Fleiri fréttir

Stakk mann og var sleppt eftir játningu

Tveir piltar, sautján til átján ára, lentu í átökum í miðbæ Vestmannaeyja á öðrum tímanum aðfaranótt sunnudags sem lyktaði með því að annar þeirra stakk hinn með vasahníf.

Má krefjast skattframtals

Fjölskylduhjálp Íslands er heimilt að krefja þá sem leita matarstoðar hjá félaginu um afrit af skattframtali.

Munntóbakið valdi hrinu krabbameina

Krabbameinslæknir óttast að afleiðingar munntóbaksnotkunar ungmenna muni koma fram síðar í aukinni tíðni alvarlegra krabbameina hjá fólki á besta aldri. Umræðan nú sé eins og tíðkaðist um sígarettur fyrir þrjátíu árum.

Dásamlegt að fá loks sólargeisla á pallinn

Langþráð síðdegissólin skein loks á verönd Þóreyjar Þórðardóttur í Víðihvammi í Kópavogi þegar hálfrar aldar grenitré voru söguð niður eftir dóm Hæstaréttar.

Markmiðið hlýtur að vera að dæla upp olíu

Umhverfisráðherra sem og þeir stuðningsmenn ríkisstjórnarinnar sem til máls tóku lýstu efasemdum um olíuleit í þingumræðum í dag um Drekasvæðið. Einar K. Guðfinnsson, sem hóf umræðuna, spurði atvinnuvegaráðherra hvert markmiðið væri með olíuleitinni sem búið væri að leyfa. Steingrímur J. Sigfússon svaraði að markmiðið væri að kanna hvort líkur væru á að olíu eða gas væri að finna í vinnanlegu magni á íslenska landgrunninu. Formaður Framsóknarflokksins benti á að ráðherrann viðurkenndi ekki að markmiðið með sérleyfunum væri olíuvinnsla. "Þá hlýtur auðvitað markmiðið að vera það, ef slíkar lindir finnast, að fara að dæla upp olíunni og gasinu. Og það hlýtur að vera hægt að viðurkenna það."

Hlakkar til að faðma dætur sínar

Guðmundur Felix Grétarsson er til umfjöllunar á vefsíðu fréttastofunnar Reuters, en hann bíður nú eftir að komast í handaágræðslu í Frakklandi.

Hjúkrunarfræðingar fá tveggja daga frest

Frestur sem hjúkrunarfræðingum var gefinn til að draga uppsagnir sínar til baka var framlengdur til fimmtudags. Fundi hjúkrunarfræðinga með viðsemjendum sínum, sem fram fór í kvöld, hefur verið frestað til morguns. Dragi hjúkrunarfræðingarnir til baka uppsagnir sínar í tæka tíð munu þeir fá eingreiðslu upp á allt að 30 þúsund krónur fyrir þrjá mánuði.

Bill Gates elskar ostborgara

Auðjöfurinn Bill Gates situr nú fyrir svörum á vefsíðunni Reddit.com, en reglulega geta notendur síðunnar dembt spurningum sínum yfir heimsþekkta einstaklinga.

Læk-hnappurinn illa fenginn?

Ekkja hollenska forritarans Joannes Jozef Everardus Van Der Meer hefur höndað mál á hendur Facebook fyrir brot á einkaleyfalögum.

„Við ætlum að lækka skatta“

"Það skiptir svo miklu máli að fá ný störf. Ekki bara fyrir hagsæld heimilanna heldur líka fyrir ríkissjóð,“ sagði Bjarni Benediktsson formaður Sjálfstæðisflokksins í samtali við Reykjavík síðdegis í dag.

Ákæruliðum vísað frá gegn manninum sem ætlaði að flytja inn í Ráðherrabústaðinn

Hæstiréttur Íslands staðfesti frávísunarúrskurð Héraðsdóms Reykjavíkur um að vísa frá þremur ákæruliðum af fjórum gegn karlmanni sem var ákærður fyrir að brjótast inn í Ráðherrabústaðinn við Tjarnargötu árið 2011. Ástæðan er sú að frestur til þess að kæra manninn var liðinn nema í síðasta tilvikinu, sem var ágúst árið 2011.

