Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Féll til jarðar við vinnu Maður féll hálfan þriðja metra aftur fyrir sig þar sem hann vann að byggingu stöðvarhúss Hellisheiðarvirkjunar við Kolviðarhól fyrr í dag. Maðurinn meiddist á baki og var fluttur á sjúkrahús í Reykjavík en ekki var vitað að hversu mikil meiðsl hans voru. 24.10.2005 13:22
Ríkið greiði fanga þjáningarbætur Fangi á Litla Hrauni á rétt á þjáningabótum úr hendi íslenska ríkisins vegna þess að hann fékk ekki rétta læknisaðstoð eftir líkamsárás, sem hann varð fyrir af samfanga sínum. Þetta var niðurstaða Héraðsdóms Reykjavíkur í morgun. 24.10.2005 13:15
Stemmningin afar góð fyrir kvennafrí Edda Jónsdóttir, verkefnastjóri kvennafrídagsins, hefur staðið í ströngu undanfarna daga og vikur við undirbúning hátíðarinnar. Hún segir allt að verða klárt fyrir daginn og að stemmningin fyrir deginum sé afar góð. 24.10.2005 12:45
VG ekki fyrsti kvenfrelsisflokkurinn Steingrímur J. Sigfússon, formaður Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs misskilur kvenfrelsið ef hann telur flokk sinn geta slegið eignarrétti á hugtakið segir Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, formaður Samfylkingarinnar. 24.10.2005 12:15
Búist við tugþúsundum í miðbæ Reykjavíkur Búist við að tugþúsundir streymi í miðbæ Reykjavíkur eftir um tvo tíma til þess að fagna þrjátíu ára afmæli kvennafrídagsins og til þess að knýja á um afnám hvers kyns kynjamisréttis. Fjölmörgum fyrirtækjum verður lokað um klukkan tvö vegna þessa og sama verður uppi á teningnum á leikskólum og frístundaheimilum í borginni. 24.10.2005 12:00
Aflaverðmæti eykst um 100 miljónir milli ára Á fyrstu sjö mánuðum ársins var aflaverðmæti íslenskra skipa af öllum miðum 41,8 milljarðar króna samanborið við 41,7 milljarða á sama tímabili í fyrra. Aflaverðmæti hefur því aukist um tæpar 100 milljónir, á verðlagi hvors árs fyrir sig. 24.10.2005 11:30
Hvatt til notkunar strætisvagna í dag Strætó hefur sent frá sér yfirlýsingu þar sem konur eru hvattar til að nýta sér almenningssamgöngur og taka strætó í miðbæinn svo forðast megi umferðaöngþveiti vegna baráttuhátíðar kvenna í dag. Strætó og lögreglan verða í nánu samstarfi svo tryggja megi greiðar og tíðar samgöngur með strætó til og frá miðborginni. 24.10.2005 11:15
Átti hæsta boð í sex af átta lóðum Eitt fyrirtæki átti hæsta tilboð í byggingarétt á sex af átta lóðum sem boðnar voru út undir atvinnurekstur í Norðlingaholti. Útboðið getur skilað Reykjavíkurborg og eignarhaldsfélaginu Rauðhóli hátt í hálfum milljarði króna. 24.10.2005 11:05
Lítil breyting á hlut kvenna í stjórnunarstöðum á fimm árum Lítil breyting var á hlutfalli kvenna í stjórnunarstöðum innan íslenskra fyritækja á árunum 1999 til ársins 2004. Einna sýnilegust er þó breytingin hjá konum í yngri aldurshópum. 24.10.2005 11:00
Framkvæmdir á Stjörnubíósreit senn á enda Nú sér fyrir endann á framkvæmdunum við bílastæðahús sem verið er að reisa á gamla Stjörnubíósreitnum við Laugaveg. Reiknað er með að það verði opnað í þarnæstu viku og um leið verður umferð aftur hleypt á Laugarveg milli Snorrabrautar og Barónsstígs. 24.10.2005 10:45
