 ökumenn fyrir hraðakstur, sem er hátt í sex sinnum fleiri en á sama tíma í fyrra. Þá sektaði Blönduósslögreglan 85 ökumenn um helgina, sem er líka vel yfir meðallagi. 13.3.2006 12:45
Mótmæli stúdenta í og við Odda Hópur stúdenta við Háskóla Íslands stendur nú fyrir mótmælum í og við Odda, en þar hefst eftir nokkrar mínútur fyrirlestur bandaríska fræðimannsins og stjórnmálaráðgjafans Michael Rubin. Eftir því sem næst verður komist vilja mótmælendurnir andæfa þætti hans í stefnumótun bandarískra stjórnvalda vegna innrásarinnar í Írak. 13.3.2006 12:15
Þrír Litháar í gæsluvarðhaldi Lithái var handtekin á Keflavíkurflugvelli fyrir um hálfum mánuði síðan og úrskurðaður í gæsluvarðhald, en hann tengist amfetamínframleiðslu hér á landi. Tveir landar hans sitja einnig í gæsluvarðhaldi. 13.3.2006 12:08
Nýtt vaktakerfi vagnstjóra í skoðun hjá BSRB Nýtt vaktakerfi vagnstjóra Strætó er í skoðun hjá Starfsmannafélagi Reykjavíkurborgar og BSRB en kynningarfundum á því lauk fyrir helgi. Ásgeir Eiríksson framkvæmdastjóri Strætó kynnti vagnstjórum hitt nýja vaktarkerfi á fjórum fundum í síðustu viku. 13.3.2006 12:05
Auðveldar stuðning við nýsköpun og hátækni Auðveldara verður fyrir lífeyrissjóði að styðja við nýsköpun og hátækni, samkvæmt frumvarpi sem fjármálaráðherra kynnti í dag. Þá fá slík fyrirtæki auknar skattaívilnanir til að auðvelda rannsóknar -og þróunarstarf. Í fyrsta lagi verður reglugerð breytt þannig að fyrirtæki í þróunarstarfi geta verið með svokallaða fyrirfram skráningu í virðisaukaskattskerfnu í 12 ár í stað 6. Þá ætlar ráðherra að leggja fram frumvarp um að svokallað leiðréttingar tímabil vegna fasteigna lengist úr 10 árum í 20. 13.3.2006 12:01
Alvarlegt umferðarslys á Sæbrautinni Mjög alvarlegt umferðarslys varð á Sæbraut, laust fyrir hádegi, og er hún nú lokuð frá Kleppsmýrarvegi og Miklubraut. Bráðasveitir lögreglu og slökkviliðs eru nú á Sæbrautinni vegna slyssins. Áreksturinn varð milli rútu og fólksbifreiðar og virðist sem rútan hafi ekið inn í hlið fólksbifreiðarinnar. Aðstæður á vettvangi benda til þess að þetta hafi verið mjög alvarlegt slys, og hefur lögreglan staðfest að svo sé. Ökumennirnir voru einir í farartækjum sínum. 13.3.2006 11:59
Iðnaðarnefnd fundar vegna vatnalaga Iðnaðarnefnd Alþingis kemur saman nú klukkan ellefu þar sem ræða hin umdeildu vatnalög. Önnur umræða um málið hófst á þingi fyrir viku en deilur um hvort kveða eigi skýrt um eignarhald á vatni urðu til þess að stjórnarandstaðan greip til málþófs. 13.3.2006 10:45
Sterling missir stærsta viðskiptavin sinn Lágjaldaflugfélagið Sterling, sem er í eigu FL Group, hefur misst stærsta viðskiptavin sinn yfir til SAS. Þetta á við um farþegaflutninga fyrir Star Tour næstu tvö ferðatímabil og snýst um flutning á umþaðbil 200 þúsund manns. Það jafngildir að þrjár flugvélar með tilheyrandi áhöfnum séu í stanslausum flutningumn fyrir Star Tour. Sölustjóri ferðaskrifstofunnar segir þetta stærsta samning í sögu dönsku ferðarþjónustunnar, en talsmaður Sterling segir að félagið hafi ekki getað teygt sig lengra í tilboði sínu, en gert var. 13.3.2006 10:15
