Fleiri fréttir

Kaupa faðernispróf á netinu

Hægt er að kaupa einföld erfðapróf á netinu og fá niðurstöðu á viku. Nokkuð er um að faðerni sé sannað með prófunum. Félagsráðgjafi á Landspítalanum segir alltaf eiga að fara í próf í stað þess að velkjast í vafa.

Rekinn eftir slysið í Lettlandi

Stjórnarformaður verslunarkeðjunar sem rekur stórmarkaðinn í Lettlandi þar sem þakið hrundi með þeim skelfilegu afleiðingum að 54 létu lífið, hefur verið rekinn.

Tælenskir mótmælendur tóku yfir höfuðstöðvar hersins

Mótmælendur í Tælandi ruddust í morgun inn í höfuðstöðvar hersins í landinu en mótmæli gegn ríkisstjórninni hafa nú staðið í sex daga samfleytt. Þá umkringja þeir einnig höfuðstöðvar stjórnarflokks forsætisráðherrans Yingluck Shinavatra, sem fólkið vill að fari frá völdum.

Mögnuð rafmagnsþyrla

Hún getur flogið í klukkutíma í allt að 2 km hæð og borið um 450 kíló.

Draumurinn um jólahalastjörnu er sennilega úti

Væntanlega verður ekkert af því að Ison, halastjarna aldarinnar eins og hún hefur verið kölluð, muni heiðra okkur jarðarbúa með nærveru sinni yfir jólahátíðina eins og stjörnufræðingar höfðu vonað.

Vilja leyfa maríjúana á kaffihúsum í Berlín

Svo gæti farið að innan tíðar muni fyrsta Maríjúana-kaffihúsið opna í Berlín höfuðborg Þýskalands. Hverfisstjórnin í Kreuzberg hverfinu í Berlín hefur gefið sitt samþykki fyrir því að í hverfinu megi reka kaffihús í líkingu við þau sem þekkjast í Amsterdam í Hollandi þar sem gestir geta keypt sér maríjúana sígarettur á löglegan máta.

Óljóst hvort sprengjur hafi rekið síldina út úr Kolgrafafirði

Óljóst er hvort eitthvað af síld hefur flæmst út úr Kolgrafafirði í gær, þegar reynt var að smala henni út með því að sprengja hvellhettur neðansjávar. Vitað er að þær höfðu fælandi áhrif á síldina en dagsbirtan entist ekki til að meta endanlegan árangur.

Þjófur fékk of harðan dóm fyrir mistök

Erlendur maður sem dæmdur var fyrir þjófnað og fleira til níu mánaða fangelsi í Héraðsdómi Reykjavíkur í maí og átta mánuða fangelsi í Héraðsdómi Suðurlands í júní fær seinna dómsmálið tekið upp aftur.

Lá við stórslysi á Biskupstungnabraut - ók inn í hóp af fólki

Minnstu munaði að stórslys yrði, að sögn lögreglu, þegar ökumaður ók á fullri ferð í gler hálku í gegnum hóp af fólki og á milli tveggja sjúkkrabíla og lögreglubíls, á Biskupstungnabraut skammt frá Borg í Grímsnesi um tvö leitið í nótt, og lét sig hverfa út í náttmyrkrið.

Fjórir dópsalar teknir í borginni

Fjórir fíkniefnasalar voru handteknir á höfuðborgarsvæðinu í gærkvöldi og í nótt í þrþemur málum, sem upp komu. Fyrst var ökumaður stöðvaður á Reykjanesbraut við Vífilsstaðaveg upp úr klukkan níu í gærkvöldi, grunaður um akstur undir áhrifum fíkniefna.

Hækka ekki leikskólagjöld í Árborg

Gjöld í leik- og grunnskólum í Árborg verða ekki hækkuð milli ára. Bæjarráðið vill líka endurskoðun á nýsamþykktri 5 prósenta hækkun á heitu vatni.

Ástand heimsins

Fréttablaðið lítur við víða um heim á ferð sinni milli landa í "Ástandi heimsins“ í blaði dagsins. Hér má skoða myndirnar.

Ríkið aðstoði gjaldþrota fólk

Frumvarp Eyglóar Harðardóttur, félags- og húsnæðismálaráðherra, sem snýr að kostnaði einstaklinga við gjaldþrot er efnislega tilbúið og er nú á borði fjármálaráðuneytisins í hefðbundnu kostnaðarmati.

