Ákæruliðum vísað frá gegn manninum sem ætlaði að flytja inn í Ráðherrabústaðinn 11. febrúar 2013 16:54 Ráðherrabústaður.
Hæstiréttur Íslands staðfesti frávísunarúrskurð Héraðsdóms Reykjavíkur um að vísa frá þremur ákæruliðum af fjórum gegn karlmanni sem var ákærður fyrir að brjótast inn í Ráðherrabústaðinn við Tjarnargötu árið 2011. Ástæðan er sú að frestur til þess að kæra manninn var liðinn nema í síðasta tilvikinu, sem var ágúst árið 2011. Maðurinn, sem er um fertugt, braust einnig tvívegis inn í Ráðherrabústaðinn í janúar árið 2011. Síðasta innbrotið var í ágúst síðastliðnum, en þá braut hann rúðu í kjallara hússins. Í öll skiptin dvaldi maðurinn í bústaðnum þar til lögreglu bar að og handtók hann. Maðurinn, sem hefur margsinnis komist í kast við lögin, meðal annars fyrir ofbeldisbrot, er heimilislaus. Fyrir þar síðustu jól tók hann reyndar upp á því að skrá lögheimili sitt í Ráðherrabústaðinn, en staðreyndin er sú að hver sem er getur skráð lögheimili sitt hvar sem er, svo lengi sem það er í íbúðarhúsnæði. Eftir að maðurinn hafði ítrekað brotist inn í húsið breytti þjóðskrá skráningu mannsins. Í niðurstöðu héraðsdóms er það staðfest að það sé forsætisráðherrann sjálfur, sem fer ræður yfir eigninni, en ekki fjármálaráðherra eins og verjandi mannsins hélt fram. Því gerir embættið skaðabótakröfu á hendur manninum, en krafist er tæplega 800 þúsund krónur í bætur. Það hrekkur þó skammt miðað við þá fjárhæð sem maðurinn telur ríkið skulda sér. Í frétt um málið á Stöð 2 árið 2011 kom fram að maðurinn álíti sem svo að ríkið skuldi honum svimandi háa upphæð - og vildi hann með þessu athæfi vekja athygli á því en hann hefur gert kröfu á hendur ríkisins upp á 14,7 milljónir evra - sem jafngildir röskum tveimur milljörðum króna.
Mest lesið Óveður gengur yfir landið Innlent Ráðist inn í skóla og veist að nemendum eða starfsfólki Innlent Ekki lengur hægt að treysta island.is í blindni Innlent Undirbúa Litla spítalann við Háaleitisbraut Innlent Lentu í öldugangi við Reynisfjöru Innlent Setja á ráðningarbann og lækka greiðslur til bæjarfulltrúa Innlent Litli spítalinn án samnings og ráðherra sér ekkert svigrúm Innlent Brösugleg byrjun hjá nýjum talsmanni Trumps Erlent Deilur við Höllu eigi sér langa sögu Innlent Fjöldi hafi sagt upp og fleiri íhugi stöðu sína Innlent Fleiri fréttir Valhöll skrefi nær því að verða níutíu herbergja hótel Lentu í öldugangi við Reynisfjöru Skildu þýfið eftir á vettvangi í stolnum bíl Vandinn heimatilbúinn og vill sleppistæði Með gaddakúlu og sprautunálakylfu „Það væri mjög miður“ Litli spítalinn án samnings og ráðherra sér ekkert svigrúm Kallar 25 ára þak á verðtryggð lán sýndarmennsku Ráðist inn í skóla og veist að nemendum eða starfsfólki Óþolandi leyndarhyggja ríki um niðurstöður PISA-prófa Vill skýr viðbrögð við trassaskap í losunarmálum í lög Vilja hækka akstursgjald eldra fólks um allt að 163 prósent Aðeins talið sannað að Andri hafi beitt leigjandann ofbeldi Ekki lengur hægt að treysta island.is í blindni „Það andar ekki köldu á milli mín og neinna annarra“ Hreyfingin stærri en einstakar persónur Aftakaveður gengur yfir landið og búist við vegalokunum vegna ófærðar Setja á ráðningarbann og lækka greiðslur til bæjarfulltrúa Deilur við Höllu eigi sér langa sögu Inga vill áfram banna atvinnumannahnefaleika Vatnið finni sér leið í gegnum sprungur Bein útsending: Stormur við setningu ASÍ-þings „Útlit fyrir að þetta sé allt að ganga eftir“ Undirbúa Litla spítalann við Háaleitisbraut Tilkynnt um líkamsárás í miðbænum Óveður gengur yfir landið Kröfur sem einstaklingum er ómögulegt að uppfylla Vikan lengdist og auglýsingahlé urðu tíðari Heppin móðir á Suðurlandi vann 42 milljónir Hvetur verkalýðshreyfinguna til samstöðu Sjá meira