Fleiri fréttir

Íslendingar sendu 800 þúsund SMS-skilaboð á gamlárskvöld og fram á nýársdagsmorgun.

Það er fátt sem hefur vaxið með öðrum eins ógnarhraða á síðustu árum eins og fjöldi Sms-sendinga. Í aldarbyrjun sendu jarðarbúar ekki nema 17 milljarða sms sendinga á ári, ári eftir var fjöldinn kominn í 250 milljarða og árið 2004 sendu farsímanotendur yfir 500 milljarða sms sendinga, sem þýðir að hver einasti jarðarbúi sendi 8-9 sms á ári.

Mun hækka verðlag á matvöru

Sama dag og forsætisráðherra lagði áherslu á að lækka verð á matvöru í nýársávarpi, var tekin upp gjaldskrá yfir umbúðaverð, sem auðsýnt er að leggist beint á útsöluverð matvæla.

Sveitarstjórnarmenn skilja loks alvarleika málsins

Formaður Félags leikskólakennara leggur traust sitt á vinnuhóp um bætt kjör leikskólakennara og telur að vinna hans leiði til launahækkana og að leikskólakennarar hætti við að segja upp störfum. Vinnuhópurinn verður boðaður til fundar síðar í vikunni.

Gleymdist að loka bensínloki

Sjúkraflug á Vestfirði dróst úr hömlu á nýársnótt, meðal annars vegna þess að það gleymdist að loka bensínloki á sjúkraflugvélinni.

Búið að opna Kjalarnes fyrir umferð.

Kjalarnesið hefur verið opnað fyrir umferð á ný eftir tveggja klukkustunda lokun. Jeppi og fólksbíll lentu saman með þeim afleiðingum að jeppinn valt. Þrír voru fluttir á sjúkrahús en ekki er talið að fólkið sé alvarlega slasað.

Lokun NMT- farsímakerfisins frestað

Póst- og fjarskiptastofnun hefur tilkynnt Símanum að heimild verði nýtt til að fresta lokun NMT kerfisins til 31. desember 2008. Sú ákvörðun byggir m.a. á umsögnum sem bárust við umræðuskjali sem stofnunin birti þann 24. október síðastliðin um framtíðarnotkun NMT-450 tíðnisviðsins á Íslandi.

Bílvelta á Kjalarnesi

Fólksbíll og jeppi skullu saman á Kjalarnesi með þeim afleiðingum að jeppinn valt. Ekki er vitað á þessari stundu hvort einhver hefur slasast. Þjóðvegi eitt hefur verið lokað tímabundið.

Tómas í fríi frá störfum sínum á Landspítalanum

Tómas Zoega geðlæknir, sem vann mál í Héraðsdómi fyrir helgi sem hann höfðaði gegn Landspítalanum fyrir að færa hann úr starfi yfirlæknis í starf sérfræðilæknis, er kominn í frí. Þegar fréttastofan spurði eftir Tómasi á Landspítalanum nú síðdegis fengust þau svör að hann yrði í fríi næstu þrjár vikurnar.

Bensínverð hækkar

Stóru olíufélögin þrjú hafa öll hækkað verðið á bensínlítranum um eina krónu og fimmtíu aura.

Ófært yfir Hrafnseyrar- og Dynjandisheiði

Ófært er yfir Hrafnseyrar- og Dynjandisheiði. Á Vestfjörðum er víða hálka eða hálkublettir, flughált um Eyrarfjall og með öllu er ófært yfir Hrafnseyrar- og Dynjandisheiði.

Fjöldi banaslysa talsvert undir meðaltali

Nítján létust í sextán banaslysum hér á landi á síðasta ári, þrettán karlar og sex konur. Það er talsvert færra en þeir sem látist hafa að meðaltali á síðastliðnum fimm árum.

