Fleiri fréttir

Flugvöllurinn lengdur um 130 m

Framkvæmdir við lengingu flugvallarins á Þingeyri við Dýrafjörð hefjast innan fárra daga en skrifað var undir samning þess efnis í morgun. Flugbrautin verður lengd um rúma 130 metra og hefur henni verið lokað þar til 1. nóvember þegar framkvæmdum lýkur.

Minni verslanir mega hafa opið

Á hvítasunnudag verður heimilt að hafa þær matvöruverslanir opnar sem eru að hámarki 600 fermetrar að stærð og a.m.k. tveir þriðju hlutar veltunnar er sala á matvælum, drykkjarvöru og tóbaki.

Tafir við Miklubraut í tvær vikur

Miklabraut til móts við Rauðarárstíg verður þrengd tímabundið 17.-31. maí vegna framkvæmda við tengingu Hringbrautar. Akreinum verður fækkað úr fjórum í tvær, ein í hvora átt.

Mærir Íslendingasögur í bók

Hinn heimskunni tékknesk-franski rithöfundur Milan Kundera fer fögrum orðum um íslenska sagnaarfinn í bók sem nýverið kom út í Frakklandi.

Hreyfill bilaði í flugtaki

Hreyfill Páls Sveinssonar, flugvélar Landgræðslunnar, bilaði í flugtaki frá Reykjavíkurflugvelli um hálf tvö leytið í dag. Að sögn Heimis Más Péturssonar, upplýsingafulltrúa Flugmálastjórnar, urðu flugmennirnir varir við miklar drunur og bank úr hægri hreyflinum í flugtaki og sáu olíu leka úr honum.

6 mánaða fangelsi fyrir líkamsárás

Tuttugu og tveggja ára karlmaður var dæmdur í sex mánaða skilorðsbundið fangelsi í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag fyrir að hafa slegið mann í andlitið með flösku fyrir utan skemmtistað í Reykjavík í desember árið 2003. Flaskan brotnaði á andliti mannsins með þeim afleiðingum að hann hlaut djúpan skurð í andlitið auk fjölda skurða á enni.

Lífshlaup Gunnlaugs í Kaliforníu

Gunnlaugur A. Júlíusson, hagfræðingur hjá Sambandi íslenskra sveitarfélaga, tekur þátt í 160 kílómetra hlaupi í Kaliforníu í lok júní og getur hann þar með orðið fyrstur Íslendinga til að ljúka svo löngu hlaupi.

Olíudæla í gömlu bryggjuhúsi

Olíudreifing er með olíuafgreiðslu í einu elsta bryggjuhúsi Íslendinga sem stendur inni á minjasvæði Tækniminjasafns Austurlands á Seyðisfirði. Olíu er dælt úr slöngu sem liggur utan á húsinu, tíu metra frá fjöruborðinu, og eru varnir litlar. Olían rennur beint út í sjó ef slys verður. </font /></b />

Kærir kjörstjórn Samfylkingarinnar

Starfsmanni á skrifstofu Samfylkingarinnar var sagt upp störfum eftir að upp komst að átt hafði verið við kjörskrár og upplýsingar sendar út í heimildarleysi. Starfsmaðurinn hefur kært málið til Persónuverndar á þeirri forsendu að farið hafi verið í gegnum tölvupóst hans í heimildarleysi.

Lögreglumaður sýknaður

Lögreglumaður var sýknaður í Hæstarétti í dag af ákæru um fjárdrátt og brot í opinberu starfi. Héraðsdómur hafði áður dæmt manninn í níu mánaða fangelsi, þar af voru sex skilorðsbundir. 

Börnin gætu ráðið ferðinni

Menntamálaráðuneytið býður nú nemendum í 10. bekk í fyrsta skipti upp á að sækja um framhaldsskóla rafrænt á netinu. Öllum útskriftarnemum úr grunnskólunum er sendur heim veflykill og leiðbeiningar sem þeir geta notað til að skrá sig inn á þar til gerða vefsíðu og þar sótt um þann framhaldsskóla sem þeim hugnast.

