Alþingi lýsir andstöðu við byggingu hótels Þórunn Elísabet Bogadóttir og Svavar Hávarðsson skrifar 22. mars 2013 07:00 Þingið telur að hótel við Kirkjustrætið myndi þrengja verulega að starfseminni og vill að umferðartakmarkanir verði miklu skýrari en í núverandi tillögu. fréttablaðið/gva
Alþingi lýsir yfir harðri andstöðu við það að bygging nýs hótels á Landsímareitnum verði heimiluð, í athugasemd til Reykjavíkurborgar. Þingið segir ekki tekið tillit til þingsins og hagsmuna þess. Í athugasemdinni kemur fram að hótelið sé „við anddyri Alþingishússins" og þrengi verulega að starfsemi þingsins. „Það byggingarmagn sem rúma á hótelstarfsemi samkvæmt tillögu að nýju deiliskipulagi eykst umtalsvert og[…]rekstur hótels og aukin atvinnustarfsemi á Landsímareit mun augljóslega hafa í för með sér aukna umferð um Kvosina og þrengja þannig verulega að Alþingi og starfsemi þess," segir í athugasemdinni sem Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir, forseti Alþingis, sendi fyrir hönd þingsins. „Hagsmunir þingsins taka ekki eingöngu til atriða sem lúta að því að gæta öryggis þingsins, heldur einnig til atriða sem lúta að starfsfriði, almennri umgengni, ytra útliti, ásýnd Alþingis og nánasta umhverfi þess." Þá hefur Ásta lagt fram frumvarp á Alþingi um skipulags- og mannvirkjamál á Alþingissvæðinu. Hún vísar í stjórnarskrá þar sem segir að Alþingi sé friðheilagt og leggur til að afmarkað verði svæði í næsta nágrenni þingsins sem nefnist Alþingissvæðið. Þar fari ráðherra með yfirstjórn skipulags- og mannvirkjamála.
Mest lesið Dýpsta októberlægð í rúm sextíu ár í uppsiglingu Innlent Óveður í aðsigi: Líklegt að flug raskist Innlent Segir kollega sína á þingi hafa framið húsbrot í fylleríisferð fyrir austan Innlent Appelsínugular og gular viðvaranir gefnar út Veður Alls ekki á móti því að fólk hafi það gott Innlent Skaut konu sína, börn og barnabörn Erlent Hóta að stöðva vopnakaup fyrir Úkraínu Erlent Höfuðpaur Reykholtsmálsins fær átta ára dóm Innlent Dæmdur fyrir skattsvik vegna B Innlent Segir Bjarna hafa valið klæki og ófrið við Eflingu Innlent Fleiri fréttir Höfuðpaur Reykholtsmálsins fær átta ára dóm Segir kollega sína á þingi hafa framið húsbrot í fylleríisferð fyrir austan Skipuð formaður Jafnréttissjóðs Dæmdur fyrir skattsvik vegna B Segir að þegar 13 þúsund skrifa undir verði stjórnvöld að hlusta Engin óbirt loforð eða leynilegt samkomulag Óveður í aðsigi: Líklegt að flug raskist Ekkert leynimakk í kjarasamningsgerð og óvenju djúp lægð er á leið til landsins Áminnti starfsmann spítalans fyrir að fletta upp sjúkraskrá konu Hlaut fyrstu verðlaun fyrir rannsókn í sjúkraþjálfun Dýpsta októberlægð í rúm sextíu ár í uppsiglingu Segir Bjarna hafa valið klæki og ófrið við Eflingu Bein útsending: Árleg friðarráðstefna Höfða friðarseturs Steinunn kjörin næsti forseti Alþjóðasamtaka lækna Þrettán þúsund hafa skrifað undir Alls ekki á móti því að fólk hafi það gott Réðust á dreng og tóku af honum hlaupahjól Myndir frá Austurvelli: „Fokkið ykkur úr firðinum“ Nýr meirihluti í Suðurnesjabæ „Við erum ekkert að biðja um einhverja sérmeðferð“ Brotist inn í tvö fyrirtæki Akranes og Akureyri dæmi þar sem hættan sé raunveruleg Of snemmt að segja til um hvernig eldurinn kom upp Hafi verið beggja vegna borðsins „Þetta var algjörlega magnað“ Rispur á bílum út um allan bæ og tjón upp á hundruð þúsunda Bein útsending: Niðurstöður Samtalsins kynntar Uppbyggilegra samtal en í athugasemdum „Sólveig Anna virðist vera með mig algjörlega á heilanum“ Mótmæla sjókvíaeldi í tveimur landshlutum Sjá meira