Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Dagar salkjöts og bauna Fólk velur heldur magrara saltkjöt en áður og saltminna, segir sölustjóri Sláturfélags Suðurlands. Sala hafi heldur aukist en dregist saman síðustu ár. 7.2.2005 00:01
Fleiri gista á hótelum Á sama tíma og erlendum ferðamönnum um Flugstöð Leifs Eiríkssonar fjölgaði um tæp þrettán prósent milli áranna 2003 og 2004, fjölgaði gistinóttum á heilsárshótelum um tæp níu prósent. 7.2.2005 00:01
Tvöföldunin boðin út á árinu? Búist er við að samgönguráðherra tilkynni á fundi í Njarðvík í kvöld að næsti áfangi í tvöföldun Reykjanesbrautar verði boðinn út á þessu ári. 7.2.2005 00:01
Grunaður um íkveikju Karlmaður á sextugsaldri er í haldi lögreglunnar í Kópavogi grunaður um að vera valdur að eldsvoða í einbýlishúsi við Kársnesbraut. Samkvæmt upplýsingum lögreglu kom eldur upp í húsinu um tvöleytið í dag en nágrannar höfðu gert slökkviliði viðvart. 7.2.2005 00:01
Uppsagnir á Hofsósi "Við erum að fara yfir þetta allt saman og kanna hvort þessar uppsagnir séu lögmætar og samkvæmt bókunum," segir Jón Karlsson, formaður stéttarfélagsins Öldunnar á Sauðárkróki. Fjórtán starfsmönnum fiskvinnslunnar Kolku á Hofsósi hefur verið sagt upp störfum og er það talsvert áfall fyrir ekki stærra bæjarfélag. 7.2.2005 00:01
Elsta húsið fær andlitslyftingu "Þetta samkomulag þýðir að Minjavernd tekur Aðalstræti 10 í sína vörslu næstu 35 árin og mun færa húsið í sitt upprunalega horf næstu mánuði," segir Steinunn Valdís Óskarsdóttir, borgarstjóri. Reykjavíkurborg hefur gert samning við Minjavernd um að lagfæra Aðalstræti 10 en það hús er það elsta í borginni. 7.2.2005 00:01
Vilja breytingar á útvarpslögum "Okkar mat er að ríkið eigi ekki að skipta sér af einkarekstri með neinum hætti og frumvarpið er í fullu samræmi við þá skoðun okkar," segir Hafsteinn Þ. Hauksson, formaður Sambands ungra sjálfstæðismanna. 7.2.2005 00:01
Halldór áhyggjulaus Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra kippir sér ekki upp við það að skoðanakönnun sýni að hann sé sá stjórnmálamaður sem þjóðin ber minnst traust til. Hann segir að kannanir séu líka mismunandi vandaðar. 7.2.2005 00:01
Frumvarp til að leyfa enska þuli Allir þingmenn Sjálfstæðisflokksins að ráðherrum undanskildum hafa lagt fram frumvarp á Alþingi sem gerir það að verkum að hægt verður að sýna frá íþróttaviðburðum án þess að nota íslenska þuli eða þýðingartexta. Fyrsti flutningsmaður frumvarpsins neitar því að flokkurinn sé að rétta Skjá einum hjálparhönd. 7.2.2005 00:01
Hafa áhyggjur af frumvarpi Verkalýðsforystan hefur áhyggjur af væntanlegu frumvarpi um útgáfu atvinnuleyfa til útlendinga. Hún óttast að sjónarmið vinnumarkaðarins munu ekki ráða för og frumvarpið sé til þess fallið að stuðla að skattsvikum.</font /></b /> 7.2.2005 00:01
Getur ekki mælt með vatninu Lýðheilsustöð getur ekki mælt með því að sett sé á markað fólasínbætt íslenskt sódavatn, þrátt fyrir að stöðin mæli með því á sama tíma að landsmenn auki neyslu á því vítamíni. Meðal röksemda er að vítamínbætt, erlent morgunkorn er talið metta þörf „barna“ á þessu tiltekna B-vítamíni. 7.2.2005 00:01
