Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Skyndihjálparmaður ársins Rauði kross Íslands valdi Guðrúnu Björk Sigurjónsdóttur sem Skyndihjálparmann ársins fyrir rétt viðbrögð á neyðarstundu en hún vann það einstaka þrekvirki að bjarga þriggja ára dreng og stúlku frá drukknun þegar þau lentu í sjónum á Snæfellsnesi í apríl í fyrra. 10.2.2006 20:03
Áhyggjulaus um hagsmunaárekstur Þau sem keppa um fyrsta sætið í prófkjöri Samfylkingarinnar í Reykjavík verja hvert um sig um fimm milljónum króna til baráttunnar. Þau hafa ekki áhyggjur af hagsmunaárekstri þó meðal stuðningsaðila þeirra sé fjöldi fyrirtækja. 10.2.2006 19:43
Engar bætur fyrir fótamissi Pólskur maður, sem missti af báðum fótum eftir að hafa fengið blóðeitrun síðasta sumar við vinnu hér á landi, hefur lent á milli þils og veggjar í kerfinu og fær engar tryggingabætur. Átján ára sonur mannsins kom til landsins fyrir viku til að aðstoða hann og létta honum lífið. 10.2.2006 19:24
Oft stungið af eftir ákeyrslu Lögreglan í Kópavogi hefur vart undan að leita uppi ökumenn sem valda tjóni og stinga af frá verknaðinum. Lögreglan hvetur þá sem verða vitni af slíku til að taka niður númer þess sem stingur af og láta lögreglu vita. Jafnframt sé mjög mikilvægt að ökumenn hafi samband við lögreglu valdi þeir tjóni á annarri bifreið. Það sem í fyrstu virðist vera lítið tjón reynist oft vera mun meira en tryggingar bæta ekki tjónið nema um kaskótryggingu sé að ræða. 10.2.2006 18:13
Bílvelta við Kárahnjúka Starfsmaður Impregilo velti bíl við Kárahnjúka laust fyrir hádegi í dag. Maðurinn, sem er af erlendu bergi brotinn, var að keyra eftir malarvegi þegar hann velti bílnum í krappri beygju og fór eina veltu. Maðurinn var fluttur á fjórðungssjúkrahúsið á Neskaupstað til rannsóknar en að sögn læknis slapp hann án teljandi meiðsla og var einungis marinn og lemstraður. 10.2.2006 17:44
Líkamsárás dæmd lögmæt Þrítugur Pólverji var í dag sýknaður af ákæru um líkamsárás fyrir Héraðsdómi Reykjaness þar sem árás hans á 29 ára Íslending, sem átti sér stað aðfaranótt 9. nóvember 2005, var dæmd lögmæt og þar með refsilaus. 10.2.2006 17:11
Ekki seinna að vænna að jafna stöðuna Það gæti verið gaman að jafna aðeins stöðuna gagnvart Borís Spasskí segir Friðrik Ólafsson um skákir þeirra á morgun. Hann segir málþingið um feril sinn þó aðalatriðið og vonar að vinur sinn Spasskí verði ekki of harður í dómum um sig. 10.2.2006 17:04
Ólögmætt samráð? Félag íslenskra stórkaupmanna telur að svo geti verið að um samráð sé að ræða í upptöku staðsetningargjalds hjá skipafélögunum. Skipafélögin Eimskip og Samskip hafa með stuttu millibili tekið upp staðsetningargjald sem lagt er á alla innflutningsvöru til Íslands. Í tilkynningu frá Félagi Íslenskra stórkaupmanna segir að athygli vekji að félögin taki bæði upp gjaldið á nákvæmlega saman tíma og gjaldið sé jafnt hátt hjá báðum aðilum. 10.2.2006 16:40