Vestfirðingar telja Sturlu Böðvarsson hafa staðið sig best

Vefritið Skessuhorn framkvæmdi könnun á vef sínum um miðjan desember. Spurt var að því hvaða þingmaður NV kjördæmis hefði staðið sig best á árinu. Niðurstaðan varð sú að flestir völdu Sturlu Böðvarsson, eða 29,7%. Í öðru sæti varð Kristinn H Gunnarsson með 22,9%, þá Einar K Guðfinnsson með 9,7% og Sigurjón Þórðarson með 8,6%. Í réttri röð þar á eftir komu Jón Bjarnason, Guðjón A Kristinsson, Jóhann Ársælsson, Magnús Stefánsson, Einar Oddur Kristjánsson og Anna Kristín Gunnarsdóttir.

Hlaut varanlegan augnskaða af völdum flugelds

Pilturinn sem fékk flugeld í andlitið á Tálknafirði á gamlárskvöld liggur enn á augndeild Landspítalans og mun vera þar næstu daga að sögn vakthafandi læknis. Pilturinn er með töluverða áverka á hægra auga og ljóst er að hann mun ekki fá fulla sjón á því auga aftur.

Saga Boutique Icelandair gerir samning við Flugstöðina

Saga Boutique Icelandair og Flugstöð Leifs Eiríkssonar hf. hafa gert með sér samning um rekstur verslunar með dömu- og herrafatnað, skó og fylgihluti. Lögð verður áhersla á þekkt vörumerki s.s. Boss, Burberry, Sand, Wolford og Lacoste auk þess sem fatnaður eftir íslenska hönnuði mun standa til boða í versluninni.

Draga uppsagnir líklega til baka

Þeir tólf leikskólakennarar sem sögðu upp störfum á leikskólanum Sólbrekku á Seltjarnarnesi á fimmtudaginn síðasta munu að öllum líkindum draga uppsagnir sínar til baka, að sögn Ásdísar Þorsteinsdóttur aðstoðarleikskólastjóra.

Nokkur erill hjá lögreglu í Árnessýslu um áramótin

Nokkur erill var hjá lögreglu í Árnessýslu þessi áramót, en frá hádegi á gamlársdags að miðnætti nýársdags voru skráð 27 verkefni hjá lögreglunni eftir því sem fram kemur í dagbók hennar. Stærsta verkefnið var stórbruninn í húsi Hjálparsveitar skáta í Hveragerði upp úr hádegi á gamlársdag.

Segir vakt hafa verið í Reykjavík til miðnættis

Rúnar Árnason, framkvæmdastjóri Landsflugs, vill taka fram að þótt sjúkravél félagsins hafi verið flogið frá Ísafirði á hádegi á gamlársdag, hafi verið vakt í Reykjavík til að sinna sjúkaraflugi vestur, alveg til miðnættis, en útkallið kom rétt eftir miðnætti. Þá átti Mýflug að hafa tekið við.

Flughált frá Súðavík í Ögur og um Eyrarfjall

Flughált er á Vestfjörðum frá Súðavík í Ögur og um Eyrarfjall samkvæmt upplýsingum Vegagerðarinnar. Hálka er á Steingrímsfjarðarheiði, hálkublettir eru á Ströndum og á sunnanverðum Vestfjörðum er hálka og hálkublettir.

Séreignasparnaður skerðir lífeyrisgreiðslur

Séreignarsparnaður er dreginn frá lífeyrisgreiðslum og skerðir tekjutryggingaraukann. Lagabreytingu þarf til að koma í veg fyrir skerðinguna, segir Kristinn H. Gunnarsson, formaður stjórnar Tryggingastofnunar.

Falun Gong liðar vilja bætur frá ríkinu

Þeir Falun Gong liðar sem meinað var að koma til landsins þegar Jiang Zemin, forseti Kína, kom í heimsókn fyrir um þremur árum krefja íslenska ríkið um bætur vegna málsins og vilja fá þann lista yfir Falun Gong iðkendur sem íslensk stjórnvöld höfðu til grundvallar.

Virðist hafa hætt sjúkraflugi of snemma

Landsflug virðist hafa hætt sjúkraflugsþjónustu sinni á Vestfjörðum of snemma og Mýflug tekið of seint við henni með þeim afleiðingum að óeðlilega langan tíma tók að útvega sjúkraflugvél frá Flugfélagi Íslands á nýársnótt.