Kynmök við 287 skólasystkini Um 2000 Íslendingar smitast árlega af klamydíu. Ný stór bandarísk rannsókn um kynlífshegðan ungs fólks sýndi að námsmaður hafði haft kynmök - með óbeinum hætti - við 287 skólasystkini. Hann hefði því getað smitað þau öll af kynsjúkdómi. Smitsjúkdómalæknir minnir á að smokkurinn sé eina vörnin. 7.2.2005 00:01
Iceland fái ekki einkaleyfi Formaður Vinstri grænna og starfandi utanríkisráðherra leggjast báðir gegn því að verslunarkeðjan „Iceland“ fái einkaleyfi á orðinu Iceland í löndum Evrópusambandsins. Þeir eru hins vegar ósammála um hvort það gæti verið mönnum til framdráttar að skrá sig fyrir léninu steingrimurjod.is. 7.2.2005 00:01
Rólegt um allt land Nóttin fór að mestu leyti vel fram um land allt þrátt fyrir hefðbundið mánaðamótafyllirí eins og einn lögreglumaður orðaði það í samtali við fréttastofu. Lögreglan á Selfossi vill beina þeim tilmælum til ökumanna að taka tillit til aðstæðna en víða eru hálkublettir. 6.2.2005 00:01
Tilkynnt um blaðamannaverðlaun Dómnefnd Blaðamannaverðlauna Blaðamannafélags Íslands hefur komist að niðurstöðu um tilnefningar til verðlaunanna fyrir árið 2004. Þrjár tilnefningar eru í hverjum flokki fyrir sig og verður tilkynnt um sigurvegara á Pressuballi sem haldið verður næstkomandi laugardag. 6.2.2005 00:01
Gerir athugasemdir við álit Ölgerðinni Agli Skallagrímssyni hefur borist álit Lýðheilsustöðvar vegna umsóknar sem Ölgerðin sendi Umhverfisstofnun og varðar vítamínbætingu á drykknum Kristal Plús, en Umhverfisstofnun stöðvaði dreifingu hans í síðasta mánuði. Ölgerðin gerir alvarlegar athugasemdir við álitið og segi það einkennast af mótsögnum og ómálefnalegum útreikningum. 6.2.2005 00:01
Hætt að sýna auglýsingar Birtingar á auglýsingum frá Umferðarstofu hafa nú verið stöðvaðar tímabundið, eftir að Samkeppnisstofnun fór þess á leit við Umferðarstofu. 6.2.2005 00:01
Aldrei verið óvinsælli Þriðjungur landsmanna segist bera minnst traust til Halldórs Ásgrímssonar af öllum stjórnmálamönnum. Aðeins fjögur prósent telja hann trúverðugastan íslenskra stjórnmálamanna. Davíð Oddsson nýtur aftur á móti mests trausts. 6.2.2005 00:01
Segjast ekki sitja á frumvörpum Sjálfstæðismenn hafa frestað því að afgreiða þrjú frumvörp Valgerðar Sverrisdóttir um samkeppnismál frá því í nóvember en langt er frá því að hinn stjórnarflokkurinn afgreiddi málið. Þingflokksformaður Sjálfstæðisflokksins segir sína menn ekki sitja á frumvörpunum heldur sé þetta dæmi um vönduð vinnubrögð. 6.2.2005 00:01
Heilræði til Halldórs Steingrímur Hermannsson var jafnan vinsæll á meðan hann gegndi embætti forsætisráðherra. Hann gefur Halldóri Ásgrímssyni nokkur góð ráð. 6.2.2005 00:01
Gagnrýnir ný tollalög Ný tollalög sem fjármálaráðherra mælir fyrir á Alþingi á morgun einkennast um of af þeirri oftrú á refsingum sem tröllríður samfélaginu. Þetta segir Pétur Blöndal, þingmaður Sjálfstæðisflokksins. Afleiðingarnar bitni á almennu starfsfólki sem megi refsa fyrir gáleysi eða mistök í starfi verði frumvarpið að lögum. 6.2.2005 00:01
Sextán fíkniefnamál í miðbænum Sextán fíkniefnamál komu upp á tæplega þremur klukkutímum í miðbæ Reykjavíkur aðfaranótt laugardags. Ásgeir Karlsson, yfirmaður fíkniefnadeildar lögreglunnar í Reykjavík, segir málafjöldann staðfesta að mikil fíkniefnaneysla sé samfara skemmtanalífinu í miðborginni. Mest fannst af kókaíni og amfetamíni en þó eitthvað af kannabis. 6.2.2005 00:01
