Innlent

Hvatt til notkunar strætisvagna í dag

MYND/Hari

Strætó hefur sent frá sér yfirlýsingu þar sem konur eru hvattar til að nýta sér almenningssamgöngur og taka strætó í miðbæinn svo forðast megi umferðaöngþveiti vegna baráttuhátíðar kvenna í dag. Strætó og lögreglan verða í nánu samstarfi svo tryggja megi greiðar og tíðar samgöngur með strætó til og frá miðborginni. Stofnleiðirnar aka á 10 mínútna fresti frá kl 15.30 til 18. Það eru því tíðar ferðir úr miðborginni að loknum útifundinum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×