Fleiri fréttir

Hugo Chavez berst fyrir lífi sínu

Hugo Chavez forseti Venesúela berst fyrir lífi sínu, að sögn varaforseta landsins, en hann er þungt haldinn eftir nokkrar krabbameinsaðgerðir á síðustu tæpum tveimur árum.

Fylgi Sjálfstæðisflokksins dalar

Stuðningur við Sjálfstæðisflokkinn mælist minni í kjölfar landsfundar en í lok janúar. Framsóknarflokkurinn þarf lítið að bæta sig til að verða stærsti flokkurinn. Fylgi Bjartrar framtíðar hrynur milli skoðanakannana. Vinstri græn virðast heldur vera að ná vopnum sínum.

Flestir gestir í flugi útlendingar

Samkvæmt farþegatölum frá Grímseyjarferjunni Sæfara voru farþegar meira en tvöfalt fleiri í fyrra en þeir voru árið 2007. Farþegar ferjunnar voru 6.535 í fyrra en 3.088 árið 2007. Þetta kemur fram á vef Akureyrarbæjar.

Búið að auglýsa eftir verktökum

Evrópusambandið (ESB) hefur óskað eftir því að Þróunarsamvinnustofnun Íslands leiði jarðhitaleit í Afríku á landamærum Búrúndí, Rúanda og Austur-Kongó. Er þetta gert í kjölfar ákvörðunar ESB um að fjármagna jarðhitaleitina.

Bíða eftir útburði úr hitalausum íbúðum

Íbúar í Vesturvör 27 í Kópavogi segjast nú bíða þess að verða varpað á dyr með allt sitt án þess að eiga í önnur hús að venda. Drómi keypti húsið í fyrra og hyggst rífa það niður. Íbúarnir segja heita vatnið ítrekað hafa verið tekið af húsinu í vetur.

Stytta af Parks á Bandaríkjaþingi

Rosa Parks varð fræg fyrir að neita að standa upp fyrir hvítum manni í strætisvagni. Í gær sagðist Barack Obama eiga það ekki síst baráttu hennar að þakka að hafa getað orðið forseti Bandaríkjanna.

Þekktustu grínistar landsins í glysrokkhljómsveit

Glysrokkhljómsveitin "Hetjurnar,“ hefur staðið í ströngu undanfarnar vikur við að undirbúa nýtt lag og myndband. Einhverjir kunna að spyrja sig hver þessi hljómsveit sé en hún er skipuð mörgum af þekktustu grínistum landsins til að vekja athygli á Mottumars sem hefst formlega á morgun.

Sátu rýnifund vegna bilunar í þotu Icelandair

Fulltrúar viðbragðsaðila á Suðurnesjum og höfuðborgarsvæðinu sátu í dag rýnifund um atvik sem átti sér stað í þotu Icelandair fyrr í vikunni. Bilun varð í vökvaknúnum stjórnbúnaði þotunnar. Samkvæmt nýrri flugslysaáætlun var neyðarástandi lýst yfir á flugvellinum.

Seldi nafn barnsins á netinu - Hvaða nafn velja netverjar?

Þunguð kona í Bandaríkjunum, Natasha Hill, hefur falið netverjum að hlutast til um nafn ófædds barns síns. Þó ótrúlegt megi virðast sóttist hin 26 ára gamla Natasha eftir því að leyfa internetinu að skera úr um nafngiftina. Hún er komin þrjá mánuði á leið.

Gunnar Nelson kominn heim

Hann svaf eins og ungabarn eftir sigurinn eftirminnilega í UFC bardagakeppninn og segist alltaf hafa verið viss um að hann myndi vinna.

Audrey Hepburn snýr aftur til að selja súkkulaði

Frægðarstjarna leikkonunnar Audrey heitinnar Hepburn skein sem skærast á gullöld kvikmyndina um miðbik tuttugustu aldarinnar. Þessi goðumlíka stjarna er snúin aftur og það til að selja súkkulaði.