Lögreglan lýsir eftir Piotr

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir Piotr Burzykowski, 24 ára. Þeir sem geta gefið upplýsingar um ferðir Piotr, eða vita hvar hann er niðurkominn, eru vinsamlegast beðnir um að hafa samband við lögregluna í síma 112.

Tvær látnar eftir skotárás vestanhafs

Tvær konur létust í skotárás við dómshúsið í bænum Wilmington í Delaware fyrir stundu. Maður vopnaður byssu lést af skotskári skömmu síðar.

Nýr páfi valinn fyrir páska

Búist er við því að nýr páfi verði kjörinn fyrir páska. Þessar upplýsingar hefur BBC fréttastofan frá Vatíkaninu. Eins og fram kom í fréttum fyrr í dag hefur Benedikt sextándi tilkynnt að hann muni segja af sér, en hann ætlar að hætta í lok febrúar. Páskadagur er síðasti dagurinn í mars.

Strangar reglur um val á páfa

Þegar Benedikt páfi lætur af störfum þann 28. febrúar þarf að huga að því að velja nýjan leiðtoga fyrir 1,2 milljarða kaþólikka um heim allan.

Þarf að greiða 20 þúsund þökk sé einu símtali

Lögreglan á Vestfjörðum stöðvaði tvo ökumenn í síðustu viku fyrir að tala í farsíma án þess að nota handfrjálsan búnað. Í báðum tilvikum var um að ræða ökumenn sem óku um götur Ísafjarðar.

Kjötframleiðendurnir segjast hafa verið gabbaðir

Hvorki Findus, sem framleiðir vinsælt lasagna, né Comigel, sem selur Findus kjöt í lasagnað, segjast bera ábyrgð á því að lasagnað hafi verið með hrossakjöti. Eins og fram hefur komið er grunur um að hrossakjöt og jafnvel kjöt af ösnum hafi verið notað í tilbúna rétti í stað nautakjöts. Vörur hafa verð innkallaðar, meðal annars hér á landi, vegna þessa hneykslis.

Túrbínuvandi

Ef túrbínubílum er ekið rösklega rýkur eyðsla þeirra upp.

Sakar Gylfa um kerfisbundnar rangfærslur

Heiðar Már Guðjónsson hagfræðingur gagnrýnir Gylfa Magnússon, dósent við Háskóla Íslands og fyrrverandi viðskiptaráðherra, harðlega í innsendri grein í Fréttablaðinu í morgun.

Fleiri ánægðir með störf forsetans

Almenningur er ánægðari með störf forseta Íslands, Ólafs Ragnars Grímssonar, samkvæmt nýjustu könnun MMR. Það er nokkuð fyrirsjáanlegt að ánægjan jókst töluvert í kjölfar niðurstöðunnar í Icesave-málinu.

Morðingi Bulger „enn hættulegur"

Móðir James Bulger telur þá sem fremja alvarlega glæpi þurfa þyngri refsingar. Tuttugu ár eru liðin frá því tveggja ára sonur hennar var myrtur í Liverpool á Englandi.

Yfir 80% hafa farið á námskeið í skyndihjálp

Tæplega 83 prósent hafa farið á námskeið í skyndihjálp, þar af tæplega 31 prósent á síðustu þremur árum. Tæplega fimmtungur hefur aldrei sótt námskeið í skyndihjálp. Þetta kemur fram í könnun sem Capacent Gallup gerði fyrir Rauða krossinn í janúar. Niðurstöðurnar eru birtar í dag í tilefni af 112 deginum. Það þarf kannski ekki að koma á óvart að þeir sem hafa farið á námskeið í skyndihjálp treysta sér miklu fremur en aðrir til að veita bráðveikum eða alvarlega slösuðum skyndihjálp. Það á sérstaklega við um þá sem hafa farið á námskeið á síðustu þremur árum.

Ísland í dag: Hingað koma börn sem geta ekki búið heima hjá mömmu og pabba

Um 350 börn eru í fóstri á Íslandi í dag, börn sem af einhverjum ástæðum geta ekki búið heima hjá mömmu og pabba og þau eru frá 0-18 ára. Það reynist eflaust mörgum erfitt að skilja að á okkar litla landi séu börn sem eiga enga aðstandendur sem geta annast þau, en það gerist. Og hvað þá? Við kynnum okkur Vistheimilið á Laugarásvegi í Íslandi í dag í kvöld.

