Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Ráðherra líti sér nær Fjármálaráðherra segir vínbirgja ekki láta lækkandi gengi skila sér í vöruverð. Heildsalar vísa gagnrýninni á bug og segja fáar vörur greiddar í dollurum. Vegna skattastefnu ráðherrans sé innkaupsverð lítill hluti af verði vínflösku.</font /></b /> 11.2.2005 00:01
Játaði fimm vopnuð rán 35 ára gamall maður hefur játað að hafa framið fimm vopnuð rán í Reykjavík á fjórum dögum. Hann var nú síðdegis úrskurðaður í vikulangt gæsluvarðhald. 11.2.2005 00:01
Tvöfalt hærri fasteignaskattar Íbúar í Reykjavík borga ríflega tvöfalt meira í fasteignaskatt nú en þeir gerðu þegar R-listinn tók við fyrir ellefu árum að sögn Guðlaugs Þórs Þórðarsonar, borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins. Hann segir að eftir að hafa skoðað ársreikninga borgarinnar síðastliðin tólf ár hafi þessi sláandi tala komið í ljós. 11.2.2005 00:01
Fresta leyfisveitingu vínbúðar Bæjarstjórn Hveragerðis frestaði á síðasta fundi sínum að taka afstöðu til beiðni Áfengis- og tóbaksverslunar ríkisins um að reka vínbúð að Breiðumörk 1. Í bókun meirihluta bæjarstjórnar segir að afla verði frekari upplýsinga frá ÁTVR um rekstur vínbúðarinnar áður en hægt sé að veita leyfið og var bæjarstjóra falið að afla þeirra upplýsinga. 11.2.2005 00:01
Skjálftavefsjá fyrir almenning Veðurstofan hefur opnað nýjan og endurbættan vef um jarðskjálfta og eldgos. Sigríður Anna Þórðardóttir umhverfisráðherra ræsti vefinn í dag en hann kallast „Skjálftavefsjá“. Með honum hyggst Veðurstofan auka enn möguleika almennings til að fylgjast með umbrotum í jarðskorpunni undir Íslandi og hafdjúpunum í kringum landið. 11.2.2005 00:01
Ráðherra varar fólk við Helmingur af verðbólgu síðustu tólf mánaða er vegna hækkana á fasteignaverði. Fjármálaráðherra segir þessar hækkanir komnar til vegna breyttra aðstæðna á lánamarkaði og biður fólk að fara varlega í skuldsetningu þar sem óljóst er hvert stefnir. 11.2.2005 00:01
Stærsti vandi íslensks réttarfars Það fer eftir því hvernig Hæstiréttur er mannaður hvort dómurinn geti endurmetið sönnunargildi munnlegs framburðar úr héraðsdómi. Eiríkur Tómasson lagaprófessor segir að um sé að ræða stærsta vanda sem við er að etja í íslensku réttarfari. 11.2.2005 00:01
12 ára gamalt námskeið lífsbjörg Tólf ára gamalt skyndihjálparnámskeið varð manni í hjartastoppi til lífs. Maðurinn, sem sýndi rétt viðbrögð á neyðarstundu með hetjulegri framgöngu, var valinn skyndihjálparmaður ársins í dag. 11.2.2005 00:01
Rannsókn á bruna hefst í dag Rannsókn hefst í birtingu á því hvað olli sprengingu í mjölþurrkara í fiskimjölsverksmiðju Samherja í Grindavík í gær sem olli stórtjóni á allri verksmiðjunni. Slökkviliðsmenn voru á vettvangi fram undir miðnætti og lögregla vaktaði svæðið í nótt. Ljóst er að engin loðna verður brædd í verksmiðjunni á þessari vertíð en fram undan voru miklar annir þar sem loðnan er farin að ganga vestur með suðurströndinni og því hentugt að landa í Grindavík. 10.2.2005 00:01
