Fleiri fréttir

Íslandsbanki heitir nú Glitnir

Íslandsbanki, sem slíkur, er ekki lengur til. Glitnir er hið nýja nafn bankans. Forstjórinn segir að Íslandsbanki hafi verið eitt besta nafn sem hægt var að nota, en hið nýja henti betur fyrir starfsemina í dag.

Íslandsbanki verður Glitnir

Íslandsbanki veitir þjónustu sína héðan í frá undir nafninu Glitnir. Þetta var tilkynnt á fundi bankans í dag. Samhliða nýju nafni tekur bankinn upp nýtt merki og útlit. Dótturfélög bankans og skrifstofur í fimm löndum heita einnig framvegis Glitnir.

Valgerður sakar Styrmi um óvild í sinn garð

Iðnaðar- og viðskiptaráðherra sakar ritstjóra Morgunblaðsins um óvild í sinn garð. Hún telur ritstjórann jafnvel eiga erfitt með að eiga eðlileg samskipti við konur án þess að tala niður til þeirra.

Vatnalög til iðnaðarnefndar

Iðnaðarnefnd Alþingis kemur saman til fundar á mánudag, meðal annars til að ræða hugsanlega réttaróvissu vegna Kárahnjúka í tengslum við vatnalög. Umræðu um frumvarpið umdeilda var frestað í dag. Iðnaðarráðherra segir þingmenn Vinstri grænna hafa reynt að falsa ummæli hennar um málið.

Mikill viðbúnaður vegna væntanlegs Kötlugoss

Ef Katla gýs gæti fylgt gosinu gríðarstórt jökulhlaup sem talið er geta verið nærri sjö sinnum stærra en hlaupið á Skeiðarársandi árið 1996. Undirbúningsvinna vegna væntanlegrar rýmingar stendur yfir en rýma gæti þurft svæðið frá Þykkvabæ og austur fyrir Meðalland.

07.07.07 vinsæll brúðkaupsdagur

Flestir laugardagar yfir sumartímann eru vinsælir til þess að ganga í það heilaga. Einn laugardagur virðist þó ætla að verða öðrum vinsælli en það er sjöundi júlí á næsta ári og eru dæmi um að kirkjur séu uppbókaðar á þessum tíma.

París á suðupunkti

Óttast er að upp úr sjóði í París í kvöld líkt og í gærkvöldi, þegar óeirðalögregla réðst gegn námsmönnum sem höfðu lagt undir sig Sorbonne-háskóla. Íslendingar í París segja að andrúmsloftið minni einna helst á stúdentaóeirðirnar 1968.

Umræðum um vatnalög frestað fram á mánudag

Umræðum á Alþingi um umdeild vatnalög var frestað laust fyrir klukkan fjögur. Það var gert að ósk Birkis Jóns Jónssonar formanns iðnaðarnefndar, en fundur í nefndinni um málið hefur verið boðaður á mánudag.

Símkerfið gaf sig undan álagi

Fullkomið brúðkaup, leikritið sem sló öll aðsóknarmet á Akureyri í vetur, er að endurtaka leikinn í Borgarleikhúsinu í Reykjavík. Símkerfi leikhússins sprakk í morgun og á fyrsta degi miðasölu í gær seldust fjögur þúsund miðar. Sýningar hefjast í lok apríl.

Marteinn leiðir í Mosfellsbæ

Tillaga uppstillingarnefndar að framboðslista framsóknarmanna til sveitarstjórnarkosninga í Mosfellsbæ var samþykktur einróma á fjölmennum félagsfundi í gær. Marteinn Magnússon, markaðsstjóri skipar fyrsta sæti listans.

Spólað í skíðabrekkunni

Óprúttinn ökumaður skemmdi gróður og skíðafæri fyrir börnum í Grafarvogi í morgun eða nótt með því að spóla í hringi í skíðabrekkunni við Dalshús.

Sól og þoka á alpamóti

Bikarmót í alpagreinum 15 ára og eldri fer fram í Tungudal á Ísafirði nú um helgina. Færi er með besta móti og veður stillt að sögn Jakobs Tryggvasonar hjá Skíðafélaginu. Um 60 þátttakendur taka þátt í mótinu.

