Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Umtalsvert magn fíkniefna haldlagt Lögreglan í Reykjavík hefur lagt hald á umtalsvert magn fíkniefna sem fannst falið í nágrenni borgarinnar. Málið er til rannsóknar hjá fíkniefnadeild lögreglunnar í Reykjavík. Ásgeir Karlsson, yfirmaður fíkniefnadeildarinnar, vill engar frekari upplýsingar gefa um málið á þessu stigi. 23.2.2006 12:15
Málflutningur í Baugsmálinu hafinn Töf varð á réttarhaldi í Baugsmálinu við upphaf þinghalds í Héraðsdómi í morgun þegar settur saksóknari lagði fram ný gögn varðandi bílainnflutning Baugsfjölskyldunnar. Reiknað er með að málið verði dómtekið síðar í dag. 23.2.2006 12:11
Ráðherra beitir sér ekki fyrir fríum máltíðum í framhaldsskólum Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráðherra ætlar ekki að beita sér fyrir því að boðið verði upp á fríar máltíðir í framhaldsskólum landsins. Þetta kom fram í utandagskrárumræðu á Alþingi í dag. 23.2.2006 12:07
Mál fyrrverandi yfirlæknis tekið fyrir í Héraðsdómi Mál Stefáns Einars Matthíassonar, fyrrverandi yfirlæknis á Landspítalanum, gegn spítalanum var tekið fyrir í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun. Stefáni var vikið úr starfi yfirlæknis á æðaskurðlækningadeild Landspítalans síðastliðið haust eftir að hann neitaði að hætta rekstri læknastofu sem hann starfrækti meðfram störfum sínum á spítalanum. 23.2.2006 11:45
Excel Airways leigir átta nýjar vélar Excel Airways, dótturfélag Avion Group, gekk í dag frá samningi um leigu á átta nýjum flugvélum. Vélarnar verða notaðar á flugleiðum félagins frá Gatwick-flugvelli í London og Manchester til áfangastaða á Kanaríeyjum, Suður-Evrópu og við Miðjarðarhafið. 23.2.2006 11:15
Impregilo skilar greinargerð vegna uppsagnarinnar Oddur Friðriksson, yfirtrúnaðarmaður starfsmanna hjá Impregilo, hefur tekið við greinargerð frá fyrirtækinu þar sem uppsögn trúnaðarmanns í síðustu viku er rökstudd af þeirra hálfu. Oddur hefur þegar sent greinargerðina áfram til lögmanna verkalýðsfélagsins Afls til skoðunar og verður tekin ákvörðun á næstu dögum hvort uppsögnin verði kærð. 23.2.2006 10:11
Enn ein töfin á Baugsmálinu Töf varð á áframhaldandi aðalmeðferð í Baugsmálinu í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun þegar settur saksóknari lagði fram ný gögn í málinu. Gögnin tengjast bílainnflutningi sem deilt er um í málinu. 23.2.2006 10:08
Vatn flæðir yfir vegi Miklir vatnavextir eru víða um land vegna óvenju mikilla hlýinda. Dæmi eru um að vatn hafi flætt yfir vegi, en þó hvergi þjóðvegi. Ekki er vitað um teljandi tjón vegna vatnselgs en það gæti komið í ljós þegar vatn fer að sjatna. 23.2.2006 09:27
Apóteksræninginn enn ófundinn Ungi maðurinn sem rændi apótekið við Smiðjuveg í Kópavogi um hádegisbil í gær er enn ófundinn. Lögreglan í Kópavogi hélt uppi víðtækri eftirgrennslan í gær en án árangurs. 23.2.2006 08:52
