Fleiri fréttir

Rannsókn á innkaupamálum LSH er hafin

Samkeppniseftirlitið er byrjað að rannsaka meint brot innkaupadeildar Landspítalans (LSH) á samkeppnislögum. Það var fyrirtækið Logaland ehf. sem kærði spítalann til eftirlitsins í síðasta mánuði vegna vinnubragða í innkaupum á heilbrigðisvörum og -tækjum.

Fórnarlömb ofbeldis hætta frekar í skóla

Ungmenni sem hafa orðið fyrir kynferðislegu ofbeldi eru líklegri til að hætta námi á framhaldsskólastigi en þau sem ekki hafa orðið fyrir slíku ofbeldi. Þetta eru niðurstöður fjögurra ólíkra kannana sem gerðar hafa verið hér á landi á tíðni og afleiðingum kynferðislegs ofbeldis og misnotkunar hjá ungu fólki á framhaldsskólaaldri.

Hæstiréttur staðfesti gæsluvarðhalds

Hæstiréttur staðfesti síðdegis á miðvikudag gæsluvarðhald yfir manni á þrítugsaldri sem grunaður er um að hafa orðið fimm mánaða dóttur sinni að banda.

Fræðahöll upp úr moldinni

Framkvæmdir við Hús íslenskra fræða, sem mun hýsa starfsemi Stofnunar Árna Magnússonar og íslensku- og menningardeild Háskóla Íslands, eru komnar á skrið.

Alþingi lýsir andstöðu við byggingu hótels

Alþingi lýsir yfir harðri andstöðu við það að bygging nýs hótels á Landsímareitnum verði heimiluð, í athugasemd til Reykjavíkurborgar. Þingið segir ekki tekið tillit til þingsins og hagsmuna þess.

Réttindalausir teknir fyrir fíkniefnaakstur

Tveir ungir ökumenn voru teknir úr umferð á Akureyri í gærkvöldi og í nótt vegna gruns um fíkniefnaakstur. Báðir þeirra voru auk þess réttindalausir og hafði annar misst réttindin fyrir fíkniefnaakstur áður.

Stjórnlaus vöruflutningabíll rann 10 kílómetra

Mildi þykir að enginn slasaðist þegar stjórnlaus vöruflutningabíll þeyttist um hraðbraut í Þýskalandi í gær. Atvikið átti sér stað á A6 hraðbrautinni í ríkinu Baden-Württemberg.

Enginn heimsendir að eignast barn með Downs

Fólk hefur miklar ranghugmyndir um börn með Downs og lífið verður litríkara með þeim. Þetta segja foreldrar þriggja drengja á leikskólanum Víðivöllum í Hafnarfirði.

Eiginkona Hemma í einlægu viðtali: Lést líklega samstundis

"Um klukkan hálfellefu um kvöldið kvartaði hann yfir því að vera svolítið orkulaus, sagðist langa aðeins út að skokka til að hrista það af sér og dreif sig út eins og hann gerði svo oft,“ segir Sara Óskarsdóttir, eiginkona Hermanns Fannars Valgarðsson sem lést snögglega í nóvember árið 2011. Sara var komin þrjá mánuði á leið þegar hann féll frá.

Hóta að þvinga fram atkvæðagreiðslu

Allt bendir til að til úrslita dragi í þrátefli stjórnarflokkanna og Framsóknarflokkks og Sjálfstæðisflokks í stjórnarskrármálinu á næstu tveimur sólarhringum.

Það á að skila skattframtalinu á miðnætti - laganemar vilja hjálpa

Á miðnætti þarf að vera búið að skila skattframtalinu og hefur því lögfræðiðstoð Orators, í samstarfi við Deloitte, ákveðið að bjóða einstaklingum upp á endurgjaldslausa skattráðgjöf í Lögbergi við Sæmundargötu í Háskóla Íslands til klukkan tíu í kvöld.

Dæmd til að greiða Arion banka 5 milljónir vegna húsaleigu

Hæstiréttur staðfesti í dag dóm Héraðsdóms Reykjaness um að Helgu Daníelsdóttur ber að greiða Arion banka og sjóði á vegum Stefnis, dótturfélags Arion banka, fimm og hálfa milljón vegna vangoldinnar leigu á íbúðahúsnæði á tímabilinu 2. desember 2009 til 6. apríl 2011.

"Hleypið okkur inn - við viljum vinna"

Daníel Björnsson, nemi í 9. bekk í Seyðisfjarðarskóla, er fulltrúi Íslands í skemmtilegu myndbandi sem birt er í dag í tilefni Alþjóðlega Downs-heilkennisdagsins.

