Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Verulegar áhyggjur af styrkleika krónunnar Hagfræðingur ASÍ vonaðist til að Seðlabankinn biði með vaxtahækkun fram í janúar. Framkvæmdastjóri SA segir að hækkunin hafi verið skynsamleg. KB banki telur að lítil hækkun eftir stór orð komi niður á trúverðugleika bankans. 4.12.2005 06:00
Borgin á að borga fyrir túlkun Héraðsdómur Reykjavíkur hefur viðurkennt greiðsluskyldu Reykjavíkurborgar vegna aðstoðar táknmálstúlks á foreldrafundum í barnaskóla þar sem málefni barna heyrnarlausra hjóna voru til umfjöllunar. 4.12.2005 05:45
Verkefnið Atvinna með vinnu hlaut Múrbrjótinn í ár Alþjóðadagur fatlaðra er í dag. Af því tilefni afhentu Landssamtökin Þroskhjálp þremur aðilum Múrbrjóta. Múrbrjótur er viðurkenning sem samtökin veita aðilum eða verkefnum sem hafa rutt fólki braut með fötlun nýtjar brautir til jafnréttis við aðra í samfélaginu. 3.12.2005 17:30
Norskur prins fæddist í nótt Norskur prins fæddist á Ríkissjúkrahúsinu í Osló í nótt. Hákon krónprins brosti að vonum eyrna á milli þegar hann tilkynnti blaðamönnum um fæðingu prinsins í morgun. Hann sagði að móður og barni heilsaðist vel og gat þess einnig að drenguinn hefði verið 52 sentimetrar og 16 merkur. 3.12.2005 16:00
Vinnuslys í Kárahnjúkum Tveir menn voru fluttir á Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri eftir vinnuslys í Kárahnjúkum í dag. Tvær lestar skullu saman inni í aðgöngum tvö við Kárahnjúka um hálf ellefu leytið í morgun. 3.12.2005 14:54
Beygur í Bandaríkjamönnum Beygur er í Bandaríkjamönnum eftir að tíu landgönguliðar féllu í sprengjuárás, í Írak. Þetta er mesta mannfall sem orðið hefur, í einni árás, í marga mánuði. 3.12.2005 14:00
Belgísk samkynhneigð pör fá að ganga í það heilaga Neðri deild belgíska þingsins hefur samþykkt lög sem veita samkynhneigðum leyfi til að ættleiða börn. Ef lögin verða samþykkt í öldungadeild þingsins verður Belgía þriðja Evrópusambandslandið sem leyfir slíkt, en Svíar og Spánverjar hafa þegar gert það, en þess má geta að fyrir Alþingi liggur fyrir frumvarp sama efnis. Belgar eru þó framar en Íslendingar þegar kemur að löggjöf um hjónaband því samkynhneigðir í Belgíu hafa í tvö ár mátt ganga í það heilaga og er talið að fimm þúsund pör hafi þegar nýtt sér það. 3.12.2005 13:06
Á annað kíló haldlagt á viku Lögreglan á Akureyri hefur lagt hald á um eitt og hálft kíló af fíkniefnum í þessari viku og telur hún að efnin hafi verið ætluð til sölu í bænum. Lögreglan handtók í nótt mann á þrítugs aldri en hann er grunaður um að hafa um nokkur skeið selt fíkniefni. 3.12.2005 13:05
Danskir teiknarar dæmdir til dauða af Pakistönskum trúflokki Einn af stærstu trúflokkum Pakistans hefur dæmt tólf danska teiknara til dauða, og lagt fé til höfuðs þeim. Leyniþjónusta dönsku lögreglunnar hvetur teiknarana til þess að gæta varúðar. 3.12.2005 13:01
Spurning um trúverðugleika bankans Seðlabankinn tapaði trúverðugleika í gær, segir Greining Íslandsbanka, með of lítilli stýrivaxtahækkun. Bankinn segir að krónan veikist eftir helgi. 3.12.2005 13:00
Byggðastofnun ósammála skýrslu Byggðastofnun gerir alvarlegar athugasemdir við skýrslu Stjórnahátta um útlánatap stofnunarinnar. Byggðstofnun segir að upplýsingar í skýrslunni um útlán og afskriftarreikning útlána standist ekki. 3.12.2005 12:59
Hreinsaður af vísindavefnum Svör Stefáns H. Ófeigssonar geimverkfræðings hafa verið fjarlægð af Vísindavef Háskóla Íslands. Virðist þetta hafa verið gert í kjölfar þess að Stefán var dæmdur í tveggja og hálfs árs fangelsi fyrir hrottalega nauðgun þar sem hann er talinn hafa beitt svefnlyfi á fórnarlamb sitt. 3.12.2005 08:00