Engey notuð sem frystihús, löndunar- og útflutningshöfn Loðnuveiðarnar eru komnar aftur í gang eftir brælu í gær og leggja sjómenn nú ofurkapp á að ná sem mestum verðmætum út úr þeim litla kvóta sem eftir er. Þar sem frystigetan í landi er ekki næg hefur risatogaranum Engey verið lagt við bryggju í Sundahöfn. 23.2.2006 08:15
Tekist á um reykingafrumvarp Tekist var á um hvort banna ætti reykingar á veitingastöðum á opnum fundi sem Heimdallur, félag ungra sjálfstæðismanna í Reykjavík, hélt í gærkvöldi. Framsögumenn voru þingmennirnir Birgir Ármannsson, Sjálfstæðisflokki og Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir, Samfylkingu og Kristinn Tómasson yfirlæknir Vinnueftirlits ríkisins. 22.2.2006 23:39
MTV tónlistarhátíðin kostar um það bil 1,5 - 2 milljarða króna Það kostar á bilinu einn og hálfan til tvo milljarða að halda tónlistarhátíð evrópudeildar sjónvarpsstöðvarinnar MTV hér á landi. Helga Margrét Reykdal, framkvæmdarstjóri True North, segir það ekki vera spurningu um hvort hátíðin verði haldin hér á landi heldur hvenær. 22.2.2006 23:00
Samflokksmenn skora á Þorgerði að tryggja starfsemi HA Vörður, félag ungra sjálfstæðismanna á Akureyri, skorar á Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur menntamálaráðherra og þingmenn Sjálfstæðisflokksins, að leita leiða til að tryggja starfsemi Háskólans á Akureyri til framtíðar og að hann fái að vaxa með sama krafti og áður. 22.2.2006 22:45
SAM-félagið kaupir kvikmyndahús í Danmörku Úrás íslenskra kaupsýslumanna nær nú til kvikmyndahúsageirans því SAM-félagið, sem rekur meðal annars Sam-bíóin hér á landi, hefur keypt Cinemaxx-kvikmyndahúsakeðjuna í Danmörku. Með kaupunum má búast við að miðasala SAM-félagsins nærri fjórfaldist. 22.2.2006 22:28
Clinton, Blair og Annan á karlaráðstefnu? Árni Magnússon félagsmálaráðherra hefur boðið þremur af leiðtogum heimsins til alþjóðlegrar karlaráðstefnu um jafnréttismál sem haldin verður hér á landi í haust. Svör frá leiðtogunum hafa ekki borist en ráðherrann mun kynna ráðstefnuna á fundi Sameinuðu þjóðanna í næstu viku. 22.2.2006 22:22
Endur í Frakklandi og Hollandi fá sprautu Sérfræðingar Evrópusambandsins hafa samþykkt umsóknir Frakka og Hollendinga um að fá að bólusetja alifugla gegn flensunni sem herjar á bræður þeirra um víðan völl. Samþykkið er þó háð nokkrum skilyrðum. 22.2.2006 22:21
Vilja stóriðju á Suðurland Samtök sunnlenskra sveitarfélaga vilja stóriðju á Suðurland. Í skýrslu samtakanna sem kynnt var í dag er svæðið sagt góður kostur fyrir fyrirtæki í stóriðju. Það eina sem vanti til að reisa megi orkufrekan iðnað á Suðurlandi er stórskipahöfn. 22.2.2006 21:49
Vopnað rán í apóteki Ungur maður vopnaður hnífi réðst inn í Apótekarann við Smiðjuveg í Kópavogi um hádegisbilið í dag og heimtaði lyf. Starfsfólk apóteksins þorði ekki annað en að verða við óskum mannsins og lét hann hafa eitthvað af lyfjum. Maðurinn komst á brott á hlaupum. 22.2.2006 21:40
Íslenski draumurinn Íslendingar taka mun meira mark á draumum en nágrannaþjóðirnar. Þeir tala meira um drauma, ráða í þá og trúa á að draumar geti sagt fyrir um framtíðina í mun meira mæli en aðrar Vestur-Evrópuþjóðir. Þetta er niðurstaða doktorsrannsóknar Adriënne Heijnen sem byggð er á vettvangsrannsóknum í Hrunamannahreppi á árunum 1994-2000. 22.2.2006 20:51