Fékk svikapóst sendan frá póstfangi danska skattsins

Ung kona fékk bréf frá danska skattinum í morgun þar sem því var lofað hún fengi 25 þúsund íslenskar krónur endurgreiddar frá danska ríkinu. "Ég hélt að þetta væri svona tax refund,“ segir konan sem Vísir ræddi við en hún segist hafa farið til Danmerkur í helgarferð fyrir allnokkru og tengdi því póstinn við þá ferð.

Benedikt sextándi segir af sér

Benedikt sextándi páfi ætlar að segja af sér embætti. Ítalskir fjölmiðlar greina frá þessu í dag. Hann ætlar að hætta þann 28. febrúar næstkomandi.

Teknir með þrjú kíló af amfetamíni - Földu það í dós með barnamat

Tveir karlmenn á fertugsaldri sitja nú í gæsluvarðhaldi vegna rannsóknar lögreglunnar á Suðurnesjum á smygli á þremur kílóum af amfetamíni til landsins. Tollgæslan stöðvaði för mannanna í Flugstöð Leifs Eiríkssonar vegna gruns um að þeir væru með fíkniefni með sér.

Ný ljós Audi ólögleg

Lög um ljósabúnað bíla í Bandaríkjunum leyfa ekki þessa nýju tækni Audi.

Eðlilegar aðstæður miðað við árstíma

Myndband sem tekið var úr lofti af öldugangi við Landeyjahöfn í síðustu viku vakti töluverða athygli. Forsvarsmenn Siglingastofnunar segja um eðlilegar aðstæður að ræða miðað við árstíma.

Mafían talin tengjast hrossakjötshneykslinu

Hrossakjötshneykslið sem hófst nýlega í Bretlandi verður stöðugt umfangsmeira. Nú er mafían í tveimur löndum sögð tengjast því og grunsemdir eru uppi um að kjöt af ösnum hafi einnig verið notað í tilbúna rétti í stað nautakjöts.

Drápssnigillinn þolir vel vetrarhörkur

Ný rannsókn leiðir í ljós að Spánarsnigillinn, einnig kallaður drápssnigillinn í Danmörku, á auðvelt með að lifa af í vetrarhörkum, jafnvel þegar frostið fer niður í 14 stig.

Umhverfis- og samgöngunefnd fundar um síldardauðann

Síldardauðinn í Kolgrafafirði verður til umfjöllunar í Umhverfis- og samgöngunefnd í dag. Fulltrúar frá Hafrannsóknarstofnun og Umhverfisstofnun munu sitja fundinn. Hátt í fimmtíu þúsund tonn af síld drapst í firðinum, fyrst í desember á síðasta ári og aftur nú í febrúar. Niðurstöður úr rannsóknum Hafró benda til þess að súrefnisskortur hafi verið banamein síldarinnar.

Kvennaathvarfið flutt

Á laugardaginn flutti Kvennaathvarfið í nýtt hús sem keypt var og endurbætt fyrir gjafa- og söfnunarfé. Lengi hafði verið stefnt að flutningum en gamla húsið við Hverfisgötuna var fyrir nokkru hætt að rúma starfsemina á viðunandi hátt samkvæmt tilkynningu frá Kvennaathvarfinu.

Skartgripum stolið úr heimahúsi

Skartgripum og öðrum munum, að heildarverðmæti á aðra milljón króna, var stolið í innbroti í heimahús á Suðurnesjum á dögunum. Sá eða þeir sem þar voru að verki höfðu spennt upp glugga á húsnæðinu sem snéri út að svölum, að því er fram kemur í tilkynningu frá lögreglunni. Húsráðandi kom að útidyrahurðinni ólæstri og grunaði þá þegar að ekki væri allt með felldu. Það fékk hann staðfest þegar inn var komið.

Biophilia fékk Grammy-verðlaunin fyrir hönnun

Biophilia, plata Bjarkar, fékk bandarísku Grammy-verðlaunin í nótt fyrir hönnun. Það voru þeir Michael Amzalag og Mathias Augstyniak sem fengu verðlaunin fyrir hönnunina.

Sjá næstu 50 fréttir