Vonskuveður á landinu | Vegurinn um Námaskarð lokaður 4. mars 2013 19:22
Á Norðurlandi er stórhríð og óveður og lítið ferðaveður. Útlit er fyrir áframhaldandi vonskuveður um landið norðanvert í kvöld. Víðast er mikið kóf og skafrenningur. Veginum um Námaskarð hefur verið lokað ótímabundið vegna umferðaóhapps. Í tilkynningu frá Vegagerðinni kemur fram að ófært sé á Þverárfjalli, Vatnsskarði, Siglufjarðarvegi, Héðinsfirði, Ólafsfjarðarmúla, Dalvíkurvegi, Grenivíkurvegi, Víkurskarði, Hólasandi og Hófaskarði. Þæfingur og stórhríð er á Öxnadalseiði og í Ljósavatnsskarði. Hálka eða snjóþekja er á flestum öðrum leiðum, stórhríð og óveður. Slæmt ferðaveður og færð er á Vestfjörðum. Ófært er á Steingrímsfjarðarheiði, Þröskuldum og Klettshálsi. Hálka og skafrenningur er svo á Mikladal og Hálfdán. Hálka er einnig á Kleifaheiði. Þæfingur og skafrenningur er frá Súðavík í Mjóafjörð en þungfært í Ísafirði. Stórhríð er í Önundarfirði, Súðavíkurhlíð og í Reykhólasveit. Á Austurlandi er þæfingur og stórhríð á Háreksstaðaleið og á Vopnafjarðarheiði en snjóþekja og óveður á Möðrudalsöræfi. Þá er ófært og stórhríð á Fjarðarheiði og ekkert ferðaveður. Hálkublettir og skafrenningur eru á Fagradal en hálkublettir og éljagangur á Oddsskarði annars er komið víða snjóþekja og stórhríð á Héraði. Greiðfært er með ströndinni til Reykjavíkur. Austantil á Norðurlandi og á Austfjörðum gengur vindur aðeins niður í nótt austantil, en áfram verður stormur eða um og yfir 20 m/s til fjalla vestantil á Norðurlandi og á Vestfjörðum suður um í Dali og á Snæfellsnesi. Á Kjalarnesi má reikna með hviðum, 30-35 m/s, fram á kvöldið og á sunnanverðu Snæfellsnesi til fyrramáls. Færð og aðstæðurHálkublettir eru á Lyngdalsheiði og Laugarvatnsvegi en annars eru vegir að mestu auðir á Suðurlandi, óveður er á Kjalarnesi. Á Vesturlandi er hálka eða hálkublettir nokkuð víða, él og skafrenningur. Hálka og óveður er á Bröttubrekku, Holtavörðuheiði og í Staðarsveit. Hálka og skafrenningur er um Fróðárheiði. Ófært og óveður er í Svínadal og lítið ferða veður.
Mest lesið Þingmaðurinn hefði mögulega ekki átt að taka Íbúfen Innlent Viðurkennir mistök við skipan Jafnréttissjóðs Innlent Lögreglan biðlar til fólks að flýta ferðum eða bíða Innlent „Þeir samþykktu, af því að ég segi að þeir samþykktu“ Erlent Fjöldi hafi sagt upp og fleiri íhugi stöðu sína Innlent „Ég skil hvað hún á við, en þannig virkar rekstur ekki“ Innlent Þurftu að kyrrsetja flugvél vegna veggjalúsa Erlent Vilja borga fyrir eftirlit með au pair Innlent „Maður undirbýr sig fyrir það versta“ Innlent Rannsaka dauðsfall í rússíbana í Six Flags Erlent Fleiri fréttir Air Atlanta vinnur áhættumat vegna árása Húta Baráttan um varaforsetana: Valdabrölt eða samsæriskenningar? Salmonella greindist í kryddi Kokku Frumvarp um Ríkisútvarp gagnrýnt harðlega í samráðsgátt Stjórnarandstaðan segir „forfallavírus“ ganga meðal ráðherra Vilja borga fyrir eftirlit með au pair Pawel tekur við af Sigmari sem þingflokksformaður Þingmaðurinn hefði mögulega ekki átt að taka Íbúfen Leita ökumanns sem ók á dreng á reiðhjóli „Þá tökum við auðvitað tillit til þess og hlustum“ Mögulegar rafmagnstruflanir í stórhríðinni Lægðin hefur alla burði til að verða söguleg Viðurkennir mistök við skipan Jafnréttissjóðs Fjöldi hafi sagt upp og fleiri íhugi stöðu sína „Maður undirbýr sig fyrir það versta“ Synjað um heimilisuppbót vegna sameiginlegrar þvottavélar og snyrtingar Vona að ágreiningur liti ekki þing ASÍ Háskólarnir verði betur tengdir með breyttri strætóleið Lögreglan biðlar til fólks að flýta ferðum eða bíða „Ég skil hvað hún á við, en þannig virkar rekstur ekki“ Ákveðið álag sem maður sé undir án þess að fatta það Undirmönnun hjúkrunarfræðinga tengist dánartíðni sjúklinga Sinntu útkalli þar sem grindverk hafði fokið fyrir akbraut Dómurinn segi ekki alla söguna Yfir sjötíu prósent óánægja með Ingu Sæland Leita enn að einum eftir alvarlega líkamsárás Höfuðpaur Reykholtsmálsins fær átta ára dóm Segir kollega sína á þingi hafa framið húsbrot í fylleríisferð fyrir austan Skipuð formaður Jafnréttissjóðs Dæmdur fyrir skattsvik vegna B Sjá meira