Fleiri fréttir

Bæta ímynd múslíma

Samtök múslíma í Bandaríkjunum hafa hafið einskonar markaðsherferð undir nafninu „Ekki í nafni íslam“. Markmiðið er að bæta ímynd múslíma í landinu en þeir hafa þar í landi, líkt og á Bretlandi, verið áreittir eftir sprengjuárásirnar í London.

Mafían grunuð um stuldinn

Íslenskur saltfiskur og skreið blandast nú inn í rannsókn ítölsku lögreglunnar á umfangsmiklum fiskþjófnaði ítölsku Camorra-mafíunnar sem lætur sér ekki lengur nægja að hagnast af vændi, eiturlyfjum og okurlánum. 

Þrír bílar höfnuðu utan vegar

Þrír bílar höfnuðu utan vegar á Vestfjörðum í gær en enginn sem í þeim var slasaðist þó alvarlega. Einn fór út af í Bitrufirði, annar á Dynjandisheiði og sá þriðji valt út af veginum í Dýrafirði og hafnaði ofan í fjöru.

Rúta og strætisvagn skullu saman

Að minnsta kosti tveir slösuðust, en þó ekki alvarlega eftir því sem best er vitað, þegar rútubíll og strætisvagn skullu saman á gatnamótum Túngötu og Ægisgötu á tólfta tímanum.

Enn merki um alþjóðlega starfsemi

Tveir útlendingar voru handteknir í Reykjavík í vikunni en þeir eru grunaðir um fíkniefnasölu. Fíkniefnadeild lögreglunnar í Reykjavík gerði húsleit í miðborg Reykjavíkur þar sem töluvert magn af amfetamíni og e-pillum fannst. Rennir málið ennfrekari stoðum undir það að alþjóðleg glæpastarfsemi hafi skotið rótum á Íslandi.

Ráðinn forstjóri Fjármálaeftirlits

Stjórn Fjármálaeftirlitsins hefur ráðið Jónas Fr. Jónsson forstjóra eftirlitsins frá og með 18. júlí. Jónas hefur m.a. starfað sem framkvæmdastjóri innra markaðssviðs Eftirlitstofnunar EFTA í Brussel.

Dennis spillir Kúbuför barnakórs

22 hafnfirsk börn eru í öngum sínum þar sem fyrirhugað kórferðalag þeirra til Kúbu hefur verið slegið af. Egill Friðleifsson, kórstjóri til 40 ára, var á leið í sína síðustu kórferð. Í sárabætur fer hópurinn í helgarferð til Parísar og mun jafnvel syngja við Sigurbogann. </font /></b />

Vegurinn ófær vegna vatnavaxta

Vegagerðin vill vekja athygli á því að vegur F-88 Öskjuleið inn að Herðubreiðarlindum er ófær vegna vatnavaxta fyrir alla bíla nema allra stærstu jeppa. Þeim vegfarendum sem ætla að fara inn að Herðubreiðarlindum er bent á að fara veg F-905 frá Möðrudal og inn á veg F-910.

Flutningabíll fór út af í Kömbunum

Bílstjóri flutningabíls slasaðist nokkuð þegar bíllinn fór út af veginum í Kömbunum síðdegis. Talið er að bilun hafi valdið óhappinu. Bíllinn fór út af ofarlega í Kömbunum, rann um 150 metra niður mosabala, þaðan hann fór yfir Suðurlandsveginn og að lokum um 100 metra niður hlíð þar sem hann að lokum stöðvaðist.

Nýr forstjóri Fjármálaeftirlitsins

Jónas Fr. Jónsson mun taka við starfi forstjóra Fjármálaeftirlitsins en staðan var auglýst til umsóknar eftir að fyrrverandi forstjóri, Páll Gunnar Pálsson, tók við starfi forstjóra Samkeppniseftirlitsins.

Útreikningar FÍB rangir

Fjármálaráðuneytið segir það rangt sem fram kemur í máli Stefáns Ásgrímssonar, ritstjóra blaðs Félags íslenskra bifreiðaeigenda, í Fréttablaðinu í gær að íslenska ríkið taki til sín um áttatíu krónur af hverjum seldum lítra af bensíni.

