Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Skilyrðum símapeninga við lagningu Sundabrautar aflétt Vegagerðin er tilbúin að aflétta skilyrðum sem fylgdu símapeningunum við fyrirhugaðar framkvæmdir á Sundabraut. Vegagerðin telur nauðsynlegt að skoða allt málið í heild sinni í ljósi ákafra mótmæla íbúasamtaka Grafarvogs og Laugardals. 23.11.2005 14:00
Heiðurslaun til 27 listamanna á næsta ári 27 listamenn munu fá heiðurslaun á næsta ári samkvæmt tillögu menntamálanefndar sem lögð hefur verið fram. Hver listamaður fær 1,6 milljónir króna og því nema launin samtals 43,2 milljónum. 23.11.2005 13:45
Ekið á unglinsstúlku við Suðurlandsbraut Ekið var á unglingsstúlku þar sem hún var á gangi við Suðurlandsbraut á tíunda tímanum í morgun. Ekki er ljóst hver aðdragandi slyssins varð en stúlkan slapp vel að sögn lögreglu. Hún var þó flutt með sjúkrabíl á slysadeild en meiðsli hennar reyndust minni háttar. 23.11.2005 13:00
Enn einu sinni bilun á Farice-streng Farice-strengurinn hefur enn einu sinni farið í sundur við Skotland, nú á milli Elgin og Inverness. Bilanaleit er þegar hafin en bilunin hefur áhrif á netumferð til útlanda og gæti einnig valdið truflunum á símasambandi við útlönd. 23.11.2005 12:13
Orðalagið ekki við hæfi Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, gagnrýnir Morgunblaðið fyrir umfjöllun blaðsins um veru forsetans við embættistöku furstans af Mónakó, í athugasemdum við skrif blaðsins sem birtust í Staksteinum í Morgunblaðinu í gær. 23.11.2005 12:04
Vaxtahækkun getur leitt af sér lækkun á húsnæðisverði Sérfræðingar á fjármálamarkaði segja að ef ámóta hækkanir verði hjá öllum þýði það að minnsta kosti átta prósenta hækkun fjármagnskostnaðar vegna íbúðakaupa og að hækkunin geti leitt af sér lækkun á húsnæðisverði. 23.11.2005 12:00
Marsibil sækist eftir öðru sæti á lista Framsóknar í Reykjavík Marsibil Jóna Sæmundsdóttir hefur ákveðið að gefa kost á sér í 2.sæti á lista Framsóknarflokksins fyrir borgarstjórnarkosningarnar næsta vor. Marsibil hefur verið varaborgarfulltrúi Framsóknarflokksins innan R-listans á þessu kjörtímabili. 23.11.2005 11:56
Samgönguráðherra í opinberri heimsókn í Kína Sturla Böðvarsson samgönguráðherra og Hallgerður Gunnarsdóttir eiginkona hans eru stödd í opinberri heimsókn í Kína ásamt fylgdarliði. Tilefni heimsóknarinnar er boð kínverskra ferðamálayfirvalda. 23.11.2005 11:00
Tyrkir vilja loka dansk-kúrdískri sjónvarpsstöð Tyrknesk yfirvöld krefjast þess að dönsk yfirvöld hlutist til um að loka dansk-kúrdísku útvarpsstöðinni Roj TV sem sendir út frá Danmörku. Sjónvarpssöðin er til rannsóknar grunuð um tengsl við hryðjuverkasamtök og er sögð taka við fé frá PKK, aðkilnaðarsinnarsinnum Kúrdíska verkamannaflokksins. Sjónvarpsstöðin hefur undanfarið sent út áróður PKK, gegn tyrknesku ríkisstjórninni þar sem hvatt er til uppreisna. Utanríkisráðherra Dana, Per Stig Möller, segir að hann ætli ekki að blanda sér í málið, heldur leyfa lögreglunni að ljúka rannsókninni. 23.11.2005 10:30
Virðisaukaskattur ofáætlaður Nær allur virðisaukaskattur sem skattayfirvöld áætluðu á fyrirtæki og einstaklinga sem ekki töldu fram á síðasta ári var látinn niður falla að því er fram kemur í skýrslu Ríkisendurskoðunar. 23.11.2005 10:15
Tveir flokkar og hærri vextir Íbúðalánasjóður býður upp á tvo lánaflokka frá og með deginum í dag. Fólk getur valið þau lán sem hafa staðið til boða hingað til og bera hér eftir 4,6 prósenta vexti sem er hækkun upp á 45 punkta, eða lán sem ekki er hægt að greiða upp nema gegn sérstakri uppgreiðsluþóknun og þá eru vextirnir 4,35 prósent. 23.11.2005 10:11
