Innlent

Nýr forstjóri Fjármálaeftirlitsins

Jónas Fr. Jónsson mun taka við starfi forstjóra Fjármálaeftirlitsins en staðan var auglýst til umsóknar eftir að fyrrverandi forstjóri, Páll Gunnar Pálsson, tók við starfi forstjóra Samkeppniseftirlitsins. Jónas hefur mikla reynslu af alþjóðlegu markaðsstarfi sem framkvæmdastjóri markaðssviðs Eftirlitsstofnunar EFTA í Belgíu. Þá hefur hann og lögfræðimenntun og MBA gráðu að auki.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×