Leggst gegn vítamínbættum drykk Lýðheilsustöð leggst gegn því að Kristall Plús frá Ölgerð Egils Skallagrímssonar verði settur á markað vegna fólasíns í drykknum. Framleiðandinn furðar sig á þessu þar sem nokkuð vantar upp á neyslu slíks vítamíns hjá þjóðinni að mati Lýðheilsustöðvar. Þá segir hann fólasín algjörlega hættulaust efni. 6.2.2005 00:01
Samfylking spurulust allra flokka Alþingismenn spyrja um allt á milli himins og jarðar, stjórnarandstæðingar þó sýnu meira en stjórnarliðar. Kynþroski þorsks og símtöl til Grænlands eru á meðal fyrirspurna sem bornar hafa verið upp á yfirstandandi þingi. 6.2.2005 00:01
Geta tekið á móti stærri skipum Miklar framkvæmdir standa yfir við höfnina í Bolungarvík en eftir að búið er að dýpka innsiglinguna allverulega á allur loðnuflotinn að geta lagst að höfn í Bolungarvík sem og stærri flutningaskip. Framkvæmdirnar kosta um 54 milljónir. 6.2.2005 00:01
Segir útvarpslög gölluð Sjónvarpsstjóri Skjás eins telur að stuttur texti um gang mála í ensku knattspyrnunni fullnægi þýðingarskyldu útvarpslaga. Hann segir að ef þess verði krafist að íslenskir þulir lýsi öllum leikjum verði það gert en útvarpslögin séu gölluð. 6.2.2005 00:01
Fimm á sjúkrahús eftir ofsaakstur Fimm voru fluttir á slysadeild eftir ofsaakstur í nótt. Lögreglan í Reykjavík mældi ökumann á 190 kílómetrahraða í Ártúnsbrekkunni um klukkan þrjú og náðist hraðaksturinn á myndband lögreglunnar. Ökumaðurinn stöðvaði ekki bílinn þegar hann mætti laganna vörðum heldur hélt áfram ferðinni og hafnaði aftan á bifreið sem var að taka af stað við umferðarljósin á mótum Miklubrautar og Grensásvegar. 5.2.2005 00:01
Skíðasvæði víða opin Skíðasvæðin í nágrenni höfuðborgarsvæðisins eru opin í dag frá klukkan tíu og fram eftir degi. Þar er frost á milli níu og ellefu stig og léttskýjað. Þá er skíðasvæði Tindastóls við Sauðárkrók opið til klukkan fimm. Að sögn staðarhaldara er þar nýfallinn snjór og afskaplega gott færi. Opið er til fjögur á skíðasvæðinu á Siglufirði. 5.2.2005 00:01
Þurfa að taka útreið alvarlega Framsóknarmenn þurfa að taka slæma útreið í skoðanakönnunum alvarlega segir Kristinn H. Gunnarsson, þingmaður Framsóknarflokksins. Hann hvetur félaga sína til að líta yfir sviðið nú, óróa og fylgistap, og skoða í því ljósi að í haust hafi hann þótt helsta vandamál flokksins. 5.2.2005 00:01
Skorinn á háls en fær ekki bætur "Ég er breyttur maður eftir árásina," segir Ásgeir Elíasson sem varð fyrir hrottafenginni árás þegar hann var leigubílstjóri í afleysingum. Eina nóttina komu fjórir menn inn í bíl til hans. Þegar kom að greiðslu var Ásgeir skorinn á háls. Ofbeldi gegn leigubílstjórum er algengt og vekur því furðu að þeir séu ekki tryggðir í starfi. 5.2.2005 00:01
Aðalfundur Freyju ólöglegur Laganefnd Framsóknarflokksins komst að þeirri niðurstöðu í gærkvöld að aðalfundur Freyju, félags framsóknarkvenna í Kópavogi, sem fram fór 27. janúar síðastliðinn hefði verið ólöglegur. Ástæðan fyrir því er sögð sú að láðst hafi að samþykkja breytingar á lögum félagsins fyrir fundinn en ekki sú að fjörutíu og þrjár konur hafi gengið í félagið daginn sem hann var haldinn. Halda verður nýjan aðalfund í þessum mánuði. 5.2.2005 00:01
