Tímasetning samgönguráðherra góð 8. febrúar 2005 00:01
Sú ákvörðun Sturlu Böðvarssonar samgönguráðherra að bjóða út þann kafla Reykjanesbrautar frá Vogum að Njarðvík í einu lagi nú í vor hlýtur lof bæði hjá Suðurnesjamönnum en eins hjá forsvarsmönnum verktakafyrirtækja sem hyggjast margir bjóða í verkið enda verkefnastaða hjá mörgum jarðvegs- og malbikunarfyrirtækjum fremur róleg. Áætlaður kostnaður eru tveir milljarðar króna. Á fundi sem haldinn var að tilstuðlan áhugahóps um öruggari Reykjanesbraut lýsti ráðherrann því yfir að tekin hefði verið ákvörðun um tvöföldun brautarinnar á kaflanum frá Vogum að Njarðvík í einu lagi og útboð myndu hefjast strax á vormánuðum. Þeir verktakar sem Fréttablaðið náði tali af voru sammála um að tímasetning ráðherra gæti vart verið betri. Sævar Jónsson, framkvæmdastjóri Loftorku, sagði engu spurningu vera um að hans fyrirtæki tæki þátt í fyrirhuguðu útboði þegar þar að kæmi. "Mér sýnist mjög skynsamlega að verki staðið hjá samgönguráðherra að bjóða verkið út með þeim hætti sem hann tiltók. Í stað þess að bjóða þennan kafla út í tvennu lagi hyggst hann bjóða allt verkið út í einu og það er afar jákvætt fyrir þá sem það vinna og eins er líklegra að þau tilboð sem berast verði enn hagstæðari fyrir vikið. Þess utan skilst mér að sá verktaki sem verkið hljóti hafi frjálsari hendur en gengur og gerist hvað varðar framkvæmdahraða og það er nýmæli hér á landi." Undir þetta tók Sigþór Sigurðsson, framkvæmdastjóri hjá Hlaðbæ-Colas. "Það má til sanns vegar færa að verkefnastaða fyrir jarðvegs- og malbikunarfyrirtæki er lítil hjá flestum íslenskum fyrirtækjum í dag og því er tíminn til útboða núna er afar góður í því tilliti. Þannig verða væntanlega margir um hituna og tilboðin því hagstæðari fyrir vikið. Þetta er alveg tvískipt því í byggingageiranum er mikil þensla og nóg af verkefnum framundan en tiltölulega lítið um jarðvegs- eða malbikunarframkvæmdir meðfram stærri verkefnum eins og við stóriðjuframkvæmdir fyrir austan land. Hjá Umferðarstofu fengust þær upplýsingar að slysaskráningu fyrir síðasta ár væri ekki lokið en bráðabirgðatölur fyrir þann vegarkafla sem tvíbreiður er sýna að milli ágúst og september 2004 urðu sjö slys á þeim kafla en á sama tíma árið 2003 voru þau 17 talsins. albert@frettabladid.is
Fréttir Innlent Mest lesið Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Innlent Framlengja samninga út næsta ár Innlent Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Innlent Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Innlent Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Innlent Kjarabarátta kennara bitni á námi barnanna Innlent Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Innlent Fleiri fréttir Geti reynst erfitt að standa við verðlagsloforðin Hvetur flokka til að afla leyfa fyrir tónlist í pólitískum áróðri Rubio hafi staðfest varnarskuldbindingar gagnvart Íslandi Breyti myndböndum af börnum að borða og dansa í barnaníðsefni Bein útsending: Kennarar boða til tíðinda Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Sex atvinnulausir um hvert laust starf Bein útsending: Áskoranir á norðurslóðum Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Kjarabarátta kennara bitni á námi barnanna Sólveig Anna segir glapræði að segja upp samningum Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Þurfi að bæta eftirlit í stað þess að meina au pair aðgang Fundur VR og SA hafinn Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Einn handtekinn eftir líkamsárás í Kópavogi Framlengja samninga út næsta ár Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Segja boltann hjá stjórnvöldum Ólíklegt að pestin berist til Íslands Óþolinmæði að fylla Læknavaktina Ekkert leyndarmál að herinn sé önnum kafinn Greinir skýran vilja til meira samstarfs Leggja fram þingmál um að draga umsóknina til baka Engar leyniskyttur gættu Rubio Hafnar sælgætis- og fæðingarorlofsmálum sem rökum fyrir bókun 35 Bíði og bíði eftir Bjarna Leita manna sem grunaðir eru um hópárás Sjá meira