Fleiri fréttir

Álitin þunglynd en reyndist vera með krabbamein í ristli

Matthildur Kristmannsdóttir var álitin þunglynd þegar hún leitaði ítrekað til læknis vegna veikinda. Í viðtali við Fréttatímann, sem kemur út á morgun, kemur fram að þremur árum eftir að hún leitaði sér fyrst hjálpar kom í ljós að Matthildur var alls ekki þunglynd - heldur með krabbamein.

Kínverskir hakkarar ítrekað ráðist á New York Times

Bandaríska stórblaðið New York Times greinir frá því í kvöld að það hafi ítrekað orðið fyrir tölvuárásum síðan í haust. Forsvarsmenn blaðsins eru þess fullvissir að kínversk yfirvöld séu á bak við árásina. Utanríkisráðuneyti Kína hafnar reyndar ásökunum staðfastlega og talsmaður ráðuneytisins segir Kína einnig fórnarlamb tölvuglæpa.

Sendiherra Bandaríkjanna breyttist í uppvakning

Uppvakningar eru ekki dagleg sjón á götum Reykjavíkur en hópur þeirra safnaðist saman á Hlemmi síðdegis. Þeirra á meðal var sendiherra Bandaríkjanna á Íslandi sem segir mikilvægt að eiga góð samskipti við íslenska uppvakninga.

Laun hjúkrunafræðinga hækkar um 25 þúsund á mánuði

Forstjóri Landspítalans ætlar að hækka laun hjúkrunarfræðinga spítalans í samræmi við framlag ríkisstjórnarinnar sama hvort þeir samþykkja hækkunina eða ekki. Laun þeirra hækka um tuttugu og fimm þúsund krónur á mánuði að meðaltali.

Nýtt kvótafrumvarp komið fram

Steingrímur J. Sigfússon atvinnuvega- og nýsköpunarráðherra lagði í dag fram frumvarp til breytinga á fiskveiðistjórnunarkerfinu. Málið er eitt það stærsta sem ríkisstjórnin hefur haft til umfjöllunar á kjörtímabilinu. Á síðasta ári var samþykkt frumvarp til breytinga á veiðileyfagjöldum en ákveðið var að bíða með breytingar á fiskveiðistjórnunarkerfinu. Alls óvíst er að þingið nái að afgreiða frumvarpið fyrir kosningar, sem eru í lok apríl.

Skyactive kerfi Mazda það grænasta

Hinar ýmsu stofnanir og tímariti keppast við að verðlauna umhverfisvæna bíla framleiðendanna. Bílar eins og Chevrolet Volt, Nissan Leaf og Ford C-Max Energy hafa hlotið slík verðlaun. Tímaritið Green Car Journal horfir á umhverfismálin í víðari skilningi og verðlaunaði fyrir skömmu þá heildarlausn framleiðendanna sem skilar mestum árangri í umhverfisvernd. Þau verðlaun hlaut Skyactive kerfi Mazda nú. Í því felast ekki bara einstaklega eyðslugrannar Skyactive vélar Mazda heldur einnig þróun léttbyggðra bíla með lága loftmótsstöðu. Mazda hafði undir marga verðuga andstæðinga í þessu vali, meðal annars vélbúnað Fisker Karma og Tesla rafbílaframleiðandanna, Ford Energi plug-in hybrid kerfið, Fiat Multiair, Honda Eco Assist, Toyota RAV4 EV bílana og Nissan Easy-Fill Tire Alert, sem hjálpar ökumönnum að hafa ávallt réttan þrýsting í hjólbörðunum. Green Car Journal veitir einnig verðlaun í nóvember ár hvert fyrir umhverfisvænansta bíla ársins og í fyrra hlaut Ford Fusion þau verðlaun.

Einar Boom vill fá afsökunarbeiðni

"Mér finnst að þeir sem komu að málinu, lögregla og ákæruvald, ættu að biðja mig opinberlega afsökunar,“ segir Einar Ingi Marteinsson, eða Einar Boom eins og hann er að öllu jafnaði kallaður.

Sýnist að dómurinn geti haft áhrif á störf mannanafnanefndar

Trausti Fannar Valsson lögfræðingur, sem sæti á í mannanafnanefnd, telur að dómur sem féll í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag í máli Bjarkar Eiðsdóttur, fyrir hönd dóttur sinnar gegn íslenska ríkinu, muni hafa áhrif á störf nefndarinnar.

BAFTA-tilnefningum Íslendinga fjölgar

Stuttmyndin Tumult, með Ingvari E-Sigurðssyni, Gísla Erni Garðarssyni og Ívari Erni Sverrissyni, hefur verið tilnefnd til bresku kvikmyndaverðlaunanna BAFTA sem besta stuttmyndin.