Harður árekstur í Njarðvík í gær

Allharður árekstur varð í gærkvöld í Njarðvík á mótum Holtsgötu og Gónhóls. Þar rákust saman tvær bifreiðar með þeim afleiðingum að önnur þeirra hafnaði inni í húsgarði og skemmdi þar þriðju bifreiðina í innkeyrslu. Einn var fluttur á sjúkrahús en hlaut ekki alvarlega áverka. Viðkomandi kvartaði þó undan verkjum í hnjám og baki.

Eimskip tekur við rekstri Herjólfs

Vestmannaeyjaferjan Herjólfur fer fyrstu ferð sína á þessu ári í dag samkvæmt nýju leiðakerfi, eftir að Eimskip tók við rekstrinum um áramótin. Ferðum hefur verið fjölgað í tvær á dag nema hvað ein ferð verður farin einstaka hátíðisdaga.

Farsímanotkun danskra ökumanna gerð refsiverð

Síðastliðið haust tóku Danir upp nýtt kerfi við umferðalagabrotum sem byggist á því að hak er klippt í ökuskírteini við ákveðin umferðarlagabrot. Klippikerfið hefur þótt virka vel og nú ætlar danski dómsmálaráðherrann, Lene Espersen, að bæta enn fleiri umferðarlagabrotum á klippilistann. Nú þegar eru sautján brot á listanum og á þessu ári munu bætast við fleiri og nú mega ökumenn búast við haki í ökuskírteinið tali þeir í farsíma.

Loðnuleit hefst á morgun

Verið er að undirbúa hafrannsóknaskipið Árna Friðriksson ásamt fimm loðnuskipum til loðnuleitar sem á að hefjast á morgun. Leit á að hefjast norðvestur af landinu, en þar hefur verið hafís að undanförnu. Hann verður kannaður úr lofti í dag.

Hannes fær fjórar milljónir í forstjóralaun á mánuði

Hannes Smárason, sem varð forstjóri FL Group þegar Ragnhildur Geirsdóttir lét af því starfi í október, fær fjórar milljónir króna í mánaðarlaun og sjö aðrir lykil starfsmenn félagsins fá 2,2 milljónir á mánuði auk bónusgreiðslu sem ákveðin verður í árslok. Þetta kemur fram í skráningarlýsingu FL Group til Kauphallarinnar.

Danskir fréttamenn fá trúfræðslu

Samtök múslima í Danmörku hafa ákveðið að halda námskeið í Íslmamstsrú fyrir danska fréttamenn. Námskeiðið mun taka einn dag og er áætlað að halda það í apríl. Þar verða fréttamenn fræddir um helstu atriði múhammeðstrúar. Talsmaður múslíma í Danmörku segir aðal ástæðuna vera skopteikningarnar af Allah sem birtust í Jótlandspóstinum í síðastliðið haust.

Handteknir eftir að hafa kveikt í flugeldaafgöngum

Þrír piltar á aldrinum níu til ellefu ára voru handteknir í Reykjavík í nótt eftir að þeir höfðu gert bálköst úr flugeldaafgögnum og kveikt í. Lögreglumenn slökktu eldinn og óku piltunum heim til þeirra, þar sem foreldrar þeirra voru látnir vita af tiltækinu. Ekkert tjón hlaust af.

Töluvert grjóthrun á þjóðveginn um Hvalnesskriður

Töluvert grjóthrun var niður á þjóðveginn um Hvalnes- og Vattarnesskriður í nótt og er vegurinn vart fær fólksbílum. Ekki er vitað til að slys hafi hlotist af og vegagerðarmenn frá Höfn í Hornafirði eru lagðir af stað til að hreinsa veginn. Mikil rigning var á þessum slóðum í gærkvöldi sem olli leysingu í hlíðunum fyrir ofan veginn

Spánverjar banna reykingar

Það er ekki víst að allir Spánverjar hafi fagnað nýja árinu af heilum hug því að í dag gekk í gildi algert reykingabann á opinberum stöðum á Spáni, í landi þar sem reykingar eru útbreiddari en víða annars staðar.