950 manns með öðrum í herbergi

950 aldraðir búa í herbergi með öðrum á hjúkrunarstofnunum og eru þá frátalin hjón og sambúðarfólk. Þetta kemur fram í svari heilbrigðisráðherra við fyrirspurn Björgvins Sigurðssonar á Alþingi.

Prófið öðruvísi en kynnt var

Samræmda prófið í stærðfræði sem grunnskólanemar þreyttu í gær var öðruvísi en búið var að kynna kennurum og nemendum.

Klofinn dómur í kynferðisbrotamáli

Héraðsdómur Norðurlands vestra klofnaði í máli manns sem sakaður var um kynferðisbrot gegn ungri systurdóttur sinni. Tveir dómarar sýknuðu manninn, en sá þriðji skilaði séráliti og vildi dæma hann í 10 mánaða fangelsi. Ákvörðun um áfrýjun liggur ekki fyrir.

Allir vilja Jökulsárlón

Aðalmeðferð fór fram fyrir Héraðsdómi Reykjaness fyrir helgi í máli fjármálaráðuneytisins á hendur Sameigendafélagi Fells og Einari Birni Einarssyni til að fá hnekkt úrskurði Óbyggðanefndar um eignarhald á Jökulsárlóni og stórum hluta jarðarinnar Fells í Suðursveit.

Lithái sendur til Þýskalands

Hæstiréttur staðfesti í vikunni úrskurð Héraðsdóms Reykjavíkur um að framselja bæri litháískan mann til Þýskalands. Hingað kom maðurinn með Norrænu í byrjun mars.

Máli Gunnars Arnar vísað frá dómi

Hæstiréttur gagnrýnir rannsókn lögreglu og verknaðarlýsingu ákæru á hendur fyrrum endurskoðanda Tryggingasjóðs lækna. Málinu var í gær vísað frá dómi. Ríkissaksóknari segir verða skoðað hvort málarekstur verði hafinn að nýju.

Lögga sýknuð af fjárdrætti

Hæstiréttur sýknaði í gær fyrrum lögreglufulltrúa í ávana- og fíkniefnadeild Lögreglunnar í Reykjavík af því að hafa dregið sér tæpar 900 þúsund krónur sem haldlagðar voru við húsleit þar sem rannsakað var meint brot á fíkniefnalögum. Um miðjan nóvember dæmdi Héraðsdómur Reykjavíkur manninn í 9 mánaða fangelsi fyrir fjárdráttinn.

Dalsmynnisdómur stendur

Hæstiréttur staðfesti í gær dóm Héraðsdóms um að maður og kona greiði Hundaræktinni Dalsmynni samtals um 730 þúsund krónur fyrir fimm hunda sem þau keyptu í ársbyrjun árið 2002, alla af Chihuahua-smáhundategund, einn hund og fjórar tíkur.

Hraðamet í afgreiðslu þingmála

Alþingi fór í sumarleyfi skömmu fyrir miðnætti í gærkvöld eftir að Halldór Blöndal, fráfarandi þingforseti, hafði slegið hraðamet í afgreiðslu mála.

Ósáttir við fuglaveiðibann

Eigendur jarðarinnar Selskarðs eru ósáttir við að ríkið banni fuglaveiðar með skotvopnum á jörðinni. Rétt er þó að geta þess að jörðin er í Garðabæ, aðeins steinsnar frá aðsetri forseta Íslands.

Keikó vildi aldrei frelsi

Keikó vildi aldrei frelsi og elskaði þá athygli sem hann fékk hjá mannfólkinu, samkvæmt nýrri bók um háhyrninginn sem ber heitið <em>Keikó talar</em>. Höfundurinn, Bonnie Norton, segist hafa skýr skilaboð frá háhyrningnum.

Skrúfa af kanadískum tundurspilli

Landhelgisgæslan kom með skrúfu af kanadíska tundurspillinum Skeenu að Reykjavíkurhöfn í dag. Skeena strandaði við vesturenda Viðeyjar í nóvember árið 1944.

