Fleiri fréttir

Ferja milli Íslands og Evrópu

Hópur manna vinnur nú að undirbúningi þess að ferjusiglingar hefjist milli Reykjavíkur, Newcastle á Englandi og Bremerhaven í Þýskalandi næsta vor. Einnig kemur til greina að hafnarstæði ferjunnar verði í Þorlákshöfn eða á Grundartanga.

Hér & nú: Alls óskyldur rekstur

Ritstjóri tímaritsins Hér & nú segir rekstur auglýsingastofu og útgáfu tímarits vera alls óskyldan rekstur. Hann sendi tilkynningu til fjölmiðla í kjölfar þess að auglýsingastofan Hér & nú ehf. kærði tímaritið Hér og nú á þeim forsendum að efnistök tímaritsins og trúverðugleiki hafi neikvæða áhrif á ímynd, orðspor og trúverðugleika auglýsingastofunnar.

Engar afgerandi niðurstöður

Viðræður um framtíð varnarsamstarfsins við Bandaríkin á Keflavíkurflugvelli hófust í Washington í morgun. Talsmaður utanríkisráðuneytis Bandaríkjanna segist ekki búast við neinum afgerandi niðurstöðum úr viðræðunum, enda sé ætlunin fyrst og fremst að kynna sjónarmið beggja aðila í fyrstu umferð.

Fjórðungur af fjárlögum

Heildargreiðslur Tryggingastofnunar á árinu 2004 námu um 70 milljörðum á síðasta ári eða um fjórðungi af áætluðum ríkisútgjöldum, sem er 15 milljörðum meira en árið 2003. Skýrist sú hækkun einna helst á 12 milljarða greiðslu til öldrunar- og endurhæfingastofna, en þær greiðslur voru ekki tilteknar fyrir árið 2003.

Ágrip af sögu Baugsmálsins

Ákæra í Baugsmálinu nú gæti orðið til þess að Baugur Group verði að draga sig í hlé í viðræðunum um kaup á bresku verslunarkeðjunni Somerfield. Húsleit í höfuðstöðvum Baugs fyrir nærri þremur árum réði miklu um að ekkert varð af kaupum Baugs á verslunarkeðjunni Arcadia.

Tengjast nígerískum glæpasamtökum?

Grunur leikur á að par, sem stal tveimur bílaleigubílum og flutti úr landi, sé tengt nígerískum glæpasamtökum erlendis. Réttarhöld yfir parinu stóðu yfir í allan dag.

Jón Á. ákærður fyrir fjárdrátt?

Jón Ásgeir Jóhannesson, forstjóri Baugs, er ákærður fyrir tæplega hundrað milljóna króna fjárdrátt í tengslum við tilraun fyrirtækisins til að taka yfir verslanakeðjuna Arcadia fyrir fjórum árum. Þetta kemur fram í breska blaðinu Guardian í dag. Jóhannes faðir hans segir að um svæsnar ofsóknir sé að ræða.

Afmarkað mál stutt gögnum

Góður gangur er sagður í rannsókn fjárdráttarmáls konu sem stýrði sambýli á Svæðisskrifstofu málefna fatlaðra í Reykjavík. Málið þykir sýnu alvarlegra en svipað mál sem kom nýverið upp á sambýli geðfatlaðra, því um stjórnanda er að ræða en ekki matráðskonu eins og í því máli.

Rafræn skráning framför

Aðstoðarlækningaforstjóri Landspítalans segir rafræna skráningu um sjúklinga framför. Hann segir kerfið gott og minnir á að læknar hafi haft jafnan aðgang að heilsufarsupplýsingum áður, en þá hafi tekið lengri tíma að safna þeim saman.

Mótmælir niðurstöðu geðrannsóknar

Tekið var fyrir í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær mál 34 ára gamals manns sem setið hefur í gæsluvarðhaldi í rúmar 10 vikur, eftir að hafa ráðist á lækni sem meðal annars sinnir rannsókn í sakamálum fyrir lögreglu og í barnsfaðernismálum. Þá er maðurinn kærður fyrir hótanir gegn lækninum og fjölskyldu hans, auk brota á fíkniefnalöggjöf.

