Fleiri fréttir

Syrgðu fjölskylduna í Brooklyn

Mikill mannfjöldi kom saman í Brooklyn-hverfi í New York í dag til minningar um Glauber fjölskylduna sem lét lífið af völdum áreksturs í borginni í gær.

Act Alone, Eistnaflug og Skaftfell tilnefnd

Eyrarrósin, viðurkenning fyrir framúrskarandi menningarverkefni á starfssvæði Byggðastofnunar, verður veitt í níunda sinn þriðjudaginn 12. mars næstkomandi.

Vonskuveður á landinu | Vegurinn um Námaskarð lokaður

Á Norðurlandi er stórhríð og óveður og lítið ferðaveður. Útlit er fyrir áframhaldandi vonskuveður um landið norðanvert í kvöld. Víðast er mikið kóf og skafrenningur. Veginum um Námaskarð hefur verið lokað ótímabundið vegna umferðaóhapps.

Fékk á annað hundrað þúsund króna símreikning eftir netvafur

Íslendingur sem notaði snjallsíma í Bandaríkjunum til að fara á netið fékk á annað hundrað þúsund króna reikning fyrir um tuttugu mínútna notkun. Slík mál koma reglulega upp að sögn forstjóra Tals sem hvetur Íslendinga á faraldsfæti til að huga betur að internetstillingum í tækjum sínum.

Fordæmir matvælaframleiðendur

Formaður Bændasamtaka Íslands segir að þegar matvælaframleiðendur svindli í framleiðslu sinni séu þeir að svíkja tvo hópa, bændur og neytendur. Hann fordæmir vinnubrögð þeirra matvælaframleiðenda sem Matvælastofnun gerði athugasemdir við í síðustu viku.

Bullandi óánægja innan Sjálfstæðisflokksins

Fjölmennt var á fundi Sjálfstæðra Evrópusinna í húsnæði Sterkara Íslands við Síðumúla í Reykjavík í dag. Mikil óánægja er meðal ESB-sinna innan sjálfstæðisflokks eftir að Landsfundur flokksins ályktaði að hætta eigi viðræðum um aðild að ESB.

Undirbúa vantrauststillögu vegna stjórnarskrárfrumvarpsins

Þingmenn Hreyfingarinnar undirbúa vantrauststillögu á ríkisstjórnina útaf stjórnarskrárfrumvarpinu. Framtíð frumvarpsins kann að ráðast á fundi forystumanna stjórnmálaflokkanna á morgun. Þetta kom fram í kvöldfréttatíma Stöðvar 2 í kvöld.

Kvenskælingar gera góðverk

„Við hjá MND félaginu erum svo lánsöm að njóta aðstoðar þessara dugnaðarunglinga þriðja árið í röð," segir Guðjón Sigurðsson formaður MND-félagsins.

Útilokað að jörðin gleypi fólk á Íslandi

"Það er útilokað að jörðin opnist skyndilega hérna og gleypi eitthvað nema á jarðskjálftasvæðum ef menn eru óheppnir,“ segir jarðeðlisfræðingurinn Ari Trausti Guðmundsson.

Eðlilegt að kúka allt frá þrisvar á dag til þrisvar í viku

"Í flestum tilfellum beita menn þessu rétt og hugsa ekki mikið út í þetta. En þetta getur verið vandamál hjá börnum til dmæis með hægðatregðu og getur fylgt fólki út lífið,“ segir Einar Stefán Björnsson, prófessor í meltingarlækningum við Háskóla Íslands.

Peysu stolið frá Axeli Ó

Tilkynnt var um tvö innbrot í Vestmannaeyjum í síðustu viku en brotist var inn í verslunina Axel Ó og veitingastaðinn Lundann.

Allt á kafi á Dalvík

"Það er gjörsamlega allt á kafi hérna," segir Kristján Árnasson hjá Björgunarsveitinni Dalvík. Óhætt er að segja að Kristján og félagar hans á Dalvík hafi staðið í ströngu í dag. Stórhríð er nú á Norðurlandi og ekkert ferðaveður.