"Kannabis er ekkert töfralyf“

Mikið hefur verið rætt um lækningamátt kannabisefna enda hefur efnið víða verið notað sem verkjastillandi lyf. Að sama skapi er kannabis talið hafa gefið góða raun í meðferðum sjúklinga sem þjást af krabbameini og taugahrörnunarsjúkdómum.

Dauðinn sem stórkostlegt augnablik

Bresku líknarsamtökin Marie Curie svipta hulunni af nýrri auglýsingaherferð í kvöld. Þar er dauðinn borinn saman við barnsburð en átakið er tilraun til að birta fráfall einstaklings í jákvæðu ljósi, sem álíka stórkostlegt augnablik og fæðingu.

Miklar gleðifréttir fyrir Íslendinga

Olíulindir á norska hluta Jan Mayen-svæðisins, sem Íslendingar eiga rétt á að nýta að hluta, gætu verið yfir fimmtíu þúsund milljarða króna virði, samkvæmt mati sem Olíustofnun Noregs birti í gær. Stjórnarformaður Íslensks kolvetnis segir þetta miklar gleðifréttir. "Nýtt olíuævintýri í norðri" segir í fyrirsögn norska Finansavisen í dag um fréttirnar en þær fjalla einnig um nýtt mat á hluta Barentshafs. Matið yfir norska hluta Jan Mayen-svæðisins snertir Íslendinga vegna 25 prósenta nýtingarréttar, og einnig vegna nálægðar og skyldleika við íslenska Drekasvæðið.

Krúttlegasta björgun í manna minnum

Þyrluflugmaður í Kanada kom hjálparlausu dádýri til bjargar í Nova Scotia í vikunni. Hjartardýrið átti erfitt með að fóta sig á ísilögðu vatni og barðist þar fyrir lífi sínu. Það sem gerir þessa björgun einstaka er sú staðreynd að dádýrið var ekki híft upp og flutt í land, þvert á móti ákvað flugmaðurinn að blása dýrinu hægt yfir ísinn.

Draugaskipið gæti komið að landinu um miðjan mars

Draugaskipið Lyubov Orlova, sem nú rekur um Atlantshafið, er væntanlegt að Íslandsströndum um miðjan mars. Framkvæmdastjóri aðgerðarsviðs Landhelgisgæslunnar segir ljóst að grípa verði til aðgerða ef skipið kemur inn fyrir lögsögu landsins.

Karlmanni bannað að koma nálægt sextán ára stúlku

Hæstiréttur dæmdi í dag 32 ára gamlan karlmann í nálgunarbann. Hann má ekki koma að sextán ára gamalli unglingsstúlku í 50 metra radíus á meðan hún er á meðferðarheimilinu á Stuðlum né heldur þar sem hún er í langtímeðferð eða þar sem hún býr. Hann má heldur ekki hafa samband við telpuna í gegnum netið eða í gegnum sms. Það var barnavernd Reykjavíkur sem fór fram á nálgunarbannið.

Bradley Manning játaði sök

Bandaríski hermaðurinn Bradley Manning, sem sakaður er um að hafa komið leynilegum upplýsingum í hendur WikiLeaks, játaði í dag fyrir rétti að hafa farið ranglega með leynilegar upplýsingar.

Átta ára stelpa keyrir á 100 kílómetra hraða

Myndband af átta ára rússneskri stúlku að keyra bíl í Sánkti Pétursborg í Rússlandi hefur farið eins og eldur um sinu á internetinu síðustu daga. Þar sést stúlkan ná 100 kílómetra hraða á meðan móðir hennar tekur athæfið upp á myndbandsupptökuvél.

Dæmdur í árs fangelsi

Hæstiréttur Íslands staðfesti eins árs óskilorðsbundinn dóm yfir karlmanni fyrir að aka undir áhrifum ávana- og fíkniefna, fyrir að aka próflaus, vopnalagabrot og fleira. Maðurinn hefur margsinnis komist í kast við lögin, meðal annars vegna fíkniefnalagabrota.