Gengislækkun krónunnar hafði áhrif víða um heim Gengislækkun krónunnar í gær hafði víðtæk áhrif á alþjóðlegum gjaldeyrismarkaði samkvæmt frétt á heimasíðu Financial Times. Þar er sagt að lækkun krónunnar hafi valdið titringi á mörkuðum með jaðargjaldmiðla sem spákaupmenn hafa sótt í að kaupa í von um háa ávöxtun á sama hátt og erlendir aðilar hafa fjárfest í krónunni í stórum stíl. 22.2.2006 20:30
Ríkisendurskoðandi kominn með gögnin frá Vilhjálmi Ríkisendurskoðun og Fjármálaeftirlitið hafa fengið gögn frá Vilhjálmi Bjarnasyni aðjúnkt í viðskiptafræðum vegna aðkomu þýska bankans Hauck und Afhauser, að kaupum á Búnaðarbanka Íslands á sínum tíma. Sigurður Þórðarson ríkisendurskoðandi sagði of snemmt að segja til um hvort stofnunin hæfi sjálfstæða athugun á málinu. 22.2.2006 20:00
Vitnaleiðslum í Baugsmálinu lokið Vitnaleiðslum í Baugsmálinu lauk fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur á þriðja tímanum í dag. Málflutningur hefst í fyrramálið og stendur fram eftir degi en að honum loknum verður málið tekið í dóm. Fram kom við vitnaleiðslur að hluti vegna leiðréttinga á innflutningsgjöldum á einni bifreið af fjórum sem deilt er um hefði runnið til góðgerðarmála. 22.2.2006 19:45
Sjálfstæðisflokkur gæti náð meirihluta með 43% Sjálfstæðisflokkurinn gæti náð meirihluta í Reykjavík með 43 prósent atkvæða, en flokkurinn hefur fimm sinnum náð meirihluta í Borgarstjórn með minnihluta atkvæða. Miklu skiptir hvernig atkvæði skiptast á önnur framboð. Fleiri vilja sjá Dag B. Eggertsson í stóli Borgarstjóra, samkvæmt nýrri könnun en mjótt er þó á munum á milli þeirra. 22.2.2006 19:03
Efnahagsstefna ríkisstjórnarinnar harkalega gagnrýnd Stjórnarandstaðan gagnrýndi efnahagsstefnu ríkisstjórnarinnar harðlega þegar rætt var um viðvaranir matsfyrirtækisins Fitch, gengislækkun krónunnar og ólgu á mörkuðum á Alþingi í dag. Þá fagnaði hún yfirlýsingum forsætisráðherra í kvöldfréttum NFS í gær um að ekki væri svigrúm fyrir alla þá stóriðju sem hugmyndir væru uppi um. 22.2.2006 19:02
Hallór og Blair funduðu Halldór Ásgrímsson, forsætisráðherra Íslands, og Tony Blair, forsætisráðherra Bretlands, funduð í dag á heimili Blair á Downingstræti í London. Forsætisráðherrarnir ræddu meðal annars mögulega aðild Íslands að Evrópusambandinu og hvernig hægt væri að koma málum svo fyrir að Ísland gæti búið við fiskveiðistefnu bandalagsins. 22.2.2006 18:42
Engin ólga á Íslandi vegna skopteikninga af Múhameð spámanni Árni Magnússon, félagsmálaráðherra, segir engar upplýsingar hafa borist ráðuneytinu um að til árekstra hafi komið vegna skopmyndanna af Múhameð spámanni sem birst hafa í evrópskum blöðum síðustu vikurnar. Þetta kom fram í utandagskrárumræðu um stöðu útlendinga á Íslandi á Alþingi í dag. 22.2.2006 17:31