Lögreglan rannsakar nauðgun

Lögreglan í Reykjavík rannsakar nauðgun á skemmtistaðnum Broadway laust eftir klukkan fjögur í nótt.Maður um tvítugt var handtekinn í nótt en talið er að hann hafi notfært sér ölvunarástand stúlkunnar til að koma fram vilja sínum á dansgólfi staðarins.

Sjúkraflug tók alltof langan tíma

Forseti bæjarstjórnar Vesturbyggðar kennir heilbrigðisráðuneytinu um að þrjá tíma hafi tekið að fá sjúkraflugvél til Bíldudals þegar ungur maður slasaðist við meðferð flugelda í nótt. Vestfirðingar hafa krafist þess að sjúkraflugvél sé til staðar á Ísafjarðarflugvelli en í nótt þurfti að leita til Akureyrar eftir flugvél.

Skemmdarverk á skóla á Akranesi

Þrjár rúður voru brotnar og hluti af klæðningu sprengd með flugeldum á Brekkubæjarskóla á Akranesi í nótt. Lögreglu var gert viðvart og hafði hún hendur í hári þeirra sem ábyrgð báru á verknaðinum. Það voru skólapiltar sem höfðu eitthvað farið fram úr sér í nýársgleðinni. Málið telst að fullu upplýst.

Tólf fá fálkaorðu

Við hátíðlega athöfn á Bessastöðum sæmdi forseti Íslands í dag, 1. janúar 2006 tólf Íslendinga heiðursmerki hinnar íslensku fálkaorðu.

Forseti Íslands hvetur fólk til að búa öldruðum áhyggjulaust ævikvöld

Í nýársræðu sinni hvatti forseti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, Íslendinga til að búa öldruðum áhyggjulaust ævikvöld. "Á æskuskeiði hinna eldri hafði þjóðin um aldir búið við þröngan kost, heimastjórn og fullveldi voru nýlega í höfn en heimskreppan á næsta leiti. Þúsundir heimila áttu erfitt með að ná endum saman og óvissa ríkti um framtíðina."

Maður á fimmtugsaldri úrskurðaður í sjö daga gæsluvarðhald

Að morgni gamlársdags voru þrjár konur og einn karl handtekin vegna meintra fíkniefnabrota, fannst á þeim lítilræði af fíkniefnum. Manninum var sleppt eftir yfirheyrslur, en ekkert fannst í fórum hans. Við leit á heimilum kvennanna og í bifreið fannst töluvert magn til viðbótar. Í kjölfar yfirheyrsla var maður á fimmtugsaldri handtekinn.

Lögreglan á Ísafirði leggur hald á fíkniefni

Þann 30. desember síðast liðinn stsöðvaði lögreglan á Ísafirði bifreið sem var að koma frá Reykjavík. Í bifreiðinni voru þrír menn og fannst á þeim 12 grömm af amfetamíni og 2 grömm af hassi. Mennirnir voru allir færðir til yfirheyrslu og í framhaldinu framkvæmd húsleit þar sem fundust áhöld til fíkniefnaneyslu. Mönnunum var síðan sleppt að yfirheyrslunni lokinni.

Fyrsta barn ársins

Þrjátíu og fjórum mínútum eftir að nýja árið gekk í garð kom fyrsta barn ársins í heiminn. Barnið, sem er drengur, var sextán merkur og fimmtíu og tveir sentimetrar og gekk fæðingin vel.

Nýtt ár hófst með róstum í Írak

Nýtt ár hófst með róstum í Írak í morgun. Tvær bílsprengjuárásir voru gerðar í Bagdad en til allrar lukku varð ekkert mannfall.

Áramótin gengu að mestu slysalaust fyrir sig.

Áramótin gengu að mestu slysalaust fyrir sig þetta árið og víðast um land segir lögregla áramótin óvenjugóð þetta árið. Maður situr í fangageymslum lögreglunnar í Reykjavík vegna gruns um nauðgun á skemmtistað í Austurborginni. Ungur drengur var fluttur með sjúkraflugi frá Patreksfirði til Reykjavíkur vegna áverka í andliti eftir flugeldaskot.

Sjá næstu 50 fréttir