Flutningaskip strandaði við Hornafjörð Flutningaskipið Roko strandaði í álnum við Austurfjörurnar í innsiglingunni til Hornafjarðar í gær. Að því er fram kemur á vefnum Hornafjörður.is tók um 45 mínútur að losa skipið með aðstoð Lóðsins og með vélarafli skipsins sjálfs. Roko er 109 metra langt og 3955 tonn, skráð á Bahamaeyjum og gert út frá Noregi en áhöfn skipsins er rússnesk. 24.10.2005 10:11
Vill hækka skatt á fjármagnstekjur Fjármagnstekjuskatt ber að hækka segir Kristinn H. Gunnarsson, þingmaður Framsóknarflokksins. Hann segir hækkun fjármagnstekjuskatts og lægri skatta á lægstu laun nauðsynleg til að draga úr ójöfnuði og bæta kjör elli- og örorkulífeyrisþega. 24.10.2005 09:15
Hálka og hálkublettir víða um land Hálkublettir eru á Holtavörðuheiði. Hálkublettir eru í Ísafjarðardjúpi og Þorskafjarðarheiði er ófær. Hálka er á Öxnadalsheiði og hálkublettir eða hálka víða á Norðausturlandi. Á Austurlandi er víða hálkublettir eða snjóþekja. Verið er að hreinsa vegi á Norðvesturlandi. 24.10.2005 09:15
Frárennslisvatn hreinsað í Fellabæ Fimm hreinsivirki í Fellabæ, á Hallormsstað og Egilsstöðum taka við öllu frárennsli á svæðinu og skila því sem drykkjarhæfu vatni beint út í bergvatnsána Eyvindará. 24.10.2005 09:00
Borgin fær hálfan milljarð Reykjavíkurborg fær allt að 488 milljónir króna fyrir byggingarétt á lóðum undir atvinnuhúsnæði í Norðlingaholti. Tilboð í lóðirnar voru opnuð fyrir helgi. 24.10.2005 08:38
Gönguhópur í vandræðum Björgunarsveitin á Seyðisfirði var kölluð til aðstoðar gönguhópi á leið til Seyðisfjarðar síðdegis í gær. Gönguhópurinn var kominn upp á heiðina fyrir ofan Seyðisfjörð og var á leið ofan Vestdalsheiðina niður í Vestdal. 24.10.2005 08:15
Konur leggja niður störf í dag Kvennafrídagurinn er í dag og af því tilefni munu fjölmargar konur leggja niður störf klukkan rétt rúmlega tvö en þá hafa þær unnið fyrir launum sínum ef litið er til þess að atvinnutekjur þeirra eru um 64 prósent af atvinnutekjum karla. Klukkan þrjú hefst svo kröfuganga frá Skólavörðuholti og niður að Ingólfstorgi þar sem efnt verður til baráttufundar. 24.10.2005 07:15
Ráðherra lét leiðrétta launamuninn Árni Magnússon félagsmálaráðherra lét fara ofan í saumana á launum starfsfólks félagsmálaráðuneytisins til þess að kanna hvort þar fyrirfyndist kynbundinn launamunur. Hann komst að því að svo væri og hrinti í kjölfarið af stað áætlun sem miðast að því að eyða launamun kynjanna, bæði hjá hinu opinbera og í einkageiranum. 24.10.2005 07:00
Tekur gildi um mitt ár 2007 Bann við reykingum á veitingahúsum tekur gildi hér á landi um mitt árið 2007 samkvæmt frumvarpi heilbrigðisráðherra sem ríkisstjórnin hefur samþykkt. Engar undantekningar verða á reglunni. Margir veitingahúsaeigendur eru afar ósáttir við ákvörðun ríkisstjórnar en Írar og Norðmenn voru fyrstir til að leggja blátt bann við reykingum á veitingahúsum. 24.10.2005 06:45
