Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Búist við góðri síldarvertíð Íslenskir síldveiðimenn eru bjartsýnir vegna mikillar síldargegndar við Noregsstrendur. Gríðarlegt magn síldar úr norsk-íslenska síldarstofninum mun hrygna við Noregsstrendur í vor og búast menn við að mikið af þeim fiski skili sér til Íslands í sumar. 13.2.2006 13:43
Misvísandi spár um verðbólguþróun Greiningardeildir bankanna eru klofnar í afstöðu sinni til þess hvort verðbólga hækki eða lækki á næstunni. 13.2.2006 13:21
200 milljarða króna markið rofið Útgáfa erlendra skuldabréfa í innlendri mynt er komin yfir 200 milljarða króna markið. Það var ný útgáfa Deutsche Bank á föstudag sem rauf 200 milljarða króna markið. 13.2.2006 13:15
Slasaður sjómaður sóttur við slæm skilyrði Björgunarbáturinn Ingibjörg frá Höfn í Hornafirði fór í morgun í brimi, þoku og mikilli ölduhæð til móts við fjölveiðiskipið Vilhelm Þorsteinsson EA til að sækja slasaðan skipverja þar um borð. 13.2.2006 13:06
Samningafundur hjá LN og slökkviliðs- og sjúkraflutningamönnum Samninganefndir launanefndar sveitarfélaganna og Landssambands slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna funda í Karphúsinu nú klukkan eitt um kjaramál síðarnefnda hópsins, en eins og greint hefur verið frá höfnuðu slökkviliðs- sjúkraflutningamenn tilboði launanefndarinnar um 24 prósenta launahækkun fyrir helgi. 13.2.2006 12:49
Ætlar að berjast fyrir bættri stöðu sjálfstæðra skóla Talsmaður Samfylkingarinnar í menntamálum segist ætla að beita sér fyrir því að fleiri sjálfstætt starfandi skólum verði komið á fót í höfuðborginni. Þetta sjónarmið gengur þvert á málflutning R-listans undanfarin ár. 13.2.2006 12:45
Telja hval hafa hrundið af stað leit Nú er talið fullvíst að hvalur hafi hrundið af stað umfangsmikilli leit úr lofti, á sjó og með ströndum út af norðanverðu Seltjarnarnesi og á voginum út af Ánanaustum í gærkvöldi. 13.2.2006 12:30
Mikil endurnýjun í borgarstjórn Útlit er fyrir mikla endurnýjun í borgarstjórn eftir kosningarnar í vor. Miðað við uppröðun á lista og niðurstöður skoðanakannana að undanförnu má búast við að átta af fimmtán borgarfulltrúum komi nýir inn. 13.2.2006 12:00
Ók á bíl og stakk af Ökumaður á leið til Reykjavíkur ók yfir á rangan vegarhelming nærri Litlu kaffistofunni um tíuleytið í gærkvöldi og utan í bifreið sem á móti kom, skipti engu þó ökumaður þeirrar bifreiðar hefði vikið vel yfir í sinn vegarkant. 13.2.2006 11:52
Fyrirtaka í máli Bubba gegn Garðari og 365 - prentmiðlum Héraðsdómur tók í morgun fyrir meiðyrðamál Bubba Morthens á hendur Garðari Erni Úlfarssyni, fyrrverandi ritstjóra Hér og nú, og 365 - prentmiðlum. Bubbi krefur Garðar og 365 um 20 milljónir króna vegna umfjöllunar og myndbirtinga í Hér og nú í júní í fyrra um einkalíf hans. 13.2.2006 11:43
Leikfélag Akureyrar frumsýnir í nýju rými Nýjasta sýning Leikfélags Akureyrar, Maríubjallan, verður frumsýnd á fimmtudaginn í nýju húsnæði sem Leikfélagið hefur kosið að nefna einfaldlega Rýmið. Nýja húsnæðið stendur við Hafnargötu 73 og er hrein viðbót við þá starfsemi sem Leikfélagið er þegar með í Samkomuhúsinu. 13.2.2006 10:35
Heildarafli í janúar aðeins 1/6 af aflanum í fyrra Heildarfiskaflinn í janúar í ár var aðeins um einn sjötti af aflanum í sama mánuði í fyrra samkvæmt bráðabirgðatölum Fiskistofu. Rúm fjörutíu þúsund tonn veiddust í síðasta mánuði og hefur janúaraflinn ekki verið minni síðan 1995 þegar hann var um 37.400 tonn. Afli dróst saman í flestum tegundum en þó munar mest um loðnuna. 13.2.2006 10:30