Hjúkrunarfræðingar komnir með lokaboð frá ríkisvaldinu

Hjúkrunarfræðingum hefur verið tilkynnt hvað ríkisvaldið er tilbúið að ganga langt til að bæta launakjör þeirra hjá Landspítalanum. Elsa B. Friðfinnsdóttir formaður Félags hjúkrunarfræðinga var boðuð á fund í fjármálaráðuneytinu í gær þar sem því var skýrt komið á framfæri hvað stjórnvöld væru reiðubúin að setja í jafnlaunaátak stjórnvalda og sú afstaða var síðan ítrekuð á fundi samráðsnefndar spítalans í morgun.

Enginn möguleiki á að úrslitum hafi verið lekið

"Það er enginn möguleiki á því, vinnulagið og verklagið tryggir það. Það sem birtist í nafnlausum slúðurdálki í einu blaði er ekki beint áríðandi," segir Eysteinn Eyjólfsson, upplýsingafulltrúi Samfylkingarinnar, aðspurður hvort að mögulegt sé að úrslitum í formannskjöri flokksins hafi verið lekið til fjölmiðla.

Sex ára dreng enn haldið í neðanjarðarbyrgi

Í neðanjarðarbyrgi, einhvers staðar undir rauðum moldarveginum á myndinni hér til hliðar, hefur sex ára gömlum dreng verið haldið í gíslingu síðan á þriðjudag.

SMÁÍS hafnar ásökunum um stuld

Snæbjörn Steingrímsson, framkvæmdastjóri SMÁÍS, segir það af og frá að samtökin noti hugbúnað í leyfisleysi, en Viðskiptablaðið greinir frá því í dag að ekki hafi verið staðið við samning milli samtakanna og NICAM í Hollandi.

"Óvíst hvað á að gera við skepnuna Facebook“

"Megingrundvallarreglan er sú að það má ekki taka saman lista yfir menn sem menn gruna um ákveðin afbrot og birta með opinberum hætti eða á opinberum vettvangi,“ segir Hörður Helgi Helgason lögmaður hjá Landslögum.

Styrmir Þór sýknaður í Exeter-málinu

Styrmir Þór Bragason, fyrrverandi forstjóri MP banka, var sýknaður í dag af ákæru um umboðssvik vegna svokallaðrar Exeter fléttu. Allur málskostnaður fellur á ríkissjóð.

Can use the name Blaer

A judge at the Reykjavik District Court has ruled that it is permissible to use the name Blær for a girl. The Names Committee had concluded that the name is a man's name. The courtroom was crowded when the ruling was announced.

"Loksins komin með Blæ í vegabréfið mitt"

"Ég var að búast við því að vinna, ég var alltaf jákvæð," sagði Blær Bjarkardóttir við fjölmiðla nokkrum mínútum eftir að dómari úrskurðaði að heimilt sé fyrir konur að heita nafninu Blær. Mannanafnanefnd hafði áður úrskurðað að nafnið væri karlkyns.

Næringarfræðingur segir próteinbita dulbúið sælgæti

"Það eitt að bæta próteini við vöru gerir hana ekki að hollustuvöru,“ segir næringarfræðingurinn Steinar B. Aðalbjörnsson, en hann gagnrýnir markaðssetningu Aktív próteinbita og segir hana brjóta gegn reglugerðum.

Héraðsdómur heimilar nafnið Blær

Dómari við Héraðsdóm Reykjavíkur úrskurðaði nú fyrir stundu að leyfilegt er að nefna stúlkur nafninu Blær. Mannanafnanefnd hafði áður komist að því að nafnið sé karlmannsnafn. Úrskurðurinn var kveðinn upp að viðstöddu fjölmenni.

Þorkell Sigurbjörnsson látinn

Þorkell Sigurbjörnsson tónskáld lést í gær, 30. janúar, á líknardeild Landspítalans í Kópavogi, 74 ára að aldri. Þorkell var fæddur 16. júlí 1938, eitt átta barna biskupshjónanna Magneu Þorkelsdóttur og Sigurbjörns Einarssonar.