Höfuð forsætisráðherra notað í áróðursskyni Auglýsing bresku náttúruverndarsamtakanna IFAW sem birtist í dagblaðinu The Times í morgun samræmist ekki siðareglum Sambands íslenskra auglýsenda, sem byggðar eru á siðareglum Alþjóðaverslunarráðsins. Í auglýsingunni hefur andlit Halldórs Ásgrímssonar verið klippt inn í aðra mynd af starfsmanni fiskborðs sem réttir fram hvalkjöt á bakka. 22.2.2006 17:30
Krónan veiktist um rúm 2% í dag Gengi íslensku krónunnar veiktist um rúm 2% í dag og hefur því veikst um 6,4% á síðustu tveimur dögum. Titringinn á gjaldeyrismarkaði má rekja til skýrslu matsfyrirtækisins Fitch sem birt var í gær. 22.2.2006 17:27
Barnahús verðlaunað Barnahús verður verðlaunað af alþjóðlegu barnaverndarsamtökunum ISPCAN, International Society for the Prevention of Child Abuse and Neglect. Forstjóra Barnaverndarstofu hefur verið tilkynnt þetta en verðlaunin verða afhent á heimsráðsstefnu samtakanna í byrjun september á þessu ári. ISPCAN eru einu þverfaglegu heimssamtökin á sviðið barnaverndar en markmið þeirra er að vinna gegn ofbeldi og vanrækslu barna um allan heim. 22.2.2006 17:00
Vitnaleiðslum lokið Vitnaleiðslum í Baugsmálinu fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur lauk á þriðja tímanum í dag. Málflutningur í málinu hefst í fyrramálið og að honum loknum verður málið dómtekið. 22.2.2006 16:40
Samískur joiksöngur, rímur, rokk og passíusálmarnir á Vetrarhátíð Samískur joiksöngur, rímur, rokk og passíusálmarnir í flutningi meistara Megas er meðal þess sem sjá má og heyra á Vetrarhátíð í Reykjavík í ár. Vetrarhátíðin hefst á morgun en hún var fyrst haldin árið 2002. 22.2.2006 15:55
Ríkisskattstjóri leggur ekki mat á útreikninga á skattbyrði Ríkisskattstjóri hefur ekki lagt mat á útreikninga Landssambands eldri borgara á að skattbyrði hafi aukist hjá þeim sem hafa lægstar tekjur eða ellilífeyri. Í tillkynningu sem Indriði H. Þorláksson, ríkisskattstjóri, sendi frá sér segir að hann hafi hvorki staðfest né hafnað niðurstöðu Landssambands eldri borgara eða annarra í umræðu sem hefur farið fram um skattbyrði. 22.2.2006 15:12
Ekki marktækur munur á fylgi Vilhjálms og Dags Ekki er marktækur munur á fylgi Dags B. Eggertssonar og Vilhjálms Þ. Vilhjálmssonar, borgarstjóraefni Samfylkingarinnar og Sjálfstæðisflokksins, í embætti borgarstjóra í vor samkvæmt borgarmálakönnun sem Félagsvísindastofnun Háskóla Íslands gerði fyrir Samfylkinguna 14.-19. febrúar. 22.2.2006 14:55
Á yfir höfði sér dauðadóm Bandarískur hermaður hefur verið ákærður fyrir morð á tvítugri stúlku hér á landi síðastliðið sumar. Stúlkan sem var bandarísk var einnig varnarliðsmaður á Keflavíkurflugvelli og var í flugsveit hersins. Verði maðurinn fundinn sekur á hann yfir höfði sér dauðadóm eða lífstíðarfangelsi. 22.2.2006 14:16
Hvert förum við nú nema hvergi! Borgarstjóri afhjúpar listaverk í miðri Reykjavíkurtjörn eftir setningu Vetrarhátíðar sem sett verður á morgun klukkan 20.30. Mun þetta vera eitt af tuttugu verkum eftir Stellu Sigurgeirsdóttir sem komið verður víðsvegar um Reykjavík og mun sýningin standa yfir í sex mánuði eða fram yfir Menningarnótt 2006. 22.2.2006 13:55