Fundu tæp 200 grömm af hassi

Maður á þrítugsaldri hlaut í gær skilorðsbundið mánaðarfangelsi auk 180.000 króna sektar fyrir brot á fíkniefnalöggjöf og umferðarlögum. Hann var að auki sviptur ökuleyfi í þrjú ár og þarf að greiða kostnað upp á 203.501 krónu.

30 grömm urðu 77 með blöndun

31 árs gamall maður var dæmdur í tveggja mánaða fangelsi í Héraðsdómi Reykjaness í gær, en undir lok febrúar sl. fann lögreglan í Kópavogi tæp 77 grömm af amfetamíni á heimili hans.

Ósáttur við DV fékk tvo mánuði

Jón Trausti Lúthersson var í gær dæmdur í tveggja mánaða fangelsi fyrir að hafa í október í fyrra ráðist á þáverandi fréttastjóra DV. Jón Trausti ruddist með tveimur félögum sínum inn á ritstjórn blaðsins í Reykjavík og vildi hitta fyrir ritstjóra.

Aukningin hjá Cantat-3 ekki FARICE

Rannsókna- og háskólanet Íslands tengist ekki um FARICE sæstrenginn nýja og varð því ekki fyrir truflunum þegar samband rofnaði nýverið við Skotland. Verð gagnaflutninga um FARICE strenginn, sem stjórnvöld standa að, sætir gagnrýni.

Vill endurskoða Íbúðalánasjóð

Eiríkur Guðnason seðlabankastjóri segir það ekki tilgang með starfsemi Íbúðalánasjóðs að ýta undir neyslulán og telur brýnt að endurskoða lög um sjóðinn. Hann segir sjóðinn, bankana og lántakendur fara offari á lánamarkaði. Fram kom í fréttum Stöðvar tvö í fyrradag að Íbúðalánasjóður hefði með ríkistryggðu lánsfé endurlánað bönkum og sparisjóðum yfir áttatíu milljarða króna.

Burðardýr segir sögu sína

Fíkniefnasalar senda oft fleiri en eitt burðardýr með sömu flugvél til að villa um fyrir tollgæslunni. Burðardýr, sem var gómað í Leifsstöð, heldur að sér hafi verið att á foraðið til að annar kæmist í gegnum nálaraugað, kannski með miklu meira magn.

Hrefnuveiði hafin

Þrjár hrefnur veiddust í dag, á fyrsta veiðidegi. Um leið og hvalveiðiflotinn hélt úr höfn sást til hvala í Keflavíkurhöfn. Þrjár hrefnur veiddust í dag, á fyrsta veiðidegi. Hrefnuveiðimaðurinn Konráð Eggertsson á Ísafirði lagði úr höfn eldsnemma í morgun til veiða. Um leið og hvalveiðiflotinn hélt úr höfn sást til hvala í Keflavíkurhöfn.

Bílvelta og hraðakstur

Lögregluumdæmin á Íslandi höfðu í einu og öðru að snúast í gær. Flest af því var þó smávægilegt.

Verðlækkanirnar gengu til baka

Verðlækkanir lágvöruverðsverslananna frá því í vor hafa að mestu gengið til baka. Þetta leiðir ný verðkönnun Alþýðusambands Íslands í ljós.

Hugmyndir um niðurrif húss Vistors

Í Garðabæ eru uppi hugmyndir um að rífa hús lyfjafyrirtækisins Vistor til að rýma fyrir stækkun miðbæjarins. Minnihlutinn vill að tillögur þessa efnis verði nú þegar lagðar á hilluna. Vistor vill ekki færa sig um set.

ASÍ gagnrýnir hagstjórn ríkisins

Alþýðusamband Íslands segir að búast megi við harkalegri lendingu við lok stóriðjuframkvæmda. Þingmaður Sjálfstæðisflokksins segir að mikilvægasta verkefnið sé aðhald í launamálum hins opinbera.