Fyrirsæta og sigurvegari í rallakstri

Inessa Tushkanova er engin venjuleg kona. Á milli þess sem hún vinnur rallýkeppnir situr hún fyrir nakin á forsíðu Playboy. Hún keppir reyndar ekki í heimsbikarnum í rallakstri en hefur unnið margar keppnir sem eru örlítið minni í sniðum og er brátt að hefja keppni í Finnish Rally Championship. Hún keppir á Mitsubishi Lancer Evo IX bíl, en á marga aðra frambærilega bíla í bílskúr sínum, svo sem Subaru WRX STI, BMW M6 með 10 strokka vél og nokkra aðra Lancer Evo bíla. Inessa er fædd í Úkraíunu en býr nú í Rússlandi, þar sem tækifærin eru stærri bæði hvað varðar rallakstur og fyrirsætustörf. Inessa hefur gengið til liðs við rallökuliðið PrintSport Racing sem vann finnsku rallmótaröðina á síðasta ári og því ætti hún að vera í góðum höndum. Spurð að því af hverju hún situr fyrir í Playboy á milli keppna sagði Inessa. "Engum líkar við kvenmenn í ökusporti, sem er svo til einokað af karlmönnum, vegna þess að kvenfólk á auðveldara með að fá kostunaraðila. Playboy hjálpar mér einmitt til þess" Allt fyrir betri árangur í uppáhaldsiðju hennar, rallýið. Það er greinilega ekki nóg með að Inessa sé góður ökumaður og gullfalleg fyrirsæta, heldur hefur hún nef fyrir viðskiptum. Markmið hennar eru heldur ekkert smá í sniðum, hún stefnir á að verða heimsmeistari í rallakstri og víst er að mörgum þætti ekkert leiðinlegt að hafa svo snoppufríðan meistara reglulega á síðum blaðanna.

Ökumenn teknir undir áhrifum áfengis og fíkniefna

Tveir ökumenn grunaðir um ölvun og tveir til viðbótar grunaðir um að aka undir áhrifum annarra fíkniefna voru stöðvaðir af lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu í nótt. Blóðsýni voru tekin á lögreglustöðinni og allir fengu að fara heim að skýrlustöku lokinni en mega þessir þó búast við að missa ökuréttindi og fá himinháa sekt.

Fyrsta áfanga í hernaði Frakka í Malí er lokið

Franski herinn hefur tryggt yfirráð sín yfir bænum Kidal í norðurhluta Malí. Þar með er fyrsta áfanganum náð í baráttu Frakka, og annarra þjóða, gegn íslamistum í Malí en Kidal var síðasta vígi þeirra í landinu.

Litlar líkur á tillögu um vantraust á stjórn

Ríkisstjórn Jóhönnu Sigurðardóttur hefur ekki haft þingmeirihluta síðan Róbert Marshall sagði sig úr þingflokki Samfylkingarinnar 11. október í fyrra. Síðan þá hefur hún því verið minnihlutastjórn.

Telja kannabis valda geðrofssjúkdómum

Mikil kannabisneysla getur orsakað og komið af stað einkennum geðrofssjúkdóma hjá ungu fólki. Því yngra sem fólk er þegar það byrjar að reykja kannabis þeim mun meiri líkur eru á því að það endi inn á geðdeild síðar meir. Þetta er mat og reynsla Andrésar Magnússonar, geðlæknis á Landspítalanum.

Útlent starfsfólk sent í próf

"Það er bara sjálfsagður hlutur að fara fram á að fólk tali málið,“ segir Guðný Guðmundsdóttir, framkvæmdastjóri hjúkrunar á Hjúkrunarheimilinu Skjóli, sem á síðustu dögum hefur sent starfsmenn af erlendu bergi brotna í stöðupróf í íslensku.

Endurskoða þarf kerfið allt

Sigur Íslands í Icesave-málinu er sigur lögfræðinnar og efnahagslegrar skynsemi. Hann sýnir fram á að innstæðutryggingakerfi gjörvallrar Evrópu er ófullnægjandi og þarfnast endurskoðunar.

Kosningaréttar kvenna minnst

Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir, forseti Alþingis, hefur lagt fram þingsályktunartillögu um hvernig eigi að minnast þess að árið 2015 verður öld liðin síðan konur fengu kosningarétt á Íslandi.

Veðsetti sama hlutinn tvisvar

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur ákært Jón Snorra Snorrason, lektor við viðskiptafræðideild Háskóla Íslands, fyrir skilasvik. Ákæran var þingfest á mánudag.

Vonbrigði hjá formanni SVFR

Veiðiréttareigendur í Norðurá í Borgarfirði höfnuðu því með yfirgnæfandi meirihluta í fyrrakvöld að ganga að tilboðum í útboði á leigurétti árinnar frá árinu 2014. Stangaveiðifélag Reykjavíkur, sem haft hefur ánna á leigu í 66 ár, átti einu tilboðin, 83,5 milljónir og 76,5 milljónir króna.

Holskefla kynferðisbrotamála

Árið 2013 bauð okkur velkomin með stærstu flóðbylgju mála er varðar kynferðisbrot gegn börnum sem sögur fara af á Íslandi. Eins og alþjóð veit hófst umræðan með umfjöllun Kastljóssins þann 7. janúar um Karl Vigni Þorsteinsson, sem játaði í þáttunum að hafa brotið kynferðislega á hátt í fimmtíu börnum á hálfrar aldar tímabili.

Sjá næstu 50 fréttir