Dæmd fyrir að aka unnustann niður Héraðsdómur Suðurlands dæmdi í dag tvítuga konu sem ók á unnusta sinn við tjaldmiðstöðina á Flúðum, til að greiða 130 þúsund krónur í sekt og svipti hana ökuréttindum í eitt ár. Konan játaði að hafa ekið drukkinn en neitaði að hafa vísvitandi keyrt á unnusta sinn. Sagðist hún aðeins muna að hafa rífst við hann og farið hágrátandi í bifreið sína og ekið af stað. Unnustinn reyndi að hindra förina en þá ók kærastan hann niður. Dómnum þótti ekki sannað að ákærða hefði vísvitandi ekið á unnustann. 10.2.2006 16:00
Síbrotamaður dæmdur Tæplega þrítugur karlmaður var í dag í Héraðsdómi Reykjavíkur dæmdur í fimm mánaða fangelsi fyrir brot á fíkniefnalögum og brot á skilorði með því að hafa í vörslu sinni 33 kannabisplöntur og 38 grömm af kannabislaufum í september 2005. 10.2.2006 15:25
Tígullinn nútímavæddur KEA tók í notkun nýtt merki í dag eftir að hafa notað græna tígulinn sem einkennistákn í rúma sjö áratugi. Félagið heldur sig þó við svipað form en nýja merkið er gult. 10.2.2006 14:08
Frestur fram til hádegis Fjórir starfsmenn Menntaskólans á Ísafirði fengu frest fram til hádegis til að skrifa undir samkomulag um þátttökuyfirlýsingu í svokölluðu skólaþróunarverkefni. 10.2.2006 14:01
Icelandair Group í Kauphöllina FL Group stefnir á skráningu Icelandair Group í Kauphöll Íslands og er undirbúningur þeirra skráningar þegar hafinn. Á kynningarfundi klukkan tvö í dag var upplýst að stjórn FL Group stefni að því að koma Icelandair Group í dreifða eignaraðild. 10.2.2006 13:46
Spasskí og Fischer hittast líklega um helgina Boris Spasskí, fyrrverandi heimsmeistari í skák, teflir einvígi við Friðrik Ólafsson, fyrsta íslenska stórmeistarann, hér á landi á morgun. Líkur eru á að Spasskí og Bobby Fischer muni hittast, en ekki hefur verið ákveðið hvort þeir mætist við skákborðið. 10.2.2006 13:45
Fjórir starfsmenn skikkaðir til að skrifa undir þátttökuyfirlýsingu Fjórir starfsmenn Menntaskólans á Ísafirði fengu frest fram til hádegis til að skrifa undir samkomulag um þátttökuyfirlýsingu í svokölluðu skólaþróunarverkefni. Ólína Þorvarðardóttir, skólameistari menntaskólans á Ísafirði, segir að tveir starfsmenn hafi nú þegar skrifað undir en óvíst sé með undirskrift hinna tveggja starfsmannana. Hún segir að endanleg niðurstaða muni liggja fyrir á mánudag. 10.2.2006 13:27
Vilja áframhaldandi breiðfylkingu stúdenta Háskólalistinn, sem náði oddaaðstöðu með einum fulltrúa, í illa sóttum stúdentaráðskosningunum í gær, vill að allir þrír listarnir haldi áfram breiðfylkingu stúdenta, fremur en að mynda meirihluta tveggja lista. 10.2.2006 13:03
Miskabætur vegna 16 ára gamals slyss Hæstiréttur dæmdi í gær Mosfellsbæ til að greiða ungum manni 500 þúsund krónur í miskabætur vegna slyss, sem hann lenti í á leikvelli í bænum fyrir 16 árum. 10.2.2006 13:02
