Innlent

Ríkið greiði fanga þjáningarbætur

Fangi á Litla Hrauni á rétt á þjáningabótum úr hendi íslenska ríkisins vegna þess að hann fékk ekki rétta læknisaðstoð eftir líkamsárás, sem hann varð fyrir af samfanga sínum. Þetta var niðurstaða Héraðsdóms Reykjavíkur í morgun. Þá greiðir ríkið allan kostnað fangans vegna málarekstursinsog viðurkennt er að hann eigi rétt á skaðabótum úr hendi fangans, sem réðst á hann. Atvikið varð í fangeslinu vorið 2002 og voru meðal annars þrjár tennur brotnar úr fanganum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×