Húskrybba fannst í mandarínukassa Jakob Bjarnar skrifar 26. nóvember 2013 10:39 Ólafur er ekki búinn að gefa krybbunni nafn en Erling skordýrafræðingur telur ekki ólíklegt að hún húskrybba nemi hér land.
Fjölskylduföður í Gaukshólum brá í brún þegar hann sá húskrybbu spóka sig á stofugólfinu. Erling Ólafsson skordýrafræðingur telur líklegt að kvikindið verði landlægt hér áður en langt um líður – þó ómögulegt sé að segja til um hvernig fer með það.Hámaði í sig gúrku „Hún hefur braggast heilmikið. Það lægi beint við að kalla kvikindið Tuma þumal með vísan í samvisku Gosa. En, þetta er víst kvendýr. Þetta er sem sagt krybba af engisprettutegund,“ segir Ólafur Helgason deildarstjóri hjá Öryggismiðstöðinni. Ólafur segir að sér hafi brugðið nokkuð þegar hann sá húskrybbuna spóka sig á stofugólfinu. „Ég hélt fyrst að þetta væri froskur. En, hún er sprelllifandi og réðst á gúrkubita sem við gáfum henni og hámaði hann í sig af áfergju. Mér finnst þetta snotrasta kvikindi. Heimasætunni á bænum, fimm ára, finnst gaman að fylgjast með henni. Mig langar að halda dýrinu en það er ekki bara undir mér komið. Ég þyrfti þá að hafa hana í einhverju góðu búri.“Söngelsk kvikindi Krybban barst með mandarínukassa á heimilið. Fjölskyldan fór með hana á Náttúrufræðistofnun til skoðunar og hafði hana svo heim með sér aftur. En, á Náttúrufræðistofnun, hittu þau fyrir Erling Ólafsson skordýrafræðingur. „Þetta þóttu skemmtileg gæludýr í gamla daga hjá kínverskum prinsessum. Þær notuðu þetta sem einskonar söngfugl og höfðu við hliðina á sér við rúmstokkinn. Ekki að allra áliti huggulegt hljóð. En, þær eru söngelskar,“ segir Erling í samtali við Vísi. Erling telur góða möguleika á að húskrybba nemi hér land. Hún á alla möguleika á því. Þetta er þriðja tilvikið sem hann fær staðfest til skoðunar nú á tiltölulega stuttum tíma. Erling segir hana algenga um alla Evrópu og vörubretti komi hingað til lands í stríðum straumum og flutningarnir taka ekki langan tíma. „Það kæmi mér ekki á óvart að hún yrði orðin landlæg hér áður en langt um líður. Óværa? Íslendingum mun seint líka þetta í kjöllurum sínum. Það má ekki sjást padda þá fara menn uppá stóla. Þetta er þannig. Svolítið eins og að sjá mús, stórt og hreyfir sig snöggt. Mér bregður reyndar ekki við þetta. Þegar ég var í skóla úti í Lundi vann ég mikið á nóttinni niðri í kjallara og þar söng þetta fyrir mig og mér fannst það huggulegt. Fannst ég ekki vera einn.“Margskonar kvikindi að gera sig líkleg Þetta er sjónarmið. Erling segir að ekki muni fara á milli mála ef dýrið nær að nema land. Það er ansi margt að gerast í þessum efnum hjá okkur þessi misserin og Erling fær hundruð tilfella til skoðunar af allskyns kvikindum sem hingað berast. „Ég finn nokk þegar eitthvað er að hreiðra um sig.“ Erling segir þetta yndislegt, flest. „Auðvitað eru þarna kvikindi sem eru ekkert voðalega velkomin. Eins og Spánarsniglar og Birkikemba, kvikindi sem eru í görðum. En önnur eru ákaflega falleg dýr. Furutíta er eitt slíkt sem ég hef fengið í hendur fjórum sinnum. Tegund sem er algeng í norður-Ameríku en barst til Evrópu fyrir 15 árum og er að leggja undir sig Evrópu. Fallegt dýr og lifir á furukönglum. Harpixinu. Svona dýr er gaman að fá.“
Mest lesið Kölluðu til Bandero en fengu ekkert svar Innlent Rafmagnslaust í Breiðholti Innlent „Þetta eru hreinlega loftslagsbreytingar“ Innlent Ljóst hvar sólin verður um versló og hvar ekki Innlent Senda norðlenskt rusl úr landi Innlent Sauð upp úr milli ferðamanns og meintra vasaþjófa Innlent Verst frétta um hvað felst nákvæmlega í fyrirhuguðum niðurskurði Innlent Dæmdur lögreglumaður kenndi neikvæðu umtali samstarfsfélaga um Innlent „Fólk er ekki heimskt“ Innlent Skutu niður meinta rússneska dróna í lofthelgi ESB í þriðja sinn Erlent Fleiri fréttir Rafmagnslaust í Breiðholti Kölluðu til Bandero en fengu ekkert svar „Þetta eru hreinlega loftslagsbreytingar“ Senda norðlenskt rusl úr landi Umfangsmestu rýmingar frá seinni heimsstyrjöldinni: „Tunglið var orðið appelsínugult“ Verst frétta um hvað felst nákvæmlega í fyrirhuguðum niðurskurði Stjórnlausir skógareldar og vertar sem fagna Á þriðja hundrað þegar greitt atkvæði Brotlenti í djúpu gili Dæmdur lögreglumaður kenndi neikvæðu umtali samstarfsfélaga um Varanlegar undanþágur hluti af ESB frá upphafi Snýr aftur á spítalann í skugga kæru til Landsréttar Flugmaðurinn er fundinn Sækja slasaðan göngumann á Esjuna „Fólk er ekki heimskt“ Sorglegt að ekki hafi tekist að vernda konuna Ljóst hvar sólin verður um versló og hvar ekki Varði helginni á spænskri fjöldahjálparstöð Sauð upp úr milli ferðamanns og meintra vasaþjófa Lilja Rafney syrgir eiginmann sinn Fluttur til Danmerkur með alvarleg brunasár Banaslys í Þrengslunum Barðist fyrir lífi sínu nóttina eftir að ofbeldismaðurinn hlaut dóm Skjálftinn fannst í Grundarfirði og Búðardal Lá á bjöllunum og endaði á því að brjótast inn Stór skjálfti á Nesjavöllum Rennibraut vélarinnar hafi virkjast á flughlaði Ekki gott að möguleg lögbrot hafi fengið að malla árum saman „Fólk bara fór í hina úlpuna sína og brosti“ Umræða í hnút: Hann segir, hún segir, þarna stendur... hvað er rétt? Sjá meira