Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Ráðinn til Vestnorræna ráðsins Þórður Þórarinsson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri Vestnorræna ráðsins frá og með 15. febrúar nk. Forsætisnefnd ráðsins samþykkti þetta á fundi sínum í Kaupmannahöfn á dögunum. 8.2.2005 00:01
Ferðaskrifstofa Íslands sýknuð Héraðsdómur Reykjavíkur sýknaði Ferðaskrifstofu Íslands í morgun af tæplega sex milljóna króna skaðabótakröfu stúlku sem slasaðist í sumarfríi með fjölskyldu sinni í Portúgal fyrir fimm árum, en ferðin var farin á vegum ferðaskrifstofunnar. Stúlkan var þá 13 ára gömul og skarst hún í andliti þegar hún rakst á stiga í sundlaug við hótelið sem hún dvaldi á. 8.2.2005 00:01
Stúdentaráðskosningar í dag Stúdentar við Háskóla Íslands kjósa sér fulltrúa í Stúdentaráð og til Háskólafundar í dag og á morgun. Fjórir listar eru í framboði; hinar gamalgrónu hreyfingar Röskva og Vaka auk Háskólalistans og Alþýðulistans. 8.2.2005 00:01
Líknarskrá léttir á aðstandendum Tilkoma líknarskrár sem er að líta dagsins ljós hjá Landlæknisembættinu mun létta á aðstandendum, bæði hvað varðar umræður um ákvarðanatöku við læknismeðferð og eins varðandi líffæragjafir. Einstaklingur getur alltaf endurmetið ákvarðanir í líknarskrá sinni. </font /></b /> 8.2.2005 00:01
Fleira ræður en aldur fanga Það er ekki í öllum tilvikum heppilegt að vista unga fanga saman á sérdeild, segir Erlendur S. Baldursson hjá Fangelsismálastofnun. Hann bendir á að sumir afpláni vegna umferðalagabrota en aðrir fyrir gróf ofbeldisbrot. </font /></b /> 8.2.2005 00:01
Vill kanna þunglyndi eldri borgara Þunglyndi eldri borgara hér á landi hefur ekki verið sérstaklega rannsakað og engin stofnun innan heilbrigðisgeirans fæst á skipulagðan hátt við það, að sögn Ágústs Ólafs Ágústssonar alþingismanns. 8.2.2005 00:01
Ríflega 7.400 börn nota gleraugu Starfshópur sem hefur það hlutverk að meta þörfina á þátttöku ríkisins í gleraugnakostnaði barna og ungmenna yngri en 18 ára hefur verið settur á laggirnar. Reikna má með að ríflega 7.400 börn hér á landi noti gleraugu. 8.2.2005 00:01
Unglingsstúlkur fá lífstíðardóm Tvær unglingsstúlkur, 18 og 19 ára, voru í dag dæmdar í ævilangt fangelsi í Englandi fyrir að hafa sparkað og barið og stungið drukkinn miðaldra mann til bana. Þær staðhæfðu í vörn sinni að maðurinn hefði nálgast aðra stúlkuna í teiti sem hann hélt að heimili sínu, nuddað annan fót hennar og leitað eftir kynmökum við hana. 8.2.2005 00:01
Rafmagnslaust á höfuðborgarsvæðinu Rafmagnslaust er víða í Fossvogshverfi, hluta Hlíðahverfis og hluta Kópavogs. Talið er að háspennustrengur í Fossvogi hafi rofnað. Unnið er að viðgerð. 8.2.2005 00:01
Tíu sækja um hjá RÚV Tíu sækja um starf fréttastjóra Ríkisútvarpsins en umsóknarfrestur rann út í gær. Átta af umsækjendunum eru starfsmenn útvarpsins. 8.2.2005 00:01
Rafmagn komið á Rafmagn er aftur komið á í Suðurhlíðum, Skógarhlíð, Eskihlíð og í Auðbrekku og Skólatröð í Kópavogi en rafmagnslaust varð þar um klukkan fjögur í dag þegar háspennustrengur við bensínstöð í Fossvogi var grafinn í sundur. Viðgerð tók skamma stund eða um 20 mínútur. 8.2.2005 00:01