Marktæk aukning á dánartíðni

Dánartíðni á landinu fór upp fyrir eðlilegt viðmiðunarbil í febrúar á sama tíma og hinn árlegi inflúensufaraldur var í hámarki. Þetta kemur fram í Farsóttafréttum, gefnum út af Landlæknisembættinu.

Minnisvarði afhjúpaður á Ísafirði

Minnisvarði var afhjúpaður á Ísafirði í gær um fólkið sem lét lífið þegar sex skip sukku út af Vestfjörðum í síðari heimsstyrjöld. Minnisvarðinn er gjöf frá rússneskum stjórnvöldum í tilefni af því að 60 ár eru um þessar mundir liðin frá lokum styrjaldarinnar.

Vel heppnað í alla staði

Íslandsdagurinn á Expo 2005 heimssýningunni sem haldin er í Aichi-héraðinu í Japan var í gær og tókst dagskráin í alla staði mjög vel að sögn Kristínar Ingvarsdóttur sem starfar fyrir Norðurlöndin á heimssýningunni.

Öryggiseftirlit hert

Starfsfólk hefur miklar áhyggjur, ekki einungis þeir sem lentu í ránunum heldur líka hinir," segir Hjalti Sölvason, rekstrarstjóri Lyfja og heilsu. Ákveðið hefur verið að grípa til róttækra öryggisaðgerða í fyrirtækinu eftir tvö vopnuð rán í lyfjabúðir fyrirtækisins fyrr í vikunni.

Erlendir ferðamenn slasaðir

Tveir erlendir ferðamenn voru fluttir með sjúkrabifreið á slysadeild eftir að strætisvagni var ekið inn í hlið rútu við Landakotskirkju um hádegisbil í gær. Þá flutti lögregla þrjá til viðbótar undir læknishendur eftir áreksturinn. Enginn hinna slösuðu hlaut alvarleg meiðsl.

Veðraskipti á morgun

Besta veðursins er að vænta á austurhluta landsins í dag að sögn Sigurðar Þ. Ragnarssonar veðurfræðings. "Þar verður sæmilega sólríkt og hlýtt með hægum vindi," segir Sigurður. "Hins vegar verður líklega væta vestast á landinu, rigning eða skúrir."

Ók stjórnlaus niður Kambana

Bílstjóri var fluttur slasaður með sjúkrabifreið til Reykjavíkur eftir að fullfermdur malarflutningabíll sem hann ók rann stjórnlaus niður Kambana skömmu eftir hádegi í gær. Meiðsl hans voru ekki talin mjög alvarleg en bifreiðin er mikið skemmd, ef ekki ónýt.

Harry Potter kominn út

Sala á sjöttu bókinni um galdrastrákinn Harry Potter hófst á miðnætti í nótt. Fyrstu aðdáendurnir voru mættir fyrir utan Mál og menningu á Laugarvegi um klukkan tíu í gærmorgun og fjölgaði eftir því sem leið á daginn.

Kínverskt par í fangelsi

Kínverskt par var í gær dæmt til 45 daga fangelsisvistar fyrir að villa á sér heimildir við vegabréfsskoðun í Leifsstöð en fólkið kom hingað frá Þýskalandi á leið til Bandaríkjanna.

Vændishringur á Íslandi

Vændishringur er starfræktur á Íslandi. Listi með nöfnum íslenskra vændiskvenna gengur kaupum og sölum á Netinu fyrir sex þúsund krónur. Sextán ára gömul stúlka var ginnt til að lána bankareikning sinn til að fela slóð mannsins sem stendur að listanum.

Hans Markús hjá ráðherra

Séra Hans Markús Hafsteinsson, sóknarprestur í Garðabæ, fundaði í gær með Birni Bjarnasyni, dóms- og kirkjumálaráðherra, vegna þeirra stöðu sem uppi hefur verið í sókn hans.