Rauð viðvörunarljós blikka á Íslandi Rauð viðvörunarljós eru farin að blikka á Íslandi, segir í fyrirsögn norska blaðsins Dagens Næringsliv um helgina. Þar er meðal annars vitnað í nýlega greiningu Fitch Rating, sem leiddi til lækkunar á gengi og verðbréfum í síðustu viku. Blaðamenn blaðsins, sem voru hér við efnisöflun, segja að Ísledingar hafi með gríðarlegri lántöku, náð að kaupa nokkur eftirsóknarverð fyrirtækið í Evrópu. 13.3.2006 09:09
Tugir þúsunda steraskammta fundust Tugir þúsunda ólöglegra steraskammta fundust við húsleit í líkamsræktarstöð í Reykjavík fyrir helgi. Að sögn Morgunblaðisns hefur lengi leikið grunur á að þar væru seldir ólögleglir sterar og var því aflað húsleitarheimilda. Einn maður var handtekinn vegna rannsóknarinnar, en hann hefur verið látinn laus þar sem málið telst að mestu upplýst. Ekki liggur fyrir hvort maðurinn smyglaði efnunum sjálfur til landsins, eða var einungis viðriðinn sölu þess. 13.3.2006 07:45
Treystir sér ekki til að halda þyrlunum starfandi Tæknistjóri flugtæknideildar Landhelgisgæslunnar hefur sagt upp störfum og segir í viðtali við Fréttablaðið að hann treysti sér ekki til að halda vélum gæslunnar starfandi út árið fyrir þá fjármuni, sem til þess eru ætlaðir. Stóra þyrlan er enn í skoðun, en sú minni komst í gagnið fyrir nokkrum dögum eftir að hafa verið frá um tíma vegna bilunar. Georg Lárusson forstjóri Gæslunnar segir í viðtali við Fréttablaðið að hann telji fjármuni til viðhalds vélanna duga út allt árið, ef rétt sé á haldið. 13.3.2006 07:45
Uppselt í sólina um páskana Að minnsta kosti fjögur þúsund og fimm hundruð Íslendingar munu baða sig á sólgylltum ströndum um páskana. Skipulagðar sólarlandaferðir fyrir páskafríið eru hvarvetna löngu uppseldar. Þá eru ótaldir þeir sem ferðast á eigin vegum. 12.3.2006 20:30
Apple trúir ekki fjöldatölum ipodspilara á Íslandi Ekki fæst lengur gert við ipodspilara sem keyptir eru í útlöndum nema kassakvittun sé framvísað, vegna þess að í höfuðstöðvum Apple eru menn vantrúaðir á að svo margir ipodar geti verið á Íslandi miðað við íslenskar sölutölur. 12.3.2006 20:00
Sauðfé rúið Mikið líf og fjör var í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum í dag. Þar fylgdust börn og fullorðnir með því þegar sauðféð í garðinum var rúið og fengu að sjá hvað verður um ullina. Guðmundur Hallgrímsson ráðsmaður á Hvanneyri mætti til að rýja fé en það hefur hann gert síðustu ár. 12.3.2006 19:33
Fögnuðu 90 ára afmæli Alþýðuflokkurinn og Alþýðusamband Íslands fögnuðu í dag 90 ára afmæli sínu. Í tilefni af því voru hátíðarhöld í Ráðhúsi Reykjavíkur. Sá staður er valinn þar sem stofnfundurinn var á sínum tíma haldinn í Bárubúð sem þá stóð þar. Leiðtogar jafnaðarmanna frá ýmsum tímum héldu ávörp í tilefni dagsins. 12.3.2006 19:27