Fjárnám án árangurs eykst Árangurslaust fjárnám í eignum fólks undir þrítugu, er þrjátíu prósentum algengara nú en það var árið 2001. Þetta kom fram í svari Björns Bjarnasonar dómsmálaráðherra við fyrirspurn Valdimars L. Friðrikssonar, þingmanns Samfylkingarinnar. 3.12.2005 08:00
Strætó bætir við leiðum Stjórn Strætó bs. ræðir nú róttækar breytingar á nýja leiðakerfinu. Þær felast meðal annars í því að bæta við þremur nýjum leiðum. 3.12.2005 08:00
Ríkið borgi yfir 24 milljónir Hjónum og tólf ára gömlum fjölfötluðum syni þeirra hafa verið dæmdar rúmlega 24,2 milljónir króna í bætur, auk vaxta, vegna mistaka starfsfólks Landspítalans á meðgöngu og við fæðingu drengsins. Málið var höfðað árið 2002 á hendur ríkinu, en því var einnig gert að greiða þrjár milljónir í málskostnað. Heildarkrafa fólksins hljóðaði hins vegar upp á rúmar 70 milljónir króna. 3.12.2005 07:45
Ógildir úrskurð engu að síður Hæstiréttur felldi í gær úr gildi þann úrskurð Héraðsdóms Reykjavíkur að Sigurður Tómas Magnússon, settur saksóknari í Baugsmálinu, væri ekki bær til þess að fara með ákæruvald í þeim hluta málsins sem enn er rekinn fyrir dómstólum. 3.12.2005 07:00
Meiri áhersla á ölvunarakstur Líkt og undanfarin ár leggur lögregla í Reykjavík aukna áherslu á eftirlit með ölvunarakstri í desember. Lögreglan segir reynslu undanfarinna ára vera þá að í desember freistist fleiri ökumenn til að aka undir áhrifum áfengis. 3.12.2005 07:00
Gróðursett á aðventunni Kapp er lagt á að ljúka frágangi við nýju Hringbrautina og hluta Miklubrautar og er stefnt að því að allt verði fínt og flott fyrir jól. Meðal annars hefur verið tyrft og gróðursett og kann einhverjum að þykja undarlegt að slík verk séu unnin á þessum árstíma. 3.12.2005 06:30
Fundu bæðihass og vopn Tvö fíkniefnamál komu upp í umdæmi Keflavíkurlögreglunnar á aðfaranótt föstudags. Skömmu fyrir klukkan tvö vaknaði um það grunur hjá lögreglumönnum við eftirlit á skemmtistað í Keflavík að einn gesta staðarins hefði á sér fíkniefni. Við leit á honum fannst hassbútur sem lögregla lagði hald á. 3.12.2005 06:30
Thelma valin Ljósberi ársins Thelma Ásdísardóttir var í gær útnefnd Ljósberi ársins 2005 af Stígamótum. Dómnefndin segir að Thelma sé útnefnd vegna þess að hún hafi með ógleymanlegum hætti snortið þjóðarsálina þegar hún kynnti átakanleg uppvaxtarár sín. 3.12.2005 06:00
Tímamót í mjólkuriðnaði Fyrirtækið Mjólka tók formlega í notkun nýja mjólkurstöð í gær. Það var Guðni Ágústsson landbúnaðarráðherra sem tók við fyrstu framleiðslu stöðvarinnar, fetaosti, sem ber heitið Léttfeti. 3.12.2005 05:30
Yfir 90 milljónir söfnuðust Yfir níutíu milljónir króna söfnuðust á uppboði sem styrktaraðilar Barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna á Íslandi, UNICEF, stóðu fyrir í fyrrakvöld. Ágóðinn rennur til verkefna UNICEF í Gíneu-Bissá, sem lúta að uppbyggingu 50 skóla í landinu. 3.12.2005 05:30
Óvissa um næstu skref í Baugsmálinu Hæstiréttur felldi í dag úr gildi úrskurð Héraðsdóms Reykjavíkur um að sérstakur saksóknari í Baugsmálinu, hefði ekki ákæruvald í þeim átta ákæruliðum málsins sem eru enn til meðferðar í héraðsdómi. Þetta þýðir þó ekki að skorið hafi verið endanlega úr um hver fari með ákæruvaldið. 2.12.2005 22:53
Stjórn Byggðastofnunar gagnrýnir skýrslu Stjórnhátta Stjórn Byggðastofnunar sér ástæðu til að gagnrýna umræðu undanfarna daga um málefni stofnunarinnar. Byggðastofnun segir að vitnað hafi verið til skýrslu sem unnin var af ráðgjafarfyrirtækinu Stjórnháttum ehf. dagsettri í maí 2005. Byggðastofnun segir að í skýrslunni komi fram upplýsingar um útlán og afskriftarreikning útlána sem ekki fá staðist, en hafa farið hátt í umræðunni. 2.12.2005 21:30
