Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Foreldrar fylgist með SAMAN samstarfshópur um forvarnir vill hvetja foreldra og forráðamenn til að kynna sér afþreyingar- og skemmtiefni sem börnum þeirra er boðið upp á. Í tilkynningu frá hópnum segir að það geti treyst böndin milli kynslóðanna og gefið tækifæri til umræðna um æskilega og óæskilega hegðun og þær reglur sem foreldrar vilja að börnin fylgi. 14.7.2005 00:01
Harry Potter bókar vel gætt Sjötta bókin um galdrastrákinn Harry Potter er komin til landsins og hefst sala á henni í þremur verslunum klukkan eina mínútu yfir tólf í kvöld. Bækurnar eru geymdar í lokuðum kössum og þess er vel gætt að efni þeirra leki ekki út. 14.7.2005 00:01
Þrjú þúsund á sumarhátíð Þrjú þúsund starfsmenn Vinnuskóla Reykjavíkur komu saman í Laugardalnum á sumarhátíð skólans sem haldin var í gær. "Það myndaðist ótrúlega góð karnívalstemning í góða veðrinu," segir Höskuldur Darri Ellertsson, upplýsingafulltrúi Vinnuskólans. 14.7.2005 00:01
Engar aðgerðir ræddar Ekki hefur verið rætt um að grípa til sérstakra aðgerða vegna erfiðleika sem ferðaþjónusta sem byggir á bílaútgerð sér fram á í kjölfar verðhækkana á dísilolíu að sögn Bergþórs Ólasonar, aðstoðarmanns samgönguráðherra. 14.7.2005 00:01
Fleiri fæða heima Heimafæðingum hefur fjölgað lítið eitt á síðustu árum. Heimafæðingar á síðasta ári voru 45 talsins og hefur fjölgað um fjórar síðan árið 2003 samkvæmt upplýsingum á vef Tryggingastofnunar ríkisins. 14.7.2005 00:01
Tvö umferðaróhöpp fyrir vestan Bíll fór út af veginum á Dynjandisheiði á fjórða tímanum í dag. Tveir voru í bílnum og eru þeir ómeiddir. Þá valt bíll í Dýrafirði klukkan hálfníu í morgun. Ökumaðurinn var fluttur á sjúkrahús á Ísafirði en meiðsl hans eru talin minniháttar. 14.7.2005 00:01
Meintum dópsala sleppt Ekki var farið fram á frekara gæsluvarðhald yfir manni sem lögregla handtók um mánaðamótin síðustu, en við húsleit hjá honum fundust þrjú kíló af hassi og 400 grömm af amfetamíni, og var hann því látinn laus í gær. 14.7.2005 00:01
Spáð óbreyttri neysluvísitölu Greiningardeild Landsbankans gerir ráð fyrir að vísitala neysluverðs í ágúst haldist óbreytt frá fyrri mánuði ef ekki koma til enn frekari hækkanir á olíu- og bensínverði. Gangi spáin eftir verður tólf mánaða verðbólga 3,45 prósent og verður þá tæpu prósentustigi yfir verðbólgumarkmarkmiði Seðlabanka Íslands. 14.7.2005 00:01
Dæmd fyrir stórfelld fíkniefnabrot 32 ára maður var í gær dæmdur í eins og hálfs árs fangelsi fyrir stórfelld fíkniefnabrot og fleiri brot. Þá var í sama dómi 26 ára gömul kona dæmd í hálfsársfangelsi. Dómarnir voru upp kveðnir í Héraðsdómi Reykjaness, en þeir eru skilorðsbundnir að hluta. 14.7.2005 00:01
Hlekktist á í lendingu á Flúðum Flugvöllurinn á Flúðum var lokaður fram eftir degi í gær eftir að konu hlekktist þar á í lendingu eins hreyfils Cessna flugvélar í gærmorgun. Vélin endaði utan vallar, en konuna, sem var ein á ferð, sakaði ekki. 14.7.2005 00:01
Reiddist eftir lokun apóteks Frestað var í tvö ár fullnustu tveggja mánaða fangelsisdóms sem kveðinn var upp í Héraðsdómi Reykjaness í gær yfir 25 ára gömlum manni sem réðist á starfsmann apóteks. 14.7.2005 00:01
Lést af völdum byssuskots í höfuð Krufning leiddi í gær í ljós að Gísli Þorkelsson, sem myrtur var í Suður-Afríku fyrir rúmum fimm vikum síðan, lést af völdum byssuskots í höfuðið. Lík Gísla fannst 10. júlí falið í tunnu sem fyllt hafði verið með steypu þannig að aðeins sá í fætur þess. 14.7.2005 00:01