Þriðji söluturninn rændur Þriðja sjoppuránið í þessari viku var framið þegar maður vopnaður barefli rændi söluturn við Langholtsveg um níuleytið í gærkvöldi. Hin voru framin í Mjódd og í Grafarholti. Ræninginn í gærkvöldi var með sólgleraugu líkt og ræninginn í Mjódd í fyrrakvöld og grunar lögregluna allt eins að sami maður hafi verið að verki á öllum stöðunum. 10.2.2005 00:01
Trylltist við afskipti lögreglu Ölvaður ökumaður trylltist þegar lögreglan á Akureyri ætlaði að stöðva hann í Gilinu á Akureyri í gær. Hann gaf í og ók utan í lögreglubílinn en lögreglunni tókst að króa hann af. Þá læsti hann bílnum og neitaði að koma út. Lögreglumenn brutu þá rúðu til að ná manninum en þá réðst hann á lögreglumennina sem náðu að yfirbuga hann og flytja í járnum á lögreglustöðina þar sem hann var látinn sofa úr sér. 10.2.2005 00:01
Dettifoss kominn til Rotterdam Þýski dráttarbáturinn Primus kom með flutningaskipið Dettifoss í togi til Rotterdam undir kvöld í gær þar sem Dettifoss verður tekinn í þurrkví til viðgerðar. Tvö varðskip drógu Dettifoss inn til Eskifjarðar fyrir tæpum hálfum mánuði eftir að stýrið brotnaði af skipinu í slæmu veðri suðaustur af landinu. 10.2.2005 00:01
Ók út af í hálku á Reykjanesbraut Ökumaður rútu, sem var einn á ferð, slapp ómeiddur þegar bíllinn rann út af Reykjanesbraut skammt frá Vogaafleggjara í gærkvöldi. Á leiðinni út af braut bíllinn meðal annars umferðarmerki, en hálka var á vettvangi. Önnur rúta var notuð til að draga ökutækið aftur upp á veginn og var bíllinn ökufær eftir óhappið. 10.2.2005 00:01
Hefur verslað fyrir átta milljarða Ítalska verktakafyrirtækið Impregilo hefur verslað við íslensk fyrirtæki fyrir ríflega átta milljarða króna frá upphafi framkvæmdanna við Kárahnjúka til síðustu áramóta. Í tilkynningu frá fyrirtækinu segir að íslensk fyrirtæki hafi ekki farið varhluta af starfsemi Impregilo hér á landi því fyrir utan greiðslur fyrir vörur og þjónustu bætast við laun starfsmanna, launatengdur kostnaður og skattar. 10.2.2005 00:01
Samið um stækkun Norðuráls Valgerður Sverrisdóttir iðnaðar- og viðskiptaráðherra og Geir H. Haarde fjármálaráðherra undirrituðu í gær fyrir hönd íslenskra stjórnvalda, viðaukasamning vegna stækkunar Norðuráls á Grundartanga. Í samningnum er miðað við að stækka álverið upp í 260 þúsund tonna ársframleiðslu. 10.2.2005 00:01
Sérhæfð öryggisdeild á Kleppi Sérhæfð öryggisdeild á Kleppsspítala fyrir geðsjúka tekur til starfa innan skamms að því er fram kom í máli heilbrigðisráðherra í morgun. Þegar er farið að ráða starfsfólk og unnið er að breytingum á húsnæði. Margir þingmenn gagnrýndu á Alþingi í morgun að ekki yrði gert ráð fyrir að geðsjúkir fangar fengju inni á deildinni og báðu ráðherra að skoða hug sinn vandlega hvort ekki væri unnt að bæta þar úr. 10.2.2005 00:01
Mótmæla samgöngumiðstöð Höfuðborgarsamtökin mótmæla fyrirhugaðri byggingu samgöngumiðstöðvar í Vatnsmýri. Fulltrúar samtakanna afhentu borgarráðsmönnum og embættismönnum borgarinnar í morgun yfirlýsingu þar sem varað er við því að gengið verði til samninga við ríkið um samgöngumiðstöð á Reykjavíkurflugvelli. 10.2.2005 00:01