Nær öllu starfsfólkinu sagt upp

Nær öllu starfsfólki hjá fiskvinnslunni Drangi á Drangsnesi hefur verið sagt upp störfum. Þar eru ekki nægir bátar til að útvega fiskvinnslunni hráefni; þeir eru allir uppteknir á grásleppuveiðum.

Í þrem flokkum sama kjörtímabilið

Allar götur frá því stjórnmálaflokkar urðu til á Íslandi í upphafi síðustu aldar hafa flokkar komið og farið, sameinast og sundrast. Sömu sögu er að segja af stjórnmálamönnunum sem mynda flokkana.

Forskot Fréttablaðsins eykst

Fréttablaðið eykur forskot sitt sem vinsælasti fjölmiðill landsins, samkvæmt nýrri fjölmiðlakönnun Gallup. Tíu prósent fleiri lesa Fréttablaðið daglega en horfa á Ríkisjónvarpið á hverjum degi.

Lítill drengskapur Gunnars

"Það er augljóst mál, að þingmaður sem nú vill styðja ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks undir forystu Halldórs Ásgrímssonar, á ekki heima í Frjálslynda flokknum," segir í yfirlýsingu sem samþykkt var á fundi miðstjórnar Frjálslynda flokksins um ákvörðun Gunnars Örlygssonar að ganga til liðs við Sjálfstæðisflokkinn.

Náðu skrúfu af hafsbotni

Áhöfn Óðins og sprengjusérfræðingar Landhelgisgæslunnar náðu upp skrúfu sem legið hafði á sjávarbotni við Viðey síðan í október 1944. Skrúfan er úr kanadíska tundurspillinum Skeena, sem strandaði við Viðey í ofsaveðri. Fimmtán manns fórust þá eftir að þeir yfirgáfu skipið í björgunarbátum og -flekum.

Selma bjartsýn á framhaldið

Selma Björnsdóttir kvaðst bjartsýn á framhaldið eftir að hafa æft í fyrsta sinn á sviðinu í Kænugarði þar sem söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva fer fram. Hún var ánægð með hvernig til tókst í gær og sagði sviðið einstaklega gott.

Persónuupplýsingar gegn greiðslu

Smartkort hf. hefur fengið einkaleyfi á tækjum og ferlum sem gera möguleg skipti á persónuupplýsingum gegn greiðslu, hvort sem hún er í formi fjármuna, afsláttar, bónuspunkta eða annarra fríðinda.

Rúmlega 80 skjálftar frá miðnætti

Gríðarleg skjálftavirkni hefur verið suður af Reykjanesi og má sem dæmi nefna að frá miðnætti hafa mælst þar á níunda tug skjálfta. Þeir öflugustu hafa mælst þrír til fjórir á Richter. Upptök þeirra langflestra eru við Eldeyjarboða.

Óvenju gestkvæmt á Hverfisgötunni

Óvenju gestkvæmt var í fangageymslum lögreglunnar í Reykjavík í nótt, eða ellefu manns. Tveir þeirra sem þar dvelja nú voru teknir fyrir bílþjófnað og verða yfirheyrðir með morgninum og tveir, svokallaðir góðkunningjar, voru teknir þegar þeir komu sér inn í þvottahús í Norðurmýri þar sem þeir ætluðu að gista við lítinn fögnuð húseigenda.

Kópavogur 50 ára í dag

Mikið verður um dýrðir í Kópavogi í dag en bærinn fagnar nú hálfrar aldar afmæli. Hátíðardagskrá verður í Salnum þar sem flutt verða fjölmörg tónlistaratriði, heiðurslistamaður bæjarins verður útnefndur, ræður verða haldnar og kvikmynd sem spannar fimmtíu ára sögu Kópavogs verður sýnd.

