Innlent

Fok í Grafarvogi

Lögreglan í Reykjavík kallaði út björgunarsveitarmenn laust fyrir miðnætti til að hefta járnplötur sem voru að fjúka af þaki nýbyggingar í Grafarvogi. Verkið gekk vel og fljótlega upp úr miðnætti fór að lægja á ný, mun fyrr en búist var við. Björgunarmenn voru líka kallaðir út á Snæfellsnesi í gærkvöldi en fréttastofunni er ekki kunnugt um tjón þar.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×