Kristinn Hrafnsson varar vini sína við njósnum Jakob Bjarnar skrifar 21. nóvember 2013 14:55 Kristinn Hrafnsson bendir á að NSA líti svo á að sé stofnunin að safna upplýsingum um einhvern tiltekinn einstakling, eigi það við um vini hans einnig. „
Ég er einfaldlega að vekja athygli á þeirri aðferðafræði sem er notuð – sum sé að safna upplýsingum þrjú hopp frá viðkomandi,“ segir Kristinn Hrafnsson talsmaður Wikileaks. Kristinn hefur sent út viðvörun til Facebookvina sinna. Þar bendir hann á að ef bandaríska þjóðaröryggisstofnunin (NSA) vill safna upplýsingum um tiltekinn einstakling telur hún sér heimilt að gera slíkt hið sama um tengslanet viðkomandi allt að þremur skrefum frá honum. „Þetta þýðir t.d. að ef NSA hefur ákveðið að njósna um mig getur það falið í sér njósnir um alla mína fésbókarvini, alla þá vini sem þeir eiga og jafnframt vini þeirra. Aðeins eitt slíkt dæmi þýðir því í reynd að allir Íslendingar gætu verið fórnarlömb slíkra njósna.“ Kristinn segir í samtali við Vísi að þetta þýði, samkvæmt mati Guardian, „að yfir milljón einstaklingar eru undir, ef einn lendir í sigtinu.“ Spurður um hvort hann telji sig sæta eftirliti eða njósnum af hálfu NSA segir Kristinn enga staðfestingu hafa á því. „En geri bara ráð fyrir því. Það er enn í gangi sakarannsókn gegn Wikileaks. Langt er síðan að ástralskir diplómatar höfðu það eftir heimildum sínum í Washington að þetta væri ein viðamesta sakarannsókn á síðari tímum.“ Kristinn bendir að endingu á að The Guardian hafi tekið saman myndræna útfærslu á hvað uppljóstranir Edwards Snowden þýði í raun fyrir hvern og einn. Þá samantekt má finna hér.
Mest lesið Framlengja samninga út næsta ár Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Endurgreiðir ekki ríkinu fyrir auglýsingarnar umdeildu Erlent Komin til meðvitundar eftir misheppnaða aftöku Erlent Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Innlent Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Innlent Greinir skýran vilja til meira samstarfs Innlent Hafnar sælgætis- og fæðingarorlofsmálum sem rökum fyrir bókun 35 Innlent Einn handtekinn eftir líkamsárás í Kópavogi Innlent Segja boltann hjá stjórnvöldum Innlent Fleiri fréttir Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Einn handtekinn eftir líkamsárás í Kópavogi Framlengja samninga út næsta ár Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Segja boltann hjá stjórnvöldum Ólíklegt að pestin berist til Íslands Óþolinmæði að fylla Læknavaktina Ekkert leyndarmál að herinn sé önnum kafinn Greinir skýran vilja til meira samstarfs Leggja fram þingmál um að draga umsóknina til baka Engar leyniskyttur gættu Rubio Hafnar sælgætis- og fæðingarorlofsmálum sem rökum fyrir bókun 35 Bíði og bíði eftir Bjarna Leita manna sem grunaðir eru um hópárás Hafi þegar tryggt fjármögnun varamótoranna Guðmundur Fertram og Fanney opna nýsköpunarsetur Segir gjald fyrir túlkun eftir þrjú ár sanngjarna kröfu „Viljum ekki að það sé verið að leika sér að fullveldi Íslands“ Ný skýrsla Umhverfis- og orkustofnunar: Hverfandi líkur á að olía finnist á Drekasvæðinu Rubio farinn af landi brott Verði að gera fyrirvara við rannsókn um karlmennsku Leit að eftirmanni Harðar hefði hafist í haust eða vetur Bjarni segir ekkert hæft í að verið sé að úthýsa Aþenu Samtalið efnismeira en áður þó talsverð gjá sé á milli Einn í framboði til varaformanns enn sem komið er Ögurstund í kjaramálum og Marco Rubio í heimsókn Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Rubio: Ísland í miðjunni Þurfa að hætta við mótorakaup fáist ekki fé frá ríkinu Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Sjá meira