Innlent

Lítil breyting á hlut kvenna í stjórnunarstöðum á fimm árum

Lítil breyting var á hlutfalli kvenna í stjórnunarstöðum innan íslenskra fyritækja á árunum 1999 til ársins 2004. Einna sýnilegust er þó breytingin hjá konum í yngri aldurshópum.

Árið 2004 voru konur átján prósent framkvæmdastjóra og tuttug og tvö prósent stjórnarformanna fyrirtækja sem skráð eru í hlutafélagaskrá. Hlutfall kvenna miðað við karla er hæst í minnstu fyrirtækjunum og minnkar eftir því sem fyrirtækin stækka. Hlutfall kvenna er einnig hæst í yngsta aldurshópi framkvæmdastjóra og stjórnarformanna. Konur starfa í ríkari mæli í verslun og þjónustu en karlar, samkvæmt nýrri samantekt frá Hagstofu Íslands.

Hlutfall kvenkyns framkvæmdastjóra jókst úr rúmum fimmtán prósentum árið 1999 í tæp átján prósent árið 2004. Þá fjölgun má rekja til nýrra fyrirtækja. Hlutfall kvenkyns stjórnarformanna hefur ekkert breyst frá árinu 1999. Í árslok 2004 sátu þriðjungi fleiri karlmenn í stjórnum fyrirtækja.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×