Brýtur blað í DNA rannsóknum Richard Kristinsson réttarerfðafræðingur við Denver háskóla í Bandaríkjunum hefur uppgötvað nýja aðferð við rannsókn erfðaefna sem sparar bæði tíma og peninga. Bandarísk stjórnvöld hafa styrkt Richard og leiðbeinanda hans um tæpar 30 milljónir króna. Hann hyggst opna rannsóknarstofu á Íslandi eftir tvö ár. </font /></b /> 14.7.2005 00:01
Leiðtogaslagur á báðum vígstöðvum Það stefnir í leiðtogaslag í R-listanum ef hann hangir saman fram að næstu kosningum. Bæði Steinunn Valdís Óskarsdóttir og Stefán Jón Hafstein segjast vilja borgarstjórastólinn. 14.7.2005 00:01
Tuttugu og fimm milljónir á dag Aldrei hafa jafn margir ferðamenn komið að landi í Reykjavíkurhöfn eins og í gær en þá komu rétt tæp fjögur þúsund farþegar með skemmtiferðarskipunum Sea Princess og Aurora. Ekki eru þá meðtaldar áhafnir skipanna sem flestar ganga úr sér sjóriðuna á íslenskri grundu en um níuhundruð manns eru í áhöfn hvors skips. 14.7.2005 00:01
Risabor snúið við Grípa varð til þess neyðarúrræðis við gangagerð á Kárahnjúkum að snúa einum risaboranna við, þegar hann átti aðeins eftir um kílómetra að Hálslóni. Borinn lenti á óþéttu bergi og vatn tók að streyma inn. 14.7.2005 00:01
Skyndibitastaður og kavíarbar Sea Princess er annað þeirra listiskipa sem lágu fyrir utan Reykjavíkurhöfn í gær og munu Akureyringar njóta nærveru þess í dag. Þessi tignarlega sjón vakti forvitni fjölmargra borgarbúa um þetta tignarlega ferlíki.</font /> 14.7.2005 00:01
Sjóferðamaður svarar David Griffiths er ferðamaður á skemmtiferðarskipinu Aurora. Hann nýtti tækifærið meðan skipið var við höfn til að bregða sér í Bláa lónið. 14.7.2005 00:01
Öryrkjar ósáttir Samkvæmt samþykktum Lífeyrissjóðanna mega samanlagðar bætur frá Tryggingastofnun og Lífeyrissjóði ekki vera hærri en nemur mánaðarlaunum fólks, fyrir örorku. Eins og kom fram í fréttum okkar í gær hefur vegna þessa verið kallað eftir allt að tuttugu til þrjátíu ára gömlum gögnum. 14.7.2005 00:01
Tívolíið slysagildra Er ferðatívolíið við Smáralind slysagildra eða er þar allt í góðu lagi? Opinberir eftirlitsaðilar leggja blessun sína yfir starfsemina en maður sem starfað hefur í svipuðum leikgarði og horfði upp á leiktæki bresta við Smáralindina í gær er lítt hrifinn. Sólveig Bergmann ræddi við hann í dag. 14.7.2005 00:01
Öryrkinn ósigrandi upp Esjuna Allt er hægt ef viljinn er fyrir hendi. Þetta ætlar öryrkinn ósigrandi, eins og hann kallar sig, að sanna í Esjuferð sinni en hann stefnir á að vera kominn á toppinn á miðnætti í kvöld. Ungmennahreyfing Sjálfsbjargar stendur fyrir verkefninu með aðstoð góðra manna. 14.7.2005 00:01
Vogaskóli rifinn að hluta Yngstu bekkirnir í Vogaskóla koma til með að stunda nám sitt í gömlu verslunarhúsnæði næsta vetur. Verið er að rífa niður hluta skólans og nýtt húsnæði verður ekki tilbúið fyrr en undir árslok 2006. 14.7.2005 00:01
Sumarhátíð Vinnuskólans Þrjú þúsund glaðbeittir unglingar gerðu sér dagamun í Laugardalnum í morgun þegar sumarhátíð Vinnuskólans var haldin í sautjánda sinn. Aðstandendur hátíðarinnar völdu svo sannarlega rétta daginn til hófsins, því sólin skein loks sínu skærasta í höfuðborginni í dag, eftir margar heldur gráar vikur. 14.7.2005 00:01
Starfsmenn hætta í Landakotsskóla Ingibjörg Kjartansdóttir, forstöðumaður heilsdagsskólans í Landakotsskóla, sagði upp störfum í vikunni vegna ástandsins í Landakotsskóla. Annar starfsmaður heilsdagsskólans hefur einnig sagt upp störfum, en alls vinna þrír við hann. 14.7.2005 00:01