Reikna ísþörf sjómanna með nýju appi

Matís hefur látið búa til smáforrit, svokallað app, sem gerir sjómönnum kleyft að reikna út hversu mikinn ís þeir þurfa til að kæla aflann, að því er fram kemur á vef Matís.

Hafna því að taka upp Baugsmálið

Endurupptökunefnd hefur hafnað kröfu tveggja sakborninga í Baugsmálinu um að málið verði tekið upp aftur hjá Hæstarétti.

Sönnunargögn um hatursglæp í ruslið

Borgarstarfsmenn hentu sönnunargögnum um hatursglæp að lögreglumönnum ásjáandi. Blóðugur kóran fór í ruslið með svínshausum. Tveggja ára fangelsi liggur við hatursglæpum. Hef ekkert í höndunum til að rannsaka segir lögreglufulltrúi.

Tvíburasystur fæddust með 87 daga millibili

Tvíburasysturnar Amy og Katie frá Írlandi fæddust með 87 daga millibili. Þetta hefur verið skráð í heimsmetabók Guinness en þetta er lengsti tími sem hefur liðið milli tvíbura sem skráð hefur verið.

Hönnuðu fljótandi borg

Fyrirtæki í Flórída í Bandaríkjunum hefur hannað fljótandi borg sem kallað er Freedom Ship eða á íslensku Frelsisfleyið. Borgin er í raun og veru skip sem ætlað er að sigla um höfin.

Landhelgisgæslan metur stöðuna

"Tilraunir báru árangur upp að vissu marki og það er verið að skoða stöðuna,“ segir Eggert Magnússon vettvangsstjóri vegna sprenginga Landhelgisgæslunnar í Kolgrafafirði.

Jólahugvekja frá fullum föður

Listamaður kærleikskúlunnar í ár er Ragnar Kjartansson. Kúluna prýðir hugvekja frá drukknum föður Ragnars.

Páll biðst afsökunar

"Auðvitað á maður ekki að reiðast svona, og þaðan af síður að kalla fólk illum nöfnum. Þannig að ég bið Helga Seljan og allan heiminn afsökunar," segir hann.

Eddu Sif líka sagt upp

"Ég missti mína vinnu þó að ég hafi ekki skrifað Facebook-status um það fyrir DV að birta í live feed-inu sínu af hörmungarástandinu í Efstaleiti eins og um fótboltaleik vær að ræða.“

Hreyfing komin á síldina

Fyrstu upplýsingar af vettvangi í Kolgrafafirði gefa til kynna að síldarsmölun Landhelgisgæslunnar sé að skila árangri.

Hafnarfjarðargrín frá Ingvari Viktors

Allir í Hafnarfirði þekkja Ingvar Viktorsson, fyrrverandi bæjarstjóra og kennara. Hann var að senda frá sér sína fyrstu bók sem heitir einfaldlega Húmör í Hafnarfirði.

Ljósin tendruð á Óslóartrénu á sunnudaginn

Ljósin verða tendruð á Óslóartrénu á Austurvelli klukkan fjögur á sunnudaginn. Rúm sextíu ár eru síðan að íbúar Óslóar færðu Reykvíkingum fyrsta grenitréð að gjöf og hefur það ávallt átt sinn stað á Austurvelli.

Nítján ára í 18 mánaða fangelsi

Nítján ára gamall pólskur piltur var dæmdur í 18 mánaða óskilorðsbundið fangelsi í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag fyrir stórfellt fíkniefnasmygl en hann var handtekinn á Keflavíkurflugvelli.

Hæstiréttur hafnar beiðni Hraunavina

Hæstiréttur hefur staðfest niðurstöðu Héraðsdóms Reykjavíkur um að ekki verði leitað álits EFTA-dómstólsins um hvort náttúruverndarsamtök eigi lögvarinna hagsmuna að gæta í Gálgahrauni.

„Þetta var erfiður fundur“

"Þetta var erfiður fundur enda erfiðar aðgerðir,“ sagði Páll Magnússon útvarpsstjóri stuttu eftir að tilfinningaþrungnum fundi lauk í Útvarpshúsinu í dag.

Starfsmenn RÚV í áfalli

Gunnar Magnússon, Formaður félags starfsmannasamtaka RÚV, segir starfsmenn í sjokki. Átakafundur var með starfsmönnum og útvarpsstjóra.

Sjá næstu 50 fréttir