Strætó bætir við leiðum 3. desember 2005 08:00 Björk Vilhelmsdóttir, formaður stjórnar Strætó bs., þegar nýja leiðakerfið var kynnt á Hlemmi á dögunum. Nú ræðir stjórn fyrirtækisins umtalsverðar breytingar á því.
Stjórn Strætó bs. ræðir nú leiðir til úrbóta á leiðakerfinu, að sögn Bjarkar Vilhelmsdóttur formanns stjórnar Strætó. Breytingarnar munu taka gildi í febrúar ef um semst, en þær fela meðal annars í sér að bætt verður við þremur nýjum leiðum, tveimur í Reykjavík og einni í Kópavogi og öðrum leiðum verður breytt. "Þetta er unnið með tilliti til fjárhagsáætlunar og kostnaðarskiptingar milli sveitarfélaganna," segir Björk. "Reykjavík er að fara fram á töluvert meiri þjónustu og er tilbúin til að greiða fyrir það. Við teljum, að með þeim hugmyndum sem stjórnin fjallar nú um sé verið að koma til móts við stóran hluta þeirra ábendinga sem við höfum fengið vegna nýja leiðakerfisins." Björk segir að leiðirnar sem unnið verði með tengist Efra-Breiðholti, Mjódd og Suðurlandsbraut. Einnig Norð- Austurhverfunum við Bústaðaveg og Hlemm, Nýbýlavegi og Hamraborg í Kópavogi, Hamrahverfi í Reykjavík, svo og Hamrahlíð. Í athugun sé að tengja Grafarholtið við Hlemm. "Við teljum að orðið geti mjög góð sátt um þetta," segir Björk og bætir við að nú sé unnið að því að fjármagna breytingarnar. Ekki sé ljóst hversu mikill kostnaðurinn verði, en ljóst sé að viðkomandi sveitarfélög þurfi að bæta inn í rekstur Strætó bs. Að sögn Harðar Gíslasonar, aðstoðarframkvæmdastjóra Strætó bs., hefur farþegum Strætó fækkað um 6-8 prósent milli ára miðað við fyrstu tíu mánuðina 2004 og 2005. "Í sjálfu sér kemur þessi fækkun okkur ekkert á óvart allra fyrsta kastið," segir Hörður. "Þetta var gífurleg aðgerð, að leggja gamla leiðakerfinu og taka upp nýtt. Menn hafa rætt hvort þetta samanburðartímabil væri ekki of stutt, hvort það þyrfti ekki að vera 18 eða jafnvel 24 mánuðir. Það liggur hins vegar á borðinu að samdrátturinn í farþegafjölda hefur aukist núna. Einkabílasalan hefur þar vafalaust áhrif, því hún hefur aldrei verið meiri en nú. Þegar hefur dregið úr henni hefur orðið aukning hjá Strætó. Það er greinilega langtímaferli í gangi og við tengjum það við einkabílinn."
Innlent Mest lesið Þúsundir hermanna kallaðir heim frá Þýskalandi Erlent Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Innlent „Slátrarinn frá Bosníu“ við dauðans dyr Erlent Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Innlent „Dapurlegt pólitískt útspil“ Innlent Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Innlent Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Innlent Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Innlent Myndaveisla: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Innlent Sinueldur í Grafarvogi Innlent Fleiri fréttir Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Farfuglar koma marktækt fyrr til landsins en áður „Dapurlegt pólitískt útspil“ Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Myndaveisla: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sinueldur í Grafarvogi Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Framboðum Miðflokksins fjölgar um átta milli kosninga Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Bein útsending: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Vasaþjófnaður aukist að undanförnu „Bjóða fram“ Biðlistann í Reykjavík Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri „Við erum með lengri óskalista heldur en þetta“ Segist ekkert hafa fengið greitt: „Pólitískur hráskinnaleikur“ „Þetta er bara eins og að missa vini sína“ Andar köldu milli Viðreisnar- og Miðflokksmanna Föst í umferð í tæpa fjóra sólarhringa á ári og kostnaðurinn yfir hundrað milljarðar Banaslys í Skorradalsvatni Glæný könnun gæti varpað ljósi á meirihlutamyndun Hlaðvarpsstjórnendur fá nýjar leiðbeiningar Urðu eftir í Flatey á meðan Baldur sigldi suður Halla fagnaði áttræðum Karli Gústafi Sömdu um stækkun á Fylkisseli Kannast ekki við meint rán í Lágafellskirkju Ákærður fyrir að eitra fyrir samstarfsfélaga með kannabis Tjáir sig ekki um greiðslur frá Rúv en boðar yfirlýsingu Sjá meira