Fræða ungmenni um kynlíf Læknanemar fara í yfir 200 heimsóknir á þessu ári í menntaskóla til að fræða ungmenni um kynlíf. Um er að ræða sjálfboðaverkefni sem staðið hefur í nokkur ár og er árangurinn að þeirra mati góður. Læknanemar hafa staðið fyrir kynfræðslu meðal menntaskólanema í nokkur ár. 12.3.2006 19:13
Viðvörunarljós blikka í fjármálaheiminum Öll viðvörunarljós eru farin að blikka í efnahagslífinu á Íslandi að mati sérfræðings hjá Fitch Rating. Mikil lántaka bankanna hér á landi var umfjöllunarefni norsks viðskiptablaðs um helgina en blaðið velti því upp hvort að ekki stefni í kreppu í íslenskum fjármálaheimi. 12.3.2006 19:00
Botnvörpur valda umhverfisspjöllum Sjómenn, sem gert hafa mynd um skaðsemi botnvörpunnar á lífríkið, segja botninn umhverfis Ísland stórskemmdan. Þeir vilja láta loka ákveðnum svæðum fyrir botnvörpu. 12.3.2006 18:19
Glitnir tekur við af Íslandsbanka Íslandsbanki hefur skipt um nafn og heitir nú Glitnir. Þetta er gert vegna aukinnar alþjóðlegrar starfsemi bankans. Um þúsund starfsmönnum, íslenskum, norskum, frá Bretlandi og Lúxembúrg, hafði verið stefnt í Háskólabíó klukkan 6 í gær til að kynna þeim breytingar á starfseminni. 12.3.2006 18:15
Engin heimild fyrir tónlistarhúsi Einar Oddur Kristjánsson alþingismaður og varaformaður fjárlaganefndar Alþingis segir að nauðsynlegt sé að fresta stórframkvæmdum. Hann sagði í Silfri Egils á NFS í dag að engin heimild væri í fjárlögum fyrir milljarðaútgjöldum vegna byggingar tónlistarhúss og að ótækt væri að skuldbinda ríkið til áratuga án þess að haft sé samráð við fjárlaganefnd. 12.3.2006 16:55
Sameining samþykkt í A-Húnavatnssýslu Íbúar Húnavatnshrepps og Áshrepps í Austur- Húnavatnssýslu samþykktu í atkvæðagreiðslu í gær sameiningu sveitarfélaganna tveggja. Húnavatnshreppur er ekki nema ársgamall en hann varð til þann 1. janúar 2006 þegar sameining Bólstaðarhlíðarhrepps, Svínavatnshrepps, Torfalækjarhrepps og Sveinsstaðahrepps tók gildi. Áshreppur bætist nú í þennan hóp. 12.3.2006 14:38
Grímuklædd reiðsýning Grímuklæddir knapar og hestar sýna glæsilega tilburði á fjölskylduhátíð sem haldin er í reiðhöllinni nú um helgina. Það eru sjö hestamannafélög á höfuðborgarsvæðinu sem standa að sýningunni í samvinnu við Landsbankann. 12.3.2006 14:15
Grasalyf gegn fuglaflensu Íslenskur vísindamaður er að þróa bóluefni gegn fuglaflensu úr plöntum. Fréttablaðið greinir frá þessu í dag. Efnaverkfræðingurinn Örn Aðalsteinsson fer fyrir hópi vísindamanna, en hann er forstjóri InB:Biotechnologies í Bandaríkjunum. 12.3.2006 13:28
Merki Glitnis hengt upp á Kirkjusandi Í morgun var verið að setja nýtt nafn og merki fyrrum Íslandsbanka, nú Glitnis, við Kirkjusand. Glitnir er með 25 útibú víða um land og væntanlega verða þau merkt á næstu dögum. Heimasíða bankans er orðin rauð og þeir sem fara inn á heimabankann sem isb.is eru sendir beint á veffangið glitnir.is. 12.3.2006 13:24