Jökulfell: Leit hætt í dag Leit hefur verið hætt að sinni að skipverjunum tveimur, sem enn er saknað af flutningaskipinu Jökulfelli sem sökk í gærkvöldi, vegna slæms veðurs. Leitin mun hefjast aftur í fyrramálið. 8.2.2005 00:01
Ekki vilja allir heyra íslensku Njáll Eiðsson hefur lengi verið viðloðandi knattspyrnuna en hann er jafnframt grunnskólakennari og er því annt um ungviðið. Hann er þó ekki þeirrar skoðunar að íslenskri tungu sé sérstök hætta búin þótt fótboltalýsingar séu á ensku. 8.2.2005 00:01
Bætt fyrir skort á stærðahagkvæmni Sex sveitarfélög fá ekkert úthlutað úr útgjaldajöfnunarframlagi Jöfnunarsjóðs, þar sem meðaltekjur íbúa eru of háar. Kópavogur fær ekkert þar sem íbúar eru of margir. Miðað er við tekjur íbúa og stærðarhagkvæmni. 8.2.2005 00:01
Eið Smára á ensku eða íslensku? Þorri þingflokks sjálfstæðismanna hefur lagt fram frumvarp á Alþingi um breytingu á útvarpslögum svo útvarpa megi íþróttaviðburðum án þess að lýsing á íslensku fylgi með. Forstöðumaður Íslenskrar málstöðvar er málinu hlynntur en formaður Íslenskrar málnefndar ekki. 8.2.2005 00:01
Osprey Marine kaupir Sléttbak Kanadíska útgerðarfyrirtækið Osprey Marine, sem er í eigu hjónanna Ron og Hetty Mann, hefur gert tilboð í togarann Sléttbak frá Akureyri. 8.2.2005 00:01
Bærinn skiptir sér ekki af Kristján Þór Júlíusson, bæjarstjóri á Akureyri, segir að bærinn fái forkaupsrétt ef aflaheimildir fylgi skipi, annars sé ekki um það að ræða. 8.2.2005 00:01
Tveggja enn saknað Fjórir skipverjar á flutningaskipinu Jökulfelli fórust þegar skipið sökk skammt frá Færeyjum í nótt. Fimm var bjargað. Tveggja er enn saknað en leit hefur verið hætt vegna veðurs. 8.2.2005 00:01
Tímasetning samgönguráðherra góð Sú ákvörðun Sturlu Böðvarssonar samgönguráðherra að bjóða út þann kafla Reykjanesbrautar frá Vogum að Njarðvík í einu lagi nú í vor hlýtur lof bæði hjá Suðurnesjamönnum en eins hjá forsvarsmönnum verktakafyrirtækja sem hyggjast margir bjóða í verkið. 8.2.2005 00:01
Milljónum Máka átti að skila Milljónunum 35 sem veitt var til að ljúka barraeldi Máka á Sauðárkróki áttu að bjarga verðmætunum, segir Valgerður Sverrisdóttir, iðnaðar- og viðskiptaráðherra. Fénu hafi átt að skila. 8.2.2005 00:01
Netöryggisdagurinn í þrátíu löndum Alþjóðlegi-netöryggisdagurinn var haldinn hátíðlegur í þrjátíu löndum í gær. Í Hlíðaskóla í Reykjavík tók Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráðherra við kennsluefni fyrir grunnskólabörn um örugga og ábyrga netnotkun. 8.2.2005 00:01
Tveggja enn saknað af Jökulfelli Fjórir hafa fundist látnir og tveggja manna er enn saknað eftir að fraktskipinu Jökulfelli hvolfdi skammt frá Færeyjum í fyrrakvöld. Leit var hætt klukkan hálf fjögur í gær vegna vonsku veðurs og myrkurs. Fimm skipverjanna var bjargað um borð í þyrlu sem tilheyrir danska eftirlitsskipinu Vædderen. Fimmmenningunum heilsaðist vel og gátu þeir gengið frá þyrlunni hjálparlaust. 8.2.2005 00:01
Rafmagnslaust í Garðabæ Háspennubilun hefur orðið með þeim afleiðingum að heilu hverfin í Garðabæ eru rafmagnslaus. Þessa gætir norðan lækjar í Móum og Flötum og eins er rafmagnslaust í íþróttamiðstöðinni Ásgarði. Leit að biluninni er hafin. 8.2.2005 00:01
