Fleiri fréttir

,,Kreddukarlarnir lækka veiðigjaldið og gefa makrílkvótann''

"Við töpuðum meira fylgi en nokkur annar stjórnarflokkur í vestrænni stjórnmálasögu. Það var erfið og sár upplifun og ekkert sjálfgefið að Samfylkingin myndi lifa það mikla högg. En við höfum gert það og hafið uppbyggingu á ný,“ sagði Árni Páll Árnason, formaður Samfylkingarinnar, á opnum fundi flokksins í kvöld á Grand Hótel í kvöld.

Brúðkaup og leðurstuttbuxur

Það var mikið um að vera í Þjóðleikhúskjallaranum í gær þegar árleg herrafatasýning Herrafataverslunar Kormáks og Skjaldar fór þar fram með pompi og prakt. Ísland í dag var á staðndum og sjón er sannarlega sögu ríkari.

Garðbæingar greiða áfram lægsta útsvarið

Garðbæingar greiða enn óbreytt útsvar en þetta var ákveðið á fundi bæjarstjórnar Garðabæjar í dag. Útsvar bæjarbúa verður því áfram 13,66% sem er það lægsta á höfuðborgarsvæðinu. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá bæjarstjórn Garðabæjar.

Páfagaukahvíslari í Kópavogi

Páfagaukahvíslari rekur gæludýrabúð í Kópavogi, en með sérstakri tækni gerir hann fuglana gæfa. Hátt í tuttugu fuglar koma til hans í meðferð í hverri viku.

Meira læknadóp í unglingapartíum

Neyslumynstur ungra íslenskra fíkniefnaneytenda er að breytast en læknadóp er sífellt að verða algengara í samkvæmum unglinga. Drykkir blandaðir með kódínlyfjum í bland við ólögleg fíkniefni eru glamúrvædd í innlendri og erlendri hiphop tónlist.

Sveinn Rúnar enn fastur á Gasa

Sveinn Rúnar Hauksson læknir og formaður Ísland-Palestína komst ekki yfir landamærin frá Gasa til Egyptalands í dag en hann hefur árangurslaust reynt að komast yfir landamærin og áfram til Kairó í ellefu daga.

Formaður sérfræðingahóps: Skuldatillögum skilað í næstu viku

Sigurður Hannesson, formaður sérfræðingahóps ríkisstjórnarinnar um skuldavanda heimilanna, segir að hópurinn sé nú að leggja lokahönd á tillögur varðandi niðurfærslu skulda. Hópurinn mun skila tillögum til ríkisstjórnarinnar í næstu viku.

Kristinn Hrafnsson varar vini sína við njósnum

Kristinn Hrafnsson gerir ráð fyrir því að NSA njósni um sig og hefur hann sent út viðvörun til vina sinna á Facebook: Þeir megi gera ráð fyrir því að vera einnig undir eftirliti.

Heyrði öskur og hélt að það væri verið að drepa einhvern

Maður á þrítugsaldri hefur verið dæmdur í átta mánaða fangelsi fyrir að brjótast inn til fyrrverandi unnustu sinnar og setja sæng yfir andlit hennar svo hún átti erfitt með andadrátt. Vitni heyrði mikil öskur og hélt að það væri verið að drepa einhvern.

Fiskifræðingur segir síldina óútreiknanlega

"Það er ekkert hægt að fullyrða um það hvort að síldin gangi aftur í jafn miklum mæli í Kolgrafafjörðinn eins og hún gerði í fyrra,“ segir Guðmundur Óskarsson, fiskifræðingur hjá Hafrannsóknarstofnuninni.

200 milljónir evra til Íslands

Íslendingar hafa fengið um 200 milljónir evra í styrki úr evrópskum áætlunum síðastliðin 20 ár. Styrkurinn hefur farið til fyrirtækja, stofnana, skóla, félagasamtaka og einstaklinga.

ASÍ segir Samtök atvinnulífsins falsa söguna

"Samtök atvinnulífsins setja fram dæmalausa sögufölsun í nýjum sjónvarpsauglýsingum. Í þeim er með sérlega ósmekklegum hætti látið í það skína að kröfur launafólks um launahækkanir séu ástæða hárrar verðbólgu á Íslandi.“

Klukkan hefur áhrif á þunglyndi

Við erum feitust þjóða, við hreyfum okkur ekki nóg og erum með kolvitlausa klukku sem kemur okkur í koll á veturna,“ segir Guðmundur Löve, framkvæmdastjóri SÍBS.

Ótti og mikil reiði í Bláskógarbyggð

Lettarnir tveir sem gengu í skrokk á Brynjari Dagbjartssyni í Bláskógabyggð hafa verið látnir lausir. Brynjar óttast það að ofbeldismennirnir komi og leiti sig uppi.

Frumvarp um frelsi Júlíu Tímósjenkó fellt

Þingið í Úkraínu felldi í morgun frumvörp sem hefðu heimilað að Júlíu Tímósjenkó, fyrrverandi forsætisráðherra, verði látin laus úr fangelsi, en hún hefur verið í haldi frá árinu 2011.

Breivik tekur ekki prófin

Norski hryðjuverkaðurinn Anders Behring Breivik, sem drap 77 samlanda sína og særði 158 í einhverjum verstu hryðjuverkjum seinni tíma í Evrópu í júlí 2011, hefur sagt sig úr þremur áföngum sem hann hafði skráð sig í við Háskólann í Osló. Hann mun því ekki taka lokaprófin.

Íslendingar eiga metið í notkun þunglyndislyfja

Mikil aukning hefur verið á notkun þunglyndislyfja hjá hinum iðnvæddu þjóðum heimsins síðasta áratuginn og hvergi er notkunin meiri en hér á landi. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu OECD, efnahags og samvinnustofnun Evrópu, sem birt verður í dag.

Ránalda skelfir íbúa Óslóar

Helmingurinn af íbúum í Ósló segist finna fyrir óöryggi á ferð um borgina. Þetta kemur fram í skoðanakönnun sem gerð var fyrir blaðið VG, en mikil bylgja rána hefur gengið yfir borgina það sem af er mánuðinum.

Með stysta fæðingarorlof á Norðurlöndum

Fæðingarorlof er styttra hér á landi en á hinum Norðurlöndunum. Ísland hefur jafnan verið á eftir hinum í þróuninni. Framkvæmdastýra Jafnréttisstofu segir brýnast að hækka hámarksgreiðslur í orlofi.

Öryggisvottunum oft ábótavant á sölusíðum

Slysavarnafulltrúi segir fólk þurfa að vera á varðbergi varðandi kaup á vörum í gegnum netsíður. Á síðum eins og AliExpress sé oft erfitt að sannreyna hvort vörur uppfylli öryggisstaðla. Einnig er varað við óvottuðum fjarskiptatækjum.

Sjá næstu 50 fréttir