Dæmdur í tveggja ára fangelsi fyrir aðild að skotárás

Hæstiréttur Íslands þyngdi dóm Héraðsdóms Reykjavíkur yfir Tómasi Pálssyni Eyþórssyni sem var dæmdur í mars á síðasta ári fyrir hlutdeild í hættubroti þegar félagi hans skaut á bifreið upp á Bíldshöfða í Reykjavík í nóvember árið 2011.

Klámstjarna Deep Throat öll

Harry Reems, aðalleikarinn í klámmyndinni Deep Throat, er látinn 65 ára að aldri. Banameinið var krabbamein í brisi.

Þyrluslys í Berlín

Einn lést þegar tvær flugvélar á vegum þýsku lögreglunnar skullu saman við æfingar nærri Ólympíuleikvanginum í Berlín í dag. Skyggni var afar lítið vegna snjókomu.

Jóhanna leggur til að þingi verði frestað

Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra, er búin að leggja fram tillögu að þingsályktun um að Alþingi álykti að veita samþykki til þess að fundum þingsins verði frestað frá 22. mars 2013 eða síðar, ef nauðsyn krefur, eins og það er orðað í tillögunni.

Stórstjarna hleypur í skarðið

Þýska söngkonan Nadja Michael mun hlaupa í skarðið fyrir hina bandarísku sópransöngkonu Deborah Voigt á tónleikum Sinfóníuhljómsveitar Íslands annað kvöld.

Impala með krafta í kögglum

Kemur nú af tíundu kynslóð og verður kynntur á bílasýningunni í New York. Er nú 303 hestöfl, hlaðinn búnaði og gæti talist meðal lúxusbíla.

Unnið að því í nokkur ár að efla lagaumhverfið í kringum stóriðju

Katrín Júlíusdóttir fjármála- og efnhagsráðherra segir ráðuneytið hafa unnið núna í nokkur ár að því að betrumbæta lagaumhverfið í kringum stóriðjur og stórfyrirtæki, en í Kastljósi í gærkvöldi kom fram að Alcoa og Norðurál borga litla sem enga tekjuskatta hér á landi, þar sem þau skulda systurfélögum sínum erlendis hundruð milljarða króna.

Gjaldtaka á Suðurlandi hafin

Gestir í Hveragarðinn í Hveragerði þurfa að greiða 200 króna aðgangsgjald frá og með 15. maí. Tólf ára og yngri fá frítt inn. Þetta kemur fram í Bændablaðinu.

Einn af sjö kálfum fæðast dauðir

14 prósent kálfa hér á landi fæðast dauðir ef marka má nýja skýrslu í nautgriparækt sem Grétar Hrafn Harðarson gerði fyrir á Vísindaþingi landbúnaðarins á dögunum.

YouTube að ná Facebook

Einn milljarður manna sækir myndbandavefinn YouTube heim í hverjum mánuði. Forsvarsmenn síðunnar, sem er í eigu Google, segir snjallsíma helstu ástæðu mikillar fjölgunar undanfarin misseri.

Tólf mál samþykkt á rúmum hálftíma

Umræða um stjórnskipunarlög er hafin en þar er rætt um tímabundin ákvæði um breytingu á stjórnarskrá og er hluti af frumvarpi til stjórnarskipunarlaga sem formenn Samfylkingarinnar, Bjartrar framtíðar og Vinstri grænna lögðu fram fyrir um tveimur vikum síðan.

Biðst afsökunar á ættleiðingum

Julia Gillard, forsætisráðherra Ástralíu, baðst í morgun afsökunar á ættleiðingastefnu Ástrala sem var við lýði á árunum 1950 til 1970. Tugþúsundir barna ógiftra mæðra á unglingsaldri voru þá teknar af mæðrum sínum og gefin barnlausum giftum pörum. Margar konur segja að þær hafi verið neyddar til að gefa börn sín frá sér. Gillard segir að þessi stefna stjórnvalda hafi skapað mikinn sársauka.

Þessi bönd keppa í úrslitum Músíktilrauna

Eftir fjögur undankvöld er ljóst hvaða ellefu hljómsveitir koma til með að berjast um sigurinn í Músíktilraunum árið 2013. Úrslitin fara fram í Silfurbergi í Hörpu á laugardaginn og hefjast klukkan 17.

Samkomutorg við hlið pylsuvagns

Víkingafélagið Glæsir stefnir að byggingu samkomutorgs í víkingastíl á Grundarfirði. Hugmyndin var kynnt á fundi bæjarráðs á dögunum að því er Skessuhorn greinir frá.

Skokka í Bolungarvíkurgöngum

"Við höfum aðeins heyrt af þessu. Þetta er algjörlega andstætt því sem göngin hafa verið hugsuð fyrir," segir yfirlögregluþjónn á Vestfjörðum í samtali við Bæjarins Besta.

Sjá næstu 50 fréttir