Innlent

Fíkniefni eða áfengi í öllum málum lögreglunnar

Fíkniefni eða áfengi komu við sögu í öllum málum, sem komu til kasta lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í gærkvöldi og í nótt.

Fyrst var karlmaður tekinn með fíkniefni á sér, síðan var annar handtekinn eftir að kannabisplöntur fundust á heimili hans, svo var ökumaður tekinn úr umferð vegna ölvunaraksturs, annar aðeins 17 ára vegna fíkniefnaaksturs og loks var ökumaður handtekinn vegna aðildar að umferðaróhappi, grunaður um ölvunarakstur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×