Tvennar sameiningarkosningar

Tvennar kosningar um sameiningu sveitarfélaga fara fram í dag. Annars vegar í Strandasýslu þar sem kosið er um sameiningu Broddaneshrepps og Hólmavíkurhrepps og hins vegar í Austur- Húnavatnssýslu þar sem kosið verður um sameiningu Áshrepps og Húnavatnshrepps.

Getur hækkað verð fyrirtækja

Ný raforkulög sem tóku gildi um áramótin hafa töluverð áhrif á mörg iðnfyrirtæki. Verði hækkunum velt út í verðlagið geta þær numið yfir 20%.

Ungir og aldnir tefla til sigurs

Mona Khaled sigraði Lárus Ara Knútsson, sér langtum stigahærri skákmann, í fimmtu umferð Reykjavíkurskákmótsins í gær, en Mona er Arabameistari kvenna í skák, aðeins ellefu ára að aldri. Bjarni Magnússon, sem á níræðisaldri hefur sjaldan verið sterkari, gerði jafntefli við sterkan alþjóðlegan meistara frá Bandaríkjunum, Ylon Schwarz.

Ráðist inn í Sorbonne

Til óeirða kom í París í nótt þegar óeirðalögregla réðst gegn námsmönnum sem höfðu ráðist inn í Sorbonne-háskóla til að mótmæla frumvarpi um ný atvinnulög fyrir ungmenni.

Þrír fóru út af

Þrír ökumenn misstu stjórn á bílum sínum í hálku á Fífuhvammsvegi í Kópavogi rétt fyrir klukkan tólf í gærkvöldi. Bílarnir lentu ekki saman heldur fóru út af hver á eftir öðrum með mjög skömmu millibili. Engin slys urðu á fólki.

Friðarsinni skotinn

Bandarískur friðarsinni, Tom Fox, var skotinn til bana í haldi mannræningja í Írak. Lík hans fannst í fyrrinótt nálægt Bagdad. Það bar með sér að honum hefði verið misþyrmt.

Hafnaði á vegriði

Umferðarslys varð á Reykjanesbraut í Hvassahrauni rétt fyrir miðnætti í gær. Hálkan var mikil og missti ökumaður vald á bifreið sinni sem hafnaði á vegriði. Þrír farþegar sem voru í bifreiðinni kenndu ekki til eymsla en ökumaður var fluttur með sjúkrabifreið á sjúkrahús í Reykjavík, vegna eymsla í hálsi og baki. Bifreiðin var óökufær og var flutt með dráttarbifreið.

Skíðasvæði opin fyrir norðan

Skíðasvæðin á höfuðborgarsvæðinu eru lokuð. Þó að snjó hafi kyngt niður í nótt þá er enn of lítill snjór í fjöllum til að hægt sé að opna. Hins vegar eru skíðasvæðin opin fyrir norðan.

Veist að lögreglumönnum

Veist var að lögreglumönnum við heimahús í Garðabæ um klukkan eitt í nótt og þeir slegnir. Samkvæmi var í húsinu og hafði lögregla upphaflega verið kölluð til vegna hávaða og fór hún á staðinn og bað húsráðendur að hafa lægra.

Kokteilsósubað og lundadiskódans

Sumar konur eru sjúkar í súrar gúrkur, aðrar hafa unun af því að fara í kokteilsósubað. Lundar geta líka dansað diskó og múmíur byggt sér kofa. Í Nýlistasafni Íslands í kvöld var hægt berja augum ýmislegt sem sjaldnast birtist almenningi. Það voru nemendur Listaháskóla Íslands sem buðu upp á gjörning í Nýlistasafninu og þar kenndi ýmissa grasa.

Skiptar skoðanir um heilbrigðismál

Skiptar skoðanir eru á álitum nefnda heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra um endurskilgreiningu verksviða innan heilbrigðisþjónustunnar. Álitunum er ætlað að móta framtíðarumgjörð íslenskrar heilbrigðisþjónustu. Haldinn var opinn kynningar- og umræðufundur um niðustöður tveggja nefnda sem báðar fjalla um þau grundvallaratriði og lagaramma sem íslensku heilbrigðiskerfi er ætlað að mótast af.