Kvartað yfir óþrifnaði "Ástandið er algjörlega óviðunandi því það er svo illa ræstað í skólanum og fólk er nú alveg búið að fá nóg," segir Marinó Björnsson, stundakennari í Hvaleyrarskóla í Hafnarfirði. Þar í bæ hefur verið kvartað í fjölmörgum skólum vegna slæmrar ræstingar. Marinó segir að miklir samskiptaörðugleikar geri ástandið enn erfiðara en ræstitæknarnir kunna fæstir íslensku eða ensku. 24.10.2005 06:45
Flestum leikskólum lokað Sökum þess að konur landsins ætla að leggja niður störf klukkan 14.08 í dag verður flestum leikskólum á höfuðborgarsvæðinu lokað. Gerður G. Óskarsdóttir, sviðsstjóri menntasviðs Reykjavíkurborgar, segir að flestir leikskólastjórar hafi sent skilaboð til foreldra þar sem þeir óska eftir því að foreldrar sæki börnin sín fyrir klukkan 14.00. Hún á því von á að flestir leikskólar Reykjavíkur loki klukkan 14.08. 24.10.2005 06:15
Gripið til varúðarráðstafana Yfirdýralæknir hefur ákveðið að grípa til sérstakra varúðarráðstafana varðandi innflutning hunda segir á heimasíðu embættisins. Veira sem veldur inflúensu hjá hestum í Bandaríkjunum hefur breyst og sýkir nú einnig hunda þar í landi. Því sé talið að innflutningur hunda frá Bandaríkjunum gæti falið í sér hættu fyrir íslenska hrossastofninn. Fyrirkomulagi einangrunar verður breytt og sjúkdómavarnir efldar. 24.10.2005 06:00
Tíu milljónir í sjóðinn Ríkisstjórnin hyggst í tilefni kvennafrídagsins veita tíu milljónum króna til stofnunar Jafnréttissjóðs. Markmið sjóðsins er að tryggja að hér á landi verði hægt að vinna að vönduðum kynjarannsóknum, en talið er að svokallaðar kynjarannsóknir geti orðið til þess að bæta stöðu kvenna og breyta karlamenningu með það að augnamiði að styrkja framgang jafnréttis kynjanna. 24.10.2005 06:00
Starfsmannaleigan 2B: Í fundargerðum Odds Friðgeirssonar, trúnaðarmanns á Kárahnjúkasvæðinu sem birt er að fullu á rafis.is kemur í ljós að fulltrúi starfsmannaleigunnar 2B hafi ráðlagt verkstjóra Suðurverks að lemja pólska verkamenn, sem 2B fluttu inn til vinnu við Kárahnjúka, ef þeir sýndu mótþróa. Grétar Ólafsson, verkstjóri Suðurverks staðfestir að Eiður Eiríkur Baldvinsson, framkvæmdastjóri 2B hafi sagt honum að lemja mennina og að margir væru vitni að þeim ummælum. 24.10.2005 05:30
Vinstri grænir: "Meðaltalið sýnir tuttugu prósenta óútskýrðan launamun á körlum og konum sem er hreint ótrúleg staða. Við lítum á þetta sem mannréttindamál en ekki aðeins sem skyldu hvers og eins að biðja um hærri laun. Það er bara ekki það einfalt," segir Katrín Jakobsdóttir, varaformaður Vinstri hreyfingarinnar - græns framboðs, að loknum landsfundi flokksins í gær. 24.10.2005 04:00
Stakk kærastann í fótinn Kona var handtekin og færð til yfirheyrslu hjá lögreglu eftir að hún lagði til sambýlismanns síns með eggvopni. Hafði sambýlisfólkið verið að rífast heiftarlega og lauk þeim deilum með því að konan lagði til mannsins. 24.10.2005 03:30
Hyggst koma á gæðavottun á jöfn laun Árni Magnússon félagsmálaráðherra hyggst koma á gæðavottun um jöfn laun í því skyni að hvetja atvinnurekendur til að útrýma launamun kynjanna. Hann segist ekki vita til þess að þessari aðferð sé beitt í nokkru öðru landi en telur að hún geti á jákvæðan hátt stuðlað að því að atvinnurekendur sjái sér beinan hag í því að hafa jafnréttissjónarmið að leiðarljósi í rekstri fyrirtækja sinna. 24.10.2005 03:30
