Innlent

Stemmningin afar góð fyrir kvennafrí

Edda Jónsdóttir, verkefnisstjóri kvannafrídagsins.
Edda Jónsdóttir, verkefnisstjóri kvannafrídagsins. MYND/Vilhelm

Edda Jónsdóttir, verkefnastjóri kvennafrídagsins, hefur staðið í ströngu undanfarna daga og vikur við undirbúning hátíðarinnar. Hún segir allt að verða klárt fyrir daginn og að stemmningin fyrir deginum sé afar góð.Undirbúningurinn hafi verið skemmtilegur og fólk hafi verið jákvætt og henni heyrist vera mikill meðbyr með jafnréttismálum um þessar mundir.

Aðspurð segist Edda vonast til að fleiri mæti nú en fyrir 30 árum því þjóðin sé orðin töluvert stærri en þá. Spurð hvernig undirbúningurinn hafi gengið segir Edda að hann hafi gengið mjög vel. Margir komi að honum og mikil eftirvænting sé hjá fólki. Eftir því sem meðbyrinn hafi aukist í þjóðfélaginu hafi þetta orðið æ skemmtilegra og nú brosi fólk allan hringinn og sé ánægt með hvernig viðrar á þá sem ætli sér í gönguna.

 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×