Fjögurra bíla árekstur í Grímsnesi

Fjórir bílar lentu í árekstri við Minniborg í Grímsnesi á níunda tímanum í kvöld. Enginn slasaðist alvarlega í árekstrinum en tveir voru þó fluttir á brott með sjúkrabíl. Ekki fengust upplýsingar um tildrög slyssins nú rétt fyrir tíu.

Boðað til helgarfundar um vatnalög

Þingheimur hefur verið boðaður saman til fundar á morgun til að ræða frumvarp til vatnalaga. Umræður um frumvarpið hafa þegar staðið yfir í rúman sólarhring og ganga ásakanirnar á víxl milli stjórnarliða og stjórnarandstæðinga.

Spá áframhaldandi hárri verðbólgu

Verðbólgan helst há næstu mánuði og mun ef eitthvað er aukast frá því sem nú er. Þetta er meðal þess sem má lesa úr umsögnum greiningardeilda bankanna um nýjustu verðbólgumælingar.

Sluppu lítið meiddir úr bílveltu

Þrír menn sluppu lítið meiddir þegar bíll þeirra valt og endaði á hvolfi rétt fyrir ofan Gullinbrú á leið í Grafarvog snemma í kvöld. Meiðsl mannanna virðast vera minniháttar en einn þeirra er nú til rannsóknar á slysadeild Landspítalans.

Stundum áhættustýringu, ekki spákaupmennsku

Prófessor í hagfræði segir Landsvirkjun stunda spákaupmennsku vegna sölu áls fram í tímann og tapið á þeim viðskiptum sé rúmir fimm milljarðar. Framkvæmdastjóri fjármálasviðs Landsvirkjunar segir þetta byggt á misskilningi. Um sé að ræða áhættustýringu sem eigi rætur sínar að rekja til þess að Landsvirkjun fái að hluta til greitt fyrir orku með áli.

Deilt um eignarrétt á vatni

Hver á vatnið? Það er spurning sem skekur Alþingi og veldur því að kalla þarf þing til fundar á morgun, laugardag.

Frétt til mikilla vandræða

Bubbi Morthens segir að frétt Hér og nú um að hann væri fallinn, hafi leitt til margvíslegra vandræða. Dóttir hans hafi lent í leiðindum í skóla og sjálfur finni hann ónota út af umfjölluninni.

Nauðgaði stúlku á stigagangi

Tvítugur karlmaður var í dag dæmdur til eins árs fangelsisvistar fyrir að nauðga sextán ára stúlku á stigagangi heimilis hennar. Stúlkan var mjög ölvuð og þótti dómnum sýnt að maðurinn hefði misnotað sér ástand hennar.

Þrír mánuðir fyrir misbeitingu

Héraðsdómur Reykjavíkur hefur dæmt 25 ára karlmann í eins árs fangelsi, þar af níu mánuði skilorðsbundið, fyrir að notfæra sér ölvun tvítugrar stúlku og hafa við hana mök þegar hún gat enga vörn sér veitt.

Besti árangur FL Group frá upphafi

16 FL Group skilaði rúmlega tuttugu milljarða króna hagnaði fyrir skatta á síðasta ári. Afkoman er nokkuð betri en greiningardeildir bankanna höfðu spáð og er forstjórinn hæstánægður.

Loftleiðir í samstarf við Latcharter Airlines

Loftleiðir Icelandic, blautleigu- og leiguflugsfélagið innan Icelandair Group, hafa undirritað samkomulag við lettneska flugfélagið Latcharter Airlines um náið samstarf á sviði blautleigu og leiguflugs.

Árdegi kaupir DagGroup

Árdegi ehf hefur keypt alla hluti félaga í eigu Róberts Melax í Degi Group og Nordex og á nú félögin 100%. Í byrjun febrúar sl. seldi Dagur Group Senu ehf. til Dagsbrúnar hf. Dagur Group á og rekur 9 BT verslanir, 3 Skífuverslanir, 2 verslanir undir nafni Hljóðfærahússins auk Sony Center í Kringlunni.