Níutíu milljónir söfnuðust á uppboði í gærkvöldi Um níutíu milljónir króna söfnuðust til góðgerðamála í Gíneu-Bissá í hátíðarkvöldverði í Listasafni Reykjavíkur í gærkvöldi. Svo virðist sem fjölmargir Íslendingar eigi nóg af peningum. Meðal annars var ómálað verk eftir Hallgrím Helgason selt á tuttugu og eina milljón króna á uppboði. 2.12.2005 21:00
Fyrsta andlitságræðsla sögunnar framkvæmd í Frakklandi Læknar í Frakklandi hafa gert fyrstu andlitságræðslu sögunnar. Aðgerðin heppnaðist vel að sögn lækna en hennar var þörf eftir að hundur konunnar beit hana í andlitið þegar hann reyndi að vekja hana eftir að hún reyndi að svipta sig lífi. 2.12.2005 20:45
Áhrifa stýrivaxta loks farið að gæta Seðlabanki Íslands hækkað í dag stýrivexti um 0,25 prósentur. Davíð Oddsson, formaður bankastjórnar, segir að svo virðist sem áhrifa stýrivaxtahækkana undanfarið sé loks farið að gæta. Verðbólga hefur hjaðnað undanfarna mánuði, en ekki nóg, að mati bankastjórnar Seðlabankans. 2.12.2005 20:17
Nýtt stjórnarfrumvarp bannar reykingum hérlendis á veitingastöðum Tóbaksreykingar verða alfarið bannaðar á veitinga- og skemmtistöðum hér á landi samkvæmt nýju stjórnarfrumvarpi. Meginmarkmið laganna er að koma í veg fyrir óbeinar reykingar. Lögin öðlast gildi fyrsta júní 2007. Írskum verti, sem reynsluna hefur, finnst skynsamlegt að Íslendingar gefi sér aðlögunartíma. 2.12.2005 20:15
Gera þarfir sínar í töskur skólasystkina sinna Einelti hefur tekið á sig heldur ógeðfellda mynd í Hafnarfirði, þar sem unglingar í Víðistaðaskóla gera þarfir sínar í töskur skólasystkina sinna. 2.12.2005 19:41
Sjúkraliðar boða til verkfalls Félagar í Sjúkraliðafélagi Íslands samþykktu verkfallsboðun í kjaradeilu sinni við launanefnd sveitarfélaga með miklum mun. 127 greiddu atkvæði með verkfallsboðun en fjórir greiddu atkvæði gegn henni. Semjist ekki fyrir 19. desember hefst verkfall þann dag. 2.12.2005 19:26
Skoða þurfi örorkukerfið í heild Forsætisráðherra segir að skoða þurfi örorkukerfið í heild, ekki taka valda hluta út. Í nýrri skýrslu Stefáns Ólafssonar prófessors sé nýja tekjutryggingaraukanum sleppt þegar grunnlífeyris- og tekjutrygging er borin saman sem hlutfall af lágmarkslaunum. Þetta skekki myndina. Jóhanna Sigurðardóttir, þingmaður Samfylkingarinnar, segir að skýrslan ætti að vera skyldulesning fyrir ríkisstjórnina. Ef þeir skammist sín ekki eftir þann lestur séu þeir forhertari en hún hefði haldið. 2.12.2005 19:26
Samfylkingin tapar fylgi Samfylkingin þarf að þétta raðirnar til að bæta úr stöðu sinni. Þetta segir formaður flokksins en fylgi hans hefur ekki mælst minna en nú á þessu kjörtímabili. Flokkurinn hefur misst átta prósentustiga fylgi frá því að Ingibjörg Sólrún Gísladóttir tók við formennsku. 2.12.2005 19:15
Seðlabankinn hafi ekki haft ástæðu til að hækka vexti Forsætisráðherra segist ekki telja að Seðlabankinn hafi haft ástæðu til hækka vexti. Hækkunin sé hins vegar minni en bankarnir hafi reiknað með og það sé jákvætt að því sé ekki lýst yfir að framhald verði á vaxtahækkunum. 2.12.2005 19:08
Ingunnarskóli formlega opnaður í dag Nýjasti grunnskóli Reykvíkinga, Ingunnarskóli í Grafarholti, var formlega opnaður í dag með pompi og pragt að viðstöddum borgarstjóra. Nemendur skólans tóku vel á gestum og sungu fyrir þá nokkur lög auk þess sem nemendur gáfu borgarstjóra mynd í þakklætisskyni fyrir skólann. 2.12.2005 18:31
