Innlent

Þórey að taka við sem formaður Landssambands sjálfstæðiskvenna

Stefán Árni Pálsson skrifar
Þórey Vilhjálmsdóttir
Þórey Vilhjálmsdóttir
Þórey Vilhjálmsdóttir hefur ákveðið að gefa kost á sér sem formaður Landssambands sjálfstæðiskvenna á aðalfundi næstkomandi laugardag.

Ekkert mótframboð hefur komið fram og því mun Þórey að öllum líkindum taka við af Jarþrúði Ásmundsdóttur sem hefur hefur verið formaður síðastliðin tvö ár.

Þórey Vilhjálmsdóttir er í dag aðstoðarmaður Hönnu Birnu Kristjánsdóttur, innanríkisráðherra.

Áður var Þórey framkvæmdastjóra borgarstjórnarflokks Sjálfstæðisflokksins.

Aðalfundurinn fer fram á laugardaginn klukkan 13:00.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×