Nautakjötsskortur vaxandi Nautakjötsskorturinn fer enn vaxandi þar sem bændur setja nú allar kvígur á, til mjólkurframleiðslu, þrátt fyrir að verð til þeirra fyrir nautakjöt hafi hækkað um tæp 40% á aðeins tveimur árum. 10.2.2006 12:57
450 hafa kostið utan kjörstaðar Um 450 manns höfðu kosið í utankjörstaðatkvæðagreiðslu Samfylkingarinnar nú undir hádegi. Nokkur spenna ríkir varðandi úrslit prófkjörsins flokksins sem fram fer um helgina, enda hart barist um efstu sætin. 10.2.2006 12:29
Alvarlegt slys á Hellisheiði Ökumaður slasaðist alvarlega, en þó ekki lífshættulega, þegar bíll hans lenti framan á bíl, sem kom úr gagnstæðri átt á Hellisheiði um klukkan átta í morgun. Þar var þá blindþoka, rigning og hvassviðri. Vegurinn lokaðist vegna árekstursins og var umferðinni beint um þrengslin. 10.2.2006 12:25
Impregilo bolar Íslendingum ekki burt Ómar Valdimarsson, upplýsingafulltrúi Impregilo, segir fyrirtækið ekki vera að bola Íslendingum frá vinnu við Kárahnjúkavirkjun. Hann telur ekkert hæft í ummælum Odds Friðrikssonar, yfirtrúnaðarmanns starfsmanna á Kárahnjúkasvæðinu, um að fyrirtækið leggi trúnaðarmenn í einelti. 10.2.2006 12:18
Góð loðnuveiði út af suðurstöndinni Góð loðnuveiði er nú út af suðurströndinni á móts við Ingólfshöfða og vilja sjómenn að þegar í stað verði aukið verulega við loðnukvótann, sem er sá lang minnsti í rúman áratug. 10.2.2006 12:13
Nýr ráðuneytisstjóri í sjávarútvegsráðuneytinu Jón B. Jónasson lögfræðingur og skrifstoðustjóri í sjávarútvegsráðuneytinu verður skipaður ráðuneytisstjóri sjávarútvegsráðuneytisins og tekur við starfinu þegar Vilhjálmur Egilsson lætur af því 15. mars næstkomandi. 10.2.2006 11:58
Litlu munaði að Vaka fengi meirihluta í Stúdentaráði Örfáaum atkvæðum munaði að Vaka, félag lýðræðissinnaðra stúdenta, næði fimmta manni í Stúdentaráð Háskóla Íslands á kostnað fjórða fulltrúa Röskvu, en úrslitin voru tilkynnt nú í morgunsárið. Niðurstaðan varð að hvor fylking fékk fjóra fulltrúa og Háskólalistinn einn. 10.2.2006 10:12
Hellisheiði opnuð á ný Búið er að opna Hellisheiði á ný, en henni var lokað vega umferaðrslyss sem varð á móts við Skíðaskálann í Hveradölum laust fyrir klukkan hálf níu. Allri umferð var beint um þrengslin á meðan björgunarmenn voru að athafna sig á vettvangi. 10.2.2006 09:57
Pottormablót haldið í 8. sinn Heldur óvenjulegt þorrablót verður haldið í sundlauginni á Suðureyri annað kvöld, eða svokallað Pottormablót. Á fréttavefnum Bæjarins besta segir að þetta sé í 8. sinn sem blótið er haldið. Á fyrsta blótið komu sex manns en vegna mikilla vinsælda hefur gestum fjölgað ár frá ári og í ár er búist við um þrjátíu gestum. Á pottormablótinu er borðaður þorramatur, sungið og spilað á gítar og farið í sundleiki. 10.2.2006 08:07