Þvegið með jarðgufu í Hveragerði Nýtt þvottahús dvalarheimilisins Áss í Hveragerði mun þvo, þurrka og strauja með jarðgufu. Þetta er mun ódýrara en ef nota ætti raforku að sögn Gísla Páls Pálssonar, framkvæmdastjóra dvalarheimilisins. Fréttin birtist á fréttavefnum sudurland.is. 13.2.2006 10:24
Fyrsti farfuglinn kominn til landsins Fyrsti farfuglinn í ár er kominn til landsins. Á vefnum Fuglar.is er greint frá því að súla hafi nýverið sést á Kópaskeri, en algengt er að hún komi til landsins um þetta leyti. Næst er von á sílamávi og skúm. 13.2.2006 10:00
Flugvél Icelandair tafðist vegna ofsaveðurs í New York Flugvél Icelandair á leið frá New York og til Keflavíkur tafðist töluvert í nótt vegna ofsaveðursins sem geisað hefur í New York síðan í gær. Vélin fór í loftið um fimm og hálfum tíma á eftir áætlun og er væntanleg hingað til lands um hádegisbil. 13.2.2006 09:53
Ungir síbrotamenn dæmdir á Reykjanesi Sautján og átján ára piltar voru í morgun dæmdir af héraðsdómi Reykjaness í þriggja og tólf mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir þjófnað, íkveikjur og fíkniefnaeign. 13.2.2006 09:37
Líklega hætt við að selja Iceland Express Sænska lágjaldaflugfélagið Fly Me hefur kaypt ráðandi hlut í í Lithuanian Airlines í Litháen, en íslenska eignarhaldsfélagið Fons á meirihluta í Fly Me. Litháíska flugfélagið rekur sjö þotur og eru starfsmenn hátt í sex hundruð. 13.2.2006 09:30
Flughált á Kleifaheiði og Klettshálsi Vegagerðin varar við flughálku á Kleifaheiði og Klettshálsi. Á Vestfjörðum og Norðausturlandi er hálka og hálkublettir. Þá er hálka á Austfjörðum og éljagangur á Fjarðarheiði, snjóþekja og éljagangur á Fagradal og Oddsskarði. 13.2.2006 09:22
Dagur fékk 47 prósent atkvæða Dagur B. Eggertsson borgarfulltrúi vann öruggan sigur í prófkjöri Samfylkingarinnar í Reykjavík og fékk 47 prósent atkvæða í fyrsta sæti. Í næstu sætum eru Steinunn Valdís Óskarsdóttir borgarstjóri og borgarfulltrúarnir Stefán Jón Hafstein og Björk Vilhelmsdóttir. 13.2.2006 09:03
Leituðu að báti úti fyrir Seltjarnarnesi Umfangsmikil leit var gerð úr lofti, á sjó og með ströndum úr af norðanverðu Seltjarnarnesi og á voginum út af Ánanaustum í gærkvöldi eftir að tilkynningar bárust neyðarlínunni um að þar væri að líkindum hálfsokkinn bátur. 13.2.2006 08:45
Krókódílaveiðibanni ekki aflétt Í gruggugum fljótum og stöðuvötnum Ástralíu er ýmsan ófögnuð að finna. Krókódílar eru þar á meðal en Ástralar eru uggandi yfir hversu mikið þessum kvikindum hefur fjölgað undanfarin ár. Fyrir þremur áratugum voru krókódílaveiðar bannaðar þar sem stofninn hafði dregist svo saman en nú vilja margir Ástralar að þær verði heimilaðar á ný. 12.2.2006 20:00
Hjólabrautir mögulega í vegalög Vera kann að ríkið taki þátt í að koma á þéttriðnu neti hjólastíga í þéttbýlisstöðum og á milli þeirra á næstu árum geri Alþingi góðan róm að þingsályktunartillögu sem kynnt verður í vikunni 12.2.2006 19:45
Þörfin á fjórum herþotum ekki rökstudd Þörf Íslendinga á fjórum herþotum á Keflavíkurflugvelli rökstyðja stjórnvöld með almennri tilvísun til þess að aðrar þjóðir telji þörf á loftvörnum. Í þeirri lotu varnarmálaviðræðna sem hleypt var af stað í síðustu viku er haldið stíft við þá kröfu að Bandaríkjamenn haldi hið minnsta úti fjórum herþotum á Íslandi. 12.2.2006 19:30
Lá í blóði sínu í rigningu og kulda Maður á sjötugsaldri var látinn liggja í blóði sínu á bensínstöð á Selfossi eftir að hafa fengið aðsvif og skollið með höfuðið á steinkant við bensíndæluna. Enginn þeirra ökumanna sem leið átti um stöðina sá ástæðu til að koma honum til hjálpar. 12.2.2006 19:15
Öryggisgæsla hert á Keflavíkurflugvelli Öryggisgæslan á Keflavíkurflugvelli verður hert til muna á næstu misserum. Jóhann R. Benediktsson sýslumaður á flugvellinum segir Íslendinga þurfa að venjast því að þeir eru hluti af alþjóðlegu samfélagi. 12.2.2006 19:00