Verða af töluverðum tekjum Stór hluti árstekna þeirra starfsmanna sem vinna í fiskimjölsverksmiðju Samherja í Grindavík verður til á loðnuvertíðinni sem stendur nú sem hæst. Bæjarstjórinn segir brunann í gær mikið áfall fyrir bæjarfélagið sem verði af töluverðum tekjum. Hann hefur þó trú á að verksmiðjan verði byggð upp að nýju þar sem hluti af tækjum skemmdist ekki. 10.2.2005 00:01
Fundur vegna viðtals við Halldór Boðað hefur verið til aukafundar á Alþingi í dag til að ræða um viðtal Brynhildar Ólafsdóttur fréttamanns við Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra, sem birt var á Stöð tvö í gærkvöldi. Það var Össur Skarphéðinsson, formaður Samfylkingarinnar, sem óskaði eftir viðræðum um viðtalið. 10.2.2005 00:01
Hart deilt á forsætisráðherra Hart var deilt á Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra í umræðum á Alþingi í dag um viðtal Brynhildar Ólafsdóttur, fréttamanns á Stöð tvö, við forsætisráðherra sem sýnt var í gær. Þar lýsti Halldór aðdraganda þess að Ísland samþykkti að styðja innrás Bandaríkjamanna í Írak, afleiðingar þess og ástæður, en það var Össur Skarphéðinsson sem bað um tækifæri til að ræða um viðtalið á Alþingi. 10.2.2005 00:01
TM sendir frá sér afkomuviðvörun Tryggingamiðstöðin hefur líkt og Samherji gefið út afkomuviðvörun í tengslum við stórbrunann sem varð í fiskimjölsverksmiðju Samherja í Grindavík í gær. Eignirnar voru tryggðar hjá Tryggingamiðstöðinni sem gerir ráð fyrir að áhrif þess á afkomu félagsins muni nema tvö hundruð milljónum króna að viðbættum viðbótariðgjöldum sem greiða þarf til endurtryggjenda þegar svona stórt tjón verður. 10.2.2005 00:01
Akademían fagnar framtaki Eimskips Stjórn ReykjavíkurAkademíunnar hefur sent frá sér tilkynningu þar sem hún fagnar því framtaki Eimskipafélags Íslands að styrkja Háskóla Íslands með því að veita 500 milljónir króna til að byggja upp háskólatorg og 100 milljónir króna árlega til styrktar doktorsnemum við skólann. 10.2.2005 00:01
Um 55% bóta eftir læknismeðferð Meiri hluti bótamála sjúklingatrygginga sem Tryggingastofnun samþykkti á árunum 2001 - 2004 fellur undir lagaákvæði um að "ekki hafi verið staðið eins vel að læknismeðferð og unnt var." Umsóknum um bætur hefur fjölgað mikið á milli ára. </font /></b /> 10.2.2005 00:01
Horfið frá stórum geðsjúkarhúsum Það þarf að endurskoða hlutverk geðheilbrigðisstofnana, hverfa frá uppbyggingu stórra geðsjúkarhúsa, og gera þjónustuna notendavænni. 10.2.2005 00:01
60 fjölmiðlamenn á matreiðsluhátíð Sextíu erlendir fjölmiðlamenn koma til landsins á vegum Icelandair til að fylgjast með Food and Fun hátíðinni sem haldin verður dagana 16. til 20. febrúar næstkomandi. Flestir koma fjölmiðlamennirnir frá Bandaríkjunum, eða um tuttugu talsins, og eru þeir jafnt frá sérritum og sjónvarpsstöðvum sem eingöngu fjalla um mat og almennum fjölmiðlum á borð við <em>The Washington Post</em>. 10.2.2005 00:01