Aflaverðmæti íslenskra skipa nánast óbreytt milli ára Aflaverðmæti íslenskra skipa af öllum miðum á tímabilinu janúar til ágúst á þessu ári var 46,4 milljarðar króna sem er nánast það sama og á fyrstu átta mánuðum ársins 2004. 23.11.2005 10:01
Tölvuþrjótar breyta aðferðum sínum Tölvuþrjótar hafa í auknum mæli snúið sér frá því að ráðast á stýrikerfi tölva og kjósa frekar að ráðast á ýmis önnur forrit til þess að fá aðgang að netjónum sem og tölvum. Samkvæmt nýlegri rannsókn Bandaríska heimavarnarráðuneytisins og innra öryggiseftirlits bresku ríkisstjórnarinnar eru alls kyns afspilunarforit og vírusvarnarforrit meðal þeirra forrita sem þeir einbeita sér að í auknum mæli. 23.11.2005 10:00
Fangar pakka inn jólakortum Fangar í Hegningarhúsinu á Skólavörðustíg og Fangelsinu á Akureyri eru nú teknir til við hjálparstarf í þágu munaðarlausra barna í Úganda, Indlandi, Pakistan og á Filippseyjum. 23.11.2005 09:45
SPRON hækkar íbúðalánavexti SPRON hefur ákveðið að hækka vexti íbúðalána úr 4,15 prósentum í 4,35 prósent. Þetta kemur fram í tilkynningu frá sparisjónunum í dag. 23.11.2005 09:34
Fjörutíu milljarða jólahátíð Viðbótarútgjöld fjögurra manna fjölskyldu vegna jólavertíðarinnar verða tæpar 80 þúsund krónur samkvæmt spám Rannsóknarseturs verslunarinnar. Velta verslana getur aukist um 20 prósent vegna jólanna. 23.11.2005 08:00
Ellefu menn verði í nefnd um alþjóðlega fjármálastarfsemi Ellefu menn verða í nefnd, sem á að fjalla um uppbyggingu alþjóðlegrar fjármálastarfssemi hér á landi, að því er Viðskiptablaðið greinir frá. Forsætisráðherra mun væntanlega skipa nefndina í dag en Sigurður Einarsson stjórnarformaður KB banka hefur þegar verið útnefndur formaður. 23.11.2005 08:00
Ríkissaksóknari áfrýjar dómi yfir Ramsey Ríkissaksóknari hefur áfrýjað dómi Héraðsdóms Reykjaness yfir Scott Ramsey til Hæstaréttar og krefst þyngri refsingar. Ramsey var í síðasta mánuði dæmdur í 18 mánaða fangelsi, þar af 15 skilorðsbundna, fyrir að slá danskan hermann í höfuðið með þeim afleiðingum að hann lét lífið. 23.11.2005 07:45
Erum með tvo gjaldmiðla Jón Magnússon hrl. segir að íslenska krónan hafi verið að styrkjast verulega gagnvart evrópsku gjaldmiðlunum ef þróunin fimm síðustu árin er skoðuð. Á sama tíma hafi vísitala neysluverðs til verðtryggingar hækkað enn meira, eða í raun um 20 prósent umfram krónuna. 23.11.2005 07:30
Lögmenn skoða málið Guðjón Arngrímsson, upplýsingafulltrúi FL Group, segir að ekki hafi enn verið tekin ákvörðun um hvort fyrirtækið kæri olíufélögin. Hann segir að lögmönnum fyrirtækisins hafi verið falið að skoða málið og gæta réttar þess. 23.11.2005 06:30
Beðið er ákvörðunar um ákærur Ríkissaksóknari fer þessa dagana yfir rannsókn efnahagsbrotadeildar ríkislögreglustjóra á samráði olíufélaganna. Þess er beðið hvort og hversu umfangsmiklar ákærur verði gefnar út í málinu. Rannsökuð voru meint brot félaganna og stjórnenda þeirra á samkeppnislögum frá 1993, en við stórfelldum brotum liggur allt að fjögurra ára fangelsi. 23.11.2005 06:30
Fleiri útgerðir kæra Friðrik Jón Arngrímsson, framkvæmdastjóri LÍÚ, segir að nokkrar útgerðir hafi ákveðið að bætast í hóp útgerðarfélaga sem hyggjast leggja fram kæru vegna ólöglegs samráðs olíufélaganna. 23.11.2005 06:30
Nær allir vildu forstjórana fyrir dóm Óvenjumargir tóku afstöðu til spurningar um hvort forstjórar olíufélaganna ættu að svara til saka fyrir ólöglegt verðsamráð þeirra, í könnun sem blaðið gerði í byrjun nóvember í fyrra. Könnunin var gerð í kjölfar sektarákvörðunar samkeppnisráðs. 96,7 prósent vildu svara og taka með því afstöðu til málsins. 99 prósent þeirra sem svöruðu vildu láta draga forstjórana til ábyrgðar. Eitt prósent var því ósammála. 23.11.2005 06:30