Leggur til hækkun á gjöldum Samkvæmt nýju frumvarpi fjármálaráðherra hækkar gjald fyrir að sækja um íslenskan ríkisborgararétt úr þrettán hundruð og fimmtíu krónum í tíu þúsund krónur. Þá þurfa landsmenn samkvæmt frumvarpinu að greiða sérstaklega fyrir að fletta Lögbirtingablaðinu á netinu. 12.2.2006 18:45
Djöfladýrkendur vilja stofna trúfélag á Íslandi Tveir íslenskir satanistar eða djöfladýrkendur ætla að sækja um leyfi til að stofna satanískt trúfélag hér á landi. Í kirkju satans í New York, kunnasta musteri skrattans, eru íslendingar meðal safnaðarmeðlima. Fjallað verður um satanisma í Kompási í kvöld. 12.2.2006 18:30
Var að reykja um borð í flugvél Lögreglan á Keflavíkurflugvelli var kölluð út að vél Icelandair við komuna frá Kaupmannahöfn um þrjú leytið í dag þar sem farþegi um borð hafði verið að reykja inn á klósetti vélarinnar. Slíkt er algjörlega bannað og liggja viðurlög við því. Lögreglan tók skýrslu vegna málsins en lögreglan segir að ekki sé um einstakt tilvik að ræða þar sem slík atvik eigi sér stað af og til. 12.2.2006 18:14
Dagur B. Eggertsson hlaut fyrsta sætið Prófkjöri Samfylkingarinnar í Reykjavík lauk í dag. Úrslitin eru þau að Dagur B. Eggertsson lenti í fyrsta sæti, Steinunn Valdís Óskarsdóttir í öðru og Stefán Jón Hafstein í því þriðja. Það er því ljóst að Dagur mun leiða flokkinn fyrir komandi borgarstjórnarkosningar. 12.2.2006 18:13
Vilja viðræður um aðild að ESB Stjórn Félags ungra Framsóknarmanna í Reykjavík vill að hafnar verið aðildarviðræður við Evrópusambandið um aðild Íslands að sambandinu. Félagið telur að aðildarviðræður milli Íslands og Evrópusambandsins séu réttur vettvangur til að kanna hvort að það þjóni hagsmuni Íslendinga betur að vera aðilar að sambandinu heldur en að standa utan þess. Félagið vill að aðildarviðræður verði hafnar ekki síðar en á næsta kjörtímabili. 12.2.2006 15:46
FlyMe kaupir Lithuanaian Airlines Sænska lággjaldaflugfélagið FlyMe, sem meðal annars er í eigu Fons eignarhaldsfélags, hefur samið um kauprétt á öllum hlutabréfum í litháenska flugfélaginu Lithuanaian Airlines. Kaupin munu eiga sér stað í nokkrum skrefum, en fram til 30. mars fer fram áreiðanleikakönnun en að henni lokinni verður gengið í kaupin. Fons á einnig Iceland Express flugfélagið. 12.2.2006 15:28
Rafmagn komið á aftur Rafmagnslaust varð í hluta Kópavogs vegna háspennubilunar um tvöleytið í dag. Rafmagnslaust varð á Smiðjuvegi, Kársnesbraut og í næsta nágrenni. Rafmang er nú komið á aftur en rafmagnsleysið má rekja til háspennubilunar í Lundi í Kópavogi. 12.2.2006 15:16
Rafmagnslaust í hluta Kópavogs Rafmagnslaust er í hluta Kópavogs vegna háspennubilunar. Rafmagnslaust er á Smiðjuvegi, Kársnesbraut og í næsta nágrenni. Viðgerð stendur yfir en ekki er ljóst hvenær henni lýkur. 12.2.2006 14:46
Yfir fimm þúsund hafa kosið Alls hafa fimm þúsund og eitt hundrað kosið í prófkjöri Samfylkingarinnar í Reykjavík. Kjörstöðum verður lokað klukkan sex. Í kvöldfréttum NFS klukkan hálf sjö verður bein útsending frá Þróttarheimilinu, þar sem fyrstu niðurstöður úr talningu verða kynntar. Mjótt hefur verið á mununum í skoðanakönnunum milli þeirra þriggja sem berjast um efsta sætið, Steinunnar Valdísar Óskarsdóttur borgarstjóra og borgarfulltrúanna, Dags B. Eggertssonar og Stefáns Jóns Hafstein. 12.2.2006 14:09
Áframhaldandi skjálftavirkni út af Grímsey Áframhaldandi jarðskjálftavirkni hefur verið út af Grímsey í nótt og í morgun. Stærsti skjálftinn frá miðnætti mældist 3,2 á richter kvarða. En skjálftavirkni hefur verið mikil á svæðinu síðustu þrjá dagana og á hátt í hundrað skjálftar hafa mælst en sá stærsti var 4,2 á richter. 12.2.2006 13:54