Boris Spasski á leið til landsins Boris Spasskí, fyrrverandi heimsmeistari í skák, og Friðrik Ólafsson, fyrsti íslenski stórmeistarinn í skák, ætla að heyja einvígi í skák í Reykjavík á morgun, að sögn Morugnblaðsins. Spasskí er væntanlegur til landsins í tilefni alþjóðlegs málþings um feril Friðriks, sem Skáksambandið stendur fyrir. Ekki liggur fyrir hvort Spasský ætlar að hitta Bobby Fischer, sem hrifsaði af honum heimsmeistaratitilinn í Laugadalshöll á sínum tíma. 10.2.2006 08:00
Tveir bílar fóru útaf í Víðidal Einn ökumaður slapp lítið meiddur og annar ómeiddur þegar þeir misstu báðir bíla sína út af veginum í Víðidal í Húnavatnssýslu í gærkvöldi, í fljúgandi hálku. Óhöppin urðu með skömmu millibili og nánst á sama stað. Annar bíllinn er gjör ónýtur og þykir mikið lán að ökumaður hans skuli ekki hafa meiðst mikið. 10.2.2006 08:00
Mosbellsbær dæmdur til að greiða miskabætur Hæstiréttur dæmdi í gær Mosfellsbæ til að greiða ungum manni 500 þúsund krónur í miskabætur vegna slyss, sem hann lenti í á leikvelli í bænum fyrir 16 árum. Þá féll á hann tæplega 200 kílóa kofi, eða leikhýsi, og hlaut hann áverka á höfði, kviði og innri líffærum. 10.2.2006 07:45
Ökumaður grunaður um ölvun olli slysi í Árbæjarbrekkunni Maður, sem er grunaður um ölvun, missti stjórn á bíl sínum í Árbæjarbrekkunni í nótt, sem hafnaði á ljósastaur, með þeim afleiðingum að hann bortnaði og féll inn á veginn. Bíl sem bar að rétt í þann mund, var svo ekið á staurinn liggjandi. 10.2.2006 07:35
Vilja byggja upp hestaakademíu að Kjóavöllum Nokkurs konar hestaakademía með hesthúsabyggð fyrir 4500-5000 hesta mun rísa á Kjóavöllum í Kópavogi ef hugmyndir bæjaryfirvalda verða að veruleika. Hugmyndirnar voru kynntar á fjölmennum fundi í félagsheimili Gusts fyrr í kvöld. 9.2.2006 22:03
Nýr þurrklifursaðstaða hjá HSSR Ísklifrarar þurfa ekki að leggja axirnar á hilluna þó að aðstæður til að iðka íþróttina hafi ekki verið upp á sitt besta undanfarið. Í húsi Hjálparsveitar skáta er nú búið að setja upp aðstöðu til þurrklifurs eða dry-tooling eins og það hefur verið kallað á ensku. 9.2.2006 22:57
183 hafa smitast af HIV Yngsti Íslendingurinn sem hefur greinst með alnæmi var innan við fimm ára gamall og smitaðist í móðurkviði. Alls hafa 183 Íslendingar smitast af HIV-veirunni frá árinu 1983. 9.2.2006 22:48
Hátt gengi krónunnar að gera út af við ferðaþjónustuna Hátt gengi krónunnar vegna stóriðjuframkvæmda mun ganga af mörgum smáum og meðalstórum ferðaþjónustufyrirtækjum dauðum þegar næsta sumar. Ein aðalástæðan eru stóriðjuframkvæmdir segir Hjörleifur Finnsson, framkvæmdastjóri Íslenskra fjallaleiðsögumanna. 9.2.2006 22:39
Ágreiningur um erlendar fjárfestingar í sjávarútvegi Ágreiningur er á milli sjávarútvegsráðherra og forsætisráðherra um það hvort leyfa eigi útlendingum að fjárfesta í íslenskum sjávarútvegi. Sjávarútvegsráðherra segir málið ekki á dagskrá ríkisstjórnarinnar. 9.2.2006 22:19
Börnin verða gáfaðri Nýjar rannsóknir benda til að börn mæðra sem taki lýsi eða borði fisk á meðgöngu verði gáfaðri og aðlagist betur félagslega en önnur börn. Þetta er enn ein rannsóknin sem sýnir hversu mikilvægar omega-3 fitusýrurnar eru sem lýsi er afar auðugt af fyrir andlega og líkamlegan þroska. Lýsisgjöf hefur meira að segja dregið úr ofbeldi í fangelsum. 9.2.2006 20:26
