Egill, Erlingur og Eyjólfur veikir 10. febrúar 2005 00:01 "
Þetta er helvítis pest," segir Erlingur Friðriksson í innréttingafyrirtækinu Eldaskálanum, sem lagðist veikur í rúmið í fyrradag. "Þessu fylgja beinverkir, kvef og hiti og almenn vanlíðan." Samstarfsmenn Erlings, sölumaðurinn Egill og smiðurinn Eyjólfur, lágu báðir veikir heima þegar hann sjálfur fór að kenna sér meins. Hann harkaði af sér í fyrstu en síðdegis á miðvikudag þoldi hann ekki meir. Var þá ekki annað að gera en að skella í lás og auglýsa: Lokað vegna veikinda. "Það þýddi ekkert að standa í þessu með fljótandi augu, hóstandi og snörlandi," segir Erlingur, sem veit sem er að sumir hafa legið veikir í þrjár vikur. "Ég vona að við lendum ekki í því og getum opnað aftur á mánudaginn. Maður má ekkert vera að því að vera veikur." Erlingur hefur rekið Eldaskálann í 24 ár og aldrei þurft að loka fyrr. "Það er náttúrlega ekki gott að þurfa að loka en ég vona að okkur verði fyrirgefið," segir hann og sýgur upp í nefið. Er honum, Agli og Eyjólfi hér með óskað góðs bata. Einnig öðrum sem liggja veikir heima.
Fréttir Innlent Mest lesið Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Innlent Framlengja samninga út næsta ár Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Innlent Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Innlent Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Innlent Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Innlent Kjarabarátta kennara bitni á námi barnanna Innlent Biskup í fangelsi fyrir brot gegn drengjum Erlent Fleiri fréttir Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Sex atvinnulausir um hvert laust starf Bein útsending: Áskoranir á norðurslóðum Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Kjarabarátta kennara bitni á námi barnanna Sólveig Anna segir glapræði að segja upp samningum Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Þurfi að bæta eftirlit í stað þess að meina au pair aðgang Fundur VR og SA hafinn Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Einn handtekinn eftir líkamsárás í Kópavogi Framlengja samninga út næsta ár Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Segja boltann hjá stjórnvöldum Ólíklegt að pestin berist til Íslands Óþolinmæði að fylla Læknavaktina Ekkert leyndarmál að herinn sé önnum kafinn Greinir skýran vilja til meira samstarfs Leggja fram þingmál um að draga umsóknina til baka Engar leyniskyttur gættu Rubio Hafnar sælgætis- og fæðingarorlofsmálum sem rökum fyrir bókun 35 Bíði og bíði eftir Bjarna Leita manna sem grunaðir eru um hópárás Hafi þegar tryggt fjármögnun varamótoranna Guðmundur Fertram og Fanney opna nýsköpunarsetur Segir gjald fyrir túlkun eftir þrjú ár sanngjarna kröfu „Viljum ekki að það sé verið að leika sér að fullveldi Íslands“ Ný skýrsla Umhverfis- og orkustofnunar: Hverfandi líkur á að olía finnist á Drekasvæðinu Sjá meira