Ráðuneyti fær gögn Georg Lárusson, forstjóri Landhelgisgæslunnar, segir að gögn vegna kæru Landhelgisgæslunnar á hendur olíufélögunum hafi verið send til dómsmálaráðuneytisins. Hann segir að gögnin séu þar til skoðunar og að Landhelgisgæslan hafi ekki fengið nein viðbrögð frá dómsmálaráðuneytinu enn sem komið er. 23.11.2005 06:30
Skaftafellsjökull hefur hopað um 97 metra síðastliðið ár Skaftafellsjökull hefur hopað um 97 metra síðastliðið ár samkvæmt mælingum. Aðrir jöklar í Öræfasveit hafa ekki hopað jafn mikið en þó má almennt segja að íslenskir jöklar séu að hopa. 23.11.2005 06:00
Mildi að ekki fór verr þegar tundurdufl kom í veiðarfæri Mikil mildi þykir að ekki skyldi fara verr þegar að þýskur togari fékk tundurdufl í veiðafæri sín. Áhöfn togarans kom með tundurduflið upp á bryggju á Eskifirði um í gær og voru sprengjusérfræðingar Landhelgisgæslunnar kvaddir á vettvang. 22.11.2005 23:32
Notendaábyrgð ekki í frumvarpi Ákvæði um að fyrirtæki sem nýti sér þjónustu starfsmannaleiga beri ábyrgð á kjörum starfsmanna er ekki í frumvarpi til laga um starfsmannaleigur. Ráðherra segir frumvarpið byggt á niðurstöðum starfshóps aðila vinnumarkaðar og séróskir þeirra muni ekki verða í frumvarpinu sem Alþingi eigi lokaorð um. 22.11.2005 22:11
Fá tuttug og tvö þúsund krónur Þeir öryrkjar sem sviptir voru öllum bótum frá Tryggingastofnun það sem eftir lifir árs, fá samkvæmt því sem heilbrigðisráðherra ákvað í dag, 22 þúsund krónur bæði í nóvember og desember. Formaður Öryrkjabandalagsins er þó ekki sáttur. 22.11.2005 22:10
Íbúðalánasjóði heimilt að taka upp uppgreiðslugjald og bjóða lægri vexti Íbúðalánasjóði er heimilt að taka uppgreiðslugjald og bjóða lægri vexti en hann hefur getað gert fram að þessu. Árni Magnússon, félagsmálaráðherra, hefur fallist á tillögu þessa efnis eftir úrskurð Samkeppnisstofnunar í byrjun október. 22.11.2005 21:28
Útboð Íbúðalánasjóðs Íbúðalánasjóður efndi í dag til útboðs á íbúðabréfum sem nema allt að þremur milljörðum króna að nafnverði. Sjóðurinn sendi tilkynningu þessa efnis til Kauphallar Íslands í dag. Áskilur sjóðurinn sér rétt til að hækka útboðsfjárhæðina eða að hafna öllum tilboðum. Lágmarkstilboð er að fjárhæð tvöhundruð milljónir fyrir hvern flokk. 22.11.2005 20:57
Enn óvissa um starfsemi nýrnadeildar Enn ríkir óvissa um starfsemi nýrnadeildar Landspítala-Háskólasjúkrahús. Helmingur af hjúkrunarfræðingum deildarinnar hættir störfum á deildinni um árámótin að óbreyttu. Hjúkrunarforstjóri spítalans fundaði með hjúkrunarfræðingunum í dag. 22.11.2005 19:53
Úrslitakeppni Skekks sýnd á Netinu Úrslitakeppni Skrekks, hæfileikakeppni grunnskólanna hófst klukkan átta. Alls eru það sex grunnskólar sem keppa í úrslitunum en þau verða kynnt síðar í kvöld. Hægt er að fylgjast með keppninni á Netinu en þaðan er keppnin sýnt beint. 22.11.2005 19:49
Ný stjórn Árvakurs Ragnhildur Geirsdóttir og Skúli Valberg Ólafsson eru ný í stjórn Árvakurs hf. útgáfufélags Morgunblaðsins en þau eru fulltrúar nýrra hluthafa. Á hluthafafundi félagsins í dag var ný stjórn skipuð og var hún sjálfkjörin. 22.11.2005 18:25
KEA félagar fá sexþúsund króna inneign Átta þúsund félagar KEA fá senda inneignarmiða upp á sexþúsund krónur senda heim á næstunni. Í ljósi góðs gengis félagsins á árinu 2004 ákvað stjórn félagsins síðastliðið vor að fjármunirnir yrðu notaðir til að leita viðskiptakjara fyrir félagsmenn. 22.11.2005 16:35