Tilkynning um vopnað rán byggð á misskilningi Svo virðist sem tilkynning til lögreglunnar um vopnað rán í Nettó í Mjóddinni hafi verið á misskilningi byggð. Þegar lögregla kom á vettvang kom í ljós að starfsmaður verslunarinnar hafði grunað mann um búðarhnupl og hljóp á eftir honum. Í öllum hamagangnum hringdi hann í lögreglu og tilkynnti vopnað rán. 2.12.2005 17:31
Sérstakur saksóknari getur farið með öll ákæruatriði Hæstiréttur felldi í dag úr gildi úrskurð Héraðsdóms Reykjavíkur um að Sigurður Tómas Magnússon, sérstakur saksóknari í Baugsmálinu, hefði ekki ákæruvald í þeim átta ákæruliðum málsins sem Hæstiréttur vísaði ekki frá dómi í október síðastliðnum. 2.12.2005 17:14
Vopnað rán í Mjóddinni Vopnað rán var framið fyrir stundu í Mjóddinni. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu var ránið framið í matvöruverlsuninni Nettó en lögregla er tiltöluleg nýkomin á vettvang. Ekki er ljóst hvort um einn eða fleiri ræningja var að ræða og enginn hefur enn verið handtekinn samkvæmt lögreglu. 2.12.2005 17:05
Varað við svifryki við fjölfarnar umferðargötur Umhverfissvið Reykjavíkurborgar hvetur þá sem eru viðkvæmir í öndunarfærum að halda sig fjarri fjölförnum umferðargötum vegna mikils svifryks. Það mælist nú yfir umhverfismörkum í Reykjavík. Búist er við áframhaldandi stillu í veðri og því er útlit fyrir að magn svifryks í andrúmslofti verði áfram yfir umhverfismörkum. 2.12.2005 16:53
Thelma valin ljósberi ársins Thelma Ásdísardóttir var útnefnd Ljósberi ársins 2005 á vegum Stígamóta. Í umsögn dómnefndar segir að Thelma er útnefnd ljósberi ársins þar sem hún snart með ógleymanlegum hætti við þjóðarsálinni þegar hún steig fram og kynnti uppvaxtarár sín til að gefa öðrum styrk til að takast á við óhugnað og eyðingu í sjúkum uppeldisaðstæðum. 2.12.2005 16:37
Hæstu vextir síðan 2001 Bankastjórn Seðlabanka Íslands tilkynnti í dag um hækkun stýrivaxta um fjórðung úr prósenti og tekur breytingin gildi 6. desember. Stýrivextir Sðlabankans verða þá 10,5 prósent og hafa ekki verið hærri síðan í nóvember árið 2001. 2.12.2005 16:09
Þroskashjálp skorar á stjórnvöld að veita fé til Mannréttindaskrifstofu Landssamtökin Þroskahjálp skora á Alþingi að tryggja áfram rekstrargrundvöll Mannréttindaskrifstofu Íslands með föstum fjárveitingum á fjárlögum. Með tilkomu Mannréttindaskrifstofu Íslands skapaðist vettvangur fyrir félög og stofnanir sem starfa að mannréttindamálum og réttindabaráttu ýmissa hópa til að samhæfa krafta sína með velferð allra í huga. 2.12.2005 15:56
Kálfurinn Sigurrós fæddist tæpum tveimur mánuðum fyrir tímann Sigurrós er líklega minnsti kálfurinn sem fæðst hefur í Húsdýragarðinum en hún fæddist um tveimur mánuðum fyrir tímann. Sigurrós er sannkalaður jólakálfur en hún kom í heiminn á fyrsta dag í aðventu. 2.12.2005 14:13
Lögreglan leitar bíls sem stolið var í morgun Lögreglan í Reykjavík auglýsir eftir ljós grágrænum Yaris. Bílnum var rænt fyrir utan Borgartún 33 um klukkan hálf ellefu í morgun. Bíllinn er fimmdyra og með skráningarnúmerið L J 299. Lögreglan biður þá sem hafa séð bílinn eða geta veitt einhverjar upplýsingar að hafa samband í síma 444 1000/ 444 1102. 2.12.2005 13:45
Mjólka tekin formlega til starfa Landbúnaðarráðherra opnaði Mjólku, fyrstu einkareknu mjólkurstöðina á Íslandi í áratugi í morgun. Ráðherran segir íslensku mjólkina mikla gæðavöru í stöðugri sókn. 2.12.2005 12:54
Enn tapar Samfylking fylgi Samfylkingin þarf að þétta raðirnar til að bæta úr stöðu sinni. Þetta segir formaður flokksins en fylgi hans mælist nú rétt um 26% sem er það lægsta á þessu kjörtímabili. Flokkurinn hefur misst átta prósentustiga fylgi frá því Ingibjörg Sólrún tók við. Hún hafnar því að óeining ríki innan þingflokksins en segir forystuna verða að taka á sig tap, eins og fylgisaukningu. 2.12.2005 12:25