Dæmdur fyrir að ganga í skrokk á fyrrverandi sambýliskonu sinni

Karlmaður fæddur 1980 var dæmdur í þriggja mánaða fangelsi skilorðsbundið til fimm ára fyrir að ganga í skrokk á þáverandi sambýliskonu sinni, sem er jafnframt barnsmóðir hans, í október á síðasta ári. Þá var hann einnig dæmdur fyrir að brjóta rúður í bifreið í umsjá konunnar.

Vill matsmenn til þess að skoða raflagnir

Kári Stefánsson, forstjóri Íslenskra erfðagreiningar, hefur krafist þess að dómari kveði til matsmann til þess að taka út raflagnir í nýju húsi sem hann lét byggja í Kópavogi.

"Snýst alls ekki um mína persónu“

Kristján Þór Júlíusson var um helgina endurkjörinn 2. varaformaður Sjálfstæðisflokksins á landsfundi flokksins. Athyglisverð tillaga um breytingu á hlutverki embættisins var lögð fyrir landsfundinn og samþykkt.

Stjórnarskrárfélagið kvartar yfir fundaröð HÍ

Stjórnarskrárfélagið gagnrýnir Háskóla Íslands harðlega fyrir einsleitni við val á framsögumönnum á fundum sem skólinn hefur haldið um fyrirhugaðar breytingar á stjórnarskrá Íslands.

Einstök börn færðu Barnaspítalanum gjafir

Alþjóðlegur dagur sjaldgæfra sjúkdóma er í dag. Félagið Einstök börn tekur þátt í deginum með því að færa Barnaspítala Hringsins gjöf að andvirði 1 milljón króna. Afhending gjafanna fór fram á leikstofu Barnaspítalans við Hringbraut klukkan tvö.

"Við gerum okkar besta"

"Ég er ekki búin að hitta restina af hópnum en mér skilst að það sé mikil bjartsýni hjá mönnum - við gerum okkar besta,“ segir Katrín Jakobsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra. Í kvöld verður tilkynnt hvort það kemur í hlut Reykjavíkur að halda World Outgames leikana árið 2017 eða Miami í Bandaríkjunum.

Ánamaðkur of snemma á ferð

Ánamaðkur, af tegundinni grááni, var heldur snemma á ferðinni þegar hann skreið upp úr moldinni á sunnudaginn var.

Fischer-setrið líklegasta nafnið

"Það er unnið að fullu að undirbúningi, mikil fundarhöld og margir sem koma að þessu. Við erum með arkitekta, verkfræðinga, safnverði og fleira,“ segir Magnús Matthíasson formaður Skákfélags Selfoss.

Páfi í paradís

Þegar Benedikt XVI hefur kvatt kardínála og starfsfólk í Vatíkaninu í dag verður flogið með hann í þyrlu til þorpsins Castel Gandolfo, sem staðsett er rúmum 30 kílómetrum fyrir sunnan Róm.

Hvetja fólk til að setja ICE fyrir framan nánasta ættingja

"Það hefur komið fyrir að við höfum getað nýtt okkur þetta, en það eru ekki mörg tilvik,“ segir Jón Viðar Matthíasson, slökkviliðsstjóri á höfuðborgarsvæðinu. Í gær deildu margir skilaboðum frá sjúkraflutningamönnum á Facebook þar sem fólk var hvatt til að skrifa ICE fyrir framan nánasta ættingjann sinn í símaskránni í símanum sínum. Ef viðkomandi myndi lenda í slysi væri hægt að hafa upp á ættingjanum strax.

Össur fundaði með utanríkisráðherrum NATO-ríkja

Össur Skarphéðinsson sat í gærkvöldi fund utanríkisráðherra ríkja Atlantshafsbandalagsins ásamt utanríkismálastjóra ESB, með John Kerry, nýjum utanríkisráðherra Bandaríkjanna, sem haldinn var í Róm. Á fundinum voru til umræðu öll helstu málefni sem varða samstarf Bandaríkjanna og Evrópu, jafnt á sviði öryggismála sem viðskipta.

Frumleg marijúanabyssa

Skýtur 14 kílóa marijúanapökkum 150 metra yfir landamærin. Lögreglan hafði uppá 24 slíkum pökkum.

Sjá næstu 50 fréttir