Fjórir fluttir á slysadeild Fjórir voru fluttir á slysadeild eftir bílveltu á Vesturlandsvegi rétt fyrir klukkan átta í morgun. Enginn er þó alvarlega slasaður. Slysið átti sér stað fyrir ofan Grundarhverfið á Kjalarnesi en bíllinn hafnaði á hliðinni eftir veltuna. Fólkið sem er á tvítugsaldri hefur allt verið útskrifað nema einn sem verður áfram undir eftirliti lækna í dag. 12.2.2006 11:56
Mikið um ölvunarakstur Óvenju margir voru teknir fyrir ölvunarakstur í höfuðborginni í nótt en sjö voru teknir grunaðir um ölvun við akstur. Sama ku hafa verið uppi á teningnum nóttina þar á undan en þá voru níu teknir fyrir ölvunarakstur. Annars hefur helgin verið með rólegasta móti um land allt. 12.2.2006 11:30
Mikil aukning á milli ára Barnarverndarnefndum landsins bárust tæpar fimmþúsund og níuhundruð tilkynningar vegna barna á síðasta ári. Það eru um fimmtíu prósent fleiri en árið 2004. Um helmingur tilkynninga var vegna áhættuhegðunar barns, þrjátíu prósent vegna vanrækslu og sextán prósent vegna ofbeldis. 12.2.2006 11:15
Sameining samþykkt í Flóanum Sameining hreppanna í austanverðum Flóanum var samþykkt í gær. Hrepparnir sem um ræðir eru Gaulverjabæjarhreppur, Hraungerðishreppur og Villingaholtshreppur og var kjörsókn var rúmlega sjötíu og eitt prósent. Tillagan var samþykkt með tæpum sjötíu prósent atkvæða. Í Hraungerðishreppi munaði þó ekki miklu en aðeins fjögur atkvæði skyldu á milli þeirra sem voru á móti sameiningu og þeirra sem voru henni hlynntir. 12.2.2006 10:45
Bæjarstjórar í fyrstu sætum Kristján Þór Júlíusson, bæjarstjóri á Akureyri hlaut yfirburðakosningu í prófkjöri Sjálfstæðismanna á Akureyri í gær. Þá hlaut Guðmundur G. Gunnarsson, bæjarstjóri á Álftanesi, afgerandi meirihluta atkvæða í prófkjöri Sjálfstæðismanna á Álftanesi og Halldór Halldórsson, bæjarstjóri á Ísafirði fékk einnig góða kosningu. 12.2.2006 10:14
Brjálað veður á Flateyri í gærkvöld Mikið vonskuveður reið yfir Flateyri í gærkvöld og fór vindhraði í allt að fjörtíu og fjóra metra á sekúndu. Vöruskemma í bænum hreinlega sprakk með þeim afleiðingum að braki rigndi yfir nærliggjandi hús og bíla. Tjónið af völdum veðurofsans er talið nema tugum milljóna. 11.2.2006 12:19
Sprengju kastað á símamarkaðinn Stóru símafyrirtækin og fleiri ætla að bjóða nýja tegund símaþjónustu, netsíma. Póst- og fjarskiptastofnun hefur heimilað flutning símanúmera yfir í nýja kerfið. Útlit er fyrir stóraukna samkeppni og lækkandi símakostnað. 11.2.2006 06:00
Efasemdir um einkavæðingu Landsvirkjunar Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra segist hafa miklar efasemdir um að einkavæða beri Landsvirkjun. Geir H. Haarde, formaður Sjálfstæðisflokksins, lýsti því yfir við upphaf landsfundar flokksins að stefna bæri að því að einkavæða fyrirtækið. Valgerður Sverrisdóttir iðnaðarráðherra tók í sama streng í viðtali við fjölmiðla. 10.2.2006 22:38
Hvattir til að hunsa staðsetningargjald Félag íslenskra stórkaupmanna vill að Samkeppnisráð athugi hvort um ólögmætt samráð hafi verið að ræða hjá Eimskipi og Samskipum við upptöku staðsetningargjalds. Það hvetur félagsmenn til að hunsa gjaldið. Forstjóri Samskipa segir ekkert óeðlilegt við staðsetningargjaldið. 10.2.2006 22:33
Holtasóley að þjóðarblómi Guðni Ágústsson, landbúnaðarráðherra, mælti í dag fyrir þingsályktunartillögu um að holtasóley verði gerð að þjóðarblómi Íslendinga.Ráðherrann sagði blómið fallegt og og það væri ánægjulegt að fá að leggja slíkt mál fyrir Alþingi. 10.2.2006 22:17