Strætókort til vinnu og skóla Gjaldskrárhópur Strætó bs. vinnur að útfærslu vinnustaðakorta, sem fyrirtæki geta keypt fyrir þá starfsmenn sína sem nota þennan samgöngumáta, að sögn Ásgeirs Eiríkssonar framkvæmdastjóra. Þegar hafa verið gefin út skólakort sem gilda í níu og hálfan mánuð. Þau eru handhafakort, sem kosta 25.000 krónur. 24.10.2005 03:15
Árlegt fjársvelti Sveitarstjórn Þingeyjarsveitar hefur sent Valgerði Sverrisdóttur, ráðherra byggðamála, Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur menntamálaráðherra, þingmönnum Norðausturkjördæmis og fjárlaganefnd Alþingis áskorun þess efnis að Þekkingarsetri Þingeyinga á Húsavík verði tryggt nægilegt rekstrarfé. 24.10.2005 03:15
Nýr samningur við Fang ehf. Verkalýðsfélag Akraness skrifar í dag undir nýjan fyrirtækjasamning við eigendur Fangs ehf. að því er segir á heimasíðu félagsins. Formaður þess kynnti samninginn fyrir starfsmönnum í síðustu viku og ríkti almenn sátt um hann. 24.10.2005 03:00
15 fjölskyldur fá ferðastyrk Á laugardag var 15 styrkjum úthlutað úr sjóðnum Vildarbörn Icelandair. Styrkinn fá langveik börn og fjölskyldur þeirra til að gefa þeim tækifæri til að fara í draumaferðina. 24.10.2005 04:00
Vonast eftir fleirum á útifund en fyrir 30 árum Vonir standa til að jafnmargir, og helst fleiri, mæti á útifundinn á kvennafrídaginn á morgun en fyrir þrjátíu árum. Erlendir fjölmiðlar sýna baráttunni hér á landi áhuga. 23.10.2005 21:30
Yfirdýralæknir býst ekki við hinu versta fyrr en næsta vor Fuglaflensan sem fannst í fjórum öndum í Svíþjóð í gær er ekki af þeim stofni veirunnar sem borist getur í menn. Yfirdýralæknir segir nauðsynlegt að búast við hinu versta - en þó ekki fyrr en næsta vor. 23.10.2005 21:00
Margir meðal aldraðra einangraðir Eldri borgarar eru líka hópur sem verkefnið Þjóð gegn þunglyndi mun ná til en í nágrannalöndunum hefur sjálfsvígum fjölgað þeirra á meðal. Kannanir hafa sýnt að margir eru félagslega einangraðir og mikil þörf er á heimsóknarþjónustu sem nú er áhersluverkefni Rauða krossins. 23.10.2005 20:30
Verkstjóra sagt að berja þá Verkstjóra yfir pólskum verkamönnum á Kárahnjúkasvæðinu var sagt að berja þá sýndu þeir mótþróa við vinnu. Þetta segir Oddur Friðriksson trúnaðarmaður starfsmanna á staðnum. Forsvarsmaður starfsmannaleigunnar TÚ-BÍ segir verkalýðshreyfinguna leggja sig í einelti. 23.10.2005 20:15
Barátta gegn sjálfsvígum ber árangur Ungir samkynheigðir, atvinnulausir og unglingar sem falla úr námi eru líklegri til að svipta sig lífi en aðrir. Sjálfsvígum hefur fækkað eftir að hópur á vegum landlæknisembættisins hóf vinnu gegn sjálfsvígum fyrir þremur árum. 23.10.2005 20:00
Heilbrigðisyfirvöld róleg Íslensk stjórnvöld halda ró sinni þó að fuglaflensan hafi greinst í fuglum í Svíþjóð enda var þar ekki um að ræða hættulegu flensuna af H5N1 stofni sem getur smitast í menn. 23.10.2005 17:45