Aðgát skal höfð í tannhirðu

Í liðinni viku birtist umdeild grein um mögulegar tannskemmdir af völdum móðurmjólkur. Í kjölfarið vill Embætti landlæknis koma á framfæri tímabærum ráðleggingum til foreldra ung- og smábarna.

Stúlkan heppin að brugðist var rétt við

Magnús Gottfreðsson, smitsjúkdómalæknir á Landspítala Íslands, segir að á síðustu árum hafi komið ný og öflugri lyf í baráttunni gegn HIV-veirunni sem geri fólki kleift að lifa eðlilegu lífi. Lyfjameðferðir gangi töluvert betur nú en fyrir um það bil tíu til fimmtán árum.

Fremsti hönnuður Apple vinnur að þróun snjallúrs

Líklegt þykir að tæknirisinn Apple muni svipta hulunni af nýstárlegu snjall-úri seinna á þessu ári. Fregnir herma að sjálfur Jonathan Ive, helsti hönnuður Apple, hafi umsjón með verkefninu.

Leðurblökumaðurinn berst gegn glæpum í Bradford

Nýjasti starfskraftur lögreglunnar í Bradford í Bretlandi er ekki af verri endanum. Sjálfur Leðurblökumaðurinn mætti á varðstofuna í dag og með eftirlýstan glæpamann í eftirdragi.

Ungabarnið lést sólarhring á eftir foreldrunum

Barnið sem kom í heiminn eftir að foreldrar þess létust í bílslysi í New York um helgina er látið. Foreldrarnir, Nachman og Raizy Glauber, voru á leiðinni á spítala í gær þegar leigubíll sem þau voru í lenti i alvarlegum árekstri í Brooklyn. Læknar gerðu keisaraskurð og móðurinni til þess að reyna að bjarga barninu. Barnið dó hins vegar klukkan hálfellefu í morgun að íslenskum tíma. Móðirin, Raizy Glauber, var gengin sjö mánuði á leið þegar bílslysið varð. Hún fann fyrir verkjum og því ákvað parið að panta sér leigubíl og fara á spítalann.

"Bara þetta venjulega íslenska leiðindaveður“

"Þetta er bara þetta venjulega íslenska leiðindaveður,“ segir Einar Þór Strand, formaður Björgunarsveitarinnar Berserkir á Stykkishólmi. "Það var bara kominn tími á þetta.“

Berfættur og ölvaður skemmdarvargur handtekinn

Karlmaður var handtekinn á Ísafirði um helgina eftir að hafa valdið skemmdum á bifreiðum sem lagt hafði verið við sjúkrahúsið í bænum. Lögreglan fann manninn, sem er ungur að árum, á hlaupum í bænum, berfættur og ölvaður.

Sviðsetti mannrán til að forðast heift kærustunnar

Tæplega fertugur Bandaríkjamaður í New York hefur verið ákærður fyrir að hafa afvegaleitt lögreglu með því að skipuleggja sitt eigið mannrán. Maðurinn, sem heitir Rahmell Pattway og er lýst sem góðkunningja lögreglunnar, fannst á bílastæði í borginni á dögunum.

Sprengjuhótunin var gabb

Skrifleg sprengjuhótun sem barst í byggingu Árósarháskóla við Tåsingegade var gabb. Það er niðurstaða lögreglunnar á Austur-Jótlandi eftir að hafa leitað í byggingunum. Hótunin barst klukkan 7:41 að staðartíma. Á vef háskólans segir að nemendur geti nú snúið aftur til starfa.

"Við höfum ekki lent í þessu áður"

"Við höfum ekki lent í þessu áður,“ segir Þorgrímur Óli Sigurðsson, aðstoðaryfirlögregluþjónn á Selfossi um 170 lítra af landa sem fundust grafnir í jörðu í Hrunamannahreppi á dögunum.

