Unnið að því í nokkur ár að efla lagaumhverfið í kringum stóriðju 21. mars 2013 14:22 Katrín Júlíusdóttir iðnaðaráðuneyti.
Katrín Júlíusdóttir fjármála- og efnhagsráðherra segir ráðuneytið hafa unnið núna í nokkur ár að því að betrumbæta lagaumhverfið í kringum stóriðjur og stórfyrirtæki, en í Kastljósi í gærkvöldi var fullyrt að Alcoa og Norðurál borga litla sem enga tekjuskatta hér á landi, þar sem þau skulda systurfélögum sínum erlendis hundruð milljarða króna. Fyrirkomulagið er alþekkt erlendis, en lög hér á landi gera þessa aðferð við að lækka skatta auðveldari. Alþjóðgjaldeyrissjóðurinn benti stjórnvöldum á þessa brotalöm samkvæmt Kastljósi en að sögn Katrínar hefur starfshópur, sem meðal annars aðilar vinnumarkaðarins og fjármálaráðuneytisins eiga sæti í, unnið að því að skila tillögum um það hvernig megi meðal annars taka á reglum varðandi þunna eiginfjármögnun í allnokkurn tíma. Hópurinn hefur þegar skilað tillögum, hann mun svo aftur skila tillögum skömmu eftir páska og að lokaniðurstöðum í september gangi allt eftir að sögn Katrínar. Katrín leggur hinsvegar töluverða áherslu á að ástæðan fyrir því að lög um þetta hafi ekki verið lögð fram strax síðasta haust var til þess að tryggja að lögin næðu ekki aðeins til lánaviðskipta eins og lýst er í Kastljósinu, heldur einnig verðlagningu vara sem eru seldar á milli fyrirtækja í eigu sömu aðila. Eða milliverðlagningu eins og það er kallað. Þannig er tölvufyrirtækið Microsoft meðal annars þekkt fyrir að selja vörur á milli fyrirtækja í eigin eigu langt undir markaðsvirði. Skýrasta dæmið um þetta er stærsta skattalagamál sem hefur komið upp í Danmörku þar sem dönsk skattayfirvöld telja að Microsoft skuldi rúmlega 130 milljarða í skatta. Ástæðan voru kaup Microsoft á tölvufyrirtækinu Navision. Ríkisstjórnin hefur skattlagt orkuiðjuna hér á landi. Árið 2009 var settur á sérstakur raforkuskattur með samkomulagi við orkufrekan iðnað. Hann hefur skilað um tveimur milljörðum króna árlega í ríkissjóð, en rann sitt skeið á enda í lok síðasta árs. „Þetta er áhyggjuefni, og þess vegna þarf að vinna í þessu," segir Katrín en hún segir að hugsanlega sé einnig grundvöllur í skattalögum til þess að skoða lánaviðskiptin eins og Kastljós greindi frá, og athuga hvort grípa þurfi þar inní. „Það þarf allavega að skoða þetta betur," segir Katrín sem telur nægilega mikla samstöðu um málið innan þingsins til þess að regluverkið verið styrkt til muna næsta kjörtímabil, hverjir sem fari þá með völdin.Viðbót kl 17:30 Rétt er að taka fram að forsvarsmenn Norðuráls hafna alfarið þeirri fullyrðingu að fyrirtækið borgi nánast enga skatta. Benda þeir á að á síðasta ári hafi Norðurál á Grundartanga greitt hæstu opinber gjöld allra lögaðila, fyrir utan ríki og banka. Þar af var tekjuskattur 1.534 milljónir. Árið 2011 hafi tekjuskatturinn numið 1.282 milljónum. Til viðbótar hafi Norðurál greitt um 1.200 milljónir í fyrirframgreiddan tekjuskatt. Samtals sé því greiddur tekjuskattur síðustu 4 ár um 4.500 milljónir.
Mest lesið Dýpsta októberlægð í rúm sextíu ár í uppsiglingu Innlent Óveður í aðsigi: Líklegt að flug raskist Innlent Alls ekki á móti því að fólk hafi það gott Innlent Skaut konu sína, börn og barnabörn Erlent Hóta að stöðva vopnakaup fyrir Úkraínu Erlent Appelsínugular og gular viðvaranir gefnar út Veður Segir Bjarna hafa valið klæki og ófrið við Eflingu Innlent Akranes og Akureyri dæmi þar sem hættan sé raunveruleg Innlent Vonast til að leysa ráðgátuna um hvarf Ameliu Earhart Erlent Áminnti starfsmann spítalans fyrir að fletta upp sjúkraskrá konu Innlent Fleiri fréttir Dæmdur fyrir skattsvik vegna B Segir að þegar 13 þúsund skrifa undir verði stjórnvöld að hlusta Engin óbirt loforð eða leynilegt samkomulag Óveður í aðsigi: Líklegt að flug raskist Ekkert leynimakk í kjarasamningsgerð og óvenju djúp lægð er á leið til landsins Áminnti starfsmann spítalans fyrir að fletta upp sjúkraskrá konu Hlaut fyrstu verðlaun fyrir rannsókn í sjúkraþjálfun Dýpsta októberlægð í rúm sextíu ár í uppsiglingu Segir Bjarna hafa valið klæki og ófrið við Eflingu Bein útsending: Árleg friðarráðstefna Höfða friðarseturs Steinunn kjörin næsti forseti Alþjóðasamtaka lækna Þrettán þúsund hafa skrifað undir Alls ekki á móti því að fólk hafi það gott Réðust á dreng og tóku af honum hlaupahjól Myndir frá Austurvelli: „Fokkið ykkur úr firðinum“ Nýr meirihluti í Suðurnesjabæ „Við erum ekkert að biðja um einhverja sérmeðferð“ Brotist inn í tvö fyrirtæki Akranes og Akureyri dæmi þar sem hættan sé raunveruleg Of snemmt að segja til um hvernig eldurinn kom upp Hafi verið beggja vegna borðsins „Þetta var algjörlega magnað“ Rispur á bílum út um allan bæ og tjón upp á hundruð þúsunda Bein útsending: Niðurstöður Samtalsins kynntar Uppbyggilegra samtal en í athugasemdum „Sólveig Anna virðist vera með mig algjörlega á heilanum“ Mótmæla sjókvíaeldi í tveimur landshlutum „Ég hef áhyggjur af Alþýðusambandinu“ Spenna fyrir þingi ASÍ og framlög til sjóvarna ekki næg Halla Gunnars svarar fyrir sig á Sprengisandi Sjá meira