Sýknaður af kynferðisbroti Karlmaður sem í héraðsdómi var dæmdur í tveggja ára fangelsi fyrir langvarandi kynferðisbrot gagnvart ungri stúlku var sýknaður af Hæstarétti í dag. Stúlkan er dóttir konu sem starfaði hjá manninum og kom oft í vinnuna með móður sinni. Hafði héraðsdómur dæmt hann fyrir brot gegn stúlkunni, meðal annars fyrir samræði þegar hún var á aldrinum níu til þrettán ára. 10.2.2005 00:01
700 milljóna tekjutap Íslendingar verða hugsanlega af 700 milljónum króna vegna brunans í fiskimjölsverksmiðju Samherja í fyrradag að mati sjávarútvegsráðherra. Þetta kom fram á fundi Árna Mahiesen ráðherra með Ólafi Erni Ólafssyni, bæjarstjóra í Grindavík, Guðjóni Hjörleifssyni formanni sjávarútvegsnefndar Alþingis og Þorsteini Má Baldvinssyni, forstjóra Samherja í gær. 10.2.2005 00:01
Sex hundruð í ólöglegri vinnu Sífellt fleiri stunda svarta vinnu á Íslandi. Formaður Rafiðnaðarsambandsins segir þetta áberandi í byggingargeiranum og telur allt að 600 manns í ólöglegri vinnu. Samiðn og Útlendingastofnun hefja samstarf. </font /></b /> 10.2.2005 00:01
Norðurál fær heimild til stækkunar Ekkert stendur lengur í vegi fyrir því að Norðurál á Grundartanga geti aukið afköst álverksmiðju sinnar í 260 þúsund tonn en samningur þess efnis var undirritaður í vikunni. Hafa framkvæmdir við stækkun álversins staðið yfir um tíma en í þessum áfanga er einungis gert ráð fyrir að afkastagetan verði 212 þúsund tonn. 10.2.2005 00:01
Dómtekið í Héraðsdómi Mál Valgerðar H. Bjarnadóttur, fv. framkvæmdastjóra Jafnréttisstofu og formanns leikhússráðs Leikfélags Akureyrar, um greiðslu launa út ráðningartímabilið sem framkvæmdastjóri Jafnréttisstofu hefur verið dómtekið hjá Héraðsdómi Reykjavíkur. 10.2.2005 00:01
Vill fá konur í stjórn Valgerður Sverrisdóttir, iðnaðar- og viðskiptaráðherra, hvetur stjórnarformenn 80-90 helstu fyrirtækjanna í landinu til að beita sér fyrir því að konur fái tækifæri í stjórn og hefur sent þeim bréf þessa efnis, þó ekki þeim fyrirtækjum sem hafa staðið sig vel. 10.2.2005 00:01
Hittust í gegnum stefnumótasíðu Norska blaðið Dagbladet birti nýlega viðtal við norskt-íslenskt par, Súsönnu Andreudóttur, 28 ára, og Christopher Landmark, 32 ára, sem kynntust á stefnumótasíðu. Þau byrjuðu að búa saman þremur dögum eftir að hafa hist í fyrsta skipti. 10.2.2005 00:01
Auðveldar mannahald Nokkuð er um að fiskvinnslufyrirtæki eigi húsnæði, jafnvel heilt fjölbýlishús, til að geta leigt út til erlendra farandverkamanna á höfuðborgarsvæðinu og er þar auðvitað um nútíma verbúðir að ræða. 10.2.2005 00:01
Uppgreiðslurnar námu milljarði Uppgreiðslur lána hjá Byggðastofnun námu tæpum 1.100 milljónum króna frá 1. september 2004 fram til dagsins í dag. Það er um 8-9 prósent af heildarútlánum. Uppgreiðslurnar hafa dregist umtalsvert saman upp á síðkastið en mega þó ekki verða mikið fleiri. 10.2.2005 00:01
Efast um trúverðugleikann Trúverðugleiki ríkisstjórnarinnar var dreginn í efa á Alþingi í gær. Stjórnarandstaðan hélt því fram að forsætisráðherra hefði staðfest í viðtali á Stöð 2 að þrýstingur frá Bandaríkjamönnum hefði leitt til ákvörðunarinnar um stuðning við innrásina í Írak. </font /></b /> 10.2.2005 00:01