Ekki hægt að klára stjórnarskrármálið

Árni Páll Árnason, formaður Samfylkingarinnar, telur að einsýnt að ekki verði hægt að klára stjórnarskrármálið í heild sinni á þessu kjörtímabili. Árni lýsti þessu yfir á föstudag en hann vill reyna skapa sátt um að klára einstaka hluta fyrir kosningar.

Álagið á kennara eykst

Nýjar tölur Hagstofunnar sem sýna að kennurum, leiðbeinendum og öðru starfsfólki grunnskóla fer fækkandi kemur Ólafi Loftssyni, formanni Félags grunnskólakennara ekki á óvart.

Gróf landann ofan í jörðu

Lögreglan á Selfossi fékk ábendingu um að talsvert magn af landa hefði fundist grafinn í jörðu á bæ í Hrunamannahreppi. Holan var um tveir metrar á lengd og einn metri á breidd klædd að innan með krossviði og tyrft yfir.

Umferð ekki meiri síðan metárið 2008

Akstur á höfuðborgarsvæðinu hefur ekki verið jafn mikill tvo fyrstu mánuðina síðan metárið 2008. Á vef Vegagerðarinnar kemur fram að umferðin á höfuðborgarsvæðinu jókst mikið í febrúar rétt einsog reyndin var með Hringveginn. Aukningin í þremur mælisviðum Vegagerðarinnar nemur 3,3 prósentum í febrúar. Aukning varð enn meiri í janúar.

Leita að vitnum að árekstri

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu óskar eftir vitnum að umferðaróhappi sem varð á gatnamótum Nýbýlavegar, Þverbrekku og Ástúns í Kópavogi klukkan 10.02 miðvikudagsmorguninn 27. febrúar. Þar rákust saman dökkgrár Hyundai Getz og svartur Ford Focus, en ökumönnunum ber ekki saman um stöðu umferðarljósa.

Kennarar með réttindi aldrei fleiri

Aldrei áður í mælingum Hagstofunnar hefur hlutfall kennara með kennsluréttindi mælst hærra í grunnskólum landsins. Á árunum 1998-2008 var hlutfall réttindakennara á bilinu 80-87%. Haustið 2011 voru 95,5% kennara með kennsluréttindi og síðasta haust voru 95,9% kennara með kennsluréttindi. Samkvæmt tölum Hagstofunnar voru síðasta haust 198 manns við kennslu án kennsluréttinda og er það mikil breyting frá haustinu 2002 þegar 931 einstaklingur án réttinda vann við kennslu í grunnskólum landsins.

Byrjuðu á verðinu

Nýi CLA bíll Benz á að höfða til ungs fólks og verðið vestanhafs er 29.900 dollarar. Er framleiddur í Ungverjalandi til að halda niðri verði hans.

Háskólinn í Árósum rýmdur vegna sprengjuhótunar

Búið er að rýma og loka flestum byggingum háskólans í Árósum vegna sprengjuhótunnar. Ákveðið var að loka skólanum eftir að handskrifað bréf með hótuninni fannst á skrifstofu skólans. Lögreglan er nú að leita að hugsanlegri sprengju í skólanum.

Óvært víða á landinu vegna óveðurs

Slæmt ferðaveður og færð er víðast hvar á Vestfjörðum. Ófært er á Steingrímsfjarðarheiði, Þröskuldum og Klettshálsi. Þæfingur og stórhríð er svo á Mikladal og Hálfdán en þungfært er á Kleifaheiði og Gemlufallsheiði.

Gengi breska pundsins í frjálsu falli

Breska pundið hefur verið í frjálsu falli á alþjóðlegum gjaldeyrismörkuðum frá því um áramótin. Gengi pundsins hefur fallið um 10% gangvart krónunni á þessum tíma.

Sjá næstu 50 fréttir