Innlent

Gripið til varúðarráðstafana

Hestar Hestar eru ekki bólusettir gegn inflúensu á Íslandi. Farsótt gæti haft verulega slæm áhrif á afkomu hrossaræktar.
Hestar Hestar eru ekki bólusettir gegn inflúensu á Íslandi. Farsótt gæti haft verulega slæm áhrif á afkomu hrossaræktar.

Yfirdýralæknir hefur ákveðið að grípa til sérstakra varúðarráðstafana varðandi innflutning hunda segir á heimasíðu embættisins. Veira sem veldur inflúensu hjá hestum í Bandaríkjunum hefur breyst og sýkir nú einnig hunda þar í landi. Því sé talið að innflutningur hunda frá Bandaríkjunum gæti falið í sér hættu fyrir íslenska hrossastofninn. Fyrirkomulagi einangrunar verður breytt og sjúkdómavarnir efldar.

Sigríður Björnsdóttir dýralæknir hrossasjúkdóma segir að blóðsýni til mótefnarannsókna verði tekin úr öllum hundum sem koma til landsins þar sem nokkrar líkur séu á því að veiran hafi borist út fyrir Bandaríkin. "Infúensan er þannig sjúkdómur að það á mjög auðveldlega að vera hægt að stöðva hana af með sóttkví," segir Sigríður en Ísland er eina landið í Evrópu þar sem hestar eru ekki bólusettir gegn hestainflúensu. "Það er mikið í húfi og við ætlum að hafa vaðið fyrir neðan okkur," segir Sigríður en ljóst er að tjón hrossaræktarinnar vegna tímabundinnar stöðvunar á allri starfsemi og útflutningi yrði umtalsvert.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×