Fyrningarfrumvarp ekki afgreitt

Til snarpra orðaskipta kom á Alþingi fyrir stundu þegar Halldór Blöndal, forseti Alþingis, tilkynnti að framvarp Ágústs Ólafs Ágústssonar, þingmanns Samfylkingar, um afnám fyrningar á kynferðisbrotum gegn börnum yrði ekki afgreitt fyrir þinghlé eftir að breytingartillaga kom fram frá Jónínu Bjartmarz, þingmanni Framsóknarflokks.

Búlgarar samþykkja skilyrði ESB

Búlgarska þingi samþykkti með miklum meirihluta í morgun skilyrðin sem Evrópusambandið setti fyrir inngöngu landsins í sambandið. Þar með getur þetta fátæka land gengið í hóp hinna auðugu Evrópuþjóða. Búist er við að það gerist árið 2007.

Engin gosvirkni á skjálftasvæðinu

Engin gosvirkni virðist vera á skjálftasvæðinu suður af landinu, samkvæmt upplýsingum frá Veðurstofu Íslands. Skjálftahrinan hóst um miðjan dag í gær en frá miðnætti hafa mælst hátt í hundrað skjálftar.

Tillögur Gunnars felldar

Breytingartillögur Gunnars Birgissonar, þingmanns Sjálfstæðisflokks, við samgönguáætlun samgönguráðherra á árunum 2005 til 2008 voru felldar á Alþingi skömmu fyrir hádegi. Þar er nú verið að ræða samgönguáætlunina.

Atkvæði greidd í dag

Meirihluti Alþingis samþykkti nú fyrir hádegi að þrjú lagafrumvörp viðskiptaráðherra um breytingar á samkeppnislögum gengju til þriðju umræðu með þeim breytingum sem meirihluti nefndarinnar lagði til. Greidd verða atkvæði um lögin eftir hádegi í dag.

Maðurinn fundinn

Subaru Legacy bíll, sem lögreglan í Reykjavík auglýsti eftir í gær, er fundinn og ökumaðurinn einnig, heill á húfi. Maðurinn hafði farið að heiman frá sér og var óttast um hann.

Selma farin til Kænugarðs

Selma Björnsdóttir lagði snemma í morgun upp í langferð þar sem áfangastaðurinn er Kænugarður í Úkraínu. Þar mun Selma verða fulltrúi íslensku þjóðarinnar í Eurovision keppninni og flytja lagið <strong><em>If I had your love</em></strong>. Gífurleg spenna er fyrir þessari keppni enda benda flestar spár til þess að laginu muni ganga vel.

Krafa á ríkið vegna þjóðlendumála

Fjöldi hreppa á Suðurlandi krefur ríkið um milljónir króna í kostnað vegna þjóðlendumála. Þrátt fyrir að þeir hafi sýnt fram á tiltekinn kostnað vegna lögfræðiaðstoðar úrskurðaði óbyggðanefnd að sá kostnaður væri mun lægri.

Yfir 100 manns með salmonellu

Í fyrra greindust rúmlega hundrað Íslendingar með salmonellusýkingu. Flest tilfellin voru af erlendum uppruna.

Hjartalyf ÍE vekur athygli

Grein um áhrif nýs hjartalyfs Íslenskrar erfðagreiningar, sem birtist í tímariti bandarísku læknasamtakanna, hefur vakið mikla athygli. Meðal annars hefur verið fjallað um lyfið í <em>New York Times</em> og hjá Reuters-fréttastofunni.

Styðja slökkviliðsmennina

Á ársfundi Landssambands slökkviliðsmanna sem haldinn var fyrir skemmstu var samþykkt ályktun til stuðnings slökkviliðsmönnum á Keflavíkurflugvelli.

Endurkröfurnar nema 48 milljónum

Endurkröfur frá tryggingafélögunum á tjónvalda námu á síðasta ári 48 milljónum króna. Tryggingafélögin eiga í mörgum tilfellum endurkröfurétt á tjónvalda ef sannað þykir að slys eða óhapp verði vegna gáleysis eða ásetnings.

Sjá næstu 50 fréttir