Sæll og glaður en þreyttur

Fjórtán hundruð kílómetra hjólreiðaferð Eggerts Skúlasonar til styrktar samtökunum Hjartaheill lauk síðdegis í gær þegar Eggert hjólaði síðasta spölinn til Reykjavíkur ásamt öðrum sem slógust í hópinn í Mosfellsbæ.

Mótmæltu við hús Leoncie

Hópur ungmenna stóð fyrir mótmælum fyrir utan hús söngkonunnar Leoncie og eiginmanns hennar í Sandgerði í gærkvöldi og hrópuðu til söngkonunnar.

Vilja aðgerðir vegna Rússafisks

Eftirlitsstofnun EFTA hefur farið þess á leit að íslensk og norsk stjórnvöld tryggi að ekki verði fluttur Rússafiskur til landa á evrópska efnahagssvæðinu frá rússneskum fyrirtækjum sem ekki hafa fengið löggildingu Evrópusambandsins.

Árni heitir nýjum störfum nyrðra

Sjávarútvegsráðherra tekur vel í ósk stjórnar Kaupfélags Eyfirðinga um fjölgun starfa á Akureyri á vegum ráðuneytisins. Ekki verður af flutningi á meginstarfsemi Fiskistofu til Akureyrar en flutningur á nokkrum verkefnum er í skoðun.

Vinnueftirlitið fríar sig ábyrgð

Vinnueftirlit ríkisins segist ekki geta staðið yfir tívolíinu við Smáralind alla daga til að framfylgja því að öryggisreglum sé fylgt. Börn eru þar á ábyrgð foreldra sinna.

Mannanafnanefnd leyfir og hafnar

Mannanafnanefnd hefur leyft nöfnin Þoka, Ljósálfur, Klementína og Betsý, en samkvæmt úrskurði nefndarinnar frá 27. júní má einungis nota nafnið Betsý sem eiginnafn en ekki millinafn. Nöfnunum Annalísa, í einu orði, Maí, Eleonora, Jónorri í einu orði, og Franziska var hafnað.

Hrefnukjöt nýtur vaxandi vinsælda

"Það er vaxandi eftirspurn og greinilegt að almenningur er ekki feiminn að prófa hrefnuna," segir Jón Björnsson í Nóatúni í Smáralind. Mikill munur er á verðum lamba- og nautakjöts annars vegar og hrefnukjöts hins vegar og er munurinn allt að þrefaldur.

Nafnalisti fyrir bæjarráð

Nafnalisti þeirra er sóttu um lóðir í nýlegu útboði Kópavogsbæjar vegna Þingahverfis á Vatnsenda var lagður fyrir bæjarráð í gær og mun ráðið nota næstu daga til að yfirfara hann.

Líkur á lausn Arons Pálma

Vestur íslendingurinn og lögmaðurinn Knut S. Johnson telur að góðar líkur séu orðnar á að Aron pálmi, sem sætt hefur frelsissviftingu í Texas í átt ár, verði brátt látinn laus og að hann fái að fara heim til Íslands. Johnson sagði stuðningshópi Arons Pálma þetta, eftir fund með aðstoðarmanni ríkisstjóra Texas í gær.

Sektarupphæðir hlaupa á milljónum

Fjögur hundruð og fimmtíu ökumenn hafa verið stöðvaðir og sektaðir fyrir of hraðann akstur í átaki Ríkislögreglustjóra gegn hraðakstri, sem hófst fyrir tveimur vikum. Í fyrstu vikunni voru 247 stöðvaðir en 202 í hinni síðari, hvort sem það er til marks um að heldur sé að draga úr hraðakstri eða ekki.

Risabor við Kárahnjúka snúið við

Verktakar við aðrennslisgöng Kárahnjúka hafa orðið að stöðva einn risaborinn vegna vatnsaga og jarðfræðilegra erfiðleika og verður bornum snúið við. Gangnagerðin ætti þrátt fyrir það og aðra erfiðleika í göngunum að geta staðist áætlun, ef ekkert fer úrskeiðis úr þessu, að sögn Landsvirkjunar.

