Innlent

Netöryggisdagurinn í þrátíu löndum

Alþjóðlegi-netöryggisdagurinn var haldinn hátíðlegur í þrjátíu löndum í gær. Í Hlíðaskóla í Reykjavík tók Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráðherra við kennsluefni fyrir grunnskólabörn um örugga og ábyrga netnotkun. María Kristín Gylfadóttir, formaður Heimilis og skóla - landssamtaka foreldra, segir ákveðið að unnin verði könnun um netnotkun barna í nánu samstarfi við menntamálaráðuneytið. Einnig hafi sögusamkeppni fyrir börn á aldrinum níu til sextán ára verið hrundið af stað í gær.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×