Fleiri fréttir

22 teknir fyrir ölvunarakstur um helgina

Tuttugu og tveir ökumenn voru teknir fyrir ölvunar- og fíkniefnaakstur á höfuðborgarsvæðinu um helgina. Þrettán þeirra voru stöðvaðir í Reykjavík, fjórir í Hafnarfirði, þrír í Kópavogi og einn í Garðabæ og Mosfellsbæ.

„Nauðgunolía“ í brúnkökudeigi

Brúnkökudeig sem er í sölu hér á landi hefur heldur einkennilega innihaldslýsingu en þar má ætla að Google translate hafi spilað stórt hlutverk.

Húskrybba fannst í mandarínukassa

Fjölskylduföður í Gaukshólum brá í brún þegar hann sá húskrybbu spóka sig á stofugólfinu. Skordýrafræðingur segir að krybban gæti numið hér land.

Sótmengun dísilbíla vanmetin

Ný rannsókn Vegagerðarinnar sýnir að hlutfall malbiks í svifryki hefur lækkað úr 55% í 17%, en hlutfall sóts farið úr 7% í 30%.

Leitarhundur týndur

Skuggi, leitarhundur björgunarsveitarinnar á Suðurnesjum, er týndur. Hann hvarf frá eiganda sínum í Garði í gærkvöldi.

Obama til varnar Íranssamningnum

Bandaríkjaforseti segir auðvelt að hafa uppi stóryrði í pólitík, en það sé ekki rétta leiðin þegar öryggismál eru annars vegar.

Dalvíkingar sporna við verðbólgunni

Sveitarstjórn Dalvíkurbyggðar ákvað í síðustu viku að endurskoða áformaðar breytingar á þjónustugjaldskrám sem taka áttu gildi um næstu áramót.

Enn mótmælt í Tælandi

Fjölmenn mótmæli hófust í morgun í Tælandi, þriðja daginn í röð. Þúsundir mótmælenda haf umkringt helstu stjórnarbyggingar höfuðborgarinnar Bangkok.

Smita sig viljandi af HIV veirunni

Á Grikklandi hefur það færst í vöxt að fólk smiti sig viljandi af HIV veirunni, til þess að komast á bætur. Þetta kemur fram í skýrslu frá Alþjóðaheilbrigðisstofnuninni sem rannsakaði áhrif fjármálakreppunnar á löndin í Evrópu.

Kallað eftir aðgerðum í Miðafríkulýðveldinu

Aðstoðarframkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna kallaði í gær eftir viðbrögðum frá öryggisráðinu vegna ástandsins í Miðafríkulýðveldinu. Jan Eliasson hvatti öryggisráðið til þess að efla sveitir friðargæsluliða í landinu þar sem til stendur að halda kosningar í næstu viku.

Ætlaði að sofa úr sér í bílnum

Lögregla hafði afskipti af ölvuðum manni, sem sat í bíl sínum í miðborginni um hálf fjögur leitið í nótt og var bíllinn í gangi. Hann sagðist hafa ætlað að sofa í honum í nótt, en niðursaðan varð sú, að hann færi á hótel og að lögreglan geymdi bíllyklana þar til að hann teldist hæfur til að aka á ný.

Sjálfstæðismenn myndu missa meirihlutann í Árborg

Hreinn meirihluti Sjálfstæðisflokksins í bæjarstjórn Árborgar væri falllinn ef kosið yrði nú, samkvæmt skoðanakönnun, sem Félagsvísindastofnun Háskóla Íslands hefur gert fyrir Morgunblaðið.

Mýrdælingar vilja halda vegi á skrá

Sveitarstjórn Mýrdalshrepps harmar ákvörðun Vegagerðarinnar um að taka veg sem liggur inn í Heiðardal og að Heiðarvatni af vegaskrá.

Íslenskur þjálfari slapp naumlega frá drápshvelinu

Sigfús Halldórsson var fyrsti þjálfari háhyrningsins Tilikums. Háhyrningurinn réðst á Sigfús þegar verið var að færa hann milli lauga í Sædýrasafninu, beit góðan bút úr baki blautbúningsins og dró hann niður.

Reyna að fæla síld með upptökum af háhyrningum

Hljóð frá háhyrningum að éta síld verða spiluð í Kolgrafafirði til að freista þess að reka síldina út. Veiðar smábáta verða leyfðar áfram. Fylgst er stöðugt með súrefnismettun í firðinum. Hafró mælir stærð síldartorfunnar þar inni á næstunni.

Þúsundir ferðamanna traðka niður Laugaveginn

Göngustígar í Þórsmörk og á nálægum svæðum eru að töluverðum hluta í afleitu ástandi. Innspýtingu fjármagns þarf ef mögulegt á að vera að snúa þróuninni við. Takmarka þarf fjölda ferðamanna og stýra umferð.

Hundruð MR-inga á fund ráðherra

Nemendur Menntaskólans í Reykjavík gengu fylktu liði að menntamálaráðuneytinu í gærdag og afhentu menntamálaráðherra undirskriftalista.

Kínverjar stefna á tunglið

Senda könnunarjeppa til tunglsins í næsta mánuði. Geimstöð og mannaðar ferðir á teikniborðinu.

Þjófur fær það óþvegið

Myndband af Germaine Yeap, 28 ára malasískri konu, sem tekur í lurginn á óprúttnum þjófi, nýtur mikilla vinsælda á netinu.

Kvennalistakonur báru kyndla

Félagsmál UN Women á Íslandi stóðu fyrir Ljósagöngu á alþjóðlegum baráttudegi Sameinuðu þjóðanna gegn kynbundnu ofbeldi í gær.

Þorskstofninn aldrei sterkari

Niðurstöður liggja nú fyrir úr haustralli Hafrannsóknastofnunar Íslands. Meðal niðurstaðna var að heildarvísitala þorsks mældist sú hæsta frá 1996.

Vill endurmeta inngöngukröfur í Lögregluskólann

Lögreglustjórinn á Suðurnesjum telur mikilvægt að endurmeta inngöngukröfur í Lögregluskólann og segir þær vera barn síns tíma. Hún segir mikilvægt að lögreglustéttin endurspegli samfélagið.

Ræða meintar hleranir Bandaríkjamanna

Fulltrúar frá Póst- og fjarskiptastofnun mæta á fund stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar Alþingis í dag til að ræða samskipti Íslands og Þjóðaröryggisstofnunar Bandaríkjanna.

Erfiðar og ósanngjarnar hugsanir á meðgöngu

Kristín Guðmundsdóttir, sem missti tvíburadrengi, fékk þær fregnir að hún væri ólétt á ný þegar hún barðist fyrir bættum aðbúnaði foreldra sem missa á meðgöngu eða í fæðingu. Ísland í dag fékk að fylgja Kristínu á meðgöngu og eftir fæðingu.

Oddný kveður stjórnmálin í vor

Oddný Sturludóttir segir skilið við stjórnmálin eftir átta ára starf sem borgarfulltrúi. Hún segir fyrra kjörtímabil sitt hafa verið netta brjálsemi.

Sjá næstu 50 fréttir