Nýtt varðskip á næsta ári Georg Lárusson, forstjóri Landhelgisgæslunnar, segir björtustu vonir standa til þess að nýtt varðskip verði sjósett eftir eitt til eitt og hálft ár. Björn Bjarnason dómsmálaráðherra hefur falið Landhelgisgæslunni að kanna möguleika á nýjum skipa- og flugvélakosti miðað við þarfir Gæslunnar. 8.2.2005 00:01
Mannlaus björgunarbátur fannst Skipverjar á bátnum Benna Sæm fundu mannlausan björgunarbát út af Stafnnesi á Suðurnesjum í gærmorgunn. Ekki reyndist hafa verið á ferðum en björgunarbáturinn hafði fallið frá togaranum Sólbergi. 8.2.2005 00:01
Selma með forskot í Úkraínu Selma Björnsdóttir söngkona hefur verið valin flytjandi framlags Ríkisútvarpsins í Eurovision söngvakeppnina. 8.2.2005 00:01
Áhyggjur af lokun Sorpu Umhverfisráð Reykjavíkur samþykkti í gær einróma bókun þar sem lýst er yfir áhyggjum vegna lokunar endurvinnslustöðvar Sorpu við Bæjarflöt í Grafarvogi. Um síðustu áramót var endurvinnslustöðinni lokað í sparnaðarskyni. 8.2.2005 00:01
Skarst í andliti og missti tennur Ferðaskrifstofa Íslands hefur verið sýknuð af sex milljóna króna skaðabótakröfu tæplegrar tvítugrar konu sem slasaðist í sumarfríi í Portúgal fyrir sex árum. Hún var þréttan ára þegar slysið varð. 8.2.2005 00:01
Tvöföldun Reykjanesbrautar fagnað Suðurnesjamenn fögnuðu yfirlýsingu samgönguráðherra á borgarafundi í Stapa í gærkvöld um að annar áfangi tvöföldunar Reykjanesbrautar yrði boðinn út í einu lagi í vor. Ekki er ólíklegt að þeim áfanga ljúki fyrir árslok næsta árs. 8.2.2005 00:01
Þrír íslenskir hermenn í Írak Ekki færri en þrír Íslendingar gegna nú hermennsku í Írak og sá fjórði er á leiðinni þangað. Átján ára piltur úr Vogum á Vatnsleysuströnd varð fyrir þeirri lífsreynslu á dögunum að eldflaug lenti við svefnskála hans en til allrar mildi sprakk hún ekki. 8.2.2005 00:01
Styrkir uppsetningu á Toscu Landsbanki Íslands styrkir uppsetningu Íslensku óperunnar á Toscu eftir Puccini. Samstarfssamningur þess efnis var kynntur síðdegis í dag. Verkið verður frumsýnt 11. febrúar. 8.2.2005 00:01
6% stjórnarmanna konur Konur skipa aðeins sjötta hvert sæti í stjórnum íslenskra lífeyrissjóða. Hlutfallið er enn lægra þegar kemur að stjórnum fyrirtækja í Kauphöll Íslands, en innan við sex prósent stjórnarmanna eru konur. 8.2.2005 00:01
Bæta öryggi barna á Netinu Ísland er í hópi þrjátíu landa sem ætla að gera átak til að bæta öryggi barna á Netinu. Alþjóðlegi netöryggisdagurinn er í dag. 8.2.2005 00:01
Ástarsorg getur verið lífshættuleg Ástarsorg getur verið lífsh<font size="2"></font>ættuleg að mati erlendra sérfræðinga. Sorg, sem Íslendingar hafa þekkt til svo öldum skiptir. 8.2.2005 00:01
Bögglaði fólksbíl undir sig Minnstu munaði að verr færi þegar skólabíll rann í fljúgandi hálku niður Eskihvamminn í Kópavogi í morgun, hafnaði á fólksbíl á mótum Fífuhvammsvegar og bögglaði fólksbílinn nánast undir sig. 7.2.2005 00:01
60% nefndu Ingibjörgu Sólrúnu Sextíu prósent þeirra sem svöruðu í skoðanakönnun Frjálsar verslunar nefndu Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur þegar spurt var hvern viðkomandi vildi sjá sem formann Samfylkingarinnar. Fjörutíu prósent nefndu Össur Skarphéðinsson. 7.2.2005 00:01
