ASÍ segir Samtök atvinnulífsins falsa söguna Hanna Rún Sverrisdóttir skrifar 21. nóvember 2013 12:04 Skjáskot úr auglýsingu SA. „
Samtök atvinnulífsins setja fram dæmalausa sögufölsun í nýjum sjónvarpsauglýsingum. Í þeim er með sérlega ósmekklegum hætti látið í það skína að kröfur launafólks um launahækkanir séu ástæða hárrar verðbólgu á Íslandi.“ Þetta kemur fram á vefsíðu ASÍ. Þar segir að Samtök atvinnulífsins (SA) skauti algerlega framhjá þeirri augljósu staðreynd að hér á landi er í umferð veikur gjaldmiðill sem falli reglulega með braki og brestum. Svo ekki sé talað um hrun krónunnar fyrir fimm árum síðan. Á vefsíðu ASÍ er því haldið fram að SA viti að endurteknar gengisfellingar hafi áhrif á afkomu launafólks sem þurfi að mæta þeim með hærri launakröfum. Ef starfsmenn SA hefðu nálgast málið af heiðarleika og reiknað inn í dæmið sveiflur gjaldmiðilsins sæju þeir að launahækkanir á Íslandi eru á pari við það sem gerist á Norðurlöndunum. Samtök atvinnulífsins skauti algerlega framhjá þeirri augljósu staðreynd að hér á landi er í umferð veikur gjaldmiðill sem fellur reglulega með braki og brestum svo ekki sé talað um hrun krónunnar fyrir 5 árum. „Þá forðast Samtök atvinnulífsins að nefna þá staðreynd að laun sem hlutfall af landsframleiðslu eru umtalsver lægri hér en á hinum Norðurlöndunum,“ segir á síðunni. „Þetta sérkennilega útspil SA er afar óheppilegt innlegg í þær kjaraviðræður sem nú eru nýlega hafnar og ekki líklegt til þess að byggja upp traust milli aðila. Falsanir og útúrsnúningar eru ekki heppilegt veganesti í þá vegferð sem framundan er.“ Á vefsíðu SA segir: „Samtök atvinnulífsins vekja þessa dagana athygli á því að við höfum val um hvert leið okkar liggur eins og sjá má í meðfylgjandi myndskeiði,“ sem er hér að neðan.
Mest lesið Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Innlent Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Innlent Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Erlent Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Innlent „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Innlent Höfum setið eftir í baráttu við glæpahópa Innlent Annar vinningur hættir að safnast upp í Vikinglottó Innlent Skuld fyrri eiganda stöðvi ekki skoðun bíls Innlent Tímamót hjá Kvennaathvarfinu Innlent Með umtöluð símtöl og skilaboð á sínu borði Innlent Fleiri fréttir „Þetta er auðvitað ekki mjög pólitískt sexí“ Slaka á kröfum um íbúðastærðir og verslunarrými á jarðhæð Með umtöluð símtöl og skilaboð á sínu borði Kalla eftir ákvörðun um milljarðaáform í Skálafelli Loka fyrir umferð vegna bilunar í umferðarljósum Tímamót hjá Kvennaathvarfinu Annar vinningur hættir að safnast upp í Vikinglottó Sérstakt viðbragð á Ljósanótt vegna unglingadrykkju Hámark bílastæða við nýbyggingar falli niður Óvirk umferðarljós valda töfum Skuld fyrri eiganda stöðvi ekki skoðun bíls Höfum setið eftir í baráttu við glæpahópa Pallborðið: Línurnar lagðar fyrir spennandi þing Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Þorgerður kallaði Rússa á teppið og auknar heimildir lögreglu Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Áfram stelpur verða að félagasamtökum: Margir gerendur um hvern og einn þolanda „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Víðáttumikil lægð fyrir sunnan land Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Eldur í þaki Rimaskóla í nótt Þjófnaður í þremur verslunum Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Svona voru aðstæður við svínabú Stjörnugríss Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Sonur þingmannsins í áframhaldandi gæsluvarðhald Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Sjá meira