Framsókn undir 4% í Reykjavík

Framsóknarflokkurinn mælist með minna en fjögurra prósenta fylgi í Reykjavík samkvæmt nýrri könnun Gallup. Flokkurinn tapar einu prósentustigi milli mánaða í Reykjavíkurkjördæmunum. Frjálslyndi flokkurinn mælist með tæp tvö prósent.

Hér & Nú ehf. kærir Hér & Nú

Hér & Nú ehf. hefur kært tímaritið Hér & Nú til Samkeppnisstofnunar vegna ruglings sem skapast hefur á nafni hins nýja tímarits. Hér & Nú ehf. ákvað að leggja fram kæru þar sem efnistök tímaritsins Hér & Nú og sú slæma umræða í kringum það í fjölmiðlum að undanförnu hefur neikvæð áhrif á rekstur Hér & Nú ehf.

Upplýsingaútvarp á ensku

Upplýsingaútvarp á ensku fyrir erlenda ferðamenn er komið í loftið á Suðurnesjum. Því er ætlað að auðvelda erlendum ferðamönnum til muna aðgang að gagnlegum upplýsingum.

Innbrot í ljósmyndavöruverslun

Brotist var inn í ljósmyndavöruverslun í austurborginni um klukkan fimm í morgun og þaðan stolið á annan tug dýrra myndavéla. Þjófurinn komst undan og er hans nú leitað.

Kauptilboð í Somerfield í óvissu

Einhverjir hinna erlendu aðila sem standa að kauptilboði í stórverslanakeðjuna Somerfield ásamt Baugi hafa hótað að hætta við tilboð sín, ef Baugur dregur sig ekki út úr hópnum, að sögn Financial Times. Ástæðan er ákæran, sem Ríkislögreglustjóri hefur gefið út á hendur Jóni Ásgeiri Jóhannessyni forstjóra Baugs, og fleirum.

Júlílaun kennara skert

Júlílaun grunnskólakennara á meðallaunum eru skert um rúmlega áttatíu þúsund krónur vegna verkfallsins í fyrrahaust.

Eiturlyfjamarkaðurinn

Götuverð á kókaíni hefur hríðfallið á einum mánuði úr tólf þúsund krónum grammið niður í sjö þúsund og fimm hundruð krónur, samkvæmt verðkönnun SÁÁ. Þessi verðlækkun getur verið vísbending um að einhverjum hafi nýverið tekist að smygla miklu af efninu til landsins. 

Gistinóttum fer fjölgandi

Gistinætur á hótelum á landinu í maí síðastliðnum voru fimm prósentum fleiri en í sama mánuði í fyrra. Þær voru nú tæplega 87 þúsund sem er fjölgun um rúmlega fjögur þúsund. Gistinóttum fjölgaði í öllum landshlutum nema á Suðurlandi.

Leit að líki í Grafarvogi hætt

Leit að líki í Grafarvogi í Reykjavík sem hófst síðdegis í gær bar ekki árangur og var henni hætt upp ur miðnætti. Þá höfðu björgunarsveitarmenn, lögregla og slökkviliðsmenn kafað, siglt um voginn og gengið fjörur auk þess sem þyrla Landhelgisgæslunnar flaug yfir svæðið.

Díselolía dýrari en bensín

Díselolían er orðin dýrari en bensín á bensínstöðvum Essó eftir að félagið ákvað í gær að hækka lítrann af díselolíu upp í 110 krónur. Bensínlítrinn hjá sama félagi og hinum stóru olíufélögunum er hinsvegar á hundrað og níu og tuttugu. Díselolían er nú áttatíu aurum dýrari en bensín.

Framboðsmál R listans óljós

Samfylkingin og Vinstri grænir eru óhress með þá tillögu Framsóknarmanna að þeir fái tvö örugg sæti á R-listanum þrátt fyrir að skoðanakönnun bendi til þess að Framsóknarflokkurinn fái engan borgarfulltrúa kjörinn í næstu sveitarstjórnarkosningum.

