Öryggiseftirlit hert 15. júlí 2005 00:01 "
Starfsfólk hefur miklar áhyggjur, ekki einungis þeir sem lentu í ránunum heldur líka hinir," segir Hjalti Sölvason, rekstrarstjóri Lyfja og heilsu. Ákveðið hefur verið að grípa til róttækra öryggisaðgerða í fyrirtækinu eftir tvö vopnuð rán í lyfjabúðir fyrirtækisins fyrr í vikunni. "Þessir atburðir eru á allra vörum, og ekki einungis hjá okkur heldur hefur skelfing einnig gripið um sig hjá öðrum í smávöruverslun," segir Hjalti en hjá Lyfi og heilsu verður brugðist við því með að herða öryggisgæslu. Öll apótek verði sett í áhættuflokka eftir opnunartíma og staðsetningu og þar verði öryggisverðir. Lyf og heilsa hefur boðið upp á áfallahjálp fyrir þá starfsmenn sem í ránunum lentu og verður gerður sérstakur samningur við fagaðila til þess að taka á þeim málum sem upp koma. Öll eftirritunarskyld lyf verða framvegis geymd í tímalæstum öryggisskáp og æfingar vegna vopnaðra rána verða haldnar að sögn Hjalta. "Það þarf að bregðast við því að fólk er farið að ógna okkar starfsfólki með vopnum," segir Þórbergur Egilsson, rekstrarstjóri Lyfju. Þar hefur einnig verið gripið til víðtækra öryggisráðstafana eftir fjölda ránstilrauna í lyfjabúðir og er verslana gætt af öryggisvörðum. "Við verðum mjög gjarnan fyrir búðarhnupli sem virðist því miður orðin dagleg rútína," segir Þórbergur og bætir við að afskriftir af völdum eyðilegginga á vöru og hnupls í verslunum Lyfju hlaupi á milljónum á ári. "Annað og miklu alvarlegra mál er hins vegar þegar starfsfólki okkar er beinlínis ógnað með vopnum," segir hann. Þórbergur segir þó enn of snemmt að segja til um hvort öryggisráðstafanirnar skili árangri. "Við ætlum þó að bregðast þannig við að þessu vandamáli verði eytt." Lyfjafræðingur í lyfjaverslun á höfuðborgarsvæðinu sem Fréttablaðið ræddi við í gær sagði öryggisverði veita starfsfólki verslananna talsverða öryggiskennd. Hún segir jafnvel dæmi um að fólk á leið inn í verslunina snúi við þegar það sér öryggisvörðinn
Fréttir Innlent Mest lesið Illa brugðið en heill á húfi Innlent Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Erlent „Of margar sögur af vondri meðferð“ Innlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Samgöngur í lamasessi eftir enn eina árás á brú Erlent Keyrði inn í mannfjölda norður af Sydney Erlent Heiða í veikindaleyfi Innlent Fleiri fréttir Hópslysaáætlun virkjuð vegna áreksturs Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Sjá meira