Bannað að tala við íslendinga Pólskum verkamönnum á Kárahnjúkasvæðinu var bannað að hafa samband við íslenska samstarfsmenn sína. Þetta segir Oddur Friðriksson, trúnaðarmaður starfsmanna. Hann segir fulltrúa starfsmannaleigunnar 2 B, sem flytur inn pólska verkamenn til vinnu við Kárahnjúka og víðar, hafa sagt verkstjóra Suðurverks að berja Pólverjana sýndu þeir mótþróa í vinnu. 23.10.2005 17:30
Dregur úr kamfílóbaktersýkingum Tekist hefur að draga verulega úr kamfílóbaktersýkingum í kjúklingum hér á landi, samkvæmt upplýsingum frá embætti yfirdýralæknis. Í september í fyrra var hlutfall kamfílóbatkeríusýktra kjúklinga yfir fjörtíu og eitt prósent, en í síðasta mánuði var það komið niður í sjö komma þrjú prósent. 23.10.2005 12:15
Wilma að Flórídaskaga Fellibylurinn Wilma hefur orðið að minnsta kosti tveimur að bana í Mexíkó. Víða hafa hús í strandbæjunum Cancun og Playa del Carmen eyðilagst og tré rifnað upp með rótum. Wilma telst nú vera þriðja stigs fellibylur en var fjórða stigs fyrri partinn í gær. Þúsundir þeirra ferðamanna, sem ekki náðu að koma sér í burtu áður en fellibylurinn skall á, hafast nú við í neyðarskýlum og bíða þess að óveðrið lægi. Hugsanlegt er talið að það verði ekki fyrr en seinni partinn í dag. Þá er búist við að Wilma komi að Flórídaskaga og til Kúbu og hefur neyðarástandi verið lýst yfir á báðum stöðum. 23.10.2005 10:00
Reykingabann um mitt ár 2007 Bann við reykingum á veitingahúsum tekur gildi hér á landi um mitt árið 2007samkvæmt frumvarpi heilbrigðisráðherra sem ríkisstjórnin hefur samþykkt. Engar undantekningar verða á reglunni. Margir veitingahúsaeigendur eru afar ósáttir við ákvörðun ríkisstjórnar en Írar og Norðmenn voru fyrstir til að leggja blátt bann við reykingum á veitingahúsum. 23.10.2005 10:00
Waterloo besta lagið Lagið Waterloo, sem hljómsveitin Abba flutti í Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva árið 1974, var í gærkvöld valið Eurovision-lag allra tíma á hátíð, sem haldin var í Kaupmannahöfn en Eurovision hefur nú verið haldið 50 sinnum. Valið stóð á milli 14 laga, sem áður voru valin í netkosningu. Í öðru sæti varð Volare, sem ítalinn Domenico Modugno söng árið 1958 og í þriðja sæti varð Hold me now sem Johnny Logan söng árið 1987. 23.10.2005 10:00
Kaupverðið 15 milljarðar FL Group kaupir danska flugfélagið Sterling á 15 milljarða króna. Á næstunni verður farið í hlutabréfaútboð í FL Group upp á 44 milljarða króna. Hannes Smárason, forstjóri FL Group, tilkynnti þetta á fundi með fréttamönnum sem enn stendur yfir. 23.10.2005 17:45
Víða ófært á vegum Þoskafjarðaheiði er ófær samkæmt upplýsingum frá Vegagerðinni. Hálkublettir eru á Hrafnseyrarheiði, í Ísafjarðardjúpi, Siglufjarðarvegi, á Lágheiði og Öxnadalsheiði. Eins eru hálkublettir víða annars staðar á Norðurlandi. Þá ver íða snjóþekja og hálka á Austurlandi. 22.10.2005 00:01
Svalbarðadeila í hnút Ef samningar nást ekki við Norðmenn um stjórn fiskveiða við Svalbarða innan mjög skamms tíma er ekki annað fyrir stjórnvöld að gera en að höfða mál fyrir Alþjóðadómstólnum í Haag, segir framkvæmdastjóri LÍÚ. 22.10.2005 00:01