Bíður eftir fréttum af særðum syni Arna Bára Arnarsdóttir, móðir Cesars Arnars Sanchez, íslenska hermannsins sem særðist í fyrrinótt í Írak, hefur ekki fengið neinar fregnir af líðan sonar síns í dag. Hún sagði í samtali við Stöð 2 í dag að hún ætti von á að heyra frá honum sem fyrst og bíður í ofvæni eftir því. Cesar Arnar meiddist illa á öðru auga og er með sprengjubrot í allri vinstri hlið líkamans. 10.2.2005 00:01
Fær forræði yfir dóttur sinni Hæstiréttur dæmdi í dag franskri konu forræði yfir dóttur hennar. Konan og franskur fyrrverandi eiginmaður hennar höfðu deilt um forræði yfir fimm ára dóttur þeirra. Barnið hafði búið hjá móður sinni og taldi Hæstiréttur að henni liði vel þar og breytingar á aðstæðum yrðu henni ekki til góðs. 10.2.2005 00:01
Gæsluvarðhaldið enn framlengt Gæsluvarðhald yfir brasilískri konu, sem reyndi að smygla 850 grömmum af kókaíni og um tvö þúsund skömmtum af LSD, var nú í vikunni framlengt til 22. mars. 10.2.2005 00:01
Áfram í gæsluvarðhaldi Íslendingi á þrítugsaldri var gert í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær að sæta gæsluvarðhaldi í þrjár vikur til viðbótar, en hann var handtekinn fyrir þátttöku í fíkniefnasmygli í lok janúar. Vegna sama máls situr þýskur maður í gæsluvarðhaldi en hann var tekinn með fjögur kíló af amfetamíni á Keflavíkurflugvelli þann 26. janúar síðastliðinn. 10.2.2005 00:01
Reynt verði að frysta loðnu Töpuð útflutningsverðmæti vegna stórbrunans í Grindavík í gær geta numið allt að sjö hundruð milljónum króna. Forstjóri Samherja segir að reynt verði að halda áfram að frysta loðnu í Grindavík. 10.2.2005 00:01
Pressuball á morgun Blaðamannaverðlaunin 2004 verða afhent á Pressuballi Blaðamannafélags Íslands á Hótel Borg á morgun. Verðlaununum var komið á fót á síðasta ári og um leið var lífi blásið í Pressuböllin, sem þóttu með fínustu böllum bæjarins í eina tíð. Heilsteikt nautalund verður hryggjarstykkið í þrírétta málsverði. Hljómsveitin Vax leikur fyrir dansi. </font /></b /> 10.2.2005 00:01
Egill, Erlingur og Eyjólfur veikir Fyrirtækið Eldaskálinn er lokað vegna veikinda starfsmanna. Eigandinn vonar að viðskiptavinir fyrirgefi honum þó hann þurfi að loka. 10.2.2005 00:01
Fólk lætur lengja sig á Akureyri Fólki sem finnst eitthvað vanta uppá líkamshæð sína hefur hingað til þurft að sætta sig við fötlun sína. Nú eru stundaðar umfangsmiklar lengingar á fólki á Akureyri. 10.2.2005 00:01
Sagði vinnubrögð niðurlægjandi Formanni Vinstri - grænna var brugðið yfir viðtali við forsætisráðherra á Stöð tvö í gær og segir að vinnubrögðin, sem hann lýsti varðandi stuðninginn við innrásina í Írak, hafi verið niðurlægjandi fyrir íslensku þjóðina. Stjórnarliðar hvöttu stjórnarandstöðuna til að snúa sér að öðru. 10.2.2005 00:01
Vandamál vegna kynhegðunar "Þetta er raunverulegt vandamál sem þarf að fjalla um í samfélaginu," segir Sigurður Guðmundsson landlæknir. Mikil aukning hefur orðið á því að ungar stúlkur leiti sér hjálpar vegna sárinda í endaþarmi -- afleiðingu endurtekinna endaþarmsmaka. 10.2.2005 00:01