Fjórir sækja um Landakot Fjórir umsækjendur eru um stöðu skólastjóra í Landakotsskóla. Þeir eru Guðlaug Teitsdóttir, Laufey Jónsdóttir, Regína Höskuldsdóttir og einn sem óskar nafnleyndar. Laufey er einn ósáttu kennaranna við skólann og hinir tveir hafa starfað sem skólastjórar. 14.7.2005 00:01
Sumir öryrkjar gætu misst bæturnar Landssamtök lífeyrissjóða standa nú að heildarathugun á tekjum þeirra öryrkja sem fá bætur og hefur framkvæmd athugunarinnar sætt nokkurri gagnrýni. 14.7.2005 00:01
Bréf send til 1300 öryrkja Alls voru um 1300 öryrkjar krafðir um skattframtöl síðustu þriggja ára fyrir örorkumat. "Skattstofur hafa brugðist vel við fólki sem leitar til þeirra," segir Matthildur Hermannsdóttir, framkvæmdastjóri greiðslustofu lífeyrissjóðanna. 14.7.2005 00:01
Íbúðalánasjóður í kringum lögin Af samkomulagi um innheimtu krafna, sem er viðuaki við lánasamning Íbúðalánasjóðs við banka og öðrum gögnum sem Fréttastofa Stöðvar 2 hefur undir höndum, er ekki annað hægt að ráða en að bankarnir leppi í raun lánveitingar Íbúðalánasjóðs til einstaklinga sem eru umfram þær heimildir sem sjóðurinn hefur samkvæmt lögum til að lána eða tæpar sextán milljónir. 14.7.2005 00:01
Hert landamæraeftirlit Ríkislögreglustjóri hefur óskað eftir hertri landamæragæslu af ótta við að mótmælendur frá G8- fundinum í Skotlandi komi hingað til lands og mótmæli virkjanaframkvæmdum. Frést hefur af íslenskum mótmælendum þar og þá hefur verið sett upp heimasíða með ferðaleiðbeiningum fyrir mótmælendur. RÚV greindi frá þessu. 14.7.2005 00:01
Gæslukonur funda í næstu viku "Við erum baráttukonur og ætlum að standa á okkar máli," segir Guðrún Guðjónsdóttir, forstöðukona á gæsluvellinum í Malarási í Reykjavík, en henni ásamt rúmlega tuttugu öðrum konum hefur verið sagt upp störfum þegar gæsluvöllum borgarinnar verður lokað 1. september næstkomandi. 14.7.2005 00:01
Icelandair ógildir greidda farmiða Icelandair ógildir farmiða þeirra farþega sem kaupa miða með félaginu og hafa ekki nýtt fyrri helming farseðilsins. Þannig hefur farþegi sem kaupir sér far fram og til baka til einhvers áfangastaðar félagsins og nýtir ekki fyrri ferðina, glatað rétti sínum til að nýta sér seinni hluta farmiðans enda þótt viðkomandi eigi bókað sæti. 14.7.2005 00:01
Styttra milli ferða á háannatímum Leiðakerfi strætisvagna á höfuðborgarsvæðinu hefur verið gjörbylt og verður nýja kerfið tekið í notkun laugardaginn 23. júlí. Það miðar að því að koma farþegum á milli hverfa á sem stystum tíma og verða farnar ferðir á tíu mínútna fresti á háannatímum á sex stofnleiðum sem aka með fáum stoppum á milli helstu íbúðar- og atvinnuhverfa. 14.7.2005 00:01
Starfsleyfi Alcoa dregið í efa Ólöglegt er að halda áfram framkvæmdum við álverksmiðju Alcoa í Reyðarfirði þar til nýtt mat á umhverfisáhrifum hefur farið fram. Þessu heldur Hjörleifur Guttormsson fyrrverandi alþingismaður og náttúrufræðingur fram. 14.7.2005 00:01
Stefán Jón gegn Steinunni? Kúvending á málflutningi viðræðunefndar Samfylkingarinnar eftir fund með ráðamönnum í flokknum olli því að sátt náðist á fundi R-lista flokkanna í gær. Náist sátt um áframhaldandi samstarf stefnir í baráttu núverandi borgarstjóra og Stefáns Jóns Hafstein um borgarstjórastólinn. 13.7.2005 00:01