Food and fun hátíðin sett í dag Verið er að setja matar- og skemmtihátíðina Food and fun, eða matur og skemmtun, á Nordica hóteli þessa stundina. Þetta er í fimmta sinn sem Icelandair heldur hátíðina í samstarfi við íslenskan landbúnað og veitingamenn. 22.2.2006 12:03
Lækkun á innkaupsverði lyfja hefur ekki skilað sér Lækkun á innkaupsverði lyfja hefur ekki skilað sér í sama mæli til almennings og til ríkisins, vegna vaxandi fákeppni á lyfsölumarkaðnum, að mati Jóns Kristjánssonar heilbrigðisráðherra. 22.2.2006 12:01
Menntaskólanemendur á Akureyri skrópuðu í dag Stór hluti nemenda Menntaskólans á Akureyri skrópaði í dag og gekk í fylkingu á mótmælafund vegna fyrirhugaðrar skerðingar á námi til stúdentsprófs. Talsmaður nemenda segir til skammar að menntamálaráðherra skyldi ekki hitta nemendur að máli. Skólameistari MA leggst gegn verkföllum en skilur aðgerðir nemenda. 22.2.2006 11:59
Gengi krónunnar í frjálsu falli Gengi krónunnar og innlendur hlutabréfamarkaður var í frjálsu falli í morgun en rétti nokkuð úr kútnum laust fyrir hádegi. Hlutabréfavísitalan hefur lækkað um þrjú prósent í morgun og sama lækkun hefur orðið á úrvalsvísitölu hlutabréfa. Fjármálaráðherra segir að þetta kunni að skýrast af leiðréttingu á markaðnum sem neikvæð skýrsla Fitch Ratings, frá í gær, hafi hleypt af stað. 22.2.2006 11:57
Kunna ekki að reikna út skattbyrði almennings Hvorki Fréttastofa NFS, Kastljós Ríkissjónvarpsins, Stefán Ólafsson prófessor né ríkisskattstjóri, kunna að reikna út skattbyrði almennings, að mati Árna M. Mathiesens fjármálaráðherra. 22.2.2006 11:54
Áætlað að vitnaleiðslum ljúki í dag Spurt var um viðskiptamannareikninga, lánveitingar og bókhaldslykla í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag þegar aðalmeðferð í Baugsmálinu var fram haldið þar í morgun. Áætlað er að vitnaleiðslum verði lokið í dag og málflutningur fari síðan fram á morgun. 22.2.2006 11:52
Halldór Ásgrímsson og Tony Blair hittust í Downingstræti tíu í morgun Halldór Ásgrímsson forsætisráðhera og Tony Blair forsætisráðherra Bretlands hittast á formlegum fundi í Downingstræti tíu, fyrir hádegi í dag. Búist er við að þar ræði þeir alþjóðlamál almennt. 22.2.2006 09:20
Fjármálaráðherra gerir athugasemd við umfjöllun Kastljóssins Árni M. Mathiesen fjármálaráðherra gerði í gær formlega athugasemd við umfjöllun Kastljóssins á Ríkissjónvarpinu um skattamál. Í þættinum var meðal annars komist að þeirri niðurstöðu að skattbyrði hafi aukist hjá öllum tekjuhópum nema hátekjumönnum. 22.2.2006 09:15
Eldur við Skemmuveg Eldur kviknaði í atvinnuhúsi við Skemmuveg í Kópavogi í gærkvöldi, þar sem veisluþjónusta er meðal annars til húsa. Eldurinn var snarlega slökktur en skemmdir urðu af reyk. Eldsupptök verða könnuð í dag. 22.2.2006 09:14
Krónan veikist Krónan veiktist í gær um fjögur komma fjörtíu og fjögur prósent eftir að fréttir bárust af því að matsfyrirtækið Fitch Ratings hefði breytt lánshæfismati ríkissjóðs Íslands úr stöðugu í neikvætt. 22.2.2006 09:13