Farþegum um Leifsstöð fjölgar

Farþegum um Flugstöð Leifs Eiríkssonar fjölgaði um rúm 4% í febrúar miðað við sama tíma í fyrra, úr rúmum 89 þúsund farþegum árið 2005 í tæplega 93 þúsund farþega nú.

Auðmenn kaupa upp jarðir

Nokkrir hópar auðmanna eru að kaupa upp jarðir í stórum stíl vítt og breitt um landið og samþykkti Búnaðarþing í gær tillögu, um að kannað verði hvaða áhrif uppkaupin kunni að hafa á stöðu landbúnaðarins.

Verð á brauði og kökum hækkar

Verð á brauði og kökum hækkar um allt að fjórðung, ef hækkun á raforkuverði til bakaría vegna nýrra raforkulaga fer út í verðlagið. Þetta segir formaður Landssambands bakarameistara. Hingað til hafa bakarí fengið afslátt af raforku yfir hánóttina, þegar lítið álag er á orkuveitunni. Á móti hefur orkuveitan mátt skrúfa fyrir rafmagnsfrekustu tæki í bakaríum á þeim tímum dags þegar álagið er mest. En eftir að ný orkulög tóku gildi um áramótin segjast forsvarsmenn orkuveitunnar ekki lengur hafa forsendur til að semja á þennan hátt við bakarí. Það þýðir bara eitt..... kostnaður vegna raforku hefur rokið upp í bakaríum. Comment Reynir segist vonast til að þingmenn beiti sér í málinu, enda hafi margir þeirra barist fyrir lægra matvælaverði. Þá sé nefnd á vegum bakara í viðræðum við orkuveituna. Reynir óttast að ef ekkert gerist fljótt neyðist bakarar til að hækka verð og rjúfa þar með sátt.

ÖBÍ mótmælir töfum hjá TR

Framkvæmdastjórn Öryrkjabandalags Íslands mótmælir þeim töfum sem fyrirsjáanlegar eru á svörum Tryggingastofnunar ríkisins við andmælum bótaþega vegna endurreikninga bóta ársins 2004. Í bréfi stofnunarinnar segir að því miður sé fyrirsjáanlegt að frekari dráttur verði á afgreiðslunni, einkum vegna manneklu og nauðsynlegrar forgangsröðunar verkefna. Því sé ekki ljóst hvernær mál verði tekið fyrir en vonandi verði hægt að ljúka þeim innan sex til átta mánaða.

Stóru orðin ekki spöruð á Alþingi

Stóru orðin voru ekki spöruð á Alþingi í morgun þegar umræðu um vatnalögin var haldið áfram. Iðnaðarráðherra sagði ekki stein standa yfir steini í málflutningi stjórnarandstöðunnar. Össur Skarphéðinsson var fyrstur í pontu til að ræða störf þingsins og sagði samkomulag EES ríkja um grunn vantatilskipunar ESB í höfn.

Deilt um vatnalög

Átök um frumvarp til vatnalaga harðna á Alþingi og ásakanir um valdbeitingu og málþóf ganga á víxl. Stjórnarþingmenn segja markmiðið að fá fram skýrt eignarhald á vatni og skynsamlega nýtingu þess, en stjórnarandstaðan segir að verið sé að einkavæða vatnsauðlindina.

Björgólfur Thor ríkastur Íslendinga

Björgólfur Thor Björgólfsson gæti staðið undir öllum opinberum rekstri á Íslandi í um það bil hálft ár. Hann er númer 350 á lista yfir ríkustu menn veraldar samkvæmt nýjum lista Forbes tímaritsins.

Hald lagt á fíkniefni og góss

Lögreglumenn, sem stöðvuðu ökumann í nótt og fanst hann grunsamlegur, fundu nokkur grömm af anfetamíni, eitthvað af hassi og maríjuana, þegar þeir leituðu á honum.

Sjá næstu 50 fréttir