Endurbætur á kostnað flokksins

Endurbætur á húsi Framsóknarflokksins, sem áður var í eigu Kers, voru að fullu á kostnað flokksins sjálfs, segir í tilkynningu frá Framsóknarflokknum.

Hrefnuveiði aukin

Hafrannsóknastofnun ætlar að láta veiða þrjátíu og níu hrefnur í sumar, en tuttugu og fimm voru veiddar í fyrra og þrjátíu og sex árið þar áður. Talsmenn hvalaskoðunarfyrirtækja segja að miklum hagsmunum sé stefnt í hættu með veiðunum.

Níu mánaða fangelsi

Héraðsdómur Reykjaness dæmdi karlmann á þrítugsaldri í níu mánaða fangelsi fyrir ýmis afbrot, þar á meðal fyrir aðild að innflutningi á rúmum tveimur og hálfu kílói af kannabisefni til landsins. Með brotunum rauf maðurinn í þriðja sinn skilorð dóms sem hann hlaut árið 2003.

Met í sölu nýrra bíla

Aldrei hafa selst jafn margir nýir bílar hér á landi og nú. Á fyrstu sex mánuðum ársins seldust 9687 nýir bílar. Eru það fleiri nýjar fólksbifreiðar en seldust allt árið 2001 og einnig árið 2002.

Sex mánuði fyrir eignaspjöll

Maður var í dag dæmdur í sex mánaða fangelsi fyrir stórfelld eignaspjöll Honum var meðal annars gefið að sök að hafa kveikt í íbúðarhúsinu að Kársnesbraut 7 í Kópavogi, eign eiginkonu sinnar, með þeim afleiðingum að húsið stórskemmdist að innan. Hálfs árs fangelsisvistin fellur niður ef ákærði heldur skilorð í tvö ár.

Icelandic Group með afkomuviðvörun

Icelandic Group hefur sent frá sér afkomuviðvörun og lækkuðu hlutabréf fyrirtækisins lítillega í morgun. Samþætting rekstrar Icelandic Group hf. og Sjóvíkur ehf. stendur yfir og unnið er að heildarstefnumótun sameinaðs félags en áætlanir og framtíðarsýn sameinaðs fyritækis verða kynntar í lok ágúst.

Icelandic Group með afkomuviðvörun

Icelandic Group hefur sent frá sér afkomuviðvörun og lækkuðu hlutabréf fyrirtækisins lítillega í morgun. Samþætting rekstrar Icelandic Group hf. og Sjóvíkur ehf. stendur yfir og unnið er að heildarstefnumótun sameinaðs félags en áætlanir og framtíðarsýn sameinaðs fyritækis verða kynntar í lok ágúst.

SÁÁ byggir við Efstaleiti

Skóflustunga að nýrri byggingu SÁÁ við Efstaleiti var tekin í fyrradag en stefnt er að því að byggingu hússins verði lokið haustið 2006.

Fyrsta útskriftin

Menntaskólinn Hraðbraut útskrifar fyrstu stúdentana á laugardag en skólinn hóf störf árið 2003 og býður upp á nám til stúdentsprófs á tveimur árum.

Sorpa greiðir fyrir bylgjupappa

Sorpa greiðir nú fyrirtækjum fyrir skil á bylgjupappa og filmuplasti. Sorpa vonast til þess að greiðslan verði fyrirtækjum hvati til að flokka úrgang betur og skila til endurvinnslu.

Minnkandi verðbólga í OECD ríkjum

Verðbólga í maí var að jafnaði 2,4% á ársgrundvelli í aðildarríkjum OECD samanborið við 2,8% í apríl síðastliðnum. Ástæðan fyrir minni verðbólgu var einkum að eldsneytisverð lækkaði lítillega. Mest var verðbólgan í Tyrklandi, eða 10%. Á Íslandi var verðbólgan 2,9% eins og í Bretlandi, 2,8% í Bandaríkjunum, 1,6% í Noregi, 1,5% í Danmörku, 0,8% í Finnlandi og 0,1% í Svíþjóð.

Sjá næstu 50 fréttir