Fok í Grafarvogi Lögreglan í Reykjavík kallaði út björgunarsveitarmenn laust fyrir miðnætti til að hefta járnplötur sem voru að fjúka af þaki nýbyggingar í Grafarvogi. Verkið gekk vel og fljótlega upp úr miðnætti fór að lægja á ný, mun fyrr en búist var við. 7.2.2005 00:01
Kjartan Gunnarsson sæti eignarnámi Gunnar Eydal borgarlögmaður telur fullreynt að ná samningum við Kjartan Gunnarsson, framkvæmdastjóra Sjálfstæðisflokksins, um kaup 4 hektara spildu á Norðlingaholti og vill að borgin taki landið eignarnámi. Lokatilboð borgarlögmanns var 50 milljónir króna en Kjartan vill 133 milljónir. Kjartan segir sér mismunað og að borgin beiti hann afli. 7.2.2005 00:01
Níu stjórnendur sögðu upp Níu stjórnendur í fyrirtækinu P. Samúelssyni sem rekur Toyota-umboðið hér á landi sögðu í gær upp störfum sínum vegna óánægju yfir því að eigendur fyrirtækisins ákváðu að láta Emil Grímsson framkvæmdastjóra fara. Toyota-umboðið hefur verið eitt umsvifamesta bílaumboðið hér á landi um árabil og var síðsta ár besta rekstrarár þess frá upphafi. 7.2.2005 00:01
Farþegum Express fjölgaði um 19% Farþegum Iceland Express fjölgaði um 19% í janúar síðastliðnum frá sama mánuði í fyrra. Alls flugu um þrettán þúsund farþegar með félaginu í síðasta mánuði. Að mestu eru það erlendir ferðamenn sem standa undir fjölgun farþega Iceland Express í janúarmánuði, einkum þó frá London Stansted. 7.2.2005 00:01
Gámar fuku fyrir austan Mildi þykir að enginn skyldi vera á ferðinni í stefnu tveggja gáma sem flugu í loftköstum allt að kílómeters leið í vindhviðum á Norðfirði í morgun. Hvor gámur er tuttugu feta langur og lenti annar á gamalli dráttarvél sem verið er að gera upp og braut hana í frumeinidir, eins og lögreglumaður orðaði það. 7.2.2005 00:01
5 mánaða fangelsi fyrir líkamsárás Héraðsdómur Vestfjarða hefur dæmt karlmann á þrítugsaldri í fimm mánaða fangelsi fyrir líkamsárás og brot á vopnalögum. Hann gekk berserksgang í samkvæmi í heimahúsi á Ísafirði í ágúst árið 2003, sló þar mann þannig að talsvert sá á honum og neitaði að leggja frá sér hættulegan hníf þegar lögregla skipaði honum að gera það. 7.2.2005 00:01
Ágreiningur ekki orsökin P. Samúelsson ehf., sem rekur Toyota-umboðið hér á landi, hafnar því sem segir í tilkynningu frá nokkrum starfsmönnum að „djúpstæður ágreiningur innan fjölskyldu og meirihlutaeigenda P. Samúelssonar ehf.“ hafi leitt til þess að fyrrum forstjóri hafi þurft að láta af störfum. 7.2.2005 00:01
Tugþúsundum bolla sporðrennt í dag Búast má við að einhverjir tugir þúsunda af bollum renni ofan í landsmenn í dag. Bakarar landsins hafa staðið sveittir við ofna sína frá því fyrir helgi við að baka bollur, enda tóku margir forskot á sæluna og sporðrenndu nokkrum slíkum. 7.2.2005 00:01
Tvöföldun verði lokið hið fyrsta Borgarafundur verður haldinn í Stapanum í Reykjanesbæ í kvöld þar sem þess verður krafist að lokið verði við breikkun Reykjanesbrautar hið fyrsta. Fyrri áfanga við tvöföldun vegarins lauk í júlí síðastliðnum og síðari hlutinn er ekki á vegaáætlun fyrr en árið 2010. 7.2.2005 00:01