Banamein var skot í höfuð

Krufning leiddi í ljós að Gísli Þorkelsson var skotinn í höfuðið af stuttu færi fyrir um fimm vikum. Fjölmiðlar í Suður Afríku í dag greindu frá því að húseigandinn í Boksburg sem fann lík Gísla Þorkelssonar á sunnudag hafi um páskana farið í útilegu ásamt Gísla og parinu sem myrti hann.

Kjalvegur tilbúinn 2007-2008

Stofnfundur að félagi um uppbyggingu Kjalvegar verður haldinn í haust og hefst þá undirbúningur að framkvæmdum. Vonir standa til að vegurinn verði tilbúinn eftir tvö til þrjú ár.

Samdráttur í fiskafla

Fiskaflinn í júnímánuði var tæpum 30 þúsund tonnum minni en á sama tíma í fyrra samkvæmt tölum Hagstofu Íslands.

KEA stofnar tvö félög

KEA stofnar tvö félög utan um starfsemi félaga í eigu KEA, Hilding og Framtakssjóðinn.

Nýtt leiðakerfi strætó

Sameiginlegu og samræmdu leiðarkerfi almenningsvagna fyrir allt höfuðborgarsvæðið verður komið á laugardaginn 23. júlí. Þessar breytingar voru kynntar á fundi Strætó BS í morgun

Fækkun banaslysa á Reykjanesbraut

Ekkert banaslys hefur orðið á Reykjanesbraut síðustu fjórtán mánuði. Á jafnmörgum mánuðum þar á undan létust sjö einstaklingar í sjö slysum. Formaður áhugahóps um örugga Reykjanesbraut þakkar fækkun slysa tvöfaldri braut.

Cessna í vandræðum á Flúðum

Eins hreyfils Cessnu flugvél hlekktist á við lendingu á flugvellinum á Flúðum í morgun. Annar vængendinn rakst í flugbrautina með þeim afleiðingum að hún endaði flugbrautar á brautarenda. Flugmaðurinn var einn um borð og sakaði hann ekki.

Fæðingar í heimahúsum

Fæðingar í heimahúsum voru fjörtíu og fimm á síðasta ári, fjórum fæðingum fleiri en árinu áður. Kostnaður Tryggingastofnunar vegna heimafæðinga á síðasta ári nam rúmlega 57 þúsund krónum að meðaltali á hverja fæðingu eða rúmum tveimur og hálfri milljón króna. 

Aflasamdráttur

Afli íslenskra skipa dróst saman um rúm 25 þúsund tonn í júnímánuði ef miðað er við sama mánuð í fyrra. Aflaverðmætið dróst einnig saman um 14,7 prósent á sama tímabili. Þegar litið er á botnfiskafla ýmissa tegunda þá dróst þorskaflinn saman um 2.400 tonn ef litið er á júní í ár samanborið við júní 2004.

Stela dósum frá börnum

Tveir óprúttnir náungar í Sandgerði hafa undanfarið rænt flöskum og dósum úr söfnunargámi íþróttafélagsins Reynis sem stendur fyrir utan félagsheimili þeirra í Sandgerði. Á vef Víkurfrétta kemur fram að sjónarvottar hafi séð tvo menn innan við tvítugt á hvítum bíl taka flöskur og dósir úr gámnum. Daginn eftir sást til mannanna selja dósirnar í Kefalvík.

Ístak lægstbjóðandi í Færeyjum

"Þarna er um tveggja ára verkefni að ræða ef við hljótum hnossið en það ætti að koma í ljós næstu daga," segir Loftur Árnason, framkvæmdastjóri Ístak.

Dæmd fyrir fíkniefnabrot

Karl og kona á þrítugsaldri voru í héraðsdómi Reykjaness í dag dæmd í 18 mánaða og 6 mánaða fangelsi fyrir fíkniefnabrot. Karlmaðurinn skal sæta fangelsisvist í þrjá mánuði en fullnustu 15 mánaða verður látin niður falla haldi maðurinn skilorð.  Konan var dæmd skilorðsbundið.

Sjá næstu 50 fréttir