550 þúsund safnast að Kárahnjúkum Starfsmenn Impregilo við Kárahnjúka söfnuðu á dögunum ríflega 250 þúsund krónum til handa þeim sem urðu illa úti í hamförnunum í Suðaustur-Asíu annan dag jóla. Fyrirtækið sjálft rúmlega tvöfaldaði þá upphæð og því voru 550 þúsund krónur lagðar inn á reikning Rauða kross Íslands til hjálpar fórnarlömbum flóðbylgjunnar. 5.2.2005 00:01
Mikil mildi að ekki varð stórslys Mikil mildi þykir að ekki hlaust af stórslys þegar ökumaður, sem ekið hafði á tæplega 200 kílómetra hraða eftir Miklubraut, ók aftan á kyrrstæða bifreið sem í voru fjórir farþegar. 5.2.2005 00:01
Getur skipt upp fyrirtækjum Nýtt Samkeppniseftirlit fær skýra lagaheimild til að skipta upp fyrirtækjum sem hafa markaðsráðandi stöðu verði nýtt frumvarp viðskiptaráðherra að lögum. Þrjú frumvörp um breytingar á samkeppnislögum hafa verið til umræðu í þingflokkum stjórnarflokkanna frá því í nóvember. 5.2.2005 00:01
Fíkniefni fundust við húsleit Sextíu grömm af ætluðu amfetamíni og smáskammtur af LSD fundust við húsleit á Selfossi í gærmorgun. Fjórir voru handteknir. 5.2.2005 00:01
Innbrot upplýst Við húsleit á Selfossi í vikunni fannst þýfi úr fimm eða sex innbrotum í bænum síðustu daga. 5.2.2005 00:01
Fimm ára stúlka á batavegi Fimm ára stúlka sem féll ofan af svölum á fjórðu hæð fjölbýlishúss við Háaleitisbraut fyrr í vikunni er á batavegi. Hún er komin af gjörgæsludeild og að sögn sérfræðings á Landspítalanum í Fossvogi er líðan stúlkunnar stöðug, hún úr hættu og með meðvitund. Hún hlaut slæm beinbrot og innvortis blæðingar en virðist hafa sloppið við höfuðmeiðsl og meiðsl á hrygg. 5.2.2005 00:01
Fór betur en á horfðist Fimm sluppu með minniháttar meiðsl í umferðaróhappi sem varð um áttaleytið í fyrrakvöld á Norðurlandsvegi í Skagafirði. 5.2.2005 00:01
Bílvelta á svörtum bletti Ökumaður missti stjórn á jeppabifreið sinni í hálku og endaði í hrauninu utan við þjóðveginn austan við Kirkjubæjarklaustur um miðnætti aðfaranótt föstudags 5.2.2005 00:01
Hvasst eða stormur um vesturland Gert er ráð fyrir hvassviðri eða stormi á vestanverðu landinu síðdegis og í kvöld 5.2.2005 00:01
Nýári fagnað við Kárahnjúka Í dag verður kínverska nýárinu fagnað við Kárahnjúka en miðvikudaginn 9. febrúar lýkur hinu kínverska ári apans og ár hanans hefst. 5.2.2005 00:01
Hálf milljón á Kárahnjúkum Hópur erlendra starfsmanna við Kárahnjúka á ættingja og vini sem urðu illa úti eða létust í flóðbylgjunni í löndunum við Indlandshaf í lok desember 2004. 5.2.2005 00:01
Aðalfundur Freyju ógiltur <b><font face="Helv" color="#008080"> Fylkingarnar í kvenfélaginu Freyju í Kópavogi eru báðar ánægðar með niðurstöðu laganefndar Framsóknarflokksins. Gamla stjórnin telur valdaráni afstýrt en nýju konurnar telja hann sýna að vinnubrögð þeirra hafi verið í lagi. </font></b> 5.2.2005 00:01
Enskur bolti með íslenskum texta Enski boltinn var sendur út með afar hnitmiðuðum íslenskum texta í gær. 5.2.2005 00:01
Segir valdaráni afstýrt Naumlega tókst að afstýra valdaráni þegar laganefnd Framsóknarflokksins komst að þeirri niðurstöðu í gærkvöld að aðalfundur Freyju, félags framsóknarkvenna í Kópavogi, hefði verið ólöglegur, að mati Unu Maríu Óskarsdóttir varaformanns. Aðalheiður Sigursveinsdóttir sem var stjórnarmaður í Freyju segir gleðilegt að nýjar aðildarkonur hafi verið hreinsaðar af áburði um vafasaman tilgang með veru sinni í félaginu. 5.2.2005 00:01