Byggðastofnun ekki forystuafl Byggðastofnun er ekki það forystuafl í uppbyggingu atvinnustarfssemi á landsbyggðinni sem ætla mætti og sinnir ýmsum grundvallarhlutverkum ekki nægilega vel. 22.11.2005 15:00
Æðstu stjórnendur enn í lykilstöðum Ríkislögreglustjóri segir um rannsókn sína á ólöglegu verðsamráði stóru olíufélaganna að ætluð brotatilvik skipti hundruðum, en sjö æðstu stjórnendur félaganna þriggja, sem hvað oftast komu við sögu við rannsókn samkeppnisyfirvalda á sama máli, gegna enn lykilstjórnunarstöðum í olíufélögunum. 22.11.2005 14:21
Árás á Líbanon Ísraelskar herþotur gerðu loftárásir á Líbanon í dag, þær stærstu sem beinst hafa gegn skæruliðum á síðastliðnum fimm árum. Loftárásirnar komu í kjölfar þess að menn úr röðum Hezbollah skæruliða skutu með sprengjuvörpum og loftskeytum í átt að húsum við landamæri Ísraels og Líbanon með þeim afleiðingum að 11 ísraelskir hermenn særðust og hús skemmdust. 22.11.2005 12:41
Velti bíl sínum á Miklubraut Ökumaður fólksbíls slapp furðu vel þegar hann missti stjórn á bifreið sinni á Miklubraut í Reykjavík um tólfleitið með þeim afleiðingum að bifreiðin valt á hliðina. Ökumanninum var mjög brugðið en virtist ekki alvarlega slasaður, í það minnsta gekk hann frá bifreið sinni. Þaðan var hann fluttur á slysadeild til athugunar. 22.11.2005 12:41
Tollar lækka verulega Útflytjendur íslenskra vara til Rússlands hafa ástæðu til að fagna því tollar á þær lækka verulega í kjölfar þess að Rússland fær ástæða að Alþjóða viðskiptastofnuninni. Samningur milli Íslands og Rússlands þessa efnis var undirritaður í Moskvu á dögunum. 22.11.2005 10:55
Yfir 300 milljónir fyrir umbúðirnar Fyrirtæki landsins hefja um næstu áramót greiðslu úrvinnslugjald fyrir allar, plast-, pappa- og pappírsumbúðir utan um vörur þeirra. Búist er við að gjaldið nemi um 320 til 340 milljónum króna á ári. 22.11.2005 10:00
Fjallar ekki um ákæruliðina átta Sérstakur saksóknari sem Björn Bjarnason dómsmálaráðherra skipaði í Baugsmálinu hefur aðeins vald í þeim 32 ákæruliðum Baugsmálsins sem vísað var frá dómi en ekki þeim átta sem eftir standa af 40 upphaflegum ákæruliðum.. Bogi Nilsen ríkissaksóknari fer með ákæruvald í þeim liðum. Þetta er niðurstaða Héraðsdóms Reykjavíkur sem kveðinn var upp rétt rúmlega níu. 22.11.2005 09:09
Lögregla rannsakar fyrirtæki á Akranesi Verkalýðsfélag Akraness hefur óskað eftir lögreglurannsókn á starfsemi fyrirtækis sem er með litháíska starfsmenn í vinnu hjá sér. 22.11.2005 07:30
Minnst traust til Halldórs Geir H. Haarde, formaður Sjálfstæðisflokksins, er sá stjórmálamaður sem mests trausts nýtur meðal almennings samkvæmt skoðanakönnun Fréttablaðsins. Alls sögðust 22,4 prósent treysta honum best. Geir er afskaplega traustur stjórnmálamaður og sýnir það í störfum sínum. Því koma þessar niðurstöður lítið á óvart segir Arnbjörg Sveinsdóttir, formaður þingflokks Sjálfstæðisflokksins. 22.11.2005 06:45
Orkuveitan tapaði dómsmáli Hæstiréttur vísaði í gær frá dómi kröfu Orkuveitu Reykjavíkur um að álit Kærunefndar útboðsmála þess efnis að Orkuveitan væri skaðabótaskyld gagnvart Toshiba vegna útboðs fyrir búnað til Hellisheiðarvirkjunar. 22.11.2005 06:33
Tundurdufl á bryggjunni á Eskifirði Óskað hefur verið eftir aðstoð sprengjusérfræðinga Landhelgisgæslunnar vegna tundurdufls sem áhöfn þýsks togara setti upp á bryggjunni á Eskifirði. TF-SYN, flugvél Landhelgisgæslunnar, er nú á leið þangað með tvo sprengjusérfræðinga um borð. 22.11.2005 15:00