Marktæk aukning á dánartíðni 15. júlí 2005 00:01
Dánartíðni á landinu fór upp fyrir eðlilegt viðmiðunarbil í febrúar á sama tíma og hinn árlegi inflúensufaraldur var í hámarki. Þetta kemur fram í Farsóttafréttum, gefnum út af Landlæknisembættinu. Ef miðað er við meðaltal áranna 2000-2004 látast yfirleitt rétt um 35 Íslendingar í viku hverri, þó sínu fleiri yfir vetrarmánuðina. Haldið er utan um þetta meðaltal til að geta greint ef umtalsverð frávik verða frá eðlilegri dánartíðni. Eðlilegt er að sveifla sé í dánartíðninni og þá er miðað við 95 prósenta viðmiðunarbil. Samkvæmt því er það innan eðlilegra marka ef á milli um 25 og 54 látast á einni viku í febrúar. Tvær vikur í febrúarmánuði síðastliðnum fóru þó upp fyrir þetta viðmiðunarbil þegar yfir 110 manns létust samtals. Þó það fari vissulega ekki mikið yfir það sem talið er eðlilegt frávik þá eru það umtalsvert fleiri en meðaltal síðustu fimm ára. Á sama tíma og dánartíðnin fór upp fyrir viðmiðunarbilið var inflúensufaraldurinn í hámarki og í Farsóttafréttum segir að trúlega hafi hún átt sinn þátt í umframdauðanum. Þó hefur enn ekki verið rannsakað í þaula hvort svo sé en það verður gert í kjölfar marktækrar aukningar á dánartíðni. Guðrún Sigmundsdóttir yfirlæknir á sóttvarnarsviði segir aukninguna vissulega marktæka og að líklega sé inflúensunni um að kenna. Aðspurð hvort inflúensubóluefni geti hafa verið gallað og því valdið þessari miklu aukningu segir Guðrún að svo sé ekki, enda hefði það þá verið komið í ljós. Hins vegar segir hún að fólk taki misvel við bóluefninu og veiti það um 70 prósentum þeirra sem það fá fullkomna vörn, aðrir geti vissulega veikst þó bóluefnið eigi að draga úr flensueinkennum. Líklega hafi því ástæðan verið eðlilegar sveflur í útbreiðslu inflúensunnar og alvarleika enda hafi faraldurinn í vetur skorið sig úr árunum þar á undan þar sem vel tókst að halda henni í skefjum. Yfirleitt er það gamalt og veikburða fólk sem verst verður úti í inflúensunni og því vekur dauði þeirra minni athygli en ella.
Fréttir Innlent Mest lesið Lokuðu flugbraut vegna dróna Innlent Hanna Katrín fékk bréf frá Judi Dench og Ricky Gervais Innlent „Gefa löggjafanum og lögreglunni fingurinn og fólkinu í landinu líka“ Innlent Gagnrýnin byggð á misskilningi Innlent Sænskur Evrópuþingmaður kærir danskan kollega til lögreglu Erlent McConnell birtir mynd af sér á spítala Erlent Innbrot í kirkju á höfuðborgarsvæðinu Innlent „Þetta er algjörlega óafsakanlegt hjá einu af ríkustu löndum í heimi“ Innlent Umferðarteppa á Hellisheiði vegna umferðaróhapps Innlent Sektuðu í grennd við Símamótið Innlent Fleiri fréttir Gæti orðið hálf milljón árið 2037 Gagnrýnin byggð á misskilningi Innbrot í kirkju á höfuðborgarsvæðinu Lokuðu flugbraut vegna dróna Hanna Katrín fékk bréf frá Judi Dench og Ricky Gervais „Gefa löggjafanum og lögreglunni fingurinn og fólkinu í landinu líka“ Sektuðu í grennd við Símamótið „Við erum að svara kalli tímans“ Búið að opna Holtavörðuheiði aftur Umferðarteppa á Hellisheiði vegna umferðaróhapps Á fimmta tug barna vilja sækja skóla í Grindavík „Þetta er algjörlega óafsakanlegt hjá einu af ríkustu löndum í heimi“ Hvalur skaut up kollinum í Hólmavík Mælirinn segir 33 gráður „Af og frá“ að Ísland framselji löggjafarvaldið með inngöngu Atvinnulausum í byggingariðnaði fjölgar gríðarlega Þrjú kynferðisbrot á tónleikasvæðinu til rannsóknar Brotist inn og peningaskápur tekinn Þrír gistu í fangageymslu og töluvert um fölsuð skilríki Hitabylgjur, fullveldi og Megas Þrír handteknir grunaðir um líkamsárás Heilbrigðiseftirlitið ekki áður séð mengun í fjörunni við vinnslustöð Hvals Unnið að hrunvörnum við Holtsnúp Hluti af þriðja vinningi lenti á Íslandi Stutt í að beint flug til Kína fari í sölu Ríkissaksóknari telur að Margrét eigi ekki að fá að áfrýja til Landsréttar Túlka verði niðurstöðurnar af varfærni Breiðholtsbrú opin fyrir umferð Vonar að verslanir hafi lært af reynslunni Rannsaka kynferðisbrot og líkamsárás á Landsmóti Sjá meira