Slysum í landflutningum fjölgar ört Slysum í landflutningum hefur fjölgað ört á undanförnum árum. Málþing um landflutninga og umferðaröryggi fór fram á Grand Hótel í dag. 9.2.2006 20:04
Ósanngjarnar forsendur Baráttumenn fyrir jarðgöngum til Vestmannaeyja taka fréttum um að kostnaðurinn geti numið allt að 100 milljörðum króna með fyrirvara. Þeim þykir óeðlilegt að miða við ströngustu kröfur um jarðgöng í Evrópusambandinu, þar sem reiknað er með miklu meiri umferð en hér á landi. 9.2.2006 19:00
Fiskbúðir ganga kaupum og sölum Fiskbúðir í Reykjavík hafa gengið kaupum og sölum að undanförnu. Sami eigandi er að sex búðum en hefur enn ekki tekið við þeim öllum 9.2.2006 18:55
Skaðbrenndir drengir vara við hættulegum leik Bjarki Jóhannsson og Andrés Valur Jóhannsson sem brenndust alvarlega þegar þeir fiktuðu með eldfimt efni í Grafarvogi í nóvember, vilja vara aðra krakka við að leika sér með eld og eldfim efni. Andrés Valur þurfti að dvelja á sjúkrahúsi í mánuð, en Bjarki hefur legið á sjúkrahúsi frá slysinu. 9.2.2006 18:53
SÍF verður Alfesca SÍF hf. hefur breytt nafni sínu í Alfesca og samhliða því tekið upp nýtt fyrirtækismerki. Í tilkynningu frá félaginu segir að nýtt nafn og merki sé tilkomið vegna umfangsmikilla breytinga á starfsemi félagsins. 9.2.2006 17:53
Bankarnir haft margfalt meiri ruðningsáhrif en stóriðjuframkvæmdir Friðrik Sophussson, forstjóri Landsvirkjunar, segir að bankarnir hafi haft margfalt meiri ruðningsáhrif í efnahagslífinu en stóriðjuframkvæmdir. Hann segir arðsemi Kárahnjúkavirkjunar mjög svipaða og í sambærilegum fyrirtækjum annars staðar. 9.2.2006 17:49
Sex mánaða fangelsi fyrir ölvunarakstur Hæstiréttur Íslands staðfesti í dag dóm Héraðsdóms Suðurlands yfir karlmanni sem hlaut sex mánaða fangelsisdóm fyrir ölvunarakstur. Maðurinn var jafnframt sviptur ökuréttindum ævilangt. Maðurinn hefur ítrekað gerst sekur um ölvunarakstur frá árinu 1997 og önnur umferðarlagabrot. 9.2.2006 17:34
Lóðaúthlutun hjá Sörla frestað Lóðaúthlutun á svæði hestamannafélagsins Sörla í Hafnarfirði hefur verið frestað vegna nýrrar tillögu stjórnar félagsins að þéttingu hesthúsabyggðar við Sörlaskeið og Kaplaskeið. Þetta kemur fram á heimasíðu Sörla. 9.2.2006 17:33
Spassky og Friðrik tefla um helgina Boris Spassky, fyrrverandi heimsmeistari í skák, og Friðrik Ólafsson, stórmeistari, munu tefla tveggja skáka einvígi á laugardaginn kemur. Spassky kemur hingað til lands á morgun og mun hann meðal annars flytja erindi um alþjóðlegan feril Friðriks Ólafssonar sem er fyrsti íslenski stórmeistarinn í skák. Erindið verður flutt á málþingi sem Skáksamband Íslands stendur fyrir á laugardaginn og er haldið í aðalbanka Landsbanka Íslands. 9.2.2006 17:06