Kríuvarp nánast horfið sumstaðar Fádæma lélegt kríuvarp hefur verið við vestanvert landið, í Breiðafirði, á Snæfellsnesi og Reykjanesi og á Norðurlandi. Fuglinn verpir seint eða ekki og sumstaðar er kríuvarp nánast horfið. 13.7.2005 00:01
Gjaldfrjáls leikskóli um allt land Gjaldfrjáls leikskóli er það sem koma skal um allt land, segir sveitarstjóri Súðavíkurhrepps. Frá og með 1. september borga Súðvíkingar ekkert fyrir að senda börn sín í leikskóla. 13.7.2005 00:01
Þrívíddarskönnun við jarðgangagerð Ný tækni, þrívíddarskönnun með leysigeislum, gefur bormönnum Arnarfells á Eyjabökkum mun nákvæmari mynd af framvindu jarðgangagerðar en hingað til hefur þekkst hérlendis. 13.7.2005 00:01
Gegnumlýsing í Leifsstöð biluð Gegnumlýsingartæki í Leifsstöð bilaði í gær og tókst ekki að gegumlýsa allan farangur einnar flugvélar sem hélt utan í gærdag. Reynt var að notast við sérstaka bifreið sem notuð er til að gegnumlýsa farangur en hún er ekki jafn afkastamikil og tækin inni í flugstöðinni. Því voru tólf töskur skildar eftir og verða þær sendar með öðrum flugvélum í dag, en frá þessu er greint á vef Víkurfrétta. 13.7.2005 00:01
Verð á íbúðarhúsnæði fer lækkandi Vísbendingar eru um að íbúðarhúsnæði sé hætt að hækka í verði og hafi jafnvel lækkað lítillega síðustu daga, að mati Greiningardeildar Íslandsbanka. Deildin byggir þetta á gögnum frá Fasteignamati Ríkisins þar sem fram komi að verð á íbúðum í fjölbýli hafi hækkað mjög lítið síðustu dagana og lækkað um nokkur prósent í sérbýli á sama tímabili. 13.7.2005 00:01
Ofsaakstur á nýju Hringbrautinni Ökumaður var stöðvaður á nýju Hringbrautinni í Reykjavík í gærkvöldi eftir að lögregla hafði mælt hann á hundrað sextíu og fjögurra kílómetra hraða þar sem hámarkshraði er 70 kílómetrar. Hann var því á rösklega tvöföldum leyfilegum hámarkshraða, eða níutíu og fjórum kílómetrum yfir hámarkshraðanum. 13.7.2005 00:01
Maður slasast í Esjugöngu Björgunarsveit og neyðarsveit frá Slökkviliðinu voru kallaðar út í gærkvöld til að leita að rosknum manni sem saknað var í hlíðum Esjunnar. Áður en skipuleg leit hófst, fann kona manninn skammt frá bílastæðunum neðan við aðal uppgönguleiðina í Kollafirði. Hann hafði dottið og meiðst á höfði, og vankast við það. 13.7.2005 00:01
Kennsl borin á líkið Maðurinn sem fannst myrtur í Boksburg í Suður Afríku á sunnudag hét Gísli Þorkelsson. Hann var fæddur árið 1951 og hafði búið í Suður Afríku í ellefu ár. Dánarorsök er ókunn en búist er við að líkið verði krufið á morgun Kona og karl eru grunuð um að hafa myrt manninn og mæta þau fyrir rétt í dag þar sem þeim verða birtar ákærur. Þau verða ákærð fyrir morð og fjársvik. 13.7.2005 00:01
Atvinnuréttindi útlendinga aukin Vinnuhópur á vegum Félagsmálaráðuneytisins og Dómsmálaráðuneytisins er að vinna hugmyndir að lagabreytingu, sem miða að því að afnema takmarkanir á atvinnuréttindum útlendinga frá nýju Evrópusambandsríkjunum. 13.7.2005 00:01
Sprengdi sektarskala lögreglunnar Ökumaður, sem var stöðvaður á nýju Hringbrautinni í Reykjavík í gærkvöldi eftir að lögregla hafði mælt hann á hundrað sextíu og fjögurra kílómetra hraða þar sem hámarkshraði er 70 kílómetrar, sprengdi sektarskala lögreglunnar. 13.7.2005 00:01
Met í Norðurá Veiðifélagarnir Þórarinn Sigþórsson tannlæknir og Ingólfur Ásgeirsson flugmaður veiddu í sameiningu sjötíu og tvo laxa á eina stöng á þremur dögum í Norðurá í vikunni og hefur aldrei fyrr fengist annar eins afli á eina stöng úr ánni. 13.7.2005 00:01