Hafnarfjarðargrín frá Ingvari Viktors Jakob Bjarnar skrifar 28. nóvember 2013 16:11 Ingvar Viktorsson. Furðu sætir að hann hafi ekki sent frá sér bók sem þessa fyrr. Stefán Karlsson
Allir í Hafnarfirði þekkja Ingvar Viktorsson, fyrrverandi bæjarstjóra og kennara. Hann var að senda frá sér sína fyrstu bók sem heitir einfaldlega Húmör í Hafnarfirði. „Ég bara veit það ekki,“ segir Ingvar Viktorsson nú rithöfundur en fyrrverandi bæjarstjóri í Hafnarfirði aðspurður hvers vegna hann sé ekki löngu byrjaður að skrifa bækur? „En þetta er nauðsynlegt að gera. Það verður að halda þessum köllum á lífi þó þeir séu sumir löngu farnir, sumir.“ Eins og titill bókarinnar gefur til kynna inniheldur hún gamansögur af Hafnfirðingum. „Þetta er allt litrófið. Mikið úr Flensborg en þar var ég að kenna í tuttugu ár. Og reyndar sögur úr öðrum skólum, sem og íþróttafélögum.“ Og þar er Ingvar vitaskuld einkum að tala um FH en fáir eru harðari FH-ingar en einmitt hann. Þar er hann nú heiðursfélagi. „Þetta hefur safnast upp í gegnum tíðina og það var af nægu að taka. Menn geta rétt ímyndað sér. Það væri hægt að skrifa heila bók bara um Halldór heitinn Ólafsson enskukennara í Flensborg.“ Hafnfirðingar hafa náttúrlega ættleitt húmorinn, eftir að hann hafði verið í einhvers konar reiðileysi á Íslandi. En, sko nú hafa menn eins og Árni Johnsen og Guðni Ágústsson sent frá sér bækur sem byggja á gamansögum. Og spurt er: Eru þeir ekki að kássast uppá annarra manna jússur? „Ég neita að svara svona spurningu,“ segir Ingvar Viktorsson en bók hans hefur þegar fengið feikilega góðar viðtökur. Fullt var út úr dyrum þegar hann kynnti bókina í Eymundsson í Hafnarfirði nú fyrir fáeinum dögum og hún er þegar farin að sýna sig á metsölulistum.Upp rísi Þjóðverjar Sögurnar eru mislangar en flestar stuttar og snarpar. Hér er eitt ágætt dæmi úr bókinni Húmör í Hafnarfirði:Hallsteinn Hinriksson, sá mikli hugsjónamaður, kenndi í áratugi leikfimi við Flensborgarskólann. Einu sinni sat hann yfir íslenskuprófi í 1. bekk, þar sem nemendur áttu að skrifa upp Þingvallasöng. Þegar Hallsteinn kom með úrlausnirnar niður á kennarastofu var hann alveg miður sín yfir úrlausn eins spekingsins, en sá hafði byrjaði ljóðið svona:„Öxar við ána árdags í ljóma, upp rísi Þjóðverjar austur í sveit.“Hljómar bara ansi líkt en alls ekki það sem beðið var um.
Mest lesið Lögðu herbergið í rúst og létu sig hverfa Innlent Vona að hægt verði að keyra til Eyja eftir tíu ár Innlent Foreldrar kaupi efnið fyrir börn sín og jafnvel vini þeirra Innlent „Þú hefðir átt að vera með okkur í nótt“ Innlent „Hann heitir bara Leó páfi held ég“ Innlent Sólmyrkvinn mögulega þúfan sem veltir hlassinu Innlent Segir fólki á ósamþykktum peptíðum að hætta strax Innlent Útiloka ekki samstarf en sjá djúpa gjá í málefnunum Innlent Bandaríski sjóherinn vildi taka skip á leigu og gera út til Grænlands Erlent Alvarlegar afleiðingar „brúnkuefnis“ og meirihlutinn sem er ekki fyrsti kostur Innlent Fleiri fréttir Lögðu herbergið í rúst og létu sig hverfa Vona að hægt verði að keyra til Eyja eftir tíu ár „Þú hefðir átt að vera með okkur í nótt“ Sekta fyrir nagladekk eftir helgi Sólmyrkvinn mögulega þúfan sem veltir hlassinu „Hann heitir bara Leó páfi held ég“ Foreldrar kaupi efnið fyrir börn sín og jafnvel vini þeirra Útiloka ekki samstarf en sjá djúpa gjá í málefnunum Kjörbúðin lokar og ein verslun eftir í bænum Alvarlegar afleiðingar „brúnkuefnis“ og meirihlutinn sem er ekki fyrsti kostur Landskjörstjórn fellst á tillögur um nýtt orðalag Ekki áhyggjuefni að skipið sé á leið til Íslands „Skutlarinn“ ekki ákærður fyrir að berja Hauk Ægi með spýtu Gullgrafaraæði magnast upp í tengslum við sólmyrkvann Bein útsending: Ræða bakslag í jafnréttismálum Kosningaspá Vísis: Berjast hart um þriðja fulltrúann Einar Ólafsson, fyrsti forstjóri Cargolux, látinn Borgin víki sér ítrekað undan ábyrgð Segir fólki á ósamþykktum peptíðum að hætta strax Hafa reist leikskóla á sex mánuðum fyrir helming kostnaðarins Ók í gegnum glerhurð í Kaupangi „Getur verið erfitt fyrir okkur sums staðar“ Eiginkonan hvarf til Rússlands skömmu eftir giftingu Forsetinn á fund páfans „Þetta er bara sanngirnismál“ Alls leituðu tvö hundruð manns í sex sólarhringa Sigmar Ó. Maríusson er látinn Lenti á hvolfi í á: „Þetta er ekkert notalegt“ „Ég er ekki viss um að þau viti hvað